Höttur

Umfjöllun og viðtal: Keflavík-Höttur 71-62 | Keflavík lengdi taphrinu Hattar
Keflavík og Höttur mættust fyrr í kvöld í níundu umferð Subway-deildar karla í körfubolta. Höttur byrjaði betur og leiddi eftir fyrsta leikhluta 8-19 en Keflavík náði yfirhöndinni undir lok annars leikhluta og var yfir 29-27 í hálfleik. Hattarmenn gáfust ekki upp og náðu að halda sér í leiknum fram í seinni hluta fjórða leikhluta en Keflavík vann að lokum níu stiga sigur 71-62.

Umfjöllun og viðtöl: Höttur - Grindavík 87-91 | Baráttusigur Grindavíkur á Egilsstöðum
Grindvíkingar komu sér aftur á sigurbraut í úrvalsdeild karla í körfuknattleik með 87-91 sigri á Hetti á Egilsstöðum í kvöld. Grindvíkingar voru fastir fyrir í vörninni og héngu sem hundar ár roði á forustu sinni í lokin.

Körfuboltakvöld ekki sammála Viðari Erni: „Stundum að horfa inn á við, ekki alltaf á einhverja aðra“
Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, var ósáttur með ritaraborðið í leik Vals og sinna manna í Subway deild karla. Körfuboltakvöld fór yfir síðustu mínútu leiksins til að komast að því hvort Viðar Örn hefði eitthvað fyrir sér.

„Margrét er heiðarleg kona frá Eskifirði og við verðum að treysta henni að sinni“
Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, var skiljanlega svekktur eftir tap gegn toppliði Vals í Subway-deild karla kvöld. Hann getur þó verið ánægður með margt í leik sinna manna.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Höttur 80-79 | Meistararnir mörðu nýliðana
Íslandsmeistarar Vals mörðu nauman þriggja stiga sigur er liðið tók á móti nýliðum Hattar í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 82-79. Valsmenn sitja nú einir á toppi deildarinnar eftir sigurinn.

Umfjöllun: Höttur - Stjarnan 89-92 | Stjarnan marði Hött í framlengingu
Stjarnan komst aftur á skrið eftir tvo tapleiki í röð með að vinna Hött á Egilsstöðum í kvöld og stöðvaði þar með þriggja leikja sigurgöngu heimamanna. Stjarnan knúði fram sigur í framlengingu eftir að Höttur hafði unnið upp forskot á lokamínútu venjulegs leiktíma.

Umfjöllun og viðtöl: KR-Höttur 72-83 | Höttur hafði betur í fimmta leiknum sínum í röð
Höttur lagði KR að velli 72-83 þegar liðin áttust við í fimmtu umferð Subway-deildar karla í körfubolta í DHL-höllinni í Vesturbænum í kvöld.

Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 73-69 | Annar deildarsigur Hattar í röð
Höttur vann fjögurra stiga sigur á Tindastól 73-69. Þetta var annar sigur Hattar í röð í Subway deildinni. Leikurinn var jafn nánast allan leikinn en Höttur steig upp í fjórða leikhluta á meðan gestirnir misstu dampinn.

Viðar í banni í kvöld vegna háttsemi sinnar
Viðar Örn Hafsteinsson fær ekki að stýra Hetti í leiknum við Tindastól í kvöld vegna þeirra orða sem hann lét falla eftir tapið gegn Njarðvík, í Subway-deild karla í körfubolta fyrir tveimur vikum.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Höttur 89-91 | Fyrsti sigur Hattar í Subway deildinni
Höttur fór til Þorlákshafnar og vann Þór Þorlákshöfn 89-91. Leikurinn var afar spennandi á síðustu mínútunum en Höttur var í bílstjórasætinu og náði að halda þetta út sem skilaði sigri. Þetta var annar sigur Hattar á Þór Þorlákshöfn í röð þar sem liðin mættust í bikarnum síðustu helgi. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

„Óttinn við að tapa er hættur að vera yfirgnæfandi“
Höttur vann Þór Þorlákshöfn í 3. umferð Subway deildar-karla 89-91. Þetta var fyrsti sigur Hattar á tímabilinu og var Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, afar kátur eftir annan sigurinn á Þór Þorlákshöfn í röð.

„Hann segir það sem kemur upp í hugann og enginn annar þorir að segja“
Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, gagnrýndi dómarana harðlega í viðtali við Stöð 2 Sport eftir eftir tap Hattar gegn Njarðvík í Subway-deildinni síðasta fimmtudag. Rætt var um dómgæsluna í leiknum og Viðar sjálfan í Subway Körfuboltakvöldi í gær.

Verið sýnd nógu mikil vanvirðing til að búið sé að kveikja í okkur
Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar í Subway deild karla í körfubolta, sagði sitt lið aðeins hafa vantað ögn upp á að klára leik kvöldsins en hans menn töpuðu naumlega fyrir Njarðvík í kvöld. Hann var hins vegar allt annað en ánægður með dómara leiksins.

Umfjöllun og viðtöl: Höttur-Njarðvík 86-91 | Gestirnir sterkari á lokasprettinum
Njarðvík landaði sínum fyrsta sigri í úrvalsdeild karla í körfuknattleik á leiktíðinni í kvöld þegar liðið lagði Höttur 86-91 á Egilsstöðum. Gestirnir sigu fram úr á lokasprettinum.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Höttur 98-92 | Haukar höfðu betur í einvígi nýliðanna
Það var himinn og haf milli fyrri og seinni hálfleiks Hauka. Höttur spilaði frábærlega í fyrri hálfleik þar sem hvert þriggja stiga skotið á fætur öðru fór ofan í og voru gestirnir níu stigum yfir í hálfleik.Haukar keyrðu yfir Hött í þriðja leikhluta. Gestirnir komu til baka í fjórða leikhluta en það dugði ekki til og Haukar fögnuðu sex stiga sigri 98-92.

Viðar: Höfðum ekki trú og þor til að fara alla leið
Höttur tapaði í Ólafssal gegn Haukum 98-92. Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, var afar svekktur með þriðja leikhluta sem gerði útslagið.

Körfuboltakvöld um liðin: „Held að það sé alveg raunhæfur draumur“
Tindastólsmenn voru hársbreidd frá því að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á síðasta tímabili en bjuggu til eitt mesta ævintýri körfuboltasögunnar með því að fara frá því að vera í tómu tjóni um mitt tímabil í því að fara alla leið í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn.

Keflavík spáð sigri en Hetti og ÍR falli
Keflavík endar í efsta sæti Subway-deildar karla í körfubolta en Höttur og ÍR falla niður í 1. deild, samkvæmt árlegri spá fyrirliða, þjálfara og formanna félaganna tólf í efstu deild.

KR semur við fyrrum leikmann Hattar
KR-ingar staðfestu í dag komu bandaríska bakvarðarins Michael Mallory til félagsins.

Nýliðarnir fá reynslubolta frá Spáni
Nýliðar Hattar hafa samið við leikstjórnandan Obie Trotter um að leika með liðinu á komandi leiktíð í Subway-deild karla í körfubolta. Trotter kemur frá HLA Alicante á Spáni.

Höttur komið í efstu deild á nýjan leik
Höttur frá Egilsstöðum tryggði sér í kvöld sæti í Subway-deild karla í körfubolta á næstu leiktíð. Hattarmenn lögðu Álftanes 99-70 og unnu þar með einvígi liðanna um sæti í efstu deild örugglega 3-0.

Höttur einum sigri frá sæti í Subway-deildinni
Höttur frá Egilsstöðum er nú aðeins einum sigri frá sæti í Subway-deild karla í körfubolta eftir góðan níu stiga útisigur gegn Álftanesi í kvöld, 94-85.

Höttur 2-0 yfir gegn Fjölni | Jafnt hjá Álftanesi og Sindra
Úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta hélt áfram í kvöld. Höttur er komið 2-0 yfir gegn Fjölni eftir öruggan sigur i Dalhúsum í kvöld. Þá jafnaði Álftanes metin gegn Sindra.

Höttur og Sindri komin í 1-0
Höttur og Sindri fögnuðu sigri á heimavelli þegar úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta hófst með tveimur spennandi leikjum í kvöld.

Haukar, Höttur og Álftanes með fullt hús stiga
Fimm leikir fóru fram í 1. deild karla í körfubolta í kvöld. Haukar, Höttur og Álftanes hafa öll unnið báða leiki sína í upphafi móts, en Hamar, Skallagrímur og ÍA eru enn í leit að sínum fyrsta sigri.

Spenntur fyrir að fara á Egilsstaði eftir að hafa búið nánast alla ævina í Njarðvík
Einar Árni Jóhannsson segir að þeim Viðari Erni Hafsteinssyni hafi lengi rætt um það að starfa saman. Það gerist á næsta tímabili en Einar Árni hefur verið ráðinn þjálfari Hattar við hlið Viðars.

Einar Árni þjálfar Hött með Viðari
Einar Árni Jóhannsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Hattar í körfubolta til næstu þriggja ára.

„Ég held að hann sé aldrei að fara að spila í 1. deildinni“
Sérfræðingarnir í Domino´s Körfuboltakvöldi veltu fyrir sér í hvaða leikmenn Hattar og Hauka hin liðin munu hringja nú þegar Höttur og Haukar spila ekki í Domino´s deildinni næsta vetur.

Viðar Örn: Eins og íslenskt rallý á móti Formúlu 1
Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, segir það mikil vonbrigði að liðinu hafi ekki tekist að halda sæti sínu í úrvalsdeild karla í körfuknattleik. Liðið féll í kvöld eftir 62-74 tap í lokaumferðinni gegn Keflavík.

Umfjöllun og viðtöl: Höttur - Keflavík 62-74 | Seigla Keflavíkur felldi Hött
Höttur er fallinn úr úrvalsdeild karla í körfuknattleik eftir 62-74 tap gegn deildarmeisturum Keflavíkur á Egilsstöðum í kvöld. Keflavík nýtti skot sín í seinni hálfleik en tilraunir Hattar geiguðu.