
Bylgjan

Bylgjulestin tók þátt í Bíladögum - myndaveisla
Bylgjulestin var í góðum félagsskap á aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar við Hlíðarfjall um liðna helgi þar sem Bíladagar fóru fram.

Stefán nýr útvarpsstjóri Sýnar
Stefán Valmundarson hefur verið ráðinn útvarpsstjóri Sýnar. Hann mun stýra starfsemi útvarpsstöðvanna Bylgjunnar, FM957, X977, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar og hlaðvarpsveitunnar TAL.

Fjögurra daga bongóblíða í vændum
Sigurður Þ. Ragnarsson, eða Siggi Stormur veðurfræðingur, segir fjögurra daga bongóblíðu í vændum á stærstum hluta landsins. Hann spáir þó blautum þjóðhátíðardegi en segir ekkert fast í hendi.

Bylgjulestin verður í stuði á Bíladögum á Akureyri
Bylgjulestin heldur för sinni áfram um landið og næsti viðkomustaður er Akureyri þar sem Bylgjan verður í beinni frá Bíladögum á laugardaginn milli kl. 12 og 16.

Erlendir ríkisborgarar rúmlega helmingur atvinnulausra
Atvinnuleysi minnkaði um 0,2 prósentustig milli mánaða og mældist atvinnuleysi 3,7 prósent í maímánuði, samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar. Um 54 prósent fólks á atvinnuleysisskrá eru erlendir ríkisborgarar. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir erfiðara að koma erlendu fólki aftur í vinnu.

Myndaveisla frá Hveragerði þar sem Bylgjulestin var í beinni
Fyrsti viðkomustaður Bylgjulestarinnar í sumar var Hveragerði en þar kom hún sér vel fyrir síðasta laugardag innan um fjölda góðra gesta og hlaupara sem tóku þátt í utanvegahlaupinu Hengill Ultra Trail sem fór fram dagana 6. og 7. júní.

Ævintýralega flóknar útskýringar á framtaksleysi og leti
„Þetta er mjög algengt vandamál,“ sagði klíníski félagsráðgjafinn Theodór Francis Birgisson í viðtali við Bylgjuna í morgun þegar rætt var um áskoranir í parasamböndum og þá sérstaklega framtaksleysi og leti hjá öðrum aðila sambandsins.

Evrópusambandið, rétttrúnaður og endurskoðun veiðiráðgjafarinnar
Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni klukkan tíu þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti.

Bylgjulestin brunar af stað inn í sumarið
Bylgjulestin rúllar af stað í sitt árlega ferðalag en hún verður á ferðinni um allt land í sumar. Fyrsta stopp er Hveragerði þar sem Hengill Ultra hlaupið fer fram.

Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu
Söngkonan Svala Björgvinsdóttir hefur sent frá sér nýja útgáfu af laginu Himinn og jörð, einu þekktasta dægurlagi Íslandssögunnar. Lagið samdi Gunnar Þórðarson árið 1981 og textann skrifaði Þorsteinn Eggertsson. Það varð vinsælt í flutningi Björgvins Halldórssonar – föður Svölu – og hefur síðan skipað sér sess sem klassík meðal íslenskra ástalaga.

Segir ljóst að Víðir hafi brotið stjórnsýslureglur: „Það er verið að kaupa sér vinsældir“
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir að Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður allsherjarnefndar, hafi brotið stjórnsýslureglur með afskiptum sínum af máli Oscars. Hann segir að málið sé enn eitt dæmið um að þingmenn kaupi sér vinsældir með lögbrotum.

Borðaði súrdeigsbrauð og mældist með áfengi í útblæstri
Íslenskur maður um fertugt var stoppaður af lögreglu í vikunni og mældist með alkóhól í útblæstri þrátt fyrir að hafa aldrei drukkið deigan dropa. Ástæðan fyrir þessu var súrdeigsbrauð sem maðurinn hafði nýlega lagt sér til munns. Lögreglumaður segir að slíkar falskar mælingar komi fyrir en séu ekki algengar.

Hefur lést um níu kíló eftir hjartaáfallið: „Maður vaknar svolítið við þetta“
Skemmtikrafturinn Hjálmar Örn Jóhannsson hefur tekið mataræðið og lífsstílinn algjörlega í gegn eftir alvarlegt hjartaáfall sem hann fékk í marsmánuði. Hann hefur lést um níu kíló á síðustu tæplega þremur mánuðum. Hann segir að áfallið hafi líka látið vini hans hugsa sinn gang og gera breytingar á sínum lifnaðarháttum.

„Það er bara dýrt að vera fátækur“
Verulegar bikblæðingar hafa verið um land allt í hlýindunum undanfarna daga. Framkvæmdastjóri Colas á Íslandi segir að ástæðuna megi rekja til þess að á Íslandi sé allt bundið slitlag meira og minna lagt með ódýrustu aðferðinni, klæðningu. Sú aðferð henti vel þar sem umferð er lítil en hún dugi ekki lengur til víða um land.

Staðan í hagkerfinu og alþjóðamálin
Sprengisandur er á sínum stað klukkan tíu þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti.

„Þetta er framar okkar björtustu vonum“
Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka segir að eftirspurn almennings í nýafstöðnu útboði á eftirstandandi hlutum ríkisins í bankanum hafi verið fram úr þeirra björtustu vonum. Tilkynnt verður um það í fyrramálið hverjir fá hvaða hlut, en hann telur ólíklegt að fagfjárfestar fái úthlutun vegna gífurlegrar eftirspurnar almennings, sem eru í forgangi.

Hækka þurfi veiðigjald í skrefum
Breytingar á veiðigjaldi þurfa að eiga sér stað í skrefum og með samtali. Sjávarútvegurinn er tilbúinn í umræðu um hækkun þess með slíkum hætti segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi
Sprengisandur er á sínum stað klukkan tíu þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti.

Bakaríið í beinni útsendingu
Þau Ása Ninna og Svavar Örn heilsa hlustendum Bylgjunnar og áhorfendum Vísis þennan laugardagsmorguninn í morgunþættinum Bakaríið.

Moskítóflugur muni koma til Íslands
Gísli Már Gíslason fyrrverandi prófessor í líffræði segir að moskítóflugur sem hafast við í Skandinavíu og á Bretlandseyjum geti vel lifað á Íslandi, en þær hafi bara ekki borist hingað til lands enn sem komið er. Hann segir að flugurnar laðist að líkamslykt, sérstaklega lyktinni sem kemur af fótum.

Njósnamálið, hræringar í evrópskum stjórnmálum og fjárhagur borgarinnar
Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni klukkan tíu þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti.

Boðar brottfararstöð fyrir hælisleitendur
Dómsmálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp í haust um brottfararstöð fyrir hælisleitendur sem hafa fengið synjun um dvalarleyfi en fara ekki sjálfviljugir úr landi. Hún segir óboðlegt og ómannúðlegt að fangelsi landsins séu yfirfull af hælisleitendum sem bíði brottvísunar.

Bensínverð rjúki upp en fari hægt niður
Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir að bensín- og olíuverð á Íslandi hafi tilhneigingu til þess að fara hratt upp en hægt niður. Heimsmarkaðsverð á olíu hafi lækkað um fjögur prósent á síðasta mánuði en meðalverð á Íslandi lækkað um 0,9 prósent á sama tíma.

Hafa vísað hundrað leigubílstjórum á brott frá flugstöðinni vegna brota á reglum
Upplýsingafulltrúi Isavia segir að loka hafi þurft fyrir aðgang um hundrað leigubílstjóra að Keflavíkurflugvelli í lengri og skemmri tíma. Frá og með 1. maí verður fastur starfsmaður á leigubílasvæðinu við flugstöðina á háannatíma til að aðstoða farþega og tryggja að skilmálum flugvallarins sé fylgt.

Lofar betra sumri en í fyrra
Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur, sem er betur þekktur sem Siggi Stormur, segir að engar líkur séu á því að sumarið verði jafn kalt og blautt eins og í fyrra. Hann segir að ekkert í langtímaspánum gefi tilefni til að ætla að sumarið verði slæmt.

Hafði mikla þörf fyrir að láta aðra sjá að hún væri spes týpa
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fór yfir ævi sína og störf í ítarlegu viðtali við Auðun Georg Ólafsson. Þar segir hún frá uppeldi sínu í Breiðholtinu, unglingsárunum og hvernig hún tók ung við móðurhlutverkinu.

Mælir með því að tala við gervigreind sem sálfræðing
„Er hægt að spyrja hana að öllu?“ er spurning sem margir spyrja sig að þegar kemur að gervigreind. „Já, í raun og veru, þetta er eins og leitarvél á sterum”. Þetta segir Guðjón Már Guðjónsson, oftast kenndur við Oz, sem var gestur Bakarísins á Bylgjunni síðasta laugardag. Sjálfur notar Guðjón gervigreindina daglega og bæði í leik og starfi.

Hættumat, Grænland, auðlindagjöld og gervigreind í Sprengisandi
Sprengisandur er á sínum stað klukkan tíu þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti.

Olíuvinnsla á Drekasvæðinu geti staðið undir rekstri ríkisins í tuttugu ár
Heiðar Guðjónsson, fjárfestir og fyrrverandi formaður Eykon Energy ehf., segir að mögulegar skatttekjur ríkisins af olíuvinnslu á Drekasvæðinu geti numið allt að þrjátíu og þrjú þúsund milljörðum króna. Hann kveðst engan skilning hafa á sjónarmiðum umhverfisráðherra sem segir það ekki á dagskrá að fara aftur í olíuleitarútboð.

„Kynjafræði er pólitísk í eðli sínu“
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir að kynjafræði sé pólitísk í eðli sínu, og furðar sig á því að látið sé eins og hún sé að einhverju leyti hlutlaus þegar menn eru að innleiða róttæka kynjafræði á svið skólanna, eins og hann orðar það. Hann segir gífurlegan fjölda fólks hafa komið að máli við sig og þakkað honum fyrir að ræða þessi mál.