Innlent
Verðhækkun á díselolíu Menn eru farnir að hamstra dísilolíu. Næsta föstudag verður lítrinn af dísilolíu nánast jafndýr og bensínlítrinn. Einstaklingum er leyfilegt að kaupa 5000 lítra af olíu án þess að borga af henni þungaskatt og hafa margir nýtt sér það. Þungaskattur verður aflagður á föstudaginn næsta og olíugjald tekið upp í staðinn. Innlent 13.10.2005 19:26
Flugherinn tekur við varnarstöð Flugherinn tekur við rekstri varnarstöðvarinnar í Keflavík á næsta ári. Þetta fullyrðir fréttavefur Víkurfrétta í Keflavík í frétt sem birtist í dag. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum blaðsins mun flugherinn taka við rekstri stöðvarinnar þann 1. október á næsta ári. Innlent 13.10.2005 19:26
Mælt með Sjöfn Þór Ákveðið var á valnefndarfundi í Reykhólaprestakalli að leggja til að Sjöfn Þór guðfræðingur yrði skipuð sóknarprestur. Valnefndin hefur því lokið störfum en kirkjumálaráðherra skipar í embættið samkvæmt niðurstöðu hennar. Sjö aðrir umsækjendur voru um embættið.<font face="Helv"></font> Innlent 13.10.2005 19:26
Fimmtán ára akandi og próflaus Reykjavíkurlögreglan stöðvaði fimmtán ára ungling þar sem hann var að aka um Holtahverfi í nótt. Hann var að sjálfsögðu próflaus og hafði hann stolið bílnum. Innlent 13.10.2005 19:26
Skyrsletturum birt ákæra á morgun Þremenningunum, Paul Gill, Arna Ösp Magnúsardóttir og Ólafur Páll Sigurðsson sem slettu grænleitu skyri á fundi Landsvirkjunar um miðjan mánuðinn verður birt ákæra á morgun. Skaðabótakrafa Nordica Hótel hljóðar upp á um 2,8 milljónir króna á þremenningana eða tæp ein milljón króna á hvern og einn. Innlent 13.10.2005 19:26
Fá 60 milljarða fyrir orkusölu Fulltrúar Alcan á Íslandi og Orkuveitu Reykjavíkur hafa skrifað undir samkomulag um að Alcan kaupi af Orkuveitunni 200 MW af raforku vegna hugsanlegrar stækkunar álversins í Straumsvík. Innlent 13.10.2005 19:26
Stækkun Norðuráls á Grundartanga Framkvæmdir við stækkun Norðuráls á Grundartanga ganga mjög vel. Nýtt fimmtíu metra hátt súráls-síló hefur verið reist á mettíma og vinna við kerskála hefur gengið vonum framar. Innlent 13.10.2005 19:26
S-hópurinn tengdist Halldóri Efasemdir um hæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra við sölu á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum hlutu að vakna um leið og S-hópurinn svokallaði skilaði inn tilkynningu um áhuga á kaupum á hlut í bankanum. Innlent 13.10.2005 19:26
Gamli sáttmáli víst gamall Sagnfræðiprófessor við Háskóla Íslands hefur efasemdir um að Gamli sáttmáli, helsta plagg sjálfstæðisbaráttu Íslendinga, sé yngri en talið var eins og haldið er fram í nýrri doktorsritgerð. Þar er því haldið fram að Gamli sáttmáli sé seinni tíma tilbúningur. Innlent 13.10.2005 19:26
Merki um leiðbeinandi hraða Vegagerðin hefur ákveðið að setja upp merki sem sýna leiðbeinandi hámarkshraða og verða þau sett upp við stofnvegi landsins. Þetta er eitt verkefna umferðaröryggisáætlunar til ársins 2008, sem var samþykkt á Alþingi á síðastliðð vor. Innlent 13.10.2005 19:26
Hans Markús kærir biskup "Strax í kjölfar niðurstöðu áfrýjunarnefndar sem birtist stefndi ég biskupi, fyrir hönd Þjóðkirkjunnar, og öðrum málsaðilum fyrir Héraðsdóm Reykjaness til að krefjast ógildingar þess að Hans Markúsi skuli gert að færa sig til í starfi," segir Sveinn Andri Sveinsson lögmaður Hans Markúsar Hafsteinssonar sóknarprests í Garðasókn. Innlent 13.10.2005 19:26
Nýtt Samkeppniseftirlit Eitt brýnasta verkefni samkeppniseftirlitsins verður að auka gagnsæi í stjórnum og eignatengslum fyrirtækja að mati Páls Gunnars Pálssonar forstjóra Samkeppniseftirlitsins. Það mun í auknum mæli stuðla að fræðslu og fyrirbyggjandi aðgerðum til að koma í veg fyrir samkeppnisbrot. Sjötíu mál eru nú til meðferðar hjá samkeppnisyfirvöldum. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:26
Grunur um fíkniefnasölu Rúmlega fertugur maður var í dag handtekinn í Reykjavík vegna gruns um fíkniefnasölu. Lögreglan gerði húsleit á tveimur stöðum og var lagt hald á fleiri en eina tegund fíkniefna. Innlent 13.10.2005 19:26
Hans Markús fluttur til í starfi Séra Hans Markús Hafsteinsson, sóknarprestur í Garðasókn verður fluttur til í starfi. Þetta er niðurstaða áfrýjunarnefndar kirkjunnar. Séra Hans Markús hefur stefnt biskupi Íslands fyrir hönd Þjóðkirkjunnar og krefst þess að niðurstaða áfrýjunarnefndarinnar verði ógild. Innlent 13.10.2005 19:26
Neytendasamtökin höfða mál Neytendasamtökin hafa ákveðið að höfð mál á hendur olíufélaginu Esso, fyrir hönd eins félagsmanns samtakanna. Er krafist bóta vegna samráðs olíufélaganna. Kröfurnar sem settar eru fram eru á bilinu 300 til 400 þúsund krónur. Innlent 13.10.2005 19:26
Þykir ritstjórnarstefnan ógeðfelld Flugfélagið Iceland Express hættir frá og með deginum í dag að selja blöðin DV og Hér og nú í sínum vélum. Innlent 13.10.2005 19:26
Matvöruverð aftur hækkandi Íslenskir neytendur geta átt von á enn frekari hækkunum á matvöruverði á næstu mánuðum. Vísitala neysluverðs hækkaði um tvö prósent síðast þegar hún var mæld og gert er ráð fyrir enn frekari hækkun þegar vísitalan verður birt í næsta mánuði. Innlent 13.10.2005 19:26
Ólafur í ævilangt bann Enska knattspyrnusambandið hefur dæmt Ólaf Gottskálksson í ævilangt keppnisbann fyrir að neita að fara í lyfjapróf í janúar síðastliðnum. Ólafur sem þá var leikmaður Torquay United er fyrsti leikmaðurinn sem bresk íþróttayfirvöld, UK Sport, nafngreina fyrir að brjóta lyfjareglur í Bretlandi sem settar voru í fyrra. Sport 13.10.2005 19:26
Vilja milljónirnar endurgreiddar Mál Kers hf. á hendur íslenska ríkinu og samkeppnisyfirvöldum verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Fyrirtækið krefst þess að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá því í janúar verði felldur úr gildi, en til vara að sektargreiðslur fyrirtækisins verði stórlega lækkaðar. Innlent 13.10.2005 19:26
Yfirfara hálendisvegi Slysavarnarsvið Landsbjargar hyggst gera úttekt á vegum um hálendi landsins í sumar en tilefnið er að björgunarsveitum bárust að meðaltali tvö útköll hvern einasta dag síðasta sumar þar sem ferðamenn höfðu lent í erfiðleikum. Innlent 13.10.2005 19:26
Beltin bjarga Fjórir til fimm deyja í bílslysum á hverju ári vegna þess að þeir notuðu ekki bílbelti. Hert viðurlög og meiri forvarnir gætu orðið til þess að fækka banaslysum um fimmtung að mati rannsóknarnefndar umferðarslysa. Einungis eitt banaslys varð á austurlandi á síðasta ári en Suður og suðvestur hornið er slysamesta svæðið. Innlent 13.10.2005 19:26
Fyrsti metanknúði sorpbíllinn Í gær var fyrsti metanknúni sorpbíll landsins tekinn í notkun, en hann er mun hljóðlátari en hefðbundnir díselbílar og veldur 80 % minni sótmengun, auk þess sem útblástur köfnunarefnisoxíðs er 60 % minni en í venjulegum sorpbílum. Innlent 13.10.2005 19:26
Fá tíu milljóna eingreiðslu Eigendur stofnfjár í Sparisjóði Hafnarfjarðar, sem hafa samþykkt að selja bréf sín að fengnu samþykki stjórnar, hafa fengið 10 milljón króna eingreiðslu samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Talið er að um 30 stofnfjáreigendur hafi fallist á að selja bréf sín, þar á meðal nokkrir sem kusu ekki núverandi stjórn á síðasta aðalfundi. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:26
Stjórnsýsluúttekt á MÍ Stjórn félags framhaldsskólakennara vonast til að niðurstaða úttektar menntamálaráðuneytisins á stjórnarháttum og samskiptum innan Menntaskólans á Ísafirði, verði til þess að ráða bót á þeim vandamálum sem þar eru uppi á borðum. Innlent 13.10.2005 19:26
Veiðimenn tregir að sleppa Laxveiði hefur farið rólega af stað í ár ef undan er skilin veiði í Norðurá þar sem yfir fjögur hundruð laxar hafa komið á land, að sögn Páls Þórs Ármanns formanns Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Laxá í Kjós hefur ekki reynst gjöful og þar hafa aðeins veiðst um sjötíu laxar það sem af er sumri en áin virðist þó vera að taka við sér. Innlent 13.10.2005 19:26
Samskip bætir við flotann Skipafélagið GEEST north sea line, sem er dótturfélag Samskipa, hefur gengið frá samningi um leigu á fjórum nýjum gámaskipum sem verða afhent á næsta ári. Tvö skipanna verða eingöngu notuð á siglingaleiðum félagsins til Bretlands. Innlent 13.10.2005 19:26
Tökum þátt í 27 verkefnum Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins hefur úthlutað 272 milljónum króna í fjögur verkefni sem Íslendingar taka þátt í. Nýverið fengu fimm verkefni vilyrði um styrk. Alls tekur Ísland þátt í 27 verkefnum sem í gangi eru á vegum Norðurslóðaáætlunarinnar. Innlent 13.10.2005 19:26
Beltin bjarga Í skýrslum Rannsóknarnefndar umferðarslysa um banaslys í umferðinni 2004 og umferðarslys erlendra ferðamanna á Íslandi sama ár kom fram að fækka mætti banaslysum á Íslandi um fimmtung ef bílbelti væru ávallt notuð. Innlent 13.10.2005 19:26
Stefnir Landsbankanum og ríkinu Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna hefur ákveðið að stefna Landsbanka Íslands, fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra vegna vaxandi skuldbindinga sjóðsins, en þær má að umtalsverðu leyti rekja til launaskriðs meðal bankamanna í kjölfar einkavæðingar ríkisbankanna. Stefna sjóðsins var afhent forsvarsmönnum Landsbankans á þriðjudag. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:26
Óljóst hverjir seldu hlut sinn Enn er óljóst hverjir seldu hluti í Íslandsbanka í gær og hvort viðskiptin breyta valdahlutföllum í stjórn bankans. Eins og við greindum frá í gær skiptu bréf upp á níu og hálfan milljarð um hendur í gær. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:26