

Ragnheiður Gunnarsdóttir, eigandi Kisukots á Akureyri, segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti við heilbrigðiseftirlit Norðurlands og stjórnsýslu Akureyrarbæjar.
Kötturinn Njáll hefur verið ráðinn inn í þjónustuver Póstsins. Njáll mun aðstoða þjónustuverið við að leysa úr vandamálum viðskiptavina en hann er svokallað spjallmenni.
Ragnheiður Gunnarsdóttir, forstöðukona Kisukots á Akureyri, hefur ekki mikla trú á því að fyrirhugað bann við lausagöngukatta innan bæjarfélagsins verði að veruleika.
„Sum sveitarfélög halda kattaskrá. Ekki öll birta hana á netinu. En það gerir Blönduós og nú langar mig að heimsækja allar kisurnar á Blönduósi. Myndi byrja hjá Snöru Snar.“
Dýralæknafélag Íslands segist harma ákvörðun Akureyrarbæjar um að banna lausagöngu katta innan bæjarfélagsins en þetta kemur fram í ályktun sem var send á bæjarstjórn Akureyrarbæjar.
Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að banna lausagöngu katta í bæjarfélaginu frá 1. janúar 2025. Bæjarfulltrúi minnihlutans gagnrýnir að málið hafi ekki verið rætt almennilega og segir það hafa verið mögulegt að koma í veg fyrir bann.
Meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að banna lausagöngu katta í bænum frá 1. janúar 2025. Eva Hrund Einarsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lagði fram tillögu þess efnis sem samþykkt var af sjö bæjarfulltrúum eftir langar umræður. Fjórir voru á móti.
Matvælastofnun hefur opnað netspjall og reiknivél til að auðvelda einstaklingum undirbúning innflutnings hunda og katta. Frá þessu er greint á vef MAST.
Kötturinn Narfi er fundinn. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir það að fjögur ár eru síðan hann lét sig hverfa út um glugga í Hlíðunum. Eigandinn er í skýjunum, þótt kötturinn hafi óneitanlega elst um nokkur ár.
Skjöldur er risa köttur á heimili í Keflavík sem er rúmlega einn metri á lengd og tólf kíló á þyngd. Eigandinn segir að þrátt fyrir stærð kattarins sé hjartað hans mjög lítið enda Skjöldur feimin og inn í sig.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna mikils reyks í íbúð í austurborg Reykjavíkur í nótt. Kviknað hafði í einhverju sem hafði verið lagt á eldavél sem heimiliskötturinn er grunaður um að hafa kveikt á.
Í nýlegu áliti kærunefndar húsamála segir að íbúum fjölbýlishúss í Reykjavík sé óheimilt að hafa ketti í húsinu vegna ofnæmis íbúa.
Köttur nokkur á varla fleiri en átta líf eftir, ef svo má segja, eftir að hann féll fram af stúkubrún á leik í bandaríska háskólaruðningnum. Stuðningsmenn björguðu honum með því að láta hann falla á bandaríska fánann.
Einn frægasti köttur landsins er fastagestur í Skeifunni og státar af þúsundum aðdáenda á Facebook. Borið hefur á því að fólk geri sér sérstaka ferð í Skeifuna til að berja stjörnuna augum.
Kötturinn Birta er einn öflugasti plokkari landsins. Hún fyllir um tvo ruslapoka í hverjum mánuði og hefur hlotið styrk frá umhverfissamtökunum Bláa hernum.
Ísey Gréta Þorgrímsdóttir og fjölskylda syrgja kött sinn Gretti þessa stundina, eftir að hann fannst dauður í runna á Nýbýlavegi í fyrradag.
Svo virðist sem hópur unglingspilta hafi tekið sig til og kastað ketti fyrir bíl á Nýbýlavegi seint í gærkvöldi. Kristinn Ólafur Smárason lýsir atvikinu í Facebook-hópnum Íbúar Digranesi og tilkynnti það til lögreglu.
Gríðarleg eftirspurn hefur verið eftir gæludýrum í faraldrinum og hafa margir reynt að verða sér úti um málleysingja til að létta lundina í samkomubanni.
Stjórnendur Kattholts hafa áhyggjur af aukinni sölu á kettlingum í gróðaskyni, sem komið gæti niður á velferð dýranna. Í Kattholti eru nú fimm veikir kettlingar í sóttkví en móður þeirra var bjargað úr kettlingamyllu á höfuðborgarsvæðinu.
Það féll aurskriða inn í íbúðina hennar, kötturinn týndist, bíllinn bilaði og hún veiktist en stóð samt uppi sem sigurvegari í mikilvægum fótboltaleik í Garðabæ í gærkvöld. Þetta er ekki handrit að bíómynd heldur vika í lífi Bryndísar Rutar Haraldsdóttur.
Enn fleiri tilvik hafa komið upp þar sem eitrað er fyrir köttum í Heiðargerði. Íbúar í götunni og dýraverndunarsamtökin Dýrfinna hafa tekið málið í eigin hendur.
Eigandi kattar sem eitrað var fyrir í vikunni segir annan kattaeigenda hafa tilkynnt sér um eitrun.
„Þegar kettirnir eru komnir í búrin sem ég er að ná fuglunum í til að merkja og sleppa þá er eiginlega komið nóg. Þá er mælirinn fullur.“
Kötturinn Smigly hvarf frá eigendum sínum í Reykjavík fyrir átta árum síðan. Í gær fannst hann í garði á Akranesi og er hann nú kominn í hendur gömlu eigenda sinna.
Sjálfboðaliðar Villikatta ætluðu ekki að trúa eigin augum þegar kattareigandi gerði tilkall til læðu sem var í umsjá félagsins. Tásla týndist árið 2009 og var eigandinn búinn að gefa upp alla von um að sjá hana aftur. Það breyttist þegar ljósmynd Villikatta af kunnuglegum ketti birtist óvænt í fréttaveitunni hennar á Facebook.
Rannsakendur á Bretlandseyjum hafa fundið tvö tilvik þar sem eigendur smituðu kettina sína af SARS-CoV-2. Í báðum tilvikum voru eigendurnir með einkenni Covid-19 þegar kettirnir smituðust. Þeir sýndu sömuleiðis einkenni sjúkdómsins.