Erlent
Langt frá því að vera nóg Forseti Pakistans segir þá rúmlega þrjátíu og sjö milljarða króna, sem borist hafa frá alþjóðasamfélaginu vegna hamfaranna í Pakistan í síðustu viku, langt frá því að vera nóg. Segir hann að minnsta kosti þrjú hundruð milljarða króna þurfi til enduruppbyggingar á þeim svæðum sem verst urðu úti. Erlent 23.10.2005 17:51
Bað um að dómur sinn yrði þyngdur Menn ganga misjafnlega langt til að hylla íþróttastjörnur sem þeir hafa í uppáhaldi. Sennilega hafa fáir gengið jafn langt og Eric James Torpy sem var fundinn sekur um morð. Sport 23.10.2005 17:51
Lögmaðurinn fannst myrtur Lögmaður eins samstarfsmanna Saddams Husseins, sem ákærður er fyrir aðild að fjöldamorðum ásamt Hussein og sjö öðrum, fannst látinn í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Lögmaðurinn var skotinn til bana en honum var rænt af skrifstofu sinni í Bagdad í gær. Ekki er nánar vitað um málið að svo stöddu en enginn hefur lýst verknaðinum á hendur sér. Erlent 23.10.2005 17:51
Lögfræðingi Saddams rænt Fyrrverandi lögfræðingi Saddams Husseins, sem ákærður hefur verið fyrir aðild að fjöldamorðum ásamt Hussein og 7 öðrum, var rænt af skrifstofu sinni í Bagdad í gær. Erlent 23.10.2005 17:51
Hagnaður Ericsson eykst um 22% Hagnaður sænska tæknifyrirtækisins Ericsson nam rúmlega 50 milljörðum íslenskra króna á þriðja ársfjórðungi og jókst því hagnaðurinn um 22% miðað við sama tímabil í fyrra. Ericsson er stærsti framleiðandi þráðlauss fjarskiptabúnaðar í heimi og hafa viðskiptavinir verið að uppfæra búnað sinn að undanförnu. Viðskipti erlent 23.10.2005 17:51
Litlar líkur á alheimsvandamáli Heilbrigðisyfirvöld Evrópusambandsríkjanna segja litlar sem engar líkur á að fuglaflensan verði að alheimsvandamáli. Engu að síður verði gripið til varúðarráðstafana. Erlent 23.10.2005 17:51
Áfengisauglýsingabann samþykkt Bann við áfengisauglýsingum í norskri löggjöf samræmist EES-samningnum að sögn EFTA-dómstólsins. Þó sé nauðsynlegt að meta aðstæður í hverju landi fyrir sig. Erlent 23.10.2005 17:51
Sýrlendingum kennt um morðið Stjórnvöld í Sýrlandi og líbanskir bandamenn þeirra fá á baukinn í skýrslu rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna sem segir allt benda til aðildar þeirra að morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, í febrúar síðastliðnum. Erlent 23.10.2005 17:57
64 prósent greiddu atkvæði Sextíu og fjögur prósent atkvæðabærra Íraka greiddu atkvæði í kosningum um nýja stjórnarskrá landsins, sögðu talsmenn kjörstjórnar Íraks í dag. Svo virðist sem stjórnarskráin hafi verið samþykkt. Erlent 23.10.2005 17:51
Lífsýni tekið úr litla prinsinum Lífsýni verður tekið úr litla prinsinum í Danmörku og varðveitt á Ríkissjúkrahúsinu. Danskt fyrirtæki, StemCare, hafði boðist til að varðveita blóðið í naflastreng litla prinsins til seinni nota en danska konungsfjölskyldan hefur afþakkað það með ofangreindum rökum. Erlent 23.10.2005 17:51
Dönsk ungmenni í djörfum leik Dönsk lestarfyrirtæki segja það sífellt færast í aukana að ungmenni stundi þann lífshættulega leik að standa sem lengst á lestarteinum þegar lest kemur æðandi. Á undanförnum þremur árum hefur fjöldi tilfella þar sem næstum hefur verið keyrt á fólk meira en tvöfaldast. Erlent 23.10.2005 17:57
Hafast við í neyðarskýlum Fellibylurinn Wilma skall á Júkatan-skaga undir kvöld. Wilma er öflugasti stormur sem myndast hefur á Atlantshafi frá því mælingar hófust, en var orðin fjórða stigs fellibylur þegar hún kom að landi. Hundruð þúsunda hafa yfirgefið heimili sín auk þess sem hótel voru rýmd og ferðamönnum í þúsundatali komið fyrir í neyðarskýlum. Erlent 23.10.2005 17:51
Lögfræðingur tekinn af lífi Lögmaður eins sakborninganna í réttarhöldunum gegn Saddam Hussein og félögum hans fannst myrtur á götu í Bagdad í gær. Morðið er áfall fyrir alla sem að réttarhöldunum koma. Erlent 23.10.2005 17:57
Ástrali dæmdur til dauða Ástralskur maður hefur verið dæmdur til dauða í Singapúr fyrir eiturlyfjasmygl. Hann var tekinn með tæplega 400 grömm af heróíni á alþjóðaflugvellinum í Singapúr árið 2002 þegar hann millilenti þar á leið sinni frá Víetnam til Ástralíu. Erlent 23.10.2005 17:51
Sýrlendingar axli ábyrgð Sýrlensk stjórnvöld verða að sæta ábyrgð vegna morðsins á Rafik al-Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons. Þetta sagði Condoleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna, en fyrr í dag birtist skýrsla Sameinuðu þjóðanna þar sem kemur fram að hátt settir sýrlenskir og líbanskir embættismenn tengdust morðinu. Erlent 23.10.2005 17:51
Barnasmyglarar handteknir Hollenskt par var handtekið á alþjóðaflugvellinum í Kólumbíu í vikunni fyrir að kaupa tíu daga gamalt barn þar í landi og ætla að smygla því til Hollands. Erlent 23.10.2005 17:51
500 þúsund án vinnu eftir Katrínu Nærri hálf milljón manna hefur misst atvinnu sína vegna fellibyljanna Katrínar og Rítu. Lætur því nærri að fellibylirnir séu orsök fimmtán prósenta alls atvinnuleysis í Bandaríkjunum um þessar mundir. Erlent 23.10.2005 17:51
Senda hermenn til Pakistan Sendiherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins samþykktu í dag að senda á bilinu fimm hundruð til þúsund hermenn og nokkrar þyrlur til Pakistan. Hermennirnir eiga að veita aðstoð við hjálparstarf á svæðunum sem urðu verst úti í jarðskjálftanum áttunda október, þegar fimmtíu þúsund manns að lágmarki létu lífið. Erlent 23.10.2005 17:51
Vinna sameiginlega gegn flensunni Heilbrigðisráðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins munu vinna sameiginlega að því að vinna bug á fuglaflensufaraldri í álfunni. Þetta kom fram á fundi sem ráðherrarnir héldu í gær. Erlent 23.10.2005 17:51
Rússnesku skipverjunum fagnað Rússneskir fjölmiðlar fögnuðu skipverjum á rússneska togaranum Elektron sem þjóðhetjum þegar togarinn lagðist að bryggju í Múrmansk í gærkvöldi eftir sögulegan flótta undan norsku strandgæslunni síðan á laugardag. Norskir fjölmiðlar tala hins vegar um hetjudáð norsku strandgæslumannanna sem hafðir voru í gíslingu í togaranum í nokkra sólarhringa. Erlent 23.10.2005 17:51
Hnífjafnt í Póllandi Fylgi frambjóðendanna tveggja í forsetakosningunum í Póllandi er nánast hnífjafnt aðeins tveimur dögum fyrir síðari umferð kosninganna. Samkvæmt síðustu skoðanakönnunum er fylgi Donalds Tusks 48,8 prósent en fylgi Lechs Kaczynskis 50,2 prósent. Stjórnmálaskýrendur segja útilokað að spá fyrir um hvor stendur uppi sem sigurvegari. Erlent 23.10.2005 17:51
Skýrsla um morðið á Hariri Sameinuðu þjóðirnar segja leyniþjónustur Sýrlands og Líbanons bera ábyrgð á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. Erlent 23.10.2005 17:51
Vindurinn úr Wilmu Nokkuð hefur dregið úr vindhraða fellibylsins Wilmu. Engu að síður hafa þúsundir yfirgefið heimili sín í Flórída og í ríkjum Mið-Ameríku. Erlent 23.10.2005 17:57
Abbas og Bush funda Leiðtogi Palestínumanna, Mahmoud Abbas, kom til Washington í gær til að eiga fund með George Bush Bandaríkjaforseta en í enn eitt skiptið á að reyna að finna leiðir svo friður geti orðið á milli Ísraels og Palestínu. Abbas vill að Bush pressi á Ísraela til að hörfa frá öllum landnemasvæðum og að Palestínumenn fái að halda frjálsar kosningar. Erlent 23.10.2005 17:51
Þróa bóluefni gegn flensuveirum Danskir vísindamenn segjast hafa fundið fljótvirka aðferð til að þróa bóluefni gegn flensuveirum hvers konar. Þeir vonast til að hægt verði að nota þessa aðferð til að þróa bóluefni gegn fuglaflensunni áður en kemur til faraldurs. Þetta kemur fram í grein í <em>Berlingske Tidende</em>. Erlent 23.10.2005 17:51
Grunuðum hryðjuverkmönnum sleppt Fjórir menn frá Norður-Afríku sem bíða þess að vera vísað frá Bretlandi vegna gruns um aðild að hryðjuverkum verða leystir úr haldi lögreglu gegn tryggingu. Sérstakur dómstóll sem fjallaði um mál mannanna ákvað þetta í dag en neitaði fimm um lausn og máli eins var frestað. Erlent 23.10.2005 17:51
Éta það sem býðst Því meiri matur sem fólki er boðið upp á þeim mun meira borðar það, nema maturinn sé grænmeti. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu bandarískra vísindamanna sem leita leiða til að draga úr offitu. Erlent 23.10.2005 17:51
Býður almenningi á ball Haraldur Noregskonungur hefur ákveðið að bjóða fimm hundruð og fimmtíu þegnum sínum, víðs vegar að úr Noregi og úr öllum stéttum, til dansleiks í næsta mánuði. Haraldur, sem hefur átt til rölta um götur Oslóar og líta í verslanir án þess að mikið sé um sýnilega öryggisgæslu, telur dansleikinn tækifæri til að auka enn tengsl sín við landsmenn. Erlent 23.10.2005 17:51
Þingmaður drepinn í Kirgistan Kirgiskur þingmaður var drepinn á fangasjúkrahúsi í Kirgistan fyrir stundu. Hann var fyrr í dag tekinn sem gísl ásamt tveimur úr fylgdarliði sínu þegar hann heimsótti fangelsið sem er skammt norðvestur af höfuðborginni, Bishkek. Erlent 23.10.2005 17:51
Tugþúsundir enn í hættu Ríki heims hafa einungis reitt fram einn áttunda hluta af þeirri neyðaraðstoð sem Sameinuðu þjóðirnar fara fram á. Óttast er að með útbreiðslu farsótta og versnandi veðri muni tala látinna á hamfarasvæðunum hækka enn frekar. Erlent 23.10.2005 17:57