Innlent

Fréttamynd

Lítið heillegt eftir bruna

Nánast ekkert heillegt var að finna í íbúðinni sem brann við Rósarima í gær. Eldurinn er talinn hafa kviknað út frá eldavélarhellu.

Innlent
Fréttamynd

Konur þriðjungur manna á Vogi

Konur voru tæplega þriðjungur þeirra 17.512 sem höfðu innritast á meðferðarsjúkrahúsið Vog í árslok 2004. Áttatíu prósent allra sem fóru í meðferð fóru þrisvar sinnum eða sjaldnar.

Innlent
Fréttamynd

Sökuð um byggðaeyðingarstefnu

Opinberum störfum við stjórnsýslu fjölgaði um tólf prósent á landsbyggðinni og um tvö prósent á höfuðborgarsvæðinu á fimm ára tímabili. Þetta kom fram í máli forsætisráðherra á Alþingi í dag þegar hann svaraði ásökunum um að ríkisstjórnin stæði fyrir byggðaeyðingarstefnu.

Innlent
Fréttamynd

Ríkið hækkar álögur á bensín

"Það nær í raun ekki nokkurri átt að ætla sér að hækka bensíngjaldið á þessum tímapunkti," segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðareigenda. Fram kemur í nýrri samgönguáætlun að gjald það sem ríkið leggur á hvern lítra bensíns mun hækka um 6 til 7 prósent þann fyrsta júlí.

Innlent
Fréttamynd

Úrvalsvísitala yfir 4000 stig

Úrvalsvísitalan náði nýju hámarki í dag þegar hún fór í fyrsta sinn yfir fjögur þúsund stig. Það sem af er ári hefur hún hækkað um nærri tuttugu prósent og enn er talið svigrúm til hækkunar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sat á barnaskýrslu í tvö ár

Forsætisráðuneytið sat á skýrslu nefndar um málefni barna og ungmenna í tvö ár. Til snarpra orðaskipa kom á Alþingi í dag og var forsætisráðherra sakaður um að ræða málefni fjölskyldunnar og barna bara fyrir kosningar og á tyllidögum. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að ýmislegt bendi til þess að kynferðislegt ofbeldi gegn börnum sé stórum útbreiddara en álitið hefur verið hingað til og að nærri fimmta hvert barn hafi orðið fyrir því.

Innlent
Fréttamynd

Þökkuðu fyrir björgun sjómanna

Samskip færðu Sjóbjörgunarstöð Færeyja rúmlega eina milljón króna að gjöf í hófi sem haldið var í Þórshöfn í Færeyjum til að minnast eins árs starfsafmælis skrifstofu Samskipa þar. Það var Knútur G. Hauksson, forstjóri Samskipa, sem afhenti Joen Jakob Jakobsen, formanni Sjóbjörgunarstöðvarinnar, gjöfina sem þakklætisvott fyrir þeirra þátt í björgun sjómanna af Jökulfellinu í febrúar síðastliðnum.  

Innlent
Fréttamynd

Tarak náðaður en útlægur

Lögfræðingur hundsins Tarak, Jón Egilsson, ætlar að leita leiða í fullri sátt til að hundurinn fái að vera áfram hjá eigendum sínum í Reykjavík. Hann kvað það þó skipta mestu að hundurinn fengi að lifa.

Innlent
Fréttamynd

Auðun Georg fær starfslokasamning

Vinna við starfslokasamning Auðuns Georgs Ólafssonar og Ríkisútvarpsins er að hefjast, að sögn Markúsar Arnar Antonssonar útvarpsstjóra. Hann kvað lögfræðing Auðuns Georgs hafa óskað viðræðna um starfslok hans.

Innlent
Fréttamynd

Meirihlutasamstarfið í hættu

Meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokksins og Vinstrihreyfingarinnar - græns Framboðs í sveitarstjórn Skagafjarðar er í hættu. Þar er komin upp pattstaða eftir að einn fulltrúi Sjálfstæðisflokksins hætti þátttöku í meirihlutasamstarfinu.

Innlent
Fréttamynd

Meðalhitinn lægri en í fyrra

Þrátt fyrir að meðalhitinn í mars bæði í Reykjavík og á Akureyri hafi verið ríflega yfir meðallagi var meðalhitinn á báðum stöðum heldur lægri en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar. 

Innlent
Fréttamynd

Síminn: Annarlegir hagsmunir?

Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, telur að fyrirkomulagið við sölu á hlut ríkisins í Landssímanum sé ógegnsætt og ekki líklegt til að skila ríkissjóði sem mestum hagnaði. Það ýti einnig undir sögusagnir um að annarlegir hagsmunir ráði ferðinni.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

7-10% sjúklinga fá lyf hjá læknum

Fíkniefnaneytendur sem fá lyf ávísuð af læknum eru um 7-10 prósent af sjúklingafjölda meðferðarstofnunarinnar á Vogi. Frá árinu 1995 hafa 769 ópíumfíklar komið til meðferðar á stofnuninni. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir SÁÁ, hélt í dag.

Innlent
Fréttamynd

Harður árekstur í Kollafirði

Tveir fólksbílar lentu í hörðum árekstri innst í Kollafirði rétt fyrir klukkan ellefu og eru þar umferðartafir vegna þess. Fullorðin hjón voru í öðrum bílnum og ung hjón með lítið barn í hinum. 

Innlent
Fréttamynd

Ökumenn veðurtepptir í Hyrnunni

Töluvert af fólki var veðurteppt í Borgarnesi í gær að sögn Hildar Hallkelsdóttur vaktstjóra í Hyrnunni. Fullt var út að dyrum hjá þeim yfir daginn en fækkað hafi með kvöldinu þegar fólk leitaði sér gistingar í bænum.

Innlent
Fréttamynd

Matvælaverksmiðjur stórskemmdust

Tvær af þremur matvælaverksmiðjum Geest í Barton á Bretlandi, sem Bakkavör er að kaupa, stórskemmdust í eldi í fyrrakvöld. Þar var framleitt pasta og brauð og verður hluti þeirrar framleiðslu að líkindum fluttur yfir í svipaða verksmiðju félagsins annars staðar.

Innlent
Fréttamynd

Meirihluti á móti stóriðju

Talsverður meirihluti Skagfirðinga er á móti stóriðju í Skagafirði samkvæmt skoðanakönnun sem iðnaðarráðuneytið lét gera og iðnaðarráðherra kynnti á Sauðárkróki í gærkvöldi. Lítill stóriðjuáhugi í Skagafirði og í Eyjafirði kemur mörgum á óvart.

Innlent
Fréttamynd

Bannað frá 1970

Jónas Helgason, formaður Æðarræktarfélags Íslands, segir að útflutningur á óhreinsuðum æðardún hafi ekki verið heimill frá 1970 og því sé ekki verið að banna hann í nýju frumvarpi um mat á æðardún.

Innlent
Fréttamynd

Lá við stórslysi

Litlu munaði að illa færi að mati lögreglunnar þegar stór þungaflutningabíll lenti aftan á kyrrstæðum lögreglubíl í Kömbunum á Hellisheiði í gærmorgun. Var lögreglan þar við skýrslutöku af ökumönnum þriggja bíla sem aður höfðu lent í árekstri.

Innlent
Fréttamynd

Segir söluferli Símans gagnsætt

Jón Sveinsson, formaður einkavæðingarnefndar, segir unnið að því að skilgreina vægi hvers þáttar sem horft verður til þegar tilboð fjárfesta í Símann verða metin. Það verði kynnt um leið og verklagsreglurnar liggi fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Meirihlutinn óstarfhæfur

Meirihluti sveitarstjórnar Skagafjarðar er óstarfhæfur eftir að Bjarni Maronsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lýsti því yfir að upp væri kominn trúnaðarbrestur milli sín og forseta sveitarstjórnar, Gísla Gunnarssonar Sjálfstæðisflokki.

Innlent
Fréttamynd

Síminn: Tveir fjárfestar augljósir

Greiningardeild Íslandsbanka telur sölufyrirkomulagið á Símanum minnka líkur á að erlend símafyrirtæki geri tilboð. Tveir fjárfestahópar séu hins vegar augljósir: hópur í kringum Burðarás, Landsbankann og eigendur Samsonar annars vegar, og hópur í kringum Meið, VÍS og KB banka hins vegar - en fleiri muni væntanlega gera tilboð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Veiðieftirlit Fiskistofu út á land

Ný útibú Fiskistofu verða stofnuð á fjórum stöðum á landsbyggðinni á næstu árum. Starfsmönnum veiðieftirlits á höfuðborgarsvæðinu verður fækkað en fjölgað að sama skapi úti á landi.

Innlent
Fréttamynd

Reykjanesbrautin breikkuð

Ljúka skal við að breikka Reykjanesbrautina frá Fífuhvammsvegi í Kópavogi að Kaplakrika í Hafnarfirði í ár og næsta ár samkvæmt nýrri samgönguáætlun sem lögð hefur verið fram.

Innlent
Fréttamynd

Aflýsir fundi með Davíð

Robert B. Zoellick, varautanríkisráðherra Bandaríkjanna, aflýsti fundi með Davíð Oddssyni utanríkisráðherra, sem fram átti að fara í gær. </font />

Innlent
Fréttamynd

Uppfyllir ekki skyldur sínar

Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja telur landbúnaðarráðuneytið ekki uppfylla skyldur sínar um frágang á gamalli laxeldisstöð á Stað í Grindavík. Það er því sjálft farið að rífa mannvirkin og ætlar að senda ráðherra reikninginn.

Innlent
Fréttamynd

Miltisbrandssvæðið loks girt af

Nú er loks byrjað að girða í kringum staðinn þar sem miltisbrandssýking kom upp við bæinn Sjónarhól á Vatnsleysuströnd í desember í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Skerða framlög ganganna

Samkvæmt nýkynntri samgönguáætlun fara 85 milljarðar króna til samgöngumála næstu fjögur árin en af því fara 60 milljarðar í vegakerfið. Verkefni í grunneti, en svo kallast allir stofn-, tengi- og landsvegir í vegakerfinu, skiptast þannig að tæpar tíu milljarðar króna fara til verkefna á landsbyggðinni en 6,3 milljarðar til verkefna á höfuðborgarsvæðinu.

Innlent