Innlent
Fjárfestar gæti sömu hagsmuna Litlir og stórir fjárfestar hafa sameiginlegra hagsmuna að gæta og átök milli þeirra geta skaðað fyrirtækin. Þetta kom fram á opnum morgunverðarfundi sem Samtök fjárfesta efndu til á Hótel Sögu í morgun. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:03
Tornæmur maður í fangelsi Tvítugur fangi á Litla-Hrauni situr hálfu ári lengur inni þar sem Hæstiréttur þyngdi dóm héraðsdóms. Fanginn er dæmdur í eitt og hálft ár þrátt fyrir að sálfræðingur telji greind mannsins "á sviði tornæmis" og að hann hafi veruleg frávik í þroska. Innlent 13.10.2005 19:04
Undrast hlutleysi Ágústs Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður tilkynnti í morgun að hann gæfi kost á sér til embættis varaformanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í maí. Ágúst Ólafur er 28 ára og var kjörinn á þing í kosningunum árið 2003. Samfylkingarmenn sem fréttastofa ræddi við í morgun eru undrandi á yfirlýsingum Ágústs um að hann ætli engan að styðja til formannskjörs. Innlent 13.10.2005 19:03
Hafi tíma til að skila inn tilboði Forsætisráðherra telur einsýnt að almenningssímafélagi Agnesar Bragadóttur og fleiri vinnist tími til að skila inn tilboði í Landssímann, fresturinn verði rýmri en talið var. Agnes gekk ásamt félögum sínum á fund í stjórnarráðinu í hádeginu. Innlent 13.10.2005 19:04
Avion opnar nýjar höfuðstöðvar Avion House, nýjar höfuðstöðvar Avion Group flugrekandans, verða opnaðar í nýbyggingu við Hlíðarsmára 3 í Kópavogi í dag og munu 220 manns starfa þar á vegum félagsins, auk dótturfélagsins Atlanta. Annars er félagið með starfsstöðvar í 29 löndum í öllum byggðum heimsálfum, gerir út 67 flugvélar og eru strarfsmenn i heild um 3.200. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:03
Athyglin dregin frá kjarna málsins Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að forseti Alþingis hafi beitt gamaldags aðferðafræði í pólitík og dregið athyglina frá kjarna málsins með því að víta hann á þinginu. Innlent 13.10.2005 19:03
Braut lög en var sýknuð af kröfum Vegagerðin braut lög með því að hafna öllum tilboðum í Héðinsfjarðargöng árið 2003, samkvæmt Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Vegagerðin var hins vegar sýknuð af bótakröfu Íslenskra aðalverktaka sem áttu lægsta boð í verkið þar sem fyrirtækinu hafði ekki tekist að sýna fram á tjón. Lögmaður Íslenskra aðalverktaka segir dóminn marka tímamót. Dóminum verður að öllum líkindum áfrýjað. Innlent 13.10.2005 19:04
Ákærður fyrir manndráp Þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir manndráp fyrir að hafa banað eiginkonu sinni á heimili þeirra í Kópavogi í nóvember í fyrra. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Innlent 13.10.2005 19:03
Hvetja til afgreiðslu frumvarps Ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem skorað er á allsherjarnefnd Alþingis að hleypa frumvarpi um niðurfellingu fyrningarfrests í kynferðisafbrotamálum gegn börnum út úr nefndinni og leyfa Alþingi að afgreiða frumvarpið á lýðræðislegan hátt í samræmi við þingskaparlög en frumvarpið hefur legið óafgreitt hjá nefndinni í hartnær tvö ár. Innlent 13.10.2005 19:04
Hjólbörumálið hluti formannsslags Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi segir sorglegt ef hjólbörumál Ingibjargar Sólrúnar þýði að setja þurfi reglur um að einkanotkun borgarstarfsmanna á tækjum borgarinnar. Steinunn V. Óskarsdóttir borgarstjóri segir ekkert athugavert í málinu nema afskipti annarra flokka af formannsslag í Samfylkingunni. Össur Skarphéðinsson tjáir sig ekki. Innlent 13.10.2005 19:04
Útgerð Sólbaks braut samninga Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu í dag að Útgerðarfélagið Sólbakur hefði brotið gegn ákvæðum kjarasamninga Landssambands íslenskra útvegsmanna og Vélstjórafélags Íslands þegar vélstjórar skipsins fengu ekki 30 klukkustunda hafnarfrí eftir löndun á Eskifirði í september á síðasta ári. Innlent 13.10.2005 19:04
Samfylkingin: Félögum fjölgar ört Félögum í Samfylkingunni hefur að líkindum fjölgað um tæpan þriðjung í aðdraganda formannskosninganna, en kjörskrá var lokað klukkan sex. Formaður kjörstjórnar óttast ekki að stuðningsmenn annarra flokka hafi skráð sig í stórum stíl til að hafa áhrif á kosningarnar. Innlent 13.10.2005 19:04
Nagladekkin af í dag Framkvæmdasvið Reykjavíkur vekur athygli á því að frá og með deginum í dag er óheimilt að aka á nagladekkjum í borginni og liggja sektir við slíku. Lögregla gengur þó ekki hart fram í að framfylgja banninu fyrstu dagana enda er víða mikið að gera á dekkjaverkstæðum og fólk getur þurft að koma seinna. Innlent 13.10.2005 19:03
Fékk dæmdar dánarbætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Tryggingamiðstöðina til að greiða 25 ára gamalli konu tæplega 11 milljónir króna í vátryggingarbætur vegna andláts sambýlismanns hennar. Maðurinn lést í janúar árið 2000 þar sem hann var í ferðalagi á Spáni en hann og konan höfðu verið í sambúð í Keflavík frá árinu 1998. Innlent 13.10.2005 19:04
Svanhildur hæf fyrir borgina Kærunefnd jafnréttismála telur ekki efni til að líta svo á að Reykjavíkurborg hafi brotið jafnréttislög þegar borgin réð Svanhildi Konráðsdóttur í starf sviðstjóra menningar- og ferðamálasviðs. Innlent 13.10.2005 19:04
Gjörbreytt starf með hitamyndavél Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja tóku í notkun í dag sérstaka hitamyndavél sem er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Einnig var tekið í notkun nýtt æfingahúsnæði sem er byggt úr gámaeiningum. Innlent 13.10.2005 19:04
Þörf á ungliðum í forystusveit Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður býður sig fram til varaformanns Samfylkingarinnar. Ákvörðun sína tilkynnti hann opinberlega í gær og tók þar með áskorun framkvæmdastjórnar Ungra jafnaðarmanna. Innlent 13.10.2005 19:04
Leitað til erlends vinnuafls Hundruð starfa eru auglýst hjá Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins en það er erfitt að fá Íslendinga til að vinna þessi störf. Forstöðumaður vinnumiðlunarinnar telur að með tilkomu erlendra starfsmannaleiga muni útlendingar í auknum mæli inna þessi störf af hendi. Innlent 13.10.2005 19:04
Sættir náðust á síðustu stundu Meirihlutasamstarfi í sveitarstjórn Skagafjarðar hefur verið bjargað fyrir horn á elleftu stundu. Sættir náðust innan Sjálfstæðisflokks eftir hatrammar deilur. Gísli Gunnarsson oddviti Sjálfstæðismanna mun ekki sækjast eftir að leiða flokkinn í sveitarstjórnarkosningunum að ári. Innlent 13.10.2005 19:03
Fólk má búa í bústað Hæstiréttur úrskurðaði í gær að fimm manna fjölskylda mætti skrá lögheimili sitt í sumarhús í Bláskógarbyggð. Fjölskyldan flutti í febrúar 2004 í húsið í óþökk sveitarfélagsins þar sem forsvarsmönnum þess þótti of kostnaðarsamt að veita þeim sem það kysu lögbundna þjónustu. Innlent 13.10.2005 19:03
Straumur seldi í TM Straumur hefur selt tæplega fjörutíu prósenta hlut sinn í Tryggingamiðstöðinni. Kaupendur eru Sund ehf., sem keypti 20%, Fjárfestingarfélag sparisjóðanna, sem keypti 12,9%, og Höfðaborg sem keypti 5%. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:03
Par stal skarti og réðst á eiganda Par undir áhrifum fíkniefna lét dólgslega í Gullsmíðaverslun og verkstæði Láru við Skólavörðustíg síðdegis í gær. Maðurinn stal tíu stórum silfurhringjum eftir að hafa hrint gullsmiðnum Láru Magnúsdóttur sem féll og marðist við það illa á baki og stokkbólgnaði á hendi. Innlent 13.10.2005 19:03
Kona slasast á vélsleða Ung kona hlaut opið breinbrot þegar hún féll af snjósleða á Lyngdalsheiði, á milli Þingvalla og Rauðavatns, rétt fyrir níu í kvöld. Innlent 13.10.2005 19:03
Samstarf við háskóla í Kína Rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst mun undirrita samstarfssamning við Háskólann í Shanghai í opinberri heimsókn forseta Íslands til Kína í næsta mánuði Innlent 13.10.2005 19:03
Stofna hóp fyrir geðklofa Geðhjálp hefur ákveðið að stofna hóp fyrir fólk með geðklofa. Markmiðið er að bæta líðan þátttakenda á þann hátt, að þeir deili reynslu sinni með öðrum og læri af því sem aðrir hafa gert til að ná betri heilsu. Umfram allt á þátttaka í hópnum að vera uppbyggileg þó svo að málefnið sé á stundum erfitt. Innlent 13.10.2005 19:03
Frumvarp dregið til baka Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, dró í gær til baka frumvarp um að leggja niður tryggingadeild útflutningslána sem hún hafði áður mælt fyrir. Innlent 13.10.2005 19:03
Ný samgönguáætlun Gunnar I. Birgisson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður bæjarráðs í Kópavogi, hyggst fljótlega birta nýja samgönguáætlun sér að skapi. Innlent 13.10.2005 19:03
Sami vandinn alls staðar Öll lönd Norður-Evrópu eiga við svipaðan vanda að stríða á vinnumarkaði og Ísland hvað varðar flæði á ódýru erlendu vinnuafli framhjá lögum og reglum. Innlent 13.10.2005 19:03
Svefnaðstaða fyrir 800 drengi Í árlegri söfnun ABC barnahjálpar verður að þessu sinni safnað fyrir stórri byggingu á Heimili litlu ljósanna á Indlandi, þar sem verður svefnaðstaða fyrir 800 drengi. Áætlaður byggingarkostnaður er tæplega 10 milljónir króna. Innlent 13.10.2005 19:03
Lambasel: Búið að draga Búið er að draga úr þeim 5700 umsóknum sem bárust í einbýlishúsalóðir við Lambasel í Reykjavík. Þrjátíu nöfn voru dregin út fyrir luktum dyrum hjá Sýslumanninum í Reykjavík í dag og tuttugu til vara, skyldu einhver forföll verða. Innlent 13.10.2005 19:03