Klám

Fréttamynd

Klámáhorf ung­menna dregist veru­lega saman

Yfirgnæfandi hluti barna í 8. til 10. bekk í Reykjavík reykja ekki, neyta ekki marijúana og hafa ekki orðið ölvuð síðustu 30 daga. Þá hefur áhorf á klám dregist verulega saman síðustu tvö ár og meirihluta barna líður vel í skólanum.

Innlent
Fréttamynd

Nektar­myndir af Swift skapaðar af gervi­greind í dreifingu

Klámfengnar myndir af bandarísku poppstjörnunni Taylor Swift, sem skapaðar voru af gervigreind, dreifðust eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla á dögunum. Þingmenn í fulltrúadeild Bandaríkjanna hafa síðan gert ákall eftir löggjöf gegn fölsuðu myndefni af þessu tagi. 

Lífið
Fréttamynd

Klám­plága og kyn­ferðis­legt of­beldi tröll­ríður Akur­eyri

Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri, ætlar að óska eftir umræðu í bæjarstjórn um niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar. Í kjölfarið vill hún leggja fram tillögur um áætlun til að sporna við fótum gegn kynferðisofbeldi sem er algengara á Akureyri en annars staðar.

Innlent
Fréttamynd

Laut í lægra haldi eftir kyn­lífsskan­dal

Frambjóðandi Demókrataflokksins laut í lægra haldi í kosningum til fulltrúaþings Virginíuríkis sem fram fóru í gær, en þó með litlum atkvæðamun. Málið vekur sérstaka athygli vegna þess að kynlífsmyndbönd af frambjóðandanum og eiginmanni hennar hafa gengið manna á milli.

Erlent
Fréttamynd

Segja stóran hluta kláms sýna refsi­vert of­beldi gegn konum

Jafnréttisráð Frakklands segir allt að 90 prósent alls kláms á netinu sýna andlegt, líkamlegt og/eða kynferðislegt ofbeldi gegn konum. Þá er það í mörgum tilvikum svo alvarlegt að hægt væri að sækja menn til saka fyrir það samkvæmt frönskum lögum.

Erlent
Fréttamynd

Af klámi ertu kominn, að klámi skal sjálfið verða

Nýlega fóru á flug umræður um nýja hugtakanotkun, orðið „bónusgat.“ Orðið er á hugtakalista Jo's Cervical Cancer Trust í Bretlandi sem segir það vera annað orð yfir píku. Einnig má finna í sama hugtakalista orðið „framgat“ sem annað orð yfir píku. Er bent á að um sé að ræða orð sem skjólstæðingar sem eru trans eða kynsegin myndi mögulega vilja nota yfir píkuna sína.

Skoðun
Fréttamynd

„Al­mennt er mjög mikil á­nægja með þetta“

Veggspjöld um kynheilbrigði voru fjarlægð af veggjum grunnskóla í Kópavogi að beiðni foreldra ungra nemenda. Verkefnastýra hjá Reykjavíkurborg sér ekkert slæmt við það að yngri börn geti kynnt sér efnið á spjöldunum.

Innlent
Fréttamynd

Þarf ég í alvöru að ræða um klám við börnin mín?

Forvitni barna og unglinga um kynlíf er heilbrigð og eðlileg. Að leita í klám til að svala forvitni og áhuga um kynlíf er skiljanlegt, sem og að slysast óvart inn á slíkt efni í stafrænni veröld nútímans. En klámneysla er hins vegar ógn við kynheilbrigði ungs fólks. Það sýnir ekki raunveruleikann heldur getur þvert á móti stuðlað að ranghugmyndum um kynlíf og samskipti.

Skoðun
Fréttamynd

Vika6: Kynfræðsla eða klámfræðsla?

Þrátt fyrir að einhverjum þyki eflaust umræðan um kynlíf komin út fyrir öll mörk er mikilvægt að við fullorðna fólkið tökum höndum saman og ræðum við börnin okkar með þeim hætti að þau upplifi kynheilbrigði sem jákvæðan og mikilvægan þátt í eigin lífi.

Skoðun
Fréttamynd

Stígamót alfarið á móti því að afnema klámbann

Stígamót taka undir það að kominn sé tími til að endurskoða löggjöfina um klám enda nær hún illa utan um þann stafræna veruleika sem við búum við í dag. Samtökin eru hinsvegar alfarið á móti því að bann við klámi verði afnumið. Heldur þurfi að horfast í augu við það að klám er í raun stór ógn við lýðheilsu og jafnrétti og grípa til viðeigandi aðgerða.

Innlent
Fréttamynd

„Klám er ekki nei­kvætt fyrir­bæri í eðli sínu“

Meðlimir BDSM-félagsins á Íslandi telja núgildandi lög um klám algjörlega gagnslaus og í raun skaðleg, þar sem þau ýti undir jaðarsetningu kynlífsverkafólks og takmarki möguleika þeirra til þess að afla sér lífsviðurværis á öruggan og löglegan hátt.

Innlent
Fréttamynd

Þing­menn kasta á milli sín heitri klám­kar­töflu

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingmaður Pírata er fyrsti flutningsmaður frumvarps þar sem lagt er til að felld verði út refsiheimild almennra hegningarlaga vegna birtingar kláms á prenti, innflutnings þess í útbreiðsluskyni, sölu og útbýtingar eða annars konar dreifingar þess.

Innlent
Fréttamynd

Hvetja stjórn­völd til að hafna frum­varpi um af­nám banns við klámi

Kvenréttindafélag Íslands er ósammála því að öll refsiheimild er tengist klámi verði afnumin og hvetur stjórnvöld því til þess að hafna nýlegu frumvarpi. Félagið hvetur stjórnvöld til þess að hafna þessu frumvarpi og setja fjármagn bæði í rannsóknir og greiningarvinnu á klámi, sem og til þess að styðja við þolendur klámiðnaðarins.

Innlent
Fréttamynd

Endalaus hryllingur

Úkraínska þjóðin berst af mikilli hörku, dugnaði og þrautseigju fyrir lífi sínu og frelsi sínu. Hræðilegar árásir Rússa á Úkraínu ekki bara á hernaðarmannvirki heldur á almennaborgara, verslunarmiðstöðvar, sjúkrahús og leikvelli sýnir meiri grimmd og hrylling en hægt væri að ímynda sér.

Skoðun
Fréttamynd

Gríðar­leg eftir­spurn eftir kyn­ferðis­legu að­gengi að flótta­mönnum á netinu

Eftirspurn eftir kynferðislegu aðgengi að úkraínskum flóttamönnum á netinu hefur aukist gríðarlega undanfarið, meðal annars á Íslandi. Þeir sem stundi mansal nýti það til að þvinga varnarlaust fólk til kynlífsþrælkunar. Yfirmaður mansalsdeildar Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu segir íslensk stjórnvöld og lögreglu þurfa að vera á verði og beina athyglinni að netinu.

Innlent
Fréttamynd

Vilja afnema bann við klámi

Tveir þingmenn Pírata hafa lagt fram frumvarp um breytingu laga er varða bann við klámi á Íslandi. Þingmennirnir vilja að refsiheimild vegna birtingar þess, innflutnings, sölu útbýtingar eða annars konar dreifingar verði felld út.

Innlent
Fréttamynd

Hugleiðing um hold

Þegar ég renni yfir fréttamiðlana á netinu kíki ég stundum á Dv.is. Þar er að finna dálk sem tíundar hvað ýmsar samfélagsstjörnur hafa haft fyrir stafni dagana á undan. Flestar þessara stjarna reynast vera konur og margar hverjar býsna fáklæddar. Nú er ég ekki spéhrædd og hræðist ekki hold yfirleitt. Mín vegna má fólk ganga um nakið, og birta myndir af sér hálfnöktu, ef því líður vel þannig. Hins vegar vekja þessar myndir mig mjög til umhugsunar um hvað kann að liggja að baki sem og mögulegar afleiðingar.

Skoðun
  • «
  • 1
  • 2