Innlent
Hjólað á ylströnd á umhverfisdegi Í tilefni af alþjóðlega umhverfisdeginum sem er í dag stóð Landvernd í samvinnu við Landssamtök hjólreiðamanna fyrir hjólalest. Hjólað var undir yfirskriftinni Hjólavæna borg, en var lagt af stað frá Eimreiðinni við Reykjavíkurhöfn kl.13.50 og hjólað í Nauthólsvík þar sem Ylströndin fékk afhenta umhverfisviðurkenninguna Bláfánann. Innlent 13.10.2005 19:19
Tvær plötur frá Bubba Morthens Í dag er aldarfjórðungur frá því að Bubbi Morthens gaf út fyrstu plötu sína, Ísbjarnarblús. Í tilefni af því gefur Bubbi út tvær plötur með nýju efni í dag, samtals 23 lög. Tvennir tónleikar verða haldnir í Þjóðleikshúsinu í dag og tvennir á morgun til að fagna útgáfunni. Innlent 13.10.2005 19:19
Gestum og íbúum fjölgar í Slakka Búist er við að um tuttugu þúsund manns heimsæki dýragarðinn Slakka í Laugárási í sumar. Dýragarðurinn hefur verið stækkaður og hefur íbúum hans fjölgað til muna. Innlent 13.10.2005 19:19
Fjör á Norðfirði Sjómannadagshátíðarhöldin í Neskaupstað byrjuðu að venju á föstudag með setningu Sjónes, stangveiðimóti þeirra Norðfirðinga sem sífellt fleiri sækja í. Það var líka ástæða til þess á föstudaginn því aflinn var um 17 tonn, á 37 stangir. Aflinn var þó heldur minni á laugardaginn. Innlent 13.10.2005 19:19
Rólegt hjá lögreglunni í borginni Mikill mannfjöldi var saman kominn í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi og í nótt og virðist sem fólkið hafi að mestu leyti skemmt sér í sátt og samlyndi. Að sögn lögreglunnar er sárafátt sem stendur upp úr eftir nóttina, tvö minni háttar fíkniefnamál en fátt annað frásagnarvert. Klukkan sjö í morgun þegar vaktaskipti urðu á lögreglustöðinni var enn töluverður fjöldi á ferli í miðbænum. Innlent 13.10.2005 19:18
Vilja koma að endurskoðun Kvennahreyfingin vill hafa áhrif á endurskoðun stjórnarskrárinnar og setur það á oddinn að tryggð verði jöfn þátttaka karla og kvenna í stjórnun landsins en fyrr sé ekki hægt að tala um raunverulegt jafnrétti. Fulltrúar kvennahreyfingarinnar hittust á vinnufundi á Hallveigarstöðum í gær þar sem rætt var hvernig stjórnarskráin gæti tryggt öryggi kvenna. Innlent 13.10.2005 19:19
Minna plantað vegna þurrka Skógarbændur hafa sums staðar frestað plöntun vegna undangenginna þurrka. Þá er hætt við að ungplöntur hafi skemmst í næturfrostum og þurrki, sérstaklega þær sem bíða gróðursetningar. Innlent 13.10.2005 19:19
Helgin með besta móti Þó víða hefði verið erill hjá lögreglu um land allt voru lögreglumenn almennt afar ánægðir með helgina. Dansleikir voru víða eins og ávallt fyrir Sjómannadaginn en það er af sem áður var að kvíði væri í mönnum vegna þess enda þessi helgi undanfarin ár verið með besta móti. Innlent 13.10.2005 19:19
Mótmæla við Kárahnjúka í sumar Óstýrilátir umhverfisverndarsinnar ætla að slá upp alþjóðlegum tjaldbúðum við Kárahnjúka í sumar. Þeir hafa fengið breskan atvinnumótmælanda til landsins til að kenna réttu mótmælaaðferðirnar. Innlent 13.10.2005 19:19
Vill meiri kvóta til sjávarbyggða Kristinn H. Gunnarsson vill að 20.000 tonna kvóta verði ráðstafað til sjávarbyggða, sem hvorki njóta góðs af stóriðjuuppbyggingu né þenslu á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 13.10.2005 19:19
Hágengið þrengir að ferðaþjónustu Fyrirtæki í ferðaþjónustu berjast í bökkum vegna hás gengis krónunnar og sjá fram á að þurfa hækka verðskrá sína að ári. Innlent 13.10.2005 19:19
Sakar frjálslynda um ósannindi Gunnar Örn Örlygsson segir formann og varaformann Frjálslynda flokksins fara með ósannindi í lýsingum af aðdraganda þess að hann sagði sig úr flokknum og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Guðjón A. Kristjánsson, formaður frjálslyndra, hefur beðið kjósendur flokksins afsökunar á brotthvarfi Gunnars Arnar. Innlent 13.10.2005 19:19
Umtalsverð hækkun á fasteignaverði Fasteignamat ríkisins hefur birt í fyrsta sinn tölur um þróun íbúðaverðs eftir borgarhlutum á höfuðborgarsvæðinu með ársfjórðungstíðni. Framvegis munu tölur af þessu tagi birtast ársfjórðungslega. Innlent 13.10.2005 19:19
Ráðherra með rangt mál "Það er fjarri lagi að ráðherra fari þarna með rétt mál og nægir að benda á þorskveiðar í Barentshafinu því til sönnunar," segir Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. Innlent 13.10.2005 19:19
Erill hjá lögreglu í Reykjanesbæ Lögreglumenn í Reykjanesbæ höfðu nokkuð að gera í gærkvöld og nótt þar sem töluvert var um slagsmál og ryskingar við skemmtistaðinn Traffic í Hafnargötu í Keflavík. Þá var maður laminn fyrir utan Vitann í Sandgerði með þeim afleiðingum að nokkrar tennur í honum brotnuðu, hann fékk skurði í andliti og þá kvartaði hann undan eymslum í brjóstkassa. Innlent 13.10.2005 19:18
Ferjuhöfn til athugunar Hafnarstjórn Faxaflóahafna hefur falið hafnarstjóra að kanna kosti þess að "Reykjavíkurhöfn verði að nýju ákjósanlegur viðkomustaður fyrir reglubundnar farþegasiglingar milli landa" og hafnaryfirvöldum falið að kanna með hvaða hætti væri hægt að taka á móti bílferjum. Innlent 13.10.2005 19:19
Sjómannadegi fagnað í góðu veðri Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegurum allt land í dag víðast hvar í góðu veðri og með mikilli þátttöku almennings. Innlent 13.10.2005 19:19
Minntust fallinna félaga Ungir menn um borð í tveimur herveðurathugunarvélum áttu ekki afturkvæmt úr þeim ferðum fyrir sex áratugum síðan. Félagar þeirra minntust þeirra og rifjuðu upp ljúfsárar minningar í Fossvogskirkjugarði í dag. Innlent 13.10.2005 19:19
Áróður beinist gegn báðum kynjum Forvarnaráróður vegna hjartasjúkdóma beinist jafnt að konum sem körlum á Íslandi, segir íslenskur hjartasérfræðingur. Þá sé enginn munur á kynjunum hvað varði greiningu og meðferð. Evrópurannsókn sýnir að lágt hlutfall kvenna er meðvitað um hættuna á hjartasjúkdómum og læknar þekki illa muninn á einkennum sjúkdómsins hjá körlum og konum. Innlent 13.10.2005 19:19
Aldraðir sjómenn heiðraðir Sjómennirnir Eyjólfur Eyjólfsson, Eiríkur Eiríksson, Grétar Bjarnason, Sigfús Jóhannsson og Eyjólfur Guðjónsson voru heiðraðir við Miðbakkann í Reykjavík í gær fyrir ævistörf sín. Einnig hlaut Bragi Ragnarsson viðurkenningu fyrir fyrirmyndarvélstjórastörf. Innlent 13.10.2005 19:19
75 ára afmæli Austurbæjarskóla Ein glæsilegasta skrúðganga ársins hlykkjaðist um Barónsstíginn um hádegisbilið í dag. Þar voru á ferð jómfrúr, hippar, pönkarar og fleiri tákngervingar síðustu sjötíu og fimm ára. Þau voru á kreiki til að fagna sjötíu og fimm ára afmæli Austurbæjarskóla. Innlent 13.10.2005 19:18
Fögnuðu 75 ára afmæli skólans Núverandi og fyrrverandi nemendur auk starfsmanna Austurbæjarskóla fögnuðu í gær 75 ára afmæli skólans. Nemendur túlkuðu tískusveiflur og tíðaranda með því að klæðast gömlum klæðnaði í skrúðgöngu um miðbæ Reykjavíkur. Innlent 13.10.2005 19:18
Kaupþing skoðar SkandiaBanken Kaupþing hefur á áhuga á að kaupa sænska netbankann SkandiaBanken, dótturfyrirtæki Skandia-fyrirtækisins. Frá þessu greinir í sænskum fjölmiðlum í dag. Aðspurður segir Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri peninga ekki vera vandamál hvað hugsanleg kaup varðar. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:18
Handtekin í kjölfar húsleitar Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók fimm manns í nótt eftir að nokkurt magn af hassi fannst við húsleit í bænum en lögregla leitaði að fíkniefnum í þremur húsum. Við leitina fundust einnig áhöld til neyslu fíkniefna. Innlent 13.10.2005 19:18
Lendingakeppni við Hafravatn Svifflugfélag Reykjavíkur stendur fyrir svokallaðri svifflugslendingakeppni við Hafravatn í dag. Mótið hófst klukkan tvö og stendur eitthvað fram eftir degi og því um að gera fyrir þá íbúa höfuðborgarsvæðisins sem vilja bregða sér út fyrir bæjarmörkin í veðurblíðunni að renna við hjá Hafravatni til að sjá flugmennina leika listir sínar. Innlent 13.10.2005 19:18
Íhuga að segja upp störfum Slökkviliðsmenn á Akureyri eru afar ósáttir við framkomu slökkviliðsstjórans gagnvart starfsfélaga þeirra sem þeir telja hafa verið hrakinn úr starfi. Uppsagnir í mótmælaskyni hafa komið til tals. Innlent 13.10.2005 19:18
Skilti á stærð við íbúð Sérfróðir menn unnu við það í fyrrakvöld að setja upp á þak nýrrar verslunar Bílanausts stærsta auglýsingaskilti sem sést hefur á landinu. Innlent 13.10.2005 19:18
Nýtt sjóminjasafn opnað Sjómennskan er ekkert grín var sungið forðum og á nýju sjóminjasafni í Reykjavík má sannreyna það. Þar er meðal annars hægt að kynna sér hundrað ára sögu togaraútgerðar á landinu. Innlent 13.10.2005 19:18
Eldur og eiturlyf í Grindavík Eitt fíkniefnamál upp í Grindavík á sjómannadagshátíðinni þar í bæ í nótt. Þá var lögregla og slökkvilið kölluð að heimahúsi í Grindavík vegna reyks sem lagði frá íbúð á jarðhæð. Þar reyndist eldur vera laus á eldavél en húsráðandinn, eldri kona, hafði brugðið sér úr húsi en gleymt að slökkva á eldavélinni. Víkurfréttir greina frá þessu. Innlent 13.10.2005 19:18
Skorrdælingar höfnuðu sameiningu "Þessi niðurstaða kom í raun ekki óvart enda því sem næsta óbreytt frá fyrri kosningu," segir Sveinbjörn Eyjólfsson, formaður sameiningarnefndar sveitarfélaga í Borgarfirði. Innlent 13.10.2005 19:18