Innlent
Greenpeace kemur í heimsókn Í dag 17. júní hefst vikuheimsókn skips náttúrverndarsamtakanna Greenpeace, MV Arctic Sunrise, hingað til lands þegar skipið leggur að við Ægisgarð í Reykjavík. Gestum og gangandi er boðið að skoða skipið í dag. Innlent 13.10.2005 19:22
Sameining dæmd lögleg Sveitarstjórn Norður-Héraðs fór að lögum þegar sameining sveitarfélagsins Fellahrepps og Austur-Héraðs stóð fyrir dyrum og því hafnaði Hæstiréttur í gær kröfu átta einstaklinga sem kröfðust þess að staðfesting Félagsmálaráðuneytisins á sameiningunni væri dæmd ógild. Innlent 13.10.2005 19:22
Braut glas á andliti annars 31 árs gamall maður var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að brjóta glas á andliti manns inni á skemmtistaðnum Glaumbar í apríllok 2001. Refsingin er skilorðsbundin í tvö ár, en að auki þarf hann að greiða fórnarlambi sínu, sem missti fimm tennur, tæpar 370.000 krónur. Innlent 13.10.2005 19:22
Sömu fargjöld hjá flugfélögunum Bandaríska flugfélagið Delta hækkaði þann 15. júní flest fargjöld í flugi yfir Atlantshafið. Þotueldsneyti hefur hækkað töluvert í verði síðustu mánuði og gætu fleiri fargjöld átt eftir að hækka. Íslensku flugfélögin búast þó ekki við að hækka fargjöld á næstunni. Innlent 13.10.2005 19:22
Efla kennslu í tryggingarétti Háskóli Íslands og Tryggingastofnun ríkisins hafa gert með sér samning sem hefur það markmið að efla kennslu og rannsóknir í almannatryggingarétti með sérstakri áherslu á lífeyristryggingar. Þetta er í fyrsta sinn sem lagadeild Háskólans gerir slíkan samning við stofnun utan Háskólans að því er segir í sameiginlegri tilkynningu frá stofnunum. Innlent 13.10.2005 19:22
Bogi kaupir Sindra-Stál Stjórn Sindra-Stál hf. hefur samþykkt kauptilboð Boga Þórs Siguroddssonar í allt hlutafé félagsins. Kauptilboðið er gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Boga í dag. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:22
Sjóræningjaskip á karfaslóð Nokkur skip sáust í eftirlitsflugi TF-SYN, flugvélar Landhelgisgæslunnar, á karfaslóð á Reykjaneshrygg utan íslenskrar lögsögu í gær. Innlent 13.10.2005 19:22
Dæmdur fyrir að taka við þýfi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag þrítugan karlmann í sjö mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðsbundið í þrjú ár, fyrir að hafa þann 5. janúar síðastliðinn tekið við þremur fartölvum að verðmæti um 700 þúsund krónur úr höndum bróður síns þrátt fyrir að honum hafi mátt vera ljóst að þeim hefði verið stolið úr versluninni Office One um nóttina. Innlent 13.10.2005 19:22
Sýknuð þrátt fyrir ölvun Héraðsdómur Reykjaness sýknaði gær konu af ölvunarakstri. Konan hafði ekið á gangandi vegfaranda hjá Fjörukránni í Hafnarfirði. Áfengismagn í blóði hennar var 1,58 prómill. Innlent 13.10.2005 19:22
Sjö og hálft ár fyrir axarárás Hæstiréttur staðfesti dóm yfir Birki Birgissyni sem hlaut sjö og hálfs árs fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps á veitingastaðnum A. Hansen í Hafnarfirði. Birkir réðst á mann með exi og sló hann í höfuðið. Hann var enn fremur dæmdur fyrir sjö líkamsárásir, brot á vopnalögum og umferðarlögum. Innlent 13.10.2005 19:22
Bjartviðri syðra á morgun Íbúar í höfuðborginni og á suðvesturhorni landsins geta glaðst yfir því að veðrið á morgun, þjóðhátíðardaginn, verður með besta móti. Innlent 13.10.2005 19:22
Þýðingarsjóður úthlutar styrkjum Þýðingarsjóður úthlutar í ár styrkjum til 60 verkefna að andvirði 12,5 milljóna króna, en alls sóttu 30 aðilar um styrki til 99 þýðingarverkefna. Hæsta styrkinn fékk bókaútgáfan Bjartur, 2,35 milljónir króna til ellefu verkefna, en þar eftir kom Edda - útgáfa með 1,8 milljónir króna til átta verkefna. Innlent 13.10.2005 19:22
Fjárdráttur á sambýli verði kærður Meintur fjárdráttur starfsmanns á sambýli á vegum Reykjavíkur verður kærður til lögreglu, reynist grunur á rökum reistur. Innlent 13.10.2005 19:22
Gott veður á þjóðhátíðardaginn Það er þjóðsaga á Íslandi að það sé alltaf rigning á 17. júní en þann dag árið 1911 var glampandi sól um allt land og hiti 8-15 stig, hlýjast í höfuðborginni. Þannig verður það einnig á morgun. Innlent 13.10.2005 19:22
Tólf tíma samfelld dagskrá Þjóðhátíðarhald í Reykjavík er með hefðbundnu sniði í ár en helsta nýmælið er að engin skil eru milli síðdegis- og kvölddagskrár og er því dagskráin samfelld í tólf tíma frá kl. 10 að morgni til kl. 22 að kvöldi. Tímasetta dagskrá þjóðhátíðar í Reykjavík er að finna <strong><a title="17. júní dagskrá" href="http://www.visir.is/?PageID=796"><font color="#000080">hér</font></a></strong> Lífið 13.10.2005 19:22
Urðu bensínlausir eftir innbrot Tveir menn, 22 og 25 ára gamlir, voru í Héraðsdómi Austurlands í gær dæmdir í mánaðarfangelsi hvor, en báðir eru dómarnir skilorðsbundnir í tvö ár. Þá er þeim gert að greiða hvor um sig Olíuverslun Íslands hf. 51.790 krónur með vöxtum. Innlent 13.10.2005 19:22
Ógnvænlegt ástand vegna offitu Offita er samfélagslegt vandamál, sem allir verða að taka saman höndum gegn, segir Anna Björg Aradóttir hjúkrunarfræðingur hjá Landlæknisembættinu. Hún segir ástandið hér á landi ógnvænlega. Innlent 13.10.2005 19:22
Ísland dýrast í öllum flokkum Íslenskir neytendur greiddu hæsta verð í Evrópu fyrir ADSL tengingar sínar á síðasta ári samkvæmt úttekt dönsku Tækni og fjarskiptastofnunarinnar. Greiddu Íslendingar rúmar sex þúsund krónur fyrir 512 kb/s áskrift á mánuði meðan Hollendingar, þar sem verðið var ódýrast, greiddu aðeins tæpar tvö þúsund krónur. Innlent 13.10.2005 19:22
Nýjar upplýsingar breyti engu Ríkisendurskoðandi hefur lokið athugun sinni á hæfi forsætisráðherra varðandi sölu ríkisbankanna og segir að nýjar upplýsingar sem lagðar hafi verið fram á fundi fjárlaganefndar breyti engu, Halldór Ásgrímsson hafi ekki verið vanhæfur til að fjalla um bankasöluna. Lögfræðingi félagsins Skinney-Þinganes hafði sést yfir hlut venslafólks Halldórs í öðru fyrirtæki, sem átti um 18 prósent í Skinney-Þinganesi. Forsætisráðherra sjálfur átti þó ekkert í því. Innlent 13.10.2005 19:22
Gerð Kárahnjúkastíflu hálfnuð Gerð Kárahnjúkastíflu, stærsta mannvirkis Íslands, er nú hálfnuð og er endanleg mynd komin á hluta stíflunnar. Eftirlitsaðilar segja verktakann kominn yfir erfiðasta hjallan og fram undan sé beinn og breiður vegur. Innlent 13.10.2005 19:22
Hriktir í stoðum R-listans Á fundi fulltrúaráðs Samfylkingarfélagnna í Reykjavík á miðvikudag var almenn sátt meðal fundarmanna um að leggja til að haldið yrði prófkjör meðal flokkanna þriggja, sem standa að R-listanum, þar sem borgarbúar fengju að koma að ákvörðun um vægi einstaklinga og flokka á listanum. Innlent 13.10.2005 19:22
Baugur stofnar styrktarsjóð Baugur ákvað í síðustu viku að verja þrjú hundruð milljónum króna á árinu í stofnun sjóðs sem á að styrkja líknar- og velferðarmál barna en einnig menningar- og listalíf. Gert er ráð fyrir að heildarframlög sjóðsins verði 40-60 milljónir króna á ári. Innlent 13.10.2005 19:22
Stærra hótel í Stykkishólmi Hótel Stykkishólmur stækkar um rúmlega helming þegar nýbygging hótelsins verður tilbúin á næstu dögum. Nýja byggingin verður alls þrjár hæðir en þegar hefur neðsta hæðin verið opnuð en eftir stækkunina verða alls áttatíu herbergi á hótelinu en voru fyrir hana rúmlega þrjátíu. Innlent 13.10.2005 19:22
Þrír mánuðir fyrir líkamsárás Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag rúmlega þrítugan karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás með því að hafa í apríl árið 2001 slegið annan mann í andlitið með glasi með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð á neðri vör og fimm framtennur brotnuðu. Ákærði neitaði sök en sannað þótti í samræmi við framburð vitna að hann hefði hent glasinu framan í manninn. Innlent 13.10.2005 19:22
Fyrsti samningur sinnar tegundar Háskóli Íslands og Tryggingastofnun ríkisins hafa gert með sér samning um eflingu kennslu og rannsóknir í almannatryggingarétti með sérstakri áherslu á lífeyristryggingar. Um tímamótasamning er að ræða því lagadeild Háskóla Íslands hefur ekki áður gert slíkan samning við stofnun utan HÍ. Innlent 13.10.2005 19:22
Sprengjugabb í Íslandsbanka Lögregla var kölluð í útibú Íslandsbanka við Lækjargötu í Reykjavík skömmu fyrir hádegi í gær vegna miða sem starfsmenn bankans töldu vera sprengjuhótun. Reyndist um gabb eða misheppnað spaug að ræða. Innlent 13.10.2005 19:22
Dómur héraðsdóms staðfestur Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjaness frá janúar síðastliðnum um tæplega sjö ára fangelsi til handa Berki Birgissyni sem slasaði mann alvarlega þegar hann réðst á hann á veitingastaðnum A. Hansen í Hafnarfirði vopnaður öxi. Innlent 13.10.2005 19:22
Töldu sprengjuhótun felast í miða Lögreglan var kvödd að útibúi Íslandsbanka við Lækjargötu fyrir hádegið vegna grunsamlegs miða. Samkvæmt lögreglu töldu starfsmenn bankans sig geta lesið sprengjuhótun út úr þeim skilaboðum sem á honum voru og var lögregla því kölluð til. Talið er að börn hafi staðið að baki gabbinu en miðinn sem fjaðrafokinu olli er í vörslu lögreglunnar. Innlent 13.10.2005 19:22
Guðmundur Árni til Svíþjóðar Aðspurður hvort hann hlakki ekki til að taka við nýju starfi segir Guðmundur Árni: "Mér líst prýðilega á Svíþjóð og það er heilmikil tilhlökkun í mér en auðvitað dálítill tregi líka. Ég er búinn að vera í pólitísku vafstri nú í 25 ár þannig að þetta er auðvitað mikil breyting. Innlent 13.10.2005 19:22
Vorleiðangri Hafró lokið Þann 1. júní síðastliðinn lauk árlegum vorleiðangri Hafrannsóknastofnunarinnar. Athuganir voru gerðar á 114 stöðum umhverfis landið. Helstu niðurstöðurnar voru að sjávarhiti væri hár og mikil selta sunnanlands og vestan, en hiti um meðallag og selta undir meðallagi norðan- og austanlands. Gróður var víðast hvar lítill en átumagn við landið var yfir langtímameðaltali á flestum rannsóknarstöðvum. Innlent 13.10.2005 19:22