Innlent

Klámáhorf ung­menna dregist veru­lega saman

Lovísa Arnardóttir skrifar
Hvað varðar samfélagsmiðla kemur fram í rannsókninni að helmingur stelpna ver þremur klukkustundum eða meira af frítíma sínum daglega á samfélagsmiðlum og 28 prósent stráka í tölvuleiki.
Hvað varðar samfélagsmiðla kemur fram í rannsókninni að helmingur stelpna ver þremur klukkustundum eða meira af frítíma sínum daglega á samfélagsmiðlum og 28 prósent stráka í tölvuleiki. Vísir/Getty

Yfirgnæfandi hluti barna í 8. til 10. bekk í Reykjavík reykja ekki, neyta ekki marijúana og hafa ekki orðið ölvuð síðustu 30 daga. Þá hefur áhorf á klám dregist verulega saman síðustu tvö ár og meirihluta barna líður vel í skólanum.

Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem nefnist Ungt fólk og fjallar um hagi og líðan barna og unglinga sem Rannsókn & greining framkvæmdi síðastliðið haust.

Margrét Lilja Guðmundsdóttir, sem kynnti niðurstöðurnar fyrir starfsfólki Reykjavíkurborgar, segir þær mjög góðar hvað margt varðar og þau sem hafa látið sig málið varða megi vera stolt af árangrinum.

„Niðurstöður Ungt fólk rannsóknanna hafa verið nýttar í nærumhverfi barna til að taka á því sem betur má fara, ekki eingöngu til að sporna gegn vímuefnaneyslu barna heldur nú einnig til að takast á við nýjar áskoranir líkt og nikótín- og koffínneyslu, andlega vanlíðan, skjátíma, það að börnin okkar fái nægan nætursvefn og svo lengi mætti áfram telja,“ segir Margrét Lilja en eitt af því sem kom fram í niðurstöðunum er að neysla áfengis og maríjúana hefur ekki aukist að neinu marki þrátt fyrir ótta um að annað og reykingar eru að hverfa í þessum aldurshópi.

Börn sem sýni áhættuhegðun ekki svarað?

Þó kemur fram í tilkynningu borgarinnar um niðurstöðurnar að þótt svo að þær séu jákvæðar hafi þau áhyggjur af þeim börnum sem ekki hafi svarað og að í þeim hópi séu börn sem sýni hvað mesta áhættuhegðun.

Þá kemur fram að þeim börnum hefur fækkað sem segja foreldra sína algjörlega mótfallna því að þau neyti áfengis. Í tilkynningu borgarinnar segir að það bendi til þess að taumhald foreldra hafi saknað.

Helstu áhyggjuefnin samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar snúa að skjátíma, nætursvefni, samfélagsmiðlum, koffíndrykkjum og nýjum tegundum nikótínneyslu.

 Neysla orkudrykkja er áhyggjuefni.Vísir

Í tilkynningu borgarinnar segir að þrátt fyrir árangur hvað varði svefn unglinga þurfi að vinna betur að því. Niðurstöðurnar sýna að þau sem segjast drekka orkudrykki daglega og eru mikið á samfélagsmiðlum séu líklegri til að sofa minna.

Líka jákvæðar niðurstöður

Það sem jákvætt er í niðurstöðunni er að 94 prósent unglinga í 8. til 10. bekk segja auðvelt að fá umhyggju og hlýju frá foreldrum sínum og 82 prósent segja auðvelt að eiga samræður um persónuleg málefni við foreldra sína. Þá segir að foreldrar virðist heldur setja reglur um útivistartíma en hvað þau geri, heima eða annars staðar.

Þá segja 66 prósent prósent unglinganna segja að þeim líði vel í skólanum, 78 prósent líður vel í frímínútum og í hádegishléinu. Þá telja þau námið mikilvægara eftir því sem styttra er eftir af grunnskólagöngunni.

Alls stund 59 prósent íþróttir eða líkamsrækt fjórum sinnum eða oftar í viku. 58 prósent taka þátt í skipulögðu tómstunda- og íþróttastarfi vikulega eða oftar og 35 prósent mæta vikulega eða oftar í félagsmiðstöð.

Færri horfa á klám en fyrir þremur árum. Getty

Hvað varðar samfélagsmiðla kemur fram í rannsókninni að helmingur stelpna ver þremur klukkustundum eða meira af frítíma sínum daglega á samfélagsmiðlum og 28 prósent stráka í tölvuleiki.

Hlutfall þeirra sem aldrei skoða klám hefur hækkað verulega og farið úr 21 prósent drengja árið 2021 í 46 prósent drengja árið 2023. Hjá stúlkum hefur hlutfallið hækkað úr 58 prósent í 82 prósent.

Eins hefur hlutfall þeirra sem hafa verið beðin um að senda ögrandi mynd af sér eða nektarmynd lækkað töluvert þó enn segi 44 prósent stúlkna hafa fengið slíka beiðni og 12 prósent stráka. Sömuleiðis hefur hlutfall þeirra sem hafa sent slíka mynd af sér minnkað talsvert.

Börn í 5. til 7. bekk

Lykiltölur barna í 5. til 7. bekk í Reykjavík sýna að 67 prósent þeirra eiga marga vini í skólanum og 65 prósent segjast oft eða stundum fá hrós frá kennaranum sínum. Um 23 prósent segja námið oft eða alltaf vera skemmtilegt.

„Við sjáum í niðurstöðum að bæði börnin á miðstigi sem og á unglingastigi meta námið síður mikilvægt og í því sambandi er gott að við fullorðna fólkið lítum í eigin barm. Að við skoðum hvernig við tölum um námið heima, hvernig fjallað er um skólann og námið í fjölmiðlum og hvort við séum að hvetja börnin okkar áfram í námi líkt og við getum til dæmis þegar kemur að íþrótta- og tómstundaiðkun barnanna okkar,“ segir Margrét Lilja.

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar verja börn í 5. til 7. bekk einnig töluverðum tíma á samfélagsmiðlum og segjast 18 prósent þeirra verja meira en þremur klukkustundum þar á dag. Um 24 prósent verja meira en þremur klukkustundum í tölvuleiki.

Stór hluti, eða 95 prósent segjast eiga auðvelt með að fá hlýju og umhyggju frá foreldrum sínum og 98 prósent líður oftast vel heima hjá sér. Um helmingur eða 51 prósent æfa íþróttir fjórum sinnum eða oftar í viku, 29 prósent stunda tónlistarnám einu sinni eða oftar í viku og 24 prósent taka þátt í félags- eða tómstundastarfi að minnsta kosti einu sinni í viku

Rannsókn og greining framkvæmdi rannsóknina í tólf sveitarfélögum haustið 2023 og var svarhlutfall í 8. til 10. bekk 84 prósent og 86 prósent í 5. til 7. bekk.

Hægt er að kynna sér niðurstöðurnar betur á vef borgarinnar.


Tengdar fréttir

Átta ára börn velti fyrir sér hugtökum úr ofbeldisfullu klámi

Kynfræðslukennarar í grunnskóla segja að strax í þriðja bekk séu börn búin að sjá hluti á samfélagsmiðlum og á netinu sem þarfnist útskýringa. Það sé gert með fræðslu. Umdeild kynfræðslubók fyrir 7-10 ára börn var til umræðu í Pallborðinu á Vísi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×