Leikskólar

Þróun leikskólastarfsins; Tímamótaskref í leikskólum Hafnarfjarðar
Framsókn í Hafnarfirði hefur síðan í upphafi síðasta kjörtímabils lagt áherslur á að endurskoða þurfi starfsumhverfi í leikskólum frá grunni, m.a. með tilliti til vinnuaðstæðna, skilgreiningu á leikskóladeginum, hávaðamengunar, fermetrafjölda á skilgreindu leiksvæði og barngilda.

Heimgreiðslur, mannekla í leikskólum og viðbrögð skólayfirvalda vegna skólaforðunar
Næstu mál okkar Flokks fólksins í borgarstjórn 7. febrúar snúa annars vegar að tillögu um heimgreiðslu vegna alvarlegra manneklu í leikskólum og langs biðlista og hins vegar að umræðu um orsakir skólaforðunar og viðbrögð skólayfirvalda og fagfólks skóla þegar barn glímir við skólaforðun.

Landsréttur sneri sýknu vanhæfa dómarans við
Landsréttur hefur dæmt Reykjavíkurborg til að greiða fyrrverandi starfsmanni skaðabætur vegna blöðruboltaslyss. Landsréttur hafði áður sýknað borgina en einn dómara við Landsrétt var talinn vanhæfur vegna þess að hann var borgarlögmaður þegar slysið var tilkynnt til embættisins. Málið rataði til Hæstaréttar og svo aftur til Landsréttar, sem hefur nú komist að annarri niðurstöðu.

Farsæld til framtíðar
Hvernig búum við börn og ungmenni best undir lífið sem bíður þeirra? Hvaða veganesti kemur sér best fyrir æsku landsins? Hvaða ábyrgð bera skólar landsins, kennarar, frístundaheimili og frístundafulltrúar í þeim efnum?

„Strákar hjálpa til á bóndadaginn“
Bóndadagur er í dag og þorrinn þar með hafinn. Börn á leikskólanum Laugasól fengu í tilefni þess að smakka ýmsar kræsingar, líkt og hákarl, lundabagga og sviðasultu.

Öll vötn falla til Hafnarfjarðar
Það hefur lengi legið ljóst fyrir að löngu er orðið tímabært að stíga það skref að stilla af starfstíma leik- og grunnskóla. Kennarar á leikskólastiginu hafa undanfarin ár valið í of miklum mæli að kenna á grunnskólastiginu.

Foreldrar að bugast
Í dag, 17. janúar, var umræða í borgarstjórn að beiðni borgarfulltrúi Flokks fólksins um manneklu í leikskólum. Mannekla í leikskólum er langvarandi vandamál í Reykjavík sem meirihlutinn hefur ekki getað leyst.

Heimgreiðslur fyrir hafnfirska foreldra
Góð þjónusta við barnafjölskyldur er mikilvæg til að bæjarfélag vaxi og dafni í takt við þróun samfélagsins. Í Hafnarfirði er lögð rík áhersla á góða þjónustu við bæjarbúa bæði unga sem aldna og er val íbúa um fjölbreyttar leiðir þar mikilvægt.

Foreldrar bíða svara: Segja Safamýrina eins og lestarstöð fulla af iðnaðarmönnum
Ellefu vikur eru nú liðnar frá því að foreldrum barna í leikskólanum Hlíð var tilkynnt að flytja þyrfti starfsemina vegna myglu. Foreldrafélag leikskólans líkir leikskólaplássi í Safamýri, þar sem hluta barnanna var komið fyrir, við kalda lestarstöð fulla af iðnaðarmönnum. Foreldrar óska eftir fundi með skóla- og frístundasviði ásamt eignaskrifstofu borgarinnar.

Vinnueftirlitið hefur farið í 253 athuganir í leikskóla frá 2015
Frá árinu 2015 hefur Vinnueftirlitið farið í 253 vettvangsathuganir í leikskóla á landinu til að sinna eftirlitshlutverki sínu á grundvelli laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Í 27 tilvikum voru gerðar athugasemdir vegna vinnurýmis starfsfólks.

Þurftu að halda börnum inni vegna mengunar
Mengun hefur fjölmörgum sinnum farið yfir heilsuverndarmörk í dag og hefur mengunarský legið yfir borginni.

Mygla hefur greinst í um þrjátíu skólabyggingum og búist er við aukningu
Mygla hefur komið upp í um þrjátíu grunn-og leikskólum í Reykjavík. Nú síðast í þremur leikskólum en færa þarf starfsemi tveggja þeirra í annað húsnæði. Sviðsstjóri segir borgina í átaki og telur að fleiri skólar bætist í hópinn.

„Við verðum að leyfa kerfinu að fá aðeins að anda“
Mannekla er helsta áskorunin þegar kemur að uppbyggingu leikskólakerfisins í Reykjavík að sögn borgarfulltrúa Samfylkingarinnar en fjölmargir leikskólakennarar hafa flutt sig yfir í grunnskólana. Formaður Félags leikskólakennara segir leikskólastigið ekki ráða við mikið meira og að kerfið hafi stækkað allt of hratt. Jafna þurfi starfsaðstæður, til að mynda með styttingu vinnuvikunnar.

Ár uppbyggingar og mikilla áskorana
Árið 2022 hefur verið ár mikillar uppbyggingar í borginni en líka fordæmalausra skakkafalla sem hafa seinkað fyrirætlunum um bætta þjónustu. Hvergi hefur þetta birst með eins skýrum hætti og í leikskólamálunum þar sem fleiri nýir leikskólar opnuðu en nokkru sinni fyrr en að sama skapi fækkaði til muna nýtanlegum plássum í leikskólum vegna viðhaldsframkvæmda og vinnu við að fjarlægja rakaskemmdir og myglu.

Beitir þú ofbeldi?
Fyrir mörgum árum ég eyddi kvöldstundum í spjalli með einstakling sem ég trúði að væri sammála mér, spjallið fór oft út í þá sálma hvað fólk sem beitti ofbeldi væri hræðilegt, þessi einstaklingur hafði stór orð um það hvað þau ættu skilið svartholið. Líklega átti það ekki við hann þegar „stóri dómurinn“ féll og Litla Hraun varð vistarveran í nokkur ár eftir hrottalegt og gróft ofbeldi á fjölskyldumeðlim.

Minnisblað varpar ljósi á óróleika og óánægju vegna Grandaborgar
Leikskólastjóri Grandaborgar, Helena Jónsdóttir, hefur dregið uppsögn sína til baka en uppsögnin vakti nokkurn kurr meðal starfsmanna og foreldra. Þrír starfsmenn í 2,5 stöðugildum sögðu upp störfum í kjölfar uppsagnar leikskólastjórans.

Landslagið í leikskólamálum Reykjavíkurborgar ólgar
Mönnunarvandi borgarinnar er rótgróinn og vel þekktur, sömu sögu má segja um launamálin og nú upp á síðkastið hefur vandræðalegri stöðu ýmissa leikskólabygginga verið gerð nokkuð góð skil.

Tveggja ára stal senunni í umræðu um leikskólamál
„Flautið. Það var bíll. Þeir voru með dekk. Já. Þau voru að keyra svo hratt. Já. Ætti hann að keyra hægar? Nei.“ Á þessum nótum talaði senuþjófurinn Víðir Ágúst tveggja ára í viðtali sem átti að vera við móður hans Albínu Huldu Pálsdóttur í Íslandi í dag á miðvikudag.

„Ég var ekki að eignast barn til að láta einhvern annan vera með það“
Foreldrar sem rætt var við í Íslandi í dag voru á einu máli um að lengra fæðingarorlof væri heillaskref og að þar mætti ganga enn lengra, enda vilji margir hafa börn sín lengur hjá sér áður en þau eru látin á leikskóla. Fólki leist misvel á að fá heimagreiðslur fyrir að vera heima með börnin.

„Að fólki skuli detta þetta til hugar er að mínu viti skammarlegt“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar fer hörðum orðum um ákvörðun Reykjavíkurborgar að draga saman seglin í leikskólamálum, meðal annars með því að fækka starfsfólki og skera niður í skólamáltíðum. Viðtal við Sólveigu má sjá hér í innslaginu að ofan og hefst á níundu mínútu.