Árás á bandaríska þinghúsið

Vilja sprengja þinghúsið og drepa þingmenn
Starfandi yfirmaður lögreglu Bandaríkjaþings segir öfgamenn sem komu að árásinni á þinghúsið þann 6. janúar, hafa rætt sín á milli um að sprengja þinghúsið í loft upp og drepa eins marga þingmenn og þeir gætu. Það vilji þeir gera þegar Joe Biden flytur fyrstu stefnuræðu sína til þingsins.

Trump hellti sér yfir McConnell: „Önug og fýld pólitísk bikkja“
Það verður ekki annað sagt en að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafi látið Mitch McConnell, leiðtoga Repúblikana, í öldungadeild Bandríkjaþings, heyra það í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gærkvöldi.

Trump og Giuliani kærðir af þingmanni vegna árásarinnar
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur verið kærður fyrir alríkisdómstóli vegna árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar. Kæran var lögð fram af Bennie Thompson, þingmanni Demókrataflokksins.

Setja á fót nefnd til að rannsaka árásina á þinghúsið
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hefur greint frá því að til standi að þingið komi á fót óháðri rannsóknarnefnd sem ætlað verður að kafa ofan í saumana á atburðarásinni í og við þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar síðastliðinn. Þá réðst æstur múgur inn í þinghúsið og fimm létust, þar af einn lögregluþjónn.

Parler snýr aftur eftir að hafa verið sparkað af internetinu
Samfélagsmiðilinn Parler er kominn aftur í loftið um mánuði eftir að Amazon og aðrir tæknirisar kipptu fótunum undan miðlinum í kjölfar árásarinnar á bandaríska þinghúsið.

Trump-lestin rúllar áfram en þingmenn vilja frekari rannsóknir
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sem var sýknaður af ákæru um embættisbrot um helgina, er enn með sterkt tak á Repúblikanaflokknum þó hann komi ekki óskaddaður frá málinu.

Sýkna Trumps áminning um að lýðræðið er brothætt
Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að sýkna Donalds Trumps, fyrrverandi forseta, í ákæru um embættisbrot sé áminning um að lýðræði sé brothætt. Hann segir að þrátt fyrir sýknuna sé alvarleiki málsins ekki deiluefni.

Segir möguleika að Trump verði stefnt fyrir dóm þrátt fyrir sýknuna
Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, sagði í kvöld að Donald Trump fyrrverandi forseti sé ábyrgur fyrir árásinni sem gerð var á bandaríska þinghúsið þann 6. janúar.

Trump sýknaður
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur verið sýknaður af ásökunum um embættisbrot.

Hætta við að kalla til vitni
Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur ákveðið að hætta við að kalla til vitni í réttarhöldum deildarinnar yfir Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Þannig hefur verið komið í veg fyrir að réttarhöldin dragist á langinn og er nú búist við að niðurstaða fáist í málið á næstu dögum.

Öldungadeildin kallar til vitni í réttarhöldunum
Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti fyrir skömmu að kalla til vitni í réttarhöldum deildarinnar yfir Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Trump er ákærður fyrir embættisbrot.

Leiðtogi Repúblikana sagður ætla að greiða atkvæði gegn sakfellingu Trumps
Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, ætlar að greiða atkvæði gegn sakfellingu Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í réttarhöldum deildarinnar yfir Trump sem standa nú yfir.

Lögmenn Trumps saka Demókrata um hræsni
Lögmenn Donalds Trumps, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem flytja mál hans fyrir öldungadeild Bandaríkjanna vegna ákæru um embættisbrot, segja Demókrata herja hatursherferð gegn fyrrverandi forsetanum. Þeir segja þá hafa snúið út úr orðum forsetans fyrrverandi sem hann lét falla fyrir árásina sem gerð var á bandaríska þinghúsið í byrjun árs.

Lögmenn Trumps ljúka málflutningi sínum á morgun
Verjendur Donalds Trumps, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í réttarhöldunum yfir honum í öldungadeild Bandaríkjaþings, segjast ætla að klára málflutning sinn á morgun, föstudag. Það þýðir að lögmannateymi hans mun aðeins nýta sér tæpa tvo daga til þess að flytja mál sitt fyrir þinginu.

Ræða það að stofna nýjan flokk vegna Trumps
Tugir manna sem starfað hafa innan Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum íhuga nú að stofna nýjan flokk. Ástæðan er sú að þeir eru ósáttir við tak Donalds Trumps á Repúblikanaflokknum og það að forkólfar flokksins þori ekki að standa í hárinu á forsetanum fyrrverandi.

Bein útsending: Þriðji dagur réttarhaldanna yfir Trump
Þriðji dagur réttarhaldanna gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, stendur nú yfir í öldungadeild Bandaríkjaþings.

Réttarhöldin gegn Trump: Segja Trump hafa vitað í hvað stefndi
Sækjendur fulltrúadeildar Bandaríkjaþings vörðu fyrsta kvöldi málflutnings síns í að færa rök fyrir því að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefði sigað stuðningsmönnum sínum á þingið þann 6. janúar.

Bein útsending: Annar dagur réttarhaldanna gegn Trump
Annar dagur réttarhaldanna gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, fer nú fram í öldungadeild Bandaríkjaþings. Réttarhöldin byrjuðu klukkan fimm að íslenskum tíma og munu bæði sækjendur og verjendur flytja opnunarræður sínar fram á kvöld.

Trump sagður mjög ósáttur við frammistöðu verjenda sinna
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er sagður hafa verið allt annað en sáttur við frammistöðu verjenda sinna á fyrsta degi réttarhaldanna yfir honum í gær í öldungadeild Bandaríkjaþings.

Réttarhöldin gegn Trump: Sex Repúblikanar greiddu atkvæði með Demókrötum
Réttarhöldin gegn Donald Trump í öldungadeild Bandaríkjaþings fara ekki gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna. Það er niðurstaða meirihluta þingmanna deildarinnar eftir atkvæðagreiðslu sem fór að mestu eftir flokkslínum.