Húsavernd

Elsta svæði Vopnafjarðar staðfest sem verndarsvæði
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest Plássið í miðbæ Vopnafjarðarkauptúns sem verndarsvæði í byggð að fenginni tillögu Vopnafjarðarhrepps

Kartöflugeymsla orðin að menningarhúsi Selfyssinga
Selfyssingar hafa nú eignast sitt eigið menningarhús en það er 73 ára gömul grænmetis- og kartöflugeymsla, sem hefur verið breytt í glæsilegt húsnæði undir fjölbreytt menningarstarf. Magnús Hlynur var viðstaddur formlega opnun hússins.

Fá ekki að rífa og endurbyggja Hvítabandið
Eigendur Hvítabandsins, húss við Skólavörðustíg 37, óskuðu eftir breytingu á deiliskipulagi til að rífa húsið og endurbyggja með sama útliti nema með viðbættum kjallara og nýrri útfærslum á kvistum. Skipulagsfulltrúi hafnaði þeirri ósk vegna menningarlegs, sögulegs og listræns gildis hússins.

Langhæsti húsafriðunarstyrkurinn til Landakotskirkju
Níu milljóna króna styrkur sem Landakotskirkja fær er sá langhæsti sem veittur var úr húsafriðunarsjóði Minjastofnunar í ár, meira en helmingi hærri en næsthæsti styrkurinn. Norræna húsið og verkamannabústaðirnir við Hringbraut eru á meðal verkefna sem hlutu styrki úr sjóðnum.

Óákveðið hvort Sunnutorg verði óbreytt eftir framkvæmdir
Ekki liggur fyrir hvort sögufrægt útlit hússins við Sunnutorg verði óbreytt eftir fyrirhugaðar framkvæmdir. Framkvæmdastjóri Veraldarvina segir það heiður að taka við verkefninu á Sunnutorgi þar sem fyrirhugað er að opna kaffihús og fræðslumiðstöð um umhverfismál.

Veraldarvinir ætla að byggja upp Sunnutorg
Reykjavíkurborg mun gera húsaleigu- og uppbyggingarsamning við félagasamtökin Veraldarvini um hið sögufræga Sunnutorg á Langholtsvegi 70. Húsið verður endurbyggt í upprunalegri mynd og mun meðal annars hýsa fræðslustarf í umhverfismálum.

Arnhildur hlaut umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs
Arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir hlaut umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs að þessu sinni fyrir þverfaglega nálgun og áherslu á minnkaða kolefnislosun og endurnýtingu byggingarefnis.

Með húsaflutninga á heilanum
Guðlaug Vilbogadóttir fornleifafræðingur segir ótrúlegt hve Íslendingar hafa verið öflugir að flytja hús landshluta á milli fyrir tíma krana- og flutningabíla. Guðlaug er með húsaflutninga á heilanum og skráir samviskusamlega niður sögu hvers hússins á fætur öðru, og gætir þess að eiginkona húseigenda sé tiltekin hverju sinni.

Arnhildur tilnefnd til verðlauna
Arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir hlýtur tilnefningu til Umhverfisverðlauna Norðurlandsráðs 2024 fyrir þverfaglegt samstarf og fókus á endurvinnanlegt byggingarefni. Alls eru átta tilnefningar og verðlaunin verða afhent í Reykjavík í haust.

Óttast mikinn skaða sem seint yrði fyrirgefinn
Fastagestur Sundhallar Reykjavíkur segir að boðaðar viðgerðir á innilaug feli í sér „ófyrirgefanlegan skaða“ á hönnun Guðjóns Samúelssonar. Forstöðukona Sundhallarinnar skilur áhyggjur fastagesta en segir breytingarnar nauðsynlegar.

Grátbiðja borgarstjórana um að bjarga „einstæðu listaverki Guðjóns“
Fastagestir og velunnarar Sundhallarinnar í Reykjavík biðla til borgarstjóra um að falla frá fyrirhuguðum breytingum á einni merkustu byggingu borgarinnar. Listaverki Guðjóns Samúelssonar eins og þeir komast að orði.

Innlit inn í furðuhúsið sem gleypti Grillið
Furðulegt hús, sem risið hefur ofan á Hótel Sögu í stað Grillsins sögufræga, er aðeins til bráðabirgða. Inni í húsinu er verið að endurreisa Grillið í upprunalegri mynd eftir að miklar skemmdir komu í ljós á byggingunni sem fyrir var.

Leggjast gegn álklæðningu á tveimur hliðum Laugalækjarskóla
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur lagst gegn umsókn byggingarfulltrúa borgarinnar þar sem sótt er um leyfi til að klæða suðausturgafl og suðvesturhlið Laugalækjarskóla með sléttri álklæðningu. Er vísað í að að setja klæðningu á hús þar sem ekki hafi verið gert ráð fyrir henni í upphafi hafi oft neikvæð áhrif á útlit húss. Þannig geti helstu stíleinkenni tapast.

Hætt komin hönnunarperla
„Þá hefi ég lent í höfuðborginni. Margt hefur breyst síðan ég kom hingað fyrir fjórum árum. Straumlínulaga og nýtískuleg funkis-hús setja nú svip sinn á bæjarlífið. Mér finnst eitthvað stórborgar menningarlegt við að sjá hve stundvísi bæjarbúa hefir aukist“ skrifaði vestfirðingur í dagbók sína árið 1936 undir teikningu af framtíðarspá hans fyrir Reykjavík.

Reyna aftur að fá rekstraraðila í Sunnutorg
Reykjavíkurborg hefur auglýst eftir samstarfsaðila og leigutaka sem er með hugmynd að rekstri og nýtingu Sunnutorgs, eins helsta kennileitis Laugardalsins.

Friðlýsir Skrúð og staðfestir verndarsvæði í byggð á Ísafirði
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði í á föstudag friðlýsingu vegna Skrúðs í Dýrafirði. Þá staðfesti ráðherrann að Neðstikaupstaður og Skutulsfjarðareyri á Ísafirði verði sérstakt verndarsvæði innan sveitarfélagsins.

„Það er alveg ljóst að fólk vill hafa þessa stöð hérna“
Lagt er til að fjórar bensínstöðvar í Reykjavík verði verndaðar, samkvæmt nýrri skýrslu Borgarsögusafns - sem gæti haft áhrif á fyrirhugaða uppbyggingu á lóðunum. Stöðvarstjóri á Ægisíðu, einni af stöðvunum fjórum, segir ljóst að Vesturbæingar vilji halda bensínstöðinni á sínum stað.

Gamli bærinn á Blönduósi hefur tekið lygilegum breytingum
Þeir sem fara um og skoða sig í gamla bænum á Blönduósi þekkja varla gamla bæinn lengur því það er búið að gera upp og endurbyggja svo mikið af húsum á staðnum. Kirkjunni hefur til dæmis verið breytt í glæsilega hótesvítu.

Ræða um stofnun brugghúss í sögufrægu húsi á Djúpavogi
Eigendur útgerðarinnar Goðaborgar vilja koma á fót brugghúsi og ölstofu í sögufrægu húsi á Djúpavogi. Húsið kallast Faktorshús og er hátt í tvö hundruð ára gamalt.

Vaskar konur safna fyrir endurbótum á Riishúsinu á Borðeyri
Vaskur hópur kvenna hefur rekið kaffihús og markað í Riishúsinu á Borðeyri við Hrútafjörð á Ströndum í sumar og safna með því fé til reksturs og endurbyggingar hússins. Í dag búa aðeins tíu íbúar á Borðeyri.

„Það er verið að eyða litríkum húsum Reykjavíkur“
Íbúi í Reykjavík kveðst vera dauðþreyttur á fjölgun húsa og annarra bygginga í borginni sem málaðar eru í gráum og öðrum dökkum litum. Hann segist óttast að borgin sé að missa einkennismerki sitt; fjölbreytta liti ólíkra húsa.

Niðurrif Kató sagt óumhverfisvænt og tillitsleysi við menninguna
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti í dag að auglýsa deiliskipulag sem felur í sér að rífa húsið sem Hafnfirðingar þekkja sem Kató. Íbúi Hafnarfjarðar segir ríkjandi sýn bæjaryfirvalda á skipulagsmálum ekki taka tillit til menningar, sögu og umhverfismála.

Rífa niður Egilsstaði og endurbyggja í miðbænum
Húsið Egilsstaðir hefur verið í eigu Hveragerðis síðan árið 1937. Nú stendur til að rífa húsið niður og endurbyggja það í miðbæ Hveragerðis til þess að gera pláss fyrir viðbyggingu Grunnskólans í Hveragerði.

Þarf að aflétta friðun Melaskóla til að leysa mygluvanda til lengri tíma
Langbesta leiðin til þess að leysa raka- og mygluvandamál í Melaskóla kallar á að friðun á ytri hjúp hússins verði aflétt. Reykjavíkurborg stefnir að því að kynna grófa áætlun um endurbætur á skólanum í vor.

Vilja aðstoð við að endurbyggja sögufrægt hús í Vík í Mýrdal
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur óskað eftir samstarfi við ríkið til að byggja upp Halldórsbúð í Vík. Þar var starfrækt fyrsta verslun bæjarins en stefnt er að því að reka þar stofnun fræða eða þekkingarsetur.

Borða svið til styrktar endurbyggingu „elstu vegasjoppu landsins“
Íbúar á Hvammstanga og nærsveitum munu koma saman til sérstakrar sviðamessu á laugardag þar sem ágóðinn mun renna til endurbyggingar á Norðurbraut, sem lýst hefur verið sem elstu vegasjoppu landsins.

Lóðirnar sem hljóta fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar 2022
Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2022 voru veittar við hátíðlega athöfn í Höfða í dag, miðvikudaginn 19. október. Reykjavíkurborg veitir árlega viðurkenningar fyrir fallegar stofnana- , fyrirtækja- og fjölbýlishúsalóðir og fyrir vandaðar endurbætur á eldri húsum.

Íbúar ósáttir við stöðu Sunnutorgs: „Þetta er lýti á hverfinu“
Íbúi í Laugardal segir Sunnutorg eitt mesta lýti hverfisins en húsið hefur staðið autt um árabil. Meirihluti íbúa vilji húsið burt í núverandi mynd en aðgerðarleysi borgarinnar sé algjört.

Munu reisa Angró á nýjum stað í bænum
Til stendur að reisa sögufræga húsið Angró á Seyðisfirði á nýjum stað í bænum eftir að það féll saman í óveðrinu um helgina. Múlaþing vinnur nú að því í samvinnu við Minjastofnun að undirbúa aðgerðir á svæðinu en það hefur lengi staðið til að flytja húsið á nýjan stað.

Um Sigurfara, Blátind, Aðalbjörgina og Maríu Júlíu
Um síðustu helgi var haldið áhugavert málþing um tréskipasmíði og bátavarðveislu. Fundarmenn voru sammála um mikilvægi þess að varðveita handverkið í trébátasmíðinni, meðal annars vegna þess að súðbyrðingurinn er komin á heimsminjaskrá UNESCO. Sú staðreynd ein og sér leggur brýna skyldu á stjórnvöld að leggja rækt við hann.