Erlent
Átta ára brann inni Eldur kom upp í raðhúsi í Skævinge, nærri Hillerød á Sjálandi, og beið átta ára gamall drengur bana í eldsvoðanum. Erlent 23.10.2005 15:02
Bað Bandaríkjamenn um þolinmæði George Bush Bandaríkjaforseti bað Bandaríkjamenn að sýna þolinmæði varðandi stríðið í Írak og sagði stríð ekki vinnast án fórna. Forsetinn hefur sætt vaxandi gangrýni heima fyrir vegna ólgunnar í Írak og mannfalls í röðum Bandaríkjahers og mælist stuðningur við aðgerðir Bandaríkjanna í Írak nú aðeins 32 prósent samkvæmt könnun Gallup fyrir fjölmiðlana <em>CNN</em> og <em>USA Today</em>. Erlent 23.10.2005 15:02
Howard brýnir flokkinn gegn Brown Michael Howard, fráfarandi leiðtogi breska Íhaldsflokksins, hvatti í lokaræðu sinni á flokksþinginu í Blackpool í gær til einingar flokksmanna nú er þeir leita nýs leiðtoga. Erlent 23.10.2005 15:02
Höfuðslæðum vex ásmegin Stöðugt fleiri norskar stúlkur sem aðhyllast íslam kjósa að ganga með höfuðslæður í skólanum, að því er dagblaðið Dagsavisen hermir. Erlent 23.10.2005 15:02
Neitar lögum um meðferð fanga George Bush Bandaríkjaforseti hyggst beita neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að lög sem fjalla um meðferð stríðsfanga taki gildi. Í brýnu gæti slegið með honum og Bandaríkjaþingi í kjölfar þess að þingið samþykkti lögin í gær. Innlent 23.10.2005 15:02
Hvíta húsið gæti stöðvað lögin Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að herða reglur um meðferð fanga sem stjórnin hefur í varðhaldi. Talsmaður Hvíta hússins segir að forsetinn muni beita neitunarvaldi til að stöðva frumvarpið. Erlent 23.10.2005 15:02
Kyrkislanga réðst á krókódíl Í Everglades þjóðgarðinum á Flórída mættust tvær skepnur sem fæstir vildu mætast: risavaxin kyrkislanga og krókódíll. Svo virðist sem fjögurra metra löng slangan hafi ráðist á nærri tveggja metra langan kródódílinn og reynt að éta hann. Hún gleypti hann hálfan en sprakk þá með þeim afleiðingum að bæði dýrin drápust. Erlent 23.10.2005 15:02
Vara við árás á jarðlest New York Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, greindi frá því í dag að hætta væri á hryðjuverkaárás á neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar á næstu dögum samkvæmt upplýsingum bandarísku alríkislögreglunnar. Bloomberg sagðist hafa vitað af ógninni í nokkra daga en hefði ekki greint almenningi frá því fyrr þar sem lögregla ynni að því að koma í veg fyrir slíka árás. Erlent 23.10.2005 15:02
Bóluefni verði fjöldaframleitt George Bush Bandaríkjaforseti mun hvetja lyfjaframleiðendur til þess að finna leiðir til framleiða bóluefni gegn fuglaflensu í miklu magni í ljósi þess að veikin getur orðið að heimsfaraldri. Erlent 23.10.2005 15:02
Níu fórust í sjálfsmorðsárás Níu fórust í sjálfsmorðsárás nærri olíumálaráðuneytinu í Bagdad í dag, og heimatilbún sprengja sprakk skammt frá hervagni í borginni. Ofbeldi setur mark sitt á síðustu dagana fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá, sem fer fram á miðvikudaginn kemur. Hersveitir berjast nú af hörku gegn uppreisnarmönnum í vesturhluta landsins. Erlent 23.10.2005 15:02
Nýjar tegundir risaeðlna finnast Tvær nýjar tegundir risaeðlna hafa fundist við fornleifauppgröft í Norðaustur Kína. Alþjóðlegur hópur vísindamanna greindi frá þessu í dag. Ummerki risaeðlanna eru steingervingar en þessar tvær tegundir tilheyra hópi skriðdýra, svokölluðum pterosaurs, sem voru vængjaðar eðlur sem gátu flogið. Erlent 23.10.2005 15:02
Mikið atvinnuleysi hjá ungu fólki Ungt fólk verður helst fyrir barðinu á atvinnuleysi í Evrópu. Hlutfall atvinnuleysis hjá fólki á aldrinum 15-24 ára í löndum innan Evrópusambandsins er helmingi meira en atvinnuleysi í Evrópu almennt. Erlent 23.10.2005 15:02
Jólastemmningin hafin í Bretlandi Það er áttatíu og einn dagur til jóla og því ekki seinna vænna að hefja jólainnkaupaæðið. Sem betur fer ekki hér á landi, enn sem komið er, en á Bretlandi er jólastemmningin - ef hægt er að kalla það stemmningu - allsráðandi í verslunum. Erlent 23.10.2005 15:02
Tvær nýjar risaeðlutegundir Vísindamenn greindu frá því í gær að steingervingar af tveimur óþekktum risaeðlutegundum hefðu fundust við uppgröft í Norðaustur-Kína. Erlent 23.10.2005 15:02
Stóra samsteypa færist nær Forystumenn tveggja stærstu stjórnmálaflokka Þýskalands færðust nær því í gær að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður. Gerhard Schröder, fráfarandi kanslari úr jafnaðarmannaflokknum SPD, og Angela Merkel, formaður kristilegra demókrata, hittust í gærkvöld á sérstökum fundi til að útkljá hvort þeirra myndi fara fyrir samsteypustjórn flokkanna. Erlent 23.10.2005 15:02
Drengur lést í eldsvoða í Danmörku Átta ára gamall drengur lést í eldsvoða í bænum Skævinge í Danmörku í nótt. Móðir drengsins komst út úr brennandi húsinu en eldurinn gerði það að verkum að hún komst ekki til sonar síns sem var sofandi á efri hæð hússins. Erlent 23.10.2005 15:02
Öflugri heimild til valdbeitingar Framkvæmdastjóri NATO segir að friðargæsluliðar í Afganistan þurfi öflugri heimildir til valdbeitingar og að auka þurfi samvinnu milli friðargæsluliða NATO og hersveita Bandaríkjamanna. Sjö íslenskir friðargæsluliðar eru í norðanverðu landinu og sjö til viðbótar fara utan í næstu viku. Erlent 23.10.2005 15:02
Cruise og Holmes eiga von á barni Kvikmyndastjörnurnar Tom Cruise og Katie Holmes eiga von á fyrsta barni sínu saman en þau hafa átt í sambandi í hálft ár. Parið trúlofaðist eftir tveggja mánaða ástarsamband sem vakti nokkra athygli en Cruise er fjörutíu og þriggja ára gamall og Holmes tuttugu og sjö ára. Lífið 23.10.2005 15:02
110 uppreisnarmenn handsamaðir Bandarískar hersveitir hafa handsamað hundrað og tíu uppreisnarmenn í borginni Haklanía í Írak undanfarna tvo daga. Vel á þriðja þúsund hermanna hafa gengið í hvert hús í borginni sem er eitt helsta vígi uppreisnarmanna við landamæri Sýrlands. Erlent 23.10.2005 15:02
Helmingur studdi stjórnarskrá ESB Samkvæmt niðurstöðum viðhorfskönnunar sem birtar voru í vikunni studdi rétt innan við helmingur íbúa Evrópusambandsins stjórnarskrársáttmála þess, skömmu áður en Frakkar og Hollendingar felldu hann í þjóðaratkvæðagreiðslum snemmsumars. Erlent 23.10.2005 15:02
Ásakar Íransstjórn og Hizbollah Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, telur að Íransstjórn eða Hizbollah-hreyfingin styðji við bakið á íröskum uppreisnarmönnum. Erlent 23.10.2005 15:02
Vilja að lífi Saddams verði þyrmt Uppreisnarmenn í Írak eru nú sagðir eiga í samningaviðræðum við Bandaríkjamenn um að hætta árásum í skiptum fyrir líf Saddams Husseins. Þessu heldur Jalal Talabani, forseti Íraks, fram. Erlent 23.10.2005 15:02
Fimmtungur býr við sára fátækt Æskulýðsskýrsla Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 2005 kom út í vikunni en þar er ljósi varpað á hag 1,2 milljarða ungmenna á aldrinum 15-24 ára víða um heim og framtíðarhorfur þeirra ræddar. Erlent 23.10.2005 15:02
Leita að ljótasta grænmetinu Leitin að ljótasta grænmetinu er hafin á Bretlandi. Garðyrkjumenn eru hvattir til að senda afskræmdar gulrætur, baunir sem eru eins og tappatogari og aðrar afurðir náttúrunnar sem ekki hljóta náð fyrir augum viðkvæmra neytenda sökum þess hversu ljótar þær eru. Tilgangurinn með þessu er að sýna fram á að fallegt grænmeti bragðast ekki endilega vel og að ljótt grænmeti getur verið gott. Erlent 23.10.2005 15:02
Hjartaáfall nægir ekki Aðeins helmingur þeirra reykingamanna sem fá hjartaáfall hætta að reykja, þrátt fyrir aðvaranir lækna. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem gerð var í fimmtán Evrópulöndum. Fimm þúsund og fimm hundruð manns, sem fengið höfðu hjartaáfall eða höfðu þjáðst af æðaþrengslum í hjartanu, tóku þátt í könnuninni en 40 prósent þeirra voru reykingamenn. Erlent 23.10.2005 15:02
Segir hættu á heimsfaraldri Aðstoðarheilbrigðisráðherra Bandaríkjanna sagði í gær að hætta sé á að frekari útbreiðsla fuglaflensu geti orsakað heimsfaraldur farsóttarinnar. Erlent 23.10.2005 15:02
Funda um myndun stjórnar Þau Gerhard Schröder og Angela Merkel, leiðtogar stóru stjórnmálaflokkanna í Þýskalandi, sitja nú á fundi til að reyna að útkljá deilur um hvort þeirra verði kanslari í samsteypustjórn. Stjórnmálaskýrendur í Þýskalandi segja því sem næst öruggt að Schröder verði að gefa embættið eftir og að Merkel verði fyrsta konan á kanslarastóli. Erlent 23.10.2005 15:02
135 látnir af völdum Stans Hundrað þrjátíu og fimm manns hafa látist og tugþúsundir eru heimilislausir í Mið-Ameríku eftir yfirreið fellibylsins Stans. Hann fjaraði út skömmu eftir að hann náði landi í Mexíkó og olli minna tjóni þar en óttast var. Erlent 23.10.2005 15:02
Tyrkir svartsýnir varðandi ESB Þriðjungur Tyrkja er sannfærður um að landið verði aldrei samþykkt sem aðili að Evrópusambandinu. Þetta kemur fram í könnun sem birtist í nýjasta tímariti <em>Time</em>. Þá eru einnig færri Tyrkir á því að landinu sé betur borgið innan sambandsins nú en fyrir ári síðan. Erlent 23.10.2005 15:02
Gömul sprengja á Schiphol Það varð uppi fótur og fit á Schiphol-flugvelli í Amsterdam þegar þar fannst sprengja skammt frá flugbraut. Sprengjan reyndist vera gömul en ósprungin sprengja frá því í seinni heimsstyrjöldinni. Umferðaræðar að vellinum voru að hluta lokaðar og búast má við miklum töfum þar til búið er að fjarlægja sprengjuna. Erlent 23.10.2005 15:02