Sögulegri skráningu SpaceX lokið Samúel Karl Ólason skrifar 12. júní 2026 15:31 Elon Musk, auðugasti maður heims, mun væntanlega auka auð sinn til muna í dag. AP/Matt Rourke SpaceX, geimferða- og tæknifyrirtæki Elons Musk, hefur verið skráð á markað vestanhafs eftir 75 milljarða dala hlutafjárútboð, sem var það stærsta í sögunni. Útboðið og skráning SpaceX gæti gert Musk, sem er fyrir auðugasti maður jarðarinnar og vel það, að fyrsta billjónamæringi heims (í dölum talið).
Félagið var skráð í kauphöll Nasdaq sem SPCX. Fyrirtækið hefur ekki enn skilað hagnaði en frá upphafi ársins 2025 til ársins 2026 tapaði það 8,7 milljörðum dala. Þrátt fyrir það hafa stærstu fjárfestingasjóðir heims lagt inn tilboð í stóra hluta þess hlutafjár sem var í boði. Mestar tekjur félagsins koma frá Starlink gervihnattaþyrpingunni og eru miklar vonir bundnar við gervigreindardeild þess og Grok. Hver hlutur kostaði 135 dali og var tilkynnt í gær að allir 555.555.555 hlutar sem voru í boði hefðu verið seldir, sem felur í sér að fyrirtækið er í heild metið, af forsvarsmönnum þess, á um 1,77 billjónir dala (tólf núll). Einhverjum greinendum þótti það allt of mikið. Þegar félagið var skráð kostaði hver hlutur þó 150 dali. Liftoff! First $SPCX trade complete 🚀— SpaceX (@SpaceX) June 12, 2026 Musk opnaði markaði vestanhafs í morgun með stuttu ávarpi. Þar grínaðist hann meðal annars með það að í upphafi átti hann frekar von á því að SpaceX myndi fara á hausinn. Þá sagði hann einnig að markmið fyrirtækisins væri að bjóða hverjum sem vildi að fara til tunglsins og jafnvel lengra út í sólkerfið. Musk var nýverið metinn af Wall Street Journal á um 970 milljarða dala og er stór hluti auðæfa hans bundinn við hlutabréf í SpaceX, eða um 538 milljarðar. Nú í morgun mátu greinendur Forbes auðæfi Musks á 983 milljarða dala. Þegar þetta er skrifað stendur auðurinn í 978 milljörðum. Hlutafjárútboðið þykir líklegra en ekki til að gera koma honum yfir þúsund milljarða dala múrinn og þar með gera hann að fyrsta billjónamæringi heims (í dölum talið). Sjá einnig: Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Forsvarsmenn fleiri fyrirtækja á sviði gervigreindar vinna hörðum höndum að því að koma þeim á markað. Næst á eftir SpaceX er Anthropic komið lengst í því ferli. Forsvarsmenn OpenAI vinna einnig að hlutafjárútboði og skráningu.
SpaceX Bandaríkin Elon Musk Gervigreind Mest lesið Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Sigmundur Davíð finnur fyrir sterkum öflum sem vinna gegn afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira