Innlent
Gestur tilnefndur í 5. sæti á lista Framsóknar? Endanlegur framboðslisti Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor hefur ekki verið ákveðinn. Ef allir á listanum verða færðir upp um eitt sæti, er hugsanlegt að Gestur Kr. Gestsson, sem lenti í áttunda sæti í prófkjörinu, verði tilnefndur í fimmta sætið. Innlent 7.2.2006 12:05
Ríkið í mál við olíufélögin Ríkisstjórnin ákvað í morgun að fara í mál við olíufélögin vegna verðsamráðs þeirra. Stjórnvöld senda stóru olíufélögunum kröfugerð vegna þess tjóns sem ríkið varð fyrir. Innlent 7.2.2006 12:03
Þorskseiði sjöfalda þyngd sína á rúmum 10 mánuðum Þorskseiði, sem fiskeldi Brims hf. í Eyjafirði er að ala, stækka og þyngjast með meiri hraða en bjöttustu vonir stóðu til. Á heimasíðu Brims er greint frá því að seiði, sem voru 90 grömm um miðjan mars í fyrra, séu nú orðin 740 grömm og hafi þar með rúmlega sjöfaldað þyngd sína á tíu og hálfum mánuði. Innlent 7.2.2006 10:06
Bæjarráð Hveragerðis nýtir heimild Bæjarráð Hveragerðis hefur samykkt samhljóða að nýta heimild Launanefndar sveitafélaga til tímabundinnar launahækkunar. Laun leikskólakennara og starfsmanna félaga sem samið hafa um starfsmat við launanefndina, verða hækkuð. Þeim starfsmönnum sem fá launahækkunm verður kynnt það sérstaklega. Innlent 7.2.2006 10:01
Ragnheiður leiðir lista Samfylkingar í Árborg Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarfulltrúi, og framkvæmdastjóri mun leiða lista Samfylkingarinnar í Árborg í komandi sveitastjórnakosningum. Uppstilling listans var kynnt og samþykkt á flokksfundi í gærkveldi. Innlent 7.2.2006 09:57
Bílanaust kaupir Olíufélagið Núverandi hluthafar og stjórnendur Bílanausts, ásamt öðrum fjárfestum, hafa keypt allt hlutafé í Olíufélaginu fyrir hátt í 20 milljarða króna. Með í kaupunum er eignarhluti Olíufélagsins í Olíudreifingu sem og þjónustustöðvar og flestar aðrar fasteignir í rekstri Olíufélagsins. Olíufélagið og Bilanaust verða í eigu nýs eignarhaldsfélags og verður velta þess á árinu 2006 um 26 milljarðar króna. Íslandsbanki hafði umsjón með söluferlinu. Hinir nýju eigendur skilja fjárfestingarfélagið Ker eftir með hugsanlegar sektargreiðslur vegna samráðs olíufélaganna um verðlagningu. Innlent 7.2.2006 09:37
Verið að hreinsa snjó af vegum í flestum landshlutum Nokkur hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á vegum landsins. Verið er að hreinsa snjó af vegum í flestum landshlutum, einkum á heiðum. Smá éljagangur hefur verið víða um land. Innlent 7.2.2006 08:17
Kosið um sameiningu á laugardag Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hafin vegna kosninga um sameiningu þriggja sveitarfélaga austur í Flóa í Árnessýslu, en kosningarnar verða á laugardag. Þá ganga íbúar Hraungerðis- Gaulverjabæjar- og Villingaholtshreppa að kjörborðinu, en þessir hreppar eru austan við Árborg, sem er sameinað sveitarfélag Selfoss, Eyrarbakka, Stokkseyrar og Sandvíkurhrepps. Innlent 7.2.2006 07:54
Flytji réttleysið ekki milli landa Forystumenn allra launþegasamtaka á Norðurlöndum hafa skorað á norræna þingmenn á Evrópuþinginu að styðja breytingartillögu við þjónustutilskipun Evrópusambandsins. Þannig megi koma í veg fyrir að réttindaleysi launþega í sumum aðildarríkjum sé í raun flutt með þeim landa á milli segir formaður BSRB. Innlent 6.2.2006 22:06
Karlarnir hvattir til að mæta í karlaþrek Karlar á Þingeyri og í Ísafjarðarbæ eru nú hvattir til að taka upp heilbrigt líferni og skella sér í svokallað karlaþrek, sem Íþróttafélagið Höfrungur og íþróttamiðstöðin á Þingeyri bjóða upp á. Innlent 7.2.2006 07:49
Þorskseiðin stækka hraðar en vonir stóðu til Þorskseiði, sem fiskeldi Brims hf. í Eyjafirði er að ala, stækka og þyngjast með meiri hraða en bjöttustu vonir stóðu til. Á heimasíðu Brims er greint frá því að seiði, sem voru 90 grömm um miðjan mars í fyrra, séu nú orðin 740 grömm og hafi þar með rúmlega sjöfaldað þyngd sína á tíu og hálfum mánuði. Innlent 7.2.2006 07:32
598 milljónir í laun og hlunnindi á síðasta ári Sextán framkvæmdastjórar sviða og dótturfyrirtækja Landsbankans skiptu með sér 598 milljónum króna í laun og hlunnindi í fyrra, sem eru rúmar þrjár milljónir á mann á mánuði, samkvæmt ársskýrslu bankans. Innlent 7.2.2006 07:30
Bæjarráð Hveragerðis nýtir heimild Launanefndar sveitafélaga Bæjarráð Hveragerðis hefur samykkt samhljóða að nýta heimild Launanefndar sveitafélaga til tímabundinnar launahækkunar. Á fréttavefnum Suðurland.is segir að laun leikskólakennara og starfsmanna félaga sem samið hafa um starfsmat við launanefndina, verði hækkuð. Þeim starfsmönnum sem fá launahækkunm verður kynnt það sérstaklega. Innlent 7.2.2006 06:57
Vestfirðir í brennidepli á vðamikilli sýningu Atvinnulíf, ferðaþjónusta og mannlíf á Vestfjörðum verður kynnt á sýningunni Perlan Vestfirðið sem verður sett upp í Perlunni 5.-7. maí næstkomandi. Fréttavefur Bæjarins besta á Ísafirði segir að markmið sýningarinnar sé að kynna það sem Vestfirðirnir hafa upp á að bjóða bæði fyrir ferðamenn og þá sem vilja kynna sér búsetumöguleika. Innlent 7.2.2006 06:43
Kæran tekin fyrir í dag Útvarpsráð fjallar um stjórnsýslukæru Kristjáns Hreinssonar í dag en hann kærði ákvörðun útvarpsstjóra um að breyta reglum forkeppninnar. Kristján telur að vísa hefði átt laginu Til hamingju Ísland í flutningi Silvíu Nóttar frá keppni eftir að ljóst var að því hafði verið dreift á netinu. Innlent 6.2.2006 22:09
Ætla að einbeita sér að verslunarrekstri Forstjóri Dags Group segir fyrirtækið nú ætla að einbeita sér að verslunarrekstri. En gengið hefur verið frá kaupum Dagsbrúnar á fyrirtækinu Senu. Innlent 6.2.2006 23:16
Sameiningarkosingar í austanverðum Flóa á laugardag Sameiningarkosningar fara fram í þremur sveitarfélögum í austanverðum Flóa á laugardaginn kemur. Sveitarfélögin sem um ræðir eru Gaulverjabæjarhreppur, Hraungerðishreppur og Villingaholtshreppur. Innlent 6.2.2006 22:11
Bað Ögmund að gæta orða sinna Til snarpra orðaskipta kom á milli Sólveigar Pétursdóttur, forseta Alþingis, og Ögmundar Jónassonar, þingmanns Vinstri - grænna, í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag eftir að þingforseti bað Ögmund að gæta orða sinna. Innlent 6.2.2006 22:34
170 þúsund flugsæti á mánuði Hátt í 170 þúsund flugsæti í áætlunarflugi eru í boði til og frá Íslandi í hverjum mánuði í sumar. Tvö ný flugfélög fljúga til landsins næsta sumar. Innlent 6.2.2006 22:15
Launakostnaður í fiskvinnslu 23 sinnum hærri hér en í Kína Tuttugu og þrír kínverskir fiskvinnslustarfsmenn þiggja samanlagt jafnhá laun og einn starfsmaður í fiski á Dalvík. Launakostnaður í fiskvinnslu er með öðrum orðum orðinn tuttugu og þrisvar sinnum hærri á Íslandi en í Kína. Innlent 6.2.2006 21:12
Vegið sé að námsmönnum með því að afnema fæðingarstyrk til maka Sérfræðingur í norrænum málum telur vegið að námsmönnum í Danmörku með því að afnema rétt maka námsmanna erlendis til fæðingarstyrks frá Íslandi. Í bæði Noregi og Svíþjóð er heimavinnandi fólki greitt fæðingarorlof. Starfsfólk Tryggingastofnunar fer þvert gegn félagsmálaráðuneytinu með því að benda fólki á að brjóta lögheimilisskilyrði laganna. Innlent 6.2.2006 21:01
Líkur á að íslenskum starfsmönnum Varnarliðsins fækki áfram Líkur eru á því að íslenskum starfsmönnum Varnarliðsins fækki áfram, þó svo samningar náist við Bandaríkjastjórn um varnarsamstarfið. Landhelgisgæslan hefur skoðað aðstöðu á Keflavíkurflugvelli undir starfsemi þyrlubjörgunarsveitarinnar. Innlent 6.2.2006 20:49
Dagsbrún skilar 700 milljóna króna hagnaði Dagsbrún, sem á 365 miðla og þar með NFS, keypti í dag allt hlutafé Senu. Ársuppgjör félagsins var einnig birt í dag en samkvæmt því skilaði Dagsbrún liðlega 700 milljóna króna hagnaði eftir skatta. Innlent 6.2.2006 20:01
Krafist verði frekari undanþágna frá Kyoto-bókuninni Forsætisráðherra segir að núverandi ríkisstjórn muni krefjast frekari undanþágna frá Kyoto-bókuninni til að greiða fyrir uppbyggingu fleiri álvera. Á hvaða ráðherra ríkisstjórnarinnar eiga menn að taka mark varðandi uppbyggingu álvera, spurði formaður Samfylkingarinnar á Alþingi í dag og benti á að menn töluðu í austur og vestur. Innlent 6.2.2006 20:28
Margmiðlunartækni í landnámsbæ Margmiðlunartækni verður notuð til hins ítrasta þegar landnámsbærinn í Hótel Reykjavík Centrum verður opnaður almenningi í maí. Meðal annars má sjá landnámsmenn ganga um og rota geirfugla sér til matar. Ekki er ólíklegt að Ingólfur Arnarson hafi verið meðal þeirra. Innlent 6.2.2006 19:36
Borgarstjóri veitir hópnum Samferða viðurkenningu Hópurinn Samferða hlaut í dag viðurkenningu fyrir gott gegni myndarinnar "Þröng sýn". Það var borgarstjórinn í Reykjavík sem veitti hópnum viðurkenninguna. Á dögunum vann kvikmyndin Þröng sýn verðlaun Framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins "Eusopian Youth awards" í flokknum "Barátta gegn kynþáttahatri og fordómum". Kvikmyndin var valin úr um tólf þúsund verkum sem bárust keppninni og veitti Guðmundur Arnar Guðmundsson, annar leikstjóri myndarinnar verðlaununum viðtöku á dögunum. Eins var myndin tilnefnd til Eddu- verðlauna á síðustu Eddu hátíð í flokki stuttmynda og hlaut fyrstu verðlaun í flokknum "Ný form" á alþjóðlegu stúdentakvikmyndahátíðinni í Karlov Vary í Tékklandi. Af þessu tilefni veitti Borgarstjórinn í Reykjavík, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, hópnum Samferða viðurkenningu í Hinu húsinu í dag en meðleikstjóri Guðmundar er Þórgnýr Thoroddsen. Innlent 6.2.2006 18:19
Rafmagns- og heitavatnslaust um tíma í Grafarvogi Rafmagns- og heitavatnslaust varð í stórum hluta Grafarvogs fyrr í kvöld. Háspennustrengur við Víkurveg var grafinn í sundur um hálfsexleytið með þeim afleiðingum að rafmagnslaust varð í syðri hluta Grafarvogs og á Höfðum. Viðgerð lauk tæpri klukkustund síðar en þá fór heita vatnið af. Innlent 6.2.2006 19:54
Fær ekki greidda tryggingu vegna fjölskyldusögu Kona á fimmtugsaldri, sem sótti um sjúkdómatryggingu hjá KB líf, fær ekki greidda tryggingu ef hún greinist með MS þar sem móðir hennar hefur strítt við sjúkdóminn. Formaður samtaka MS-sjúklinga segir þetta hneyksli. Það sé nógu sárt að glíma við ólæknandi sjúkdóm, þótt manns nánustu sé ekki refsað fyrir það. Innlent 6.2.2006 19:32
Kaupverð um 3,6 milljarðar króna Dagsbrún hf. hefur skrifað undir samning um kaup á öllu hlutafé Senu, með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda. Sena er hluti af Degi Group og með kaupunum fylgir tónlistarútgáfa, umboð fyrir tölvuleiki, tónlist og kvikmyndir, bíórekstur, hljóðver, tónlistarveitan tónlist.is og allur annar rekstur Dags Group sem heyrir undir afþreyingarsvið. Kaupverð er um 3,6 milljarðar króna. Viðskipti innlent 6.2.2006 18:51
Fasteignamarkaðurinn að taka við sér eftir áramót Svo virðist sem fasteignamarkaðurinn sé að taka við sér eftir áramótin því gengið var frá 180 kaupsamningumí síðustu viku. Það er töluvert meira en meðaltal síðustu fjögurra vikna samkvæmt hálffimmfréttum KB banka, en 123 kaupsamningum hefur verið þinglýst á viku síðastliðnar fjórar vikur. Innlent 6.2.2006 18:17