Innlent
Vill setja skilyrði Þórólfur Sveinsson, formaður Landssambands kúabænda, telur koma til greina að setja skilyrði um að vextir á lánum kúabænda hjá Lánasjóði landbúnaðarins verði ekki hækkaðir upp fyrir ákveðið mark fyrstu árin eftir sölu skuldabréfanna og að skuldararnir geti fært skuldabréfin annað ef þeir telja vextina ekki nógu hagstæða. Innlent 13.10.2005 19:01
Falsaðar happaþrennur til lögreglu Fölsun á happaþrennum er ein leið sem óprúttnir reyna til að svíkja út fjármuni. Þrjár slíkar falsanir voru nýlega kærðar til lögreglunnar í Reykjavík. Mest er um að svikararnir reyni að svíkja út fimm þúsund króna vinninga. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:01
Ný aðstaða Granda Verið er að byggja nýjan hafnarbakka við Sundahöfn. Vignir Albertsson, skipulagsfulltrúi hjá Faxaflóahöfnum, segir að lokið sé við byggingu fyrsta áfanga hafnarbakka við frystihús Granda. Innlent 13.10.2005 19:01
Enginn þarf að taka við styrkjum Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra sagði á aðalfundi landssambands kúabænda í dag að enginn væri neyddur til að taka við styrkjum frá ríkinu. Jafnframt sagði hann ekki vera bann við framleiðslu á ostum utan framleiðslukerfisins en miklar umræður hafa verið um nýja mjólkursamlagið, Mjólku ehf., sem hyggst framleiða osta án styrkja ríkisins. Innlent 13.10.2005 19:01
Brúðarbandið á Hróarskeldu Kvennahljómsveitin Brúðarbandið mun spila sem upphitunarhljómsveit á Hróarskelduhátíðinni í sumar. Hafa hljómsveitarmeðlimir ásamt 12 tónum unnið að því að vera með á hátíðinni síðan í janúar. Lífið 13.10.2005 19:01
6 milljarða niðurskurður Ný samgönguáætlun, sem ríkisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi, felur í sér nærri sex milljarða króna niðurskurð á kosningaloforðum sem gefin voru fyrir tveimur árum. Innlent 13.10.2005 19:01
Mega hafa opið á hvítasunnudag Margar matvöruverslanir mega hafa opið á hvítasunnudag samkvæmt nýjum lögum um afgreiðslutíma verslana á stórhátíðum. Þannig mega þessar verslanir framvegis hafa opið á páskadag og föstudaginn langa. Þau skilyrði eru sett að verslunarrýmið sé innan við 600 fermetrar og að matvöruviðskipti séu meginumsvif. Breytingin nær því ekki til stórmarkaða. Innlent 13.10.2005 19:01
Ná sjónvarpssendingum um ADSL Annar áfangi stafrænnar sjónvarpsþjónustu Símans um ADSL-kerfi sín er hafinn. Í vikunni hafa 11 bæjarfélög á landsbyggðinni bæst í hóp þeirra 20 bæjarfélaga sem undanfarið hafa fengið aðgang að stafrænu sjónvarpi um ADSL. Um er að ræða bæjarfélög sem þegar í dag ná útsendingum Skjás eins en eru í fyrsta sinn að fá aðgang að erlendum sjónvarpsrásum. Innlent 13.10.2005 19:01
Vill selja Lánasjóð landbúnaðarins Stjórnvöld eru að leita leiða til að selja Lánasjóð landbúnaðarins að sögn Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra. Í utandagskrárumræðum á Alþingi í gær sagði Guðni að nefnd, sem hann skipaði til að fara yfir mál lánasjóðsins, hefði komist að þeirri niðurstöðu að ekki ætti að reka hann áfram heldur selja. Innlent 13.10.2005 19:01
Vilja reykingabann eftir tvö ár Á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar, sem nú stendur yfir, leggur vinnuhópur veitingamanna fyrir fundinn í dag að tekið verði upp algert reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum 1. júní 2007. Innlent 13.10.2005 19:01
Vilja frekar stytta grunnskólanám Á fimmta hundrað framhaldsskólanema mótmælti fyrirhugaðri styttingu náms til stúdentsprófs á Austurvelli í dag. Það var Hagsmunaráð íslenskra framhaldsskólanema sem stóð fyrir mótmælunum, en að ráðinu standa sex framhaldsskólar. Þar telja menn eðlilegra að stytta nám á grunnskólastigi og hafna þeim rökum að fara eigi að fordæmi annarra norrænna ríkja. Innlent 13.10.2005 19:01
Vilja viðræður um reykingabann Hótel- og veitingamenn samþykktu á fundi sínum á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar í morgun að ganga til viðræðna við stjórnvöld um að reykingar verði bannaðar á veitinga- og skemmtistöðum frá og með 1. júní 2007. Í tilkynningu frá veitingamönnum kemur fram að miklar breytingar hafi orðið síðustu árin á reykingavenjum fólks og tillitssemi aukist til muna. Innlent 13.10.2005 19:01
11 milljónir barna deyja Áætlað er að ellefu milljónir barna fimm ára og yngri deyi í ár vegna einhvers sem koma má í veg fyrir. Þetta kom fram á fundi á Nordica hótelinu í gær, sem haldinn var í tilefni af Alþjóðaheilbrigðisdeginum. Innlent 13.10.2005 19:01
Fagna Mjólku Heimdellingar fagna stofnun Mjólku ehf, nýs mjólkursamlags sem stendur fyrir utan styrkjakerfi landbúnaðarins. Innlent 13.10.2005 19:01
Varað við sænsku fyrirtæki Samtök atvinnulífsins vara á heimasíðu sinni við sænska félaginu Nordisk Industri, sem hefur skrifað íslenskum fyrirtækjum og óskað eftir almennum upplýsingum um þau. Samtökin telja að þarna séu svikahrappar á ferð og segja að nokkuð hafi borið á því að að íslenskum fyrirtækjum hafi borist erindi frá sænska fyrirtækinu þar sem óskað er skriflegrar staðfestingar á faxi á upplýsingum, meðal annars um símanúmer og heimilisfang. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:01
Tillögur varða alla einkafjölmiðla Ef tillögur fjölmiðlanefndarinnar verða að lögum, líkt og menntamálaráðherra boðar, verður skylt að breyta eignaraðild á öllum stærstu einkareknu fjölmiðlunum á landinu, 365 miðlum, Morgunblaðinu og Skjá einum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:01
80% hagnaðaraukning á árinu Hagnaður helstu félaganna í Kauphöllinni á fyrstu þremur mánuðum ársins eykst um tæp 80 prósent milli ára ef afkomuspá greiningardeildar Íslandsbanka gengur eftir. Munar þar mestu um 11,3 milljarða króna hagnað KB banka en hagnaður KB banka á sama tíma í fyrra var 2,65 milljarðar. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:01
Tæp hálf milljón vegna móðurmissis Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag íslenska ríkið til að greiða systkinum tæplega hálfa milljón króna í bætur vegna andláts móður þeirra, sem lést af völdum læknamistaka. Innlent 13.10.2005 19:01
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn í dag Alþjóðaheilbrigðisdagurinn er í dag og er hann haldinn undir kjörorðinu Sérhver móðir - sérhvert barn. Í tilefni dagsins var efnt til morgunverðarfundar á Nordica-hótelinu í á morgun að því er segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Innlent 13.10.2005 19:01
Rafmagn olli ekki eldi á Króknum Engar skýringar liggja fyrir um upptök eldsvoðans sem varð ungum manni að bana á Sauðárkróki utan þess að útilokað hefur verið að rafmagn hafi ollið eldinum. Innlent 13.10.2005 19:01
Niðurstöður nefndar kynntar Blaðamannafundur menntamálaráðherra hófst í Þjóðmenningarhúsinu nú klukkan þrjú þar sem niðurstöður fjölmiðlanefndarinnar eru kynntar. Nefndin lauk störfum í nótt, en meðal þess sem hún leggur til að er að einstaklingar eða fyrirtæki megi ekki eiga meira en fjórðung í fjölmiðlafyrirtækjum sem eru með meira en þriðjungs markaðshlutdeild. Innlent 13.10.2005 19:01
Liggur mikið á hjarta Alþýðusambandið ætlar að hefja átak gegn félagslegum undirboðum og ólöglegum ráðningum útlendinga í byrjun maí. Daglega hringja margir til að koma með ábendingar um ólöglega starfsemi og undirboð. Innlent 13.10.2005 19:01
Vildu breyta ákvörðun bæjarráðs Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar nú í vikunni kom fram tillaga um að breyta ákvörðun bæjarráðs um lóðaúthlutun á Völlunum. Tillögunni var mótmælt og samþykkt að vísa henni aftur til bæjarráðs. Innlent 13.10.2005 19:01
Vörður vill samvinnu um stóriðju Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, telur að Norðlendingar eigi að sameinast um það markmið að tryggja að næsta stóriðja verði reist á Norðurlandi. Í ályktun stjórnar félagsins segir að á meðan Norðlendingar deili um mögulega staðsetningu sé hættan á því að fjárfestar snúi sér annað og reisi næstu stóriðju á öðrum stað. Innlent 13.10.2005 19:01
Síminn ekki á hendi eins aðila Formaður einkavæðinganefndar segir grundvallarhugsunina við sölu Símans þá, að enginn einn aðili nái yfirráðum í félaginu. Árið 2008 verður búið að skrá Símann á markað og öll skilyrði um eignarhald falla niður. Þá verður að vera búið að selja 30 prósent til almennings og annara fjárfesta. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:01
Mega ekki eiga meira en fjórðung Fjölmiðlanefnd menntamálaráðherra leggur til að hvorki einstaklingar né fyrirtæki megi eiga meira en fjórðung í fjölmiðlafyrirtæki sem hafi þriðjungs markaðahlutdeild. Þetta kemur fram í skýrslu nefndarinnar sem kynnt var í Þjóðmenningarhúsinu fyrir stundu. Innlent 13.10.2005 19:01
Heyrnartæki lækka Heyrnartækin lækkuðu í verði í gær um fimm prósent að meðaltali. Innlent 13.10.2005 19:01
Bensínið hækkaði hjá Essó og Olís Essó og Olís hækkuðu bensínverð seint í gær. Essó hækkaði lítrann af bensíni um 1,9 krónur og er algengasta verð þess 102,5 krónur. Innlent 13.10.2005 19:01
Fjármálaþjónusta jöfn sjávarútvegi Fjármálaþjónusta er orðin ein af undirstöðuatvinnugreinum Íslands og skilar jafn miklu til þjóðarbúsins og sjávarútvegur. Líkja má þróun undanfarins áratugar við það sem gerðist í Austur-Evrópu eftir fall kommúnistastjórna. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:01
Gigtarlyf tekið af markaði Pfizer-lyfjaframleiðandinn hefur hætt sölu og dreifingu á gigtarlyfinu Bextra að kröfu bandaríska lyfjaeftirlitsins þar sem komið hefur í ljós að veruleg hætta getur stafað af aukaverkunum af völdum lyfsins. Einnig hefur verið gefin út viðvörun vegna gigtarlyfsins Celebrex, en bæði lyfin eru í flokki svokallaðra COX-2 hemla sem ákveðnir sjúklingahópar hafa verið varaðir við að taka vegna alvarlegra aukaverkana. Innlent 13.10.2005 19:01