Héðan og þaðan

Fréttamynd

Stormur í vatnsglasi

„Ég held að þetta sé stormur í vatnsglasi, ef ég á að segja eins og er,“ segir Gísli Ásgeirsson, veiðiáhugamaður og stjórnarformaður Lax ehf. Vísar hann þar til áhyggna af því að alþjóðlegi auðmannaklúbburinn Everlands ætli að sölsa undir sig laxveiðiár hér á landi og loka fyrir aðgengi annarra en meðlima klúbbsins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nýr forstjóri fer fyrir útrás Símans

Sævar Freyr Þráinsson, nýr forstjóri Símans, segir spennandi tíma fram undan hjá félaginu. Hann nefnir meðal annars stóraukið samstarf við hugbúnaðarrisann Microsoft og áætlanir um að ná leiðandi markaðsstöðu í Bretlandi og á Norðurlöndunum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Punga út milljón fyrir fjármálafötin

„Það væri bókstaflega asnalegt ef margir væru í eins fötum í mötuneytinu," segir einn viðmælenda Markaðarins um fataval fólks í fjármálageiranum. Heimildarmaðurinn, líkt og fjölmargir sem Markaðurinn ræddi við, forðaðist að koma fram undir nafni um fataval og fatakaup sín. Nokkrir sögðust eyða hálfri til einni milljón króna í föt og fylgihluti á ári.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sparisjóðirnir ná aftur fyrsta sætinu

Ánægja viðskiptavina íslenska bankakerfisins hefur aukist frá því í fyrra. Þetta sýna niðurstöður íslensku ánægjuvogarinnar á bankamarkaði sem birtar voru á mánudag. Þetta er í fyrsta sinn frá því mælingar á ánægjuvoginni hófust árið 1999 sem ánægjan eykst milli ára. Hún mælist nú 72,6 stig og er hærri en síðustu tvö ár.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Útrásin eykur álagið

Starfsemi Fjármálaeftirlitsins (FME) erlendis hefur stóraukist á innan við tveimur árum samfara útrás íslenskra fjármálafyrirtækja. Fjármálafyrirtækin starfa nú í tuttugu og einu landi en fyrir aðeins tveimur árum voru löndin tólf. Starfsemin fer ýmist fram í útibúum, dóttur­félögum eða á umboðsskrifstofum. FME fylgist með þessari starfsemi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hvíld frá amstri fjármálaheimsins

Frá blautu barnsbeini hefur Helga Hlín Hákonardóttir, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs hjá Saga Capital Fjárfestingarbanka, verið viðloðandi vélhjól. Sem krakki lék hún sér á vélsleðum og fjórhjólum og hún var ekki lengi að fá sér mótorhjólapróf um leið og hún hafði aldur til.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lífsstíll fremur en áhugamál

Í hátt í tuttugu ár hefur Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis Green Energy, stundað hestamennsku af miklu kappi. Hann kynntist henni sem unglingur í sveit og keypti sér sinn fyrsta hest þegar hann var ekki nema sextán ára. „Hestamennskan var mér alltaf mjög nærri, þrátt fyrir að mitt fólk vissi ekki hvað sneri fram og hvað aftur á hestum. Hún togaði hins vegar alltaf í mig, allt frá þessum tíma.“

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Engin kreppa á toppnum

Á meðan sala á „venjulegum“ bílum dregst saman eykst sala á bílum sem kosta yfir fimm milljónir króna. Bílasalar merkja engan samdrátt í eftirspurn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Er hæstánægður með höfuðstöðvarnar

Einar Einarssson, forstjóri Marel Food Systems í Bandaríkjunum, var hæstánægður með nýju höfuðstöðvarnar þegar hann settist niður með Jóni Aðalsteini Bergsveinssyni á meðan viðskiptavinir virtu fyrir sér nýjustu tækin frammi í sýningarsalnum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

AppliCon gullvottað

Þýski hugbúnaðarframleiðandinn SAP hefur veitt fyrirtækinu AppliCon gullvottun, en af um þrjátíu samstarfsfyrirtækjum SAP á Norðurlöndum hafa aðeins tvö náð þeim áfanga áður.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nýir í stjórn Seed Forum

Skipt var um stjórnarformann í Seed Forum á Íslandi auk þess sem þrír nýir stjórnarmenn komu inn á aðalfundi félagsins á fimmtudag í síðustu viku. Seed Forum velur og þjálfar íslensk nýsköpunar- og frumkvöðla­fyrirtæki til að kynna sig fyrir fjárfestum hér heima og erlendis.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Samið um samstarf vegna Kaupþings

Fjármálaeftirlitið (FME) og Kredittilsynet í Noregi hafa gert með sér samning um samstarf vegna starfsemi útibús Kaupþings í Noregi. Í tilkynningu FME kemur fram að ástæða samningsins sé að Kaupþing hafi sótt um aðild að innistæðutryggingasjóði norskra banka, en það sé gert til að tryggja að viðskiptavinir bankans í Noregi njóti sömu innistæðutryggingar og viðskiptavinir norskra innlánsstofnana.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bankar í krísu

Mjög hefur dregið úr millibankalánum evrópskra fjármálafyrirtækja, að sögn breska vikuritsins Economist í vikunni. Blaðið segir ástæðuna mikla óvissu á fjármálamarkaði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stór markmið hjá Straumi

Með innri vexti og fyrirtækjakaupum ætla stjórnendur Straums að skapa leiðandi fjárfestingarbanka í Norður- og Mið-Evrópu fyrir árið 2010. William Fall, forstjóri Straums, kynnti leiðirnar að því marki á blaðamannafundi á mánudag.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nýr forstjóri stýrir fjöreggi Marel Food Systems

Sigsteinn P. Grétarsson hefur verið ráðinn forstjóri Marels ehf., einnar af fjórum meginstoðum Marel Food Systems. Forstjórinn segir þessa einingu fyrirtækisins fjöreggið sem hafi sinnt nýsköpun í matvælavinnslu frá fyrstu tíð. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson ræddi við Sigstein um starfið hjá Marel og þýðinguna sem samþætting og skipulagsbreytingar hjá fyrirtækinu fela í sér.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Greiða allan hagnaðinn út til hluthafa

Íslensk verðbréf er sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem er starfrækt á Akureyri og fagnar tuttugu ára afmæli um þessar mundir. Eggert Þór Aðalsteinsson ræddi við Sævar Helgason, framkvæmdastjóra ÍV, sem segir markið sett á að eignir í stýringu fari yfir 100 milljarða á árinu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fasteignatoppinum náð

Samdráttur á fasteignamarkaði einskorðast ekki við Bandaríkin því vísbendingar eru um að nú hægi á fasteignamarkaði í Bretlandi. Breska dagblaðið Tele­graph segir fasteignaverð í Lundúnum hafa lækkað um 0,1 prósent á milli mánaða í ágúst en þetta mun vera fyrsta verðlækkun ársins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Íslandsdeild útskriftarnema London Business School

Stofnaður hefur verið London Business School Alumni Club Ice­land, sem nefna mætti Íslands­deild útskriftarnema LBS. Stofnfundur fór fram í Þjóðmenningarhúsinu í síðustu viku að viðstöddum hagfræðingnum Sir James Ball og eiginkonu hans Lady Lindsay Ball, auk hóps fyrrum nemenda skólans héðan.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Betware nemur land á Spáni

Undirritaður hefur verið samningur íslenska hugbúnaðar- og þjónustufyrirtækisins Betware og Spænska ríkislottósins um að Betware þjónusti lottóið á sviði gagnvirkra leikja. Samningurinn er gerður við STL (Sistemas Técnicos de Loterías del Estado) sem er að fullu í eigu ríkislottósins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Glitnisáheit SOS til Sómalíu

SOS-barnaþorpin hafa ákveðið að senda þá fjármuni sem safnast vegna Reykjavíkurmaraþons Glitnis, sem fram fer næsta laugardag, til Sómalíu. Þrjátíu og átta einstaklingar hafa skráð sig í mara­þonið með það að markmiði að safna fé handa SOS-barnaþorpunum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Samskip auka siglingar innan Evrópu

Siglingar Samskipa milli Zeebrugge í Belgíu og hafna í Skandinavíu og Eystrasaltslöndunum, með viðkomu í Rotterdam og á Bretlandseyjum, hefjast 17. ágúst næstkomandi. Um er að ræða vikulegar áætlunarsiglingar og aukast með þeim nokkuð umsvif í Evrópusiglingum félagsins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Eik Group kaupir fyrirtæki í Danmörku

Eik Group hefur fest kaup á fjárfestingarráðgjafarfyrirtækinu Privestor Fondsmæglerselskab A/S og tímaritinu Tidsskriftet FinansNyt A/S. Eik Banki er skráður á markað í Kauphöllinni hér, en það er Eik Bank Danmark A/S sem samið hefur um kaupin á fyrirtækjunum tveimur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Enginn nýgræðingur í bankaheiminum

Birna Einarsdóttir, sem nýverið tók við starfi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Glitnis á Íslandi, hefur lengi verið viðriðin fjármálaheiminn. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir hitti Birnu að máli og fékk að heyra sögur úr bankanum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kapítalskt nirvana

The Guardian segir Moskvuborg hafa náð enn einum áfanganum á leiðinni að kapítalísku algleymi, eða nirvana eins og það heitir upp á ensku. Samkvæmt nýrri könnun er hvergi í veröldinni meiri hagnaður af hótelrekstri heldur en einmitt í Moskvu, þar sem hagnaður á fyrri helmingi árs nam 12.650 krónum á hvert herbergi að meðaltali.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Skattar hvetji fremur en letji til vinnu

Edward C. Prescott, Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, segir Ísland eiga þess kost að vera fyrirmynd ríkjum beggja vegna Atlantshafsins. Óli Kristján Ármannsson sat ráðstefnu Félagsvísindastofnunar í síðustu viku þar sem Prescott sagði Bandaríkin helst geta lært af lífeyriskerfi okkar og Evrópulönd af stefnu í skattamálum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Dýrkeypt flóð

Flóðin í Englandi munu verða breskum tryggingafélögum dýrkeypt. Samkvæmt frétt á vef BBC mun kostnaðurinn sem fellur á þau vegna flóðanna í júní og júlí ekki verða undir tveimur milljörðum punda. Það nemur um 245 milljörðum íslenskra króna.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Sauðárkrókur ljósleiðaravæddur

Nái markmið Gagnaveitu Skagafjarðar fram að ganga verður Sauðárkrókur að fullu ljósleiðaravæddur árið 2009. Í fréttatilkynningu frá Gagnaveitunni segir að Sauðárkróki hafi verið skipt upp í fjögur verksvæði í drögum að framkvæmdaáætlun; Túnahverfi, Hlíðahverfi, syðribæ og útbæ.

Viðskipti innlent