Innlent Halldór ekki vanhæfur Ríkisendurskoðun segir hugleiðingarnar um óhæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra í sölu ríkisbankanna í raun óþarfar því hann hafi verið í veikindaleyfi þegar gengið var frá sölunni. Hagsmunir hans við söluna hafi reyndar verið óverulegir miðað við umfang viðskiptanna og því hefði hann ekki talist vanhæfur, hefði hann séð um söluna. Innlent 13.10.2005 19:21 Kominn yfir Húnaflóa Hringróðurinn kringum Ísland sóttist vel yfir helgina. Kjartan lagði af stað frá Reykjafirði á föstudaginn og fór þá í einni lotu fram að Kaldbaksvík, alls 35 sjómílur. Innlent 13.10.2005 19:21 Flugleiðir gefa 530 flugmiða Flugleiðir hafa gefið fimm hundruð og þrjátíu farþegum sem urðu fyrir óskemmtilegum töfum á flugi til og frá San Fransisco farmiða að eigin vali á flugleiðum félagsins. Tvö hundruð og sextíu manns héldu áleiðis til San Fransisco um þrjú leytið í nótt en tvö hundruð og sjötíu manns biðu þess ytra að komast í flug til Íslands. Innlent 13.10.2005 19:21 Landsvirkjun býður tvö verk út Landsvirkjun óskaði í gær eftir tilboðum í tvær stórframkvæmdir vegna Kárahnúkavirkjunar. Annað verkefnið er gröftur og gangagerð vegna botnrásar við Jökulsá í Fljótsdal vegna væntanlegrar Ufsarstíflu. Þau göng eiga að vera 57 metra löng og sjö metra breið.<font face="Helv"></font> Innlent 13.10.2005 19:21 Föroya Sparikassi í Kauphöllina Föroya Sparikassi, stærsta fjármálafyrirtæki Færeyja, er orðið aðili að Kauphöll Íslands, þriðja erlenda fyrirtækið sem það verður. Heildareignir Föroya Sparikassa eru tæpar níu hundruð milljónir evra og með aðild að Kauphöll Íslands er verið að renna styrkari stoðum undir verðbréfahluta starfseminnar. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:21 Skóflustunga að nýrri álmu við ME Fyrsta skóflustunga að nýrri álmu við Menntaskólann á Egilsstöðum var tekin í dag. Hún mun bylta starfi skólans og stórbæta aðstöðu þar. Innlent 13.10.2005 19:21 Halldór ekki vanhæfur Halldór Ásgrímsson áréttar það að hann hafi ekkert haft með rekstur Skinneyjar-Þinganess að gera þegar félagið gerðist óbeinn aðili að S-hópnum í aðdragandanum að Búnaðarbankasölunni. Ríkisendurskoðandi segir Halldór ekki hafa verið vanhæfan til að fjalla um málið.</font /> Innlent 13.10.2005 19:21 Skýlir sér á bak við embættismenn Stjórnarandstaðan segir forsætisráðherra skýla sér á bak við embættismenn og víkja sér undan pólitískri ábyrgð. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að málið sé að líkindum fallið um sjálft sig komist Ríkisendurskoðun að því að ráðherrann hafi verið hæfur til að koma að einkavæðingu bankanna. Innlent 13.10.2005 19:21 Vara við álveri í Eyjafirði Samtök um fjölbreytta atvinnuuppbyggingu í Eyjafirði vara eindregið við þeirri stefnu stjórnvalda að einhæfa atvinnulíf þjóðarinnar með enn einu álveri, hugsanlega við Eyjafjörð. Innlent 13.10.2005 19:21 Athugasemdir vegna sameiningar Skólastjórnendur leik- og grunnskóla Vestmanneyjarbæjar gera alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð bæjarstjórnarmanna vegna sameiningar leikskólanna og grunnskólanna undir eina yfirstjórn á næsta ári. Innlent 13.10.2005 19:21 Ný vefsíða tekin í notkun
Halldór ekki vanhæfur Ríkisendurskoðun segir hugleiðingarnar um óhæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra í sölu ríkisbankanna í raun óþarfar því hann hafi verið í veikindaleyfi þegar gengið var frá sölunni. Hagsmunir hans við söluna hafi reyndar verið óverulegir miðað við umfang viðskiptanna og því hefði hann ekki talist vanhæfur, hefði hann séð um söluna. Innlent 13.10.2005 19:21
Kominn yfir Húnaflóa Hringróðurinn kringum Ísland sóttist vel yfir helgina. Kjartan lagði af stað frá Reykjafirði á föstudaginn og fór þá í einni lotu fram að Kaldbaksvík, alls 35 sjómílur. Innlent 13.10.2005 19:21
Flugleiðir gefa 530 flugmiða Flugleiðir hafa gefið fimm hundruð og þrjátíu farþegum sem urðu fyrir óskemmtilegum töfum á flugi til og frá San Fransisco farmiða að eigin vali á flugleiðum félagsins. Tvö hundruð og sextíu manns héldu áleiðis til San Fransisco um þrjú leytið í nótt en tvö hundruð og sjötíu manns biðu þess ytra að komast í flug til Íslands. Innlent 13.10.2005 19:21
Landsvirkjun býður tvö verk út Landsvirkjun óskaði í gær eftir tilboðum í tvær stórframkvæmdir vegna Kárahnúkavirkjunar. Annað verkefnið er gröftur og gangagerð vegna botnrásar við Jökulsá í Fljótsdal vegna væntanlegrar Ufsarstíflu. Þau göng eiga að vera 57 metra löng og sjö metra breið.<font face="Helv"></font> Innlent 13.10.2005 19:21
Föroya Sparikassi í Kauphöllina Föroya Sparikassi, stærsta fjármálafyrirtæki Færeyja, er orðið aðili að Kauphöll Íslands, þriðja erlenda fyrirtækið sem það verður. Heildareignir Föroya Sparikassa eru tæpar níu hundruð milljónir evra og með aðild að Kauphöll Íslands er verið að renna styrkari stoðum undir verðbréfahluta starfseminnar. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:21
Skóflustunga að nýrri álmu við ME Fyrsta skóflustunga að nýrri álmu við Menntaskólann á Egilsstöðum var tekin í dag. Hún mun bylta starfi skólans og stórbæta aðstöðu þar. Innlent 13.10.2005 19:21
Halldór ekki vanhæfur Halldór Ásgrímsson áréttar það að hann hafi ekkert haft með rekstur Skinneyjar-Þinganess að gera þegar félagið gerðist óbeinn aðili að S-hópnum í aðdragandanum að Búnaðarbankasölunni. Ríkisendurskoðandi segir Halldór ekki hafa verið vanhæfan til að fjalla um málið.</font /> Innlent 13.10.2005 19:21
Skýlir sér á bak við embættismenn Stjórnarandstaðan segir forsætisráðherra skýla sér á bak við embættismenn og víkja sér undan pólitískri ábyrgð. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að málið sé að líkindum fallið um sjálft sig komist Ríkisendurskoðun að því að ráðherrann hafi verið hæfur til að koma að einkavæðingu bankanna. Innlent 13.10.2005 19:21
Vara við álveri í Eyjafirði Samtök um fjölbreytta atvinnuuppbyggingu í Eyjafirði vara eindregið við þeirri stefnu stjórnvalda að einhæfa atvinnulíf þjóðarinnar með enn einu álveri, hugsanlega við Eyjafjörð. Innlent 13.10.2005 19:21
Athugasemdir vegna sameiningar Skólastjórnendur leik- og grunnskóla Vestmanneyjarbæjar gera alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð bæjarstjórnarmanna vegna sameiningar leikskólanna og grunnskólanna undir eina yfirstjórn á næsta ári. Innlent 13.10.2005 19:21
Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er haldinn hátíðlegur 14. júní ár hvert. Dagurinn er haldinn til heiðurs blóðgjöfum um heim allan sem gefa af óeigingirni blóð til sjúkra. Pylsur verða m.a. grillaðar í bakgarði Blóðbankans á morgun í tilefni dagsins. Lífið 17.10.2005 23:41
Wig Wam til Íslands Norska glysrokksveitin Wig Wam er á leiðinni til landsins. Eins og alþjóð veit keppti sveitin fyrir hönd Noregs í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í ár og lenti í 9. sæti. Norsararnir voru greinilega í miklu uppáhaldi hjá Íslendingum sem gáfu Noregi fullt hús eða 12 stig í keppninni. Lífið 13.10.2005 19:21
Minnsti hagvöxtur í langan tíma Hagvöxtur var 2,9 prósent á fyrsta ársfjórðungi ársins og er það minnsti hagvöxtur sem mælst hefur á einum ársfjórðungi frá samdráttarárinu 2002. Hagvöxturinn er lítill miðað við það sem spáð hefur verið fyrir árið í heild. Seðlabankinn spáir til að mynda 6,6 prósenta hagvexti en fjármálaráðuneytið 5,5. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:21
Allar sumarbúðir að fyllast Vikudvöl í sumarbúðum kostar í kringum 25 þúsund krónur á mann. Þrátt fyrir það eru allar sumarbúðir að fyllast sem og leikjanámskeið en vikan á þau kostar á milli fjögur og sjö þúsund krónur. Stöð 2 fór og kynnti sér það helsta sem í boði er fyrir grunnskólabörn á öllum aldri í sumar. Lífið 13.10.2005 19:21
Eiturefnakafarar í viðbragðsstöðu Búist er við Lagarfossi til Grundartanga á tíunda tímanum en tíu eiturefnakafarar frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru nú í viðbragðsstöðu þar vegna ammóníaksleka sem varð um borð. Innlent 13.10.2005 19:21
Vill fyrirbyggja málverkafalsanir Viktor Smári Sæmundsson, forvörður, fékk á síðasta föstudag 400.000 króna styrk frá Rannsóknarsjóði Listasafns Háskóla Íslands til að vinna sjálfstætt að söfnun og rannsóknum á höfundarmerkingum frumherja íslenskrar myndlistar. Innlent 13.10.2005 19:21
Lambakjötið gæti klárast "Það íslenska lambakjöt sem er í verslunum í dag má segja að sé ekki fyrsta flokks og flestar vænustu steikurnar uppseldar," segir Jóhann Ólafsson, fulltrúi hjá Bændasamtökunum. Nú er grillvertíð landsmanna að sönnu hafin og léleg birgðastaða lambakjöts veldur því að hætta er á að kjötið klárist áður en nýslátrað kemur aftur á markaðinn. Innlent 13.10.2005 19:21
Eldur í íbúð Eldur kviknaði í viftu í eldhúsi í íbúð á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi í Vesturbergi 138 í Breiðholti um miðjan dag í gær. Innlent 13.10.2005 19:21
Lögmaður kennir endurskoðanda um Mistök endurskoðunarfyrirtækis urðu til þess að fjölskyldufyrirtækis forsætisráðherra var ekki getið í upplýsingagjöf S-hópsins til framkvæmdanefndar um einkavæðingu. Lögmaður S-hópsins segir mistökin ekki hafa neina þýðingu. Innlent 13.10.2005 19:21
Teknir fyrir fíkniefnaneyslu Fjórir voru teknir höndum og færðir á lögrelgustöðina á Ísafirði eftir að bifreið sem þeir voru í var stöðvuð við eftirlit. Mennirnir eru grunaðir um neyslu fíkniefna en þeim var sleppt að loknum yfirheyrslum. Innlent 13.10.2005 19:21
Kotbýli kuklarans í Bjarnarfirði Kotbýli kuklarans verður ímyndaður bústaður galdramanns á sautjándu öld. Galdrasafnið á Hólmavík reisir það í Bjarnarfirði þar sem gestir geta kynnt sér kukl og aðra óáran. Innlent 13.10.2005 19:21
Ammoníakleki í Lagarfossi Ammoníakeiturefni lak úr Lagarfossi, flutningaskipi Eimskips, undan ströndum Skotlands í fyrrinótt. Áhöfnin hafði strax samband við skosku strandgæsluna í Aberdeen og lét vita af óhappinu en skipinu var bannað að halda áfram för sinni til Íslands fyrr en tekist hefði að stöðva lekann. Innlent 13.10.2005 19:21
Í lauginni undir áhrifum áfengis "Það eru margir rússneskir og lettneskir togarar í Hafnarfirði þessa dagana og sjómennirnir koma í hópum í laugina til okkar. Þetta eru afskaplega prúðir drengir og eru ekki með nein leiðindi en við höfum ansi oft þurft að vísa þeim frá þar sem þeir hafa verið undir áhrifum áfengis," segir forstöðumaður Suðurbæjarlaugar í Hafnarfirði. Innlent 13.10.2005 19:21
Ekið á unga stúlku í Kvennahlaupi Ekið var á níu ára stúlku sem þátt tók í Kvennahlaupinu í gær. Stúlkan hljóp í veg fyrir bíl á mótum Vífilsstaðavegar og Elliðavatnsvegar og var bílnum ekið á rólegum hraða að sögn lögreglu. Stúlkan var flutt á slysadeild og er talið að hún sé fótbrotin. Á átjánda þúsund konur tóku þátt í Kvennahlaupinu í gær og var hlaupið á 90 stöðum á landinu. Innlent 13.10.2005 19:21
Rólegt á Akureyri í gærkvöld Skemmtanalífið fór vel fram á Akureyri í nótt. Tveir þurftu þó að gista fangageymslur lögreglunnar þar sem þeir gátu ekki greitt reikning sem þeir höfðu stofnað til á veitingastað í bænum. Þeir voru báðir í annarlegu ástandi þegar þeir voru teknir klukkan rétt rúmlega sex í gærkvöldi. Fjórir voru teknir fyrir hraðakstur, tveir fyrir ölvunarakstur og einn fyrir akstur án réttinda. Innlent 13.10.2005 19:21
Vongóð um að leysa deilu Björg Thorarensen, nýr stjórnarformaður Landakotsskóla, er vongóð um að hægt verði að leysa deiluna sem staðið hefur um skólastarfið að undanförnu. Hún hefur þegar rætt við deilendur og mun eiga fund með stjórn skólans í vikunni. Uppstokkun í stjórn skólans varð þó ekki til að lægja öldurnar. Innlent 13.10.2005 19:21
Bændur langeygir eftir rigningu Þurrt er víða á landinu og er úrkoma síðasta mánuðinn langt undir meðaltali. Bændur á Norðurlandi og víðar eru orðir langeygir eftir rigningu. Innlent 13.10.2005 19:21
Fundu tundurdufl Tundurdufl fannst yst í norðanverðum Reyðarfirði um hádegisbil í gær. Það var skipið Sólborg ÞH 270 sem fann tundurduflið við svokallaðan Lagga og tilkynnti lögreglunni á Eskifirði strax um málið. Innlent 13.10.2005 19:21
Beltin björguðu Ökumaður missti stjórn á bíl sínum og keyrði út af á Norðfjarðarvegi um miðnætti aðfaranótt sunnudags. Innlent 13.10.2005 19:21