Innlent
Blokkin seld á tíu milljónir Í dag verður skrifað undir kaupsamninga á fjölbýlishúsi á Bíldudal sem var í eigu Vesturbyggðar. Jón Þórðarson athafnamaður átti hæsta boð í hana en það hljóðaði upp á rúmar tíu milljónir króna. </font /> Innlent 13.10.2005 19:44
Gustshúsin standa næstu áratugi Hesthúsabyggð Gustsmanna í Kópavogi verður þar áfram að minnsta kosti næstu þrjátíu og þrjú árin. Forsvarsmenn Kópavogsbæjar funduðu með Gustsmönnum í gærkvöldi um framtíð svæðisins. Innlent 13.10.2005 19:44
Fjárskortur tefur rannsókn Yfirdýralæknir sótti um fjárveitingu upp á eina og hálfa milljón króna í maí til að rannsaka hugsanlega fuglaflensu í fuglum hér á landi. Hún hefur ekki verið afgreidd enn. Sérfræðingur í smitsjúkdómum fugla segir liggja á að hraða rannsókn ekki síst í ljósi stöðunnar erlendis. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:44
Réttað yfir ræningjum Réttað var í gær yfir tveimur mönnum, 42 og 18 ára gömlum, í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna ránstilraunar við Hamarsgerði í Reykjavík í mars í fyrra. Þar réðust þeir á mann með trékylfu og slógu hann ítrekað með henni og krepptum hnefa. Innlent 13.10.2005 19:44
Spáir mildum vetri Páll Bergþórsson, veðurfræðingur, telur að snjóleysi í Esjunni, fimmta árið í röð, bendi til þess að veturinn verði mildur. Hann segir Esjuna vera einskonar langtímahitamæli sem segi ýmislegt um veðrið. Innlent 13.10.2005 19:44
Milljónir plantna gróðursettar "Þetta er stór áfangi sem skógræktarfélögin hafa fyrst og fremst unnið að," segir Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktar Íslands. Fimmtán milljónir plantna hafa verið gróðursettar í Landgræðsluskógum landsins síðastliðin fimmtán ár. Innlent 13.10.2005 19:44
Gott bláberjaár Útlit er fyrir gott berjaár og víða er bláberjaspretta með eindæmum góð. Ingólfur Kjartansson á Tálknafirði segir berjasprettu góða út með Snæfjallaströnd, en hann er staðarhaldari í Dalbæ í Unaðsdal yfir sumartímann. Innlent 13.10.2005 19:44
Hægt að koma í veg fyrir smit Íslendingar eru betur settir hvað varðar fuglaflensusmit í alifuglum heldur en aðrar þjóðir í Evrópu. Sjaldgæft er að íslenskir hænsnfuglar gangi úti á Íslandi. Innlent 13.10.2005 19:44
Hesthúsabyggð stendur áfram Hesthúsabyggð Gusts í Kópavogi fær að vera þar áfram og munu bæjaryfirvöld í Kópavogi standa við alla samninga þar að lútandi. Eins og Stöð tvö greindi frá fyrr í mánuðinum hafa tveir aðilar gert fjölmörgum hesthúsaeigendum tilboð í hesthús þeirra, með það að markmiði að byggja atvinnuhúsnæði á félagssvæðinu. Innlent 13.10.2005 19:44
Hjálparforrit á vefsíðu Strætó Í fréttatilkynningu frá Strætó bs. er bent á nýjan og endurbættan ráðgjafa sem hefur verið tekinn í notkun á vefsíðu Strætó bs. á slóðinni <a href="http://www.bus.is/">www.bus.is</a>. Ráðgjafinn er öflugt hjálparforrit sem veitir nákvæmar upplýsingar um áfangastaði og ferðir strætó með það að markmiði veita aukna þjónustu og að koma notendum milli staða á höfuðborgarsvæðinu á sem hagkvæmastan hátt. Innlent 13.10.2005 19:44
Lögreglan kannar lögmæti söfnunar Lögreglan kannar hvort heimild sé fyrir söfnun til styrktar bágstöddum börnum á Íslandi. Mjög strangar reglur eru í gildi um safnanir samkvæmt lögum um opinberar fjársafnanir. Til að mynda ber þeim sem standa að söfnun að tilkynna lögreglunni um söfnunina áður en hún hefst. Innlent 13.10.2005 19:44
Íhuga málaferli gegn Persónuvernd Jón Hjartarson, skólameistari Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra á Sauðarkróki, segir skólann íhuga að fara í mál við Persónuvernd vegna úrskurðar um að fjöldi eftirlitsmyndavéla á göngum heimavistar skólans brjóti gegn meðalhófsreglu. Jón segir Persónuvernd hafa hvatt sig til að höfða mál til að hrinda úrskurðinum. Innlent 13.10.2005 19:44
Fimmtán milljónir trjáplantna Fimmtán milljónasta Landgræðsluskógaplantan var gróðursett í Smalaholti í Garðabæ, við norðanvert Vífilsstaðavatn í dag. Innlent 13.10.2005 19:44
Óskoðaður og ótryggður Vörubílinn sem lenti í hörðum árekstri við strætisvagn síðastliðinn föstudag var óskoðaður og ótryggður. Bílstjórinn neitar að hafa farið yfir á rauðu ljósi. Hann heimsótti strætisvagnabílstjórann á sjúkrahús. Innlent 13.10.2005 19:44
Samstarfsnefnd ræðir ellilífeyri Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir það fagnaðarefni, að forráðamenn tiltekinna fyrirtækja skuli hafa tekið upp þá starfsmannastefnu að ráða eldra fólk með reynslu í vinnu, þannig að það hafi valfrelsi á ævikvöldinu. Innlent 13.10.2005 19:44
Hollenska skútan fundin Hollenska skútan, sem leitað hefur verið síðan á laugardag fannst um 160 sjómílur suðvestur af Reykjanesi í morgun. Viðamikil leit hefur staðið yfir að skútunni frá því að eitt neyðarkall barst frá bauju skútunnar þar sem hún var stödd suður af Grænlandi, en skútan hafði misst neyðarbaujuna. Innlent 13.10.2005 19:44
Engir eftirmálar af myndatöku Ólíklegt er að njósnamyndavél sem eigandi World Class kom fyrir í búningsklefa, dragi einhvern dilk á eftir sér. Persónuvernd hefur úrskurðað að myndatakan hafi verið ólögleg. Innlent 13.10.2005 19:44
Sindraberg gjaldþrota Stjórn Sushi-verksmiðjunnar Sindrabergs á Ísafirði hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum. Um 20 manns missa vinnuna við gjaldþrot fyrirtækisins. Innlent 13.10.2005 19:44
Meiri forvarnir og kynfræðslu Miklu fleiri íslenskar unglingsstúlkur verða þungaðar heldur en norrænar kynsystur þeirra. Ástæðan er ekki meira lauslæti, heldur skortur á fræðslu og þjónustu. Innlent 13.10.2005 19:44
Berjaspretta með besta móti Berjaspretta á Vestfjörðum er nú með besta móti. Vanur berjatínslumaður hefur aldrei séð eins mikið af aðalbláberjum á svæðinu. Innlent 13.10.2005 19:44
Athugasemdir við mannréttindamál Fjölmargar athugasemdir vegna mannréttindamála hér á landi er að finna í niðurstöðu nefndar á vegum Sameinuðu þjóðanna sem fjallar um afnám kynþáttamisréttis. Mismunun, meðferð á hælisleitendum, atvinnumál útlendinga og aldursskilyrði til dvalarleyfa er meðal þess sem gerðar eru athugasemdir við og eru íslensk stjórnvöld hvött til að vinna að úrbótum. Innlent 13.10.2005 19:44
Gustar um Glaðheima "Áhuginn fór fram úr björtustu vonum," segir Guðbjartur Ingibergsson verktaki, sem er í forsvari fyrir hóp sem gert hefur tilboð í hesthúsin í Glaðheimum á Gustssvæðinu í Kópavogi. Hann býst við að ná samningum við yfir þriðjung hesthúsaeigenda þar. Innlent 13.10.2005 19:44
FÍB safnar enn undirskriftum Yfir tólfþúsund manns hafa skrifað undir áskorun Félags íslenskra bifreiðaeigenda, til stjórnvalda, um að draga úr sköttum á eldsneyti vegna mikillar hækkunar á olíu á heimsmarkaði. Innlent 13.10.2005 19:44
Aron Pálmi á heimleið Yfirgnæfandi líkur eru á því að Aron Pálmi Ágústsson sé í þann veginn að fá frelsi. Nafn hans er nú á lista sem löggjafarþing Texas hefur tekið saman yfir fanga sem það mun leggja til við ríkisstjóra Texas á næstu dögum að verði látnir lausir. Jafnvel er búist við að Aron Pálmi verði kominn til landsins eftir viku til tíu daga. Innlent 13.10.2005 19:44
Leiðarkort Strætó er hálfkák Ingi Gunnar Jóhannsson landfræðingur hefur hannað eigið kort af nýju leiðarkerfi Strætó. Hann hyggst gefa kortið út sjálfur ef ekki semst við Strætó um samstarf. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:44
Nefnd SÞ vill stefnubreytingu Nefnd Sameinuðu þjóðanna um afnám kynþáttamisréttis hefur lýst áhyggjum sínum af því að fjárveitingar til Mannréttindaskrifstofu Íslands hafi verið felldar úr fjárlögum 2005. Innlent 17.10.2005 23:42
Umsvif RNU margfaldast Um mánaðamótin taka gildi ný lög um Rannsóknarnefnda umferðarslysa þannig að fimm til sjö sinnum fleiri slys verða rannsökuð á ári en verið hefur. Hingað til hefur nefndin aðeins rannsakað banaslys. Fyrsta verkefnið í nýrri verkskipan er alvarlegur árekstur strætisvagns og vörubíls sem varð fyrir helgina. Innlent 13.10.2005 19:44
Hefur engin áhrif á mig "Fuglaflensan hefur engin áhrif á mig og líf mitt. Ég borða bara svínakjöt, nautakjöt og salat í staðinn fyrir kjúkling," segir Steingrímur Ólafsson iðnrekstrarfræðingur sem er við vinnu í fyrirtæki sínu í Novosibirsk í Síberíu. Innlent 13.10.2005 19:44
Mýsla marði sigur Kýrin Mýsla frá Efra-Ási í Hjaltadal bar sigur úr býtum á kúasýningunni Kýr 2005 sem haldin var í tengslum við Landbúnaðarsýninguna Fluguna í Skagafirði um helgina. Innlent 13.10.2005 19:44
Umsóknir eldra fólks streyma inn Yfir 60 atvinnuumsóknir hafa borist til Húsasmiðjunnar eftir að fyrirtækið auglýsti eftir eldra fólki með áralanga reynslu úr öllum greinum atvinnulífsins til starfa. Innlent 13.10.2005 19:44