Erlent

Fréttamynd

Hvöttu yfirvöld til að viðurkenna innflytjendur

Allt að hálf milljón manna hvöttu yfirvöld, í mótmælagöngum í nokkrum bandarískum borgum í gær, til að viðurkenna þær ellefu milljónir ólöglegra innflytjenda sem búa í landinu, sem fullgilda borgara. Talið er að fleiri göngur verði farnar í dag í enn fleiri borgum landsins. Mótmælin hafa hingað til farið friðsamlega fram en málið er mjög umdeilt. Talið er þó að yfirvöld muni láta af kröfum innflytjenda að lokum.

Erlent
Fréttamynd

Mun líklega velta Berlusconi úr sessi

Þingkosningar halda áfram á ítalíu í dag en kjörstöðum verður lokað klukkan eitt eftir hádegi að íslenskum tíma. Talið er að kosningabandalag Romanos Prodis, forsætisráðherraefnis vinstri flokkanna, muni sigra Berslusconi, forsætisráðherra Ítalíu. Reynist það rétt bíður hans erfitt verkefni. Á vinstri væng þyrfti hann að mynda bandalag sem samanstendur af mörgum fylkingum, allt frá hörðum kommúnistum til hófsamra kaþólskra miðjumanna.

Erlent
Fréttamynd

Litlar líkur á að fuglaflensan stökkbreytist

Afar litlar líkur eru á að fuglaflensan stökkbreytist og verði að faraldri í mönnum. Þetta sagði helsti vísindaráðgjafi ríkistjórnar Bretlands, Sir David King í gær. Sýni úr svani sem fannst dauður í Skotlandi í síðustu viku reyndist vera með H5N1-afbrigði fuglaflensuveirunnar. Síðan þá hafa þúsundir manna hringt inn og tilkynnt um dauða fugla en veiran hefur ekki greinst í öðru tilfelli.

Erlent
Fréttamynd

Vopnaður hópur nær yfirráðum í bæjum í Chad

Hópur vopnaðra manna er sagður hafa náð yfirráðum í þremur bæjum í Afríkuríkinu Chad í dag. Hópurinn tilheyrir samtökum sem segjast berjast fyrir lýðræðislegum breytingum í landinu og eru yfirlýstur andstæðingur forseta landsins, Idriss Deby.

Erlent
Fréttamynd

Tvær palestínskar konur særðust alvarlega

Tvær palestínskar konur særðust alvarlega í áhlaupi ísraelska hersins í bænum Nablus á Vesturbakkanum í dag. Ísraelar töldu að eftirlýstir öfgamenn dveldu í bænum og því réðist herinn til atlögu.

Erlent
Fréttamynd

Nítján tróðust undir á trúarhátíð í Pakistan

Nítján konur og börn dóu í miklu öngþveiti sem skapaðist á trúarhátíð múslíma í Karachi í Pakistan í dag. Að því er Reuters-fréttastofan hermir féll ung stúlka þegar fólksfjöldinn var á leið út úr mosku og þar með myndaðist keðjuverkunin sem varð til þess að fólkið tróðst undir með þessum hörmulegu afleiðingum.

Erlent
Fréttamynd

Sniðganga sólarlandaferðir til landa múslíma

Danskir ferðamenn sniðganga sólarlandaferðir til landa á borð við Egyptalands og Tyrklands þetta sumarið. Jótlandspósturinn segir þetta vera svar Dana við aðgerðum Miðausturlandabúa sem hunsuðu danskar vörur vegna Múhameðsmyndanna svonefndu.

Erlent
Fréttamynd

Lík af átta mönnum finnast í bílum í Kanada

Lík af átta mönnum fundust í þremur bifreiðum nærri bóndabýli í Ontario-fylki í Kanada í gær. Lögregla telur fullvíst að mennirnir hafi verið myrtir og útilokar ekki að fleiri lík geti fundist. Ekki liggur fyrir hverjir mennirnir voru eða hver hefði banað þeim en bóndinn á bænum liggur þó ekki undir grun.

Erlent
Fréttamynd

Ítalir kjósa til þings í dag og á morgun

Þingkosningar eru hafnar á Ítalíu en kjörstaðir voru opnaðir snemma í morgun. Fjörtíu og sjö milljónir Ítala eru á kjörskrá og hefur kjörsóknin framan af morgni verið bærileg.

Erlent
Fréttamynd

Árásir á Írana í athugun

Bandarísk stjórnvöld eru sögð undirbúa stórfelldar hernaðaraðgerðir gegn Írönum til að koma í veg fyrir að þeim takist að koma sér upp kjarnavopnum. Jafnvel er í athugun að varpa atómsprengjum á vinnslustöðvar Írana þar sem auðgun úrans fer fram.

Erlent
Fréttamynd

Héldu gestum á Burger King í gíslingu

Lögregla í Istanbúl handtók fyrr í dag tvo byssumenn sem haldið höfðu fólki í gíslingu í skamman tíma á Burger King veitingastað í borginni. Mennirnir voru gripnir á þaki veitingastaðarins eftir að annar þeirra hafði skotið af byssu sinni upp í loftið. Ekki er ljóst hverjir þeir eru eða hvort þeir voru á vegum einhverra samtaka en öllum gíslum var bjargað eftir umsátrið.

Erlent
Fréttamynd

Tveir Svíar létust í sjálfsmorðsárás í Írak

Tveir Svíar, fullorðinn maður og sex ára sonur hans voru á meðal þeirra sem létust í sjálfsmorðsárás á mosku í Bagdad í Írak í gær. Áttatíu biðu bana þegar þrír menn sprengdu sprengjur í einni af höfuðmoskum sjía þegar föstudagsbænir stóðu sem hæst.

Erlent
Fréttamynd

Segir Bandaríkjamenn undirbúa árásir á Íran

Undirbúningur er hafinn í bandaríska landvarnaráðuneytinu að meiri háttar loftárásum á íranskar kjarnorkuvinnslustöðvar. Þetta staðhæfir blaðamaðurinn Seymour M. Hearsh í nýjasta hefti tímaritsins New Yorker.

Erlent
Fréttamynd

Brown braut ekki höfundarlög með Da Vinci lyklinum

Bandaríski rithöfundurinn Dan Brown braut ekki höfundarréttarlög við ritun bókar sinnar Da Vinci lykillinn. Dómstóll í Lundúnum komst að þessari niðurstöðu í gær eftir að hafa fjallað um ásakanir tveggja breskra rithöfunda um ritstuld.

Erlent
Fréttamynd

Sjálfsmorðsárás í herstöð NATO í Afganistan

Sjálfmorðsárás var gerð á herstöð Atlantshafsbandalagsins í vesturhluta Afganistan í morgun. Auk árásarmannsins fórust tveir Afganar í sprengingunni. Átta slösuðust, þar á meðal einn Ítali. Þetta er fjórða árásin sem gerð er á erlenda setuliðið í landinu á þremur dögum. Talibanar hafa þegar lýst yfir ábyrgð á tilræðinu

Erlent
Fréttamynd

ESB stöðvar fjárframlög

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að stöðva fjárframlög til heimastjórnar Palestínumanna þangað til Hamas-samtökin viðurkenna Ísraelsríki og leggja niður vopn.

Erlent
Fréttamynd

Mannskæð árás á sjía

79 létust og á annað hundrað slösuðust í sjálfsmorðárás sem gerð var í dag á eina af höfuðmoskum shíta í Bagdad, höfuðborg Íraks.

Erlent
Fréttamynd

Um 50 fórust í sprengjuárás

Um fimmtíu manns létu lífið í sprengjuáras á mosku sjía-múslima í Bagdad í morgun, rétt áður en föstudagsbænum lauk. Að minnsta kosti 45 manns til viðbótar særðust.

Erlent
Fréttamynd

Kanna smit í fjórtán fuglum

Grunur leikur á að fjórtán ný fuglaflensutilfelli hafi komið upp í Skotlandi, en hinn banvæni stofn fuglaflensu greindist í fyrsta sinn í Bretlandi í gær. Öruggt þykir að fuglaflensa berist til Íslands á næstunni.

Erlent
Fréttamynd

Vitni lýstu lífsreynslu sinni

Réttarhöld yfir al-Qaeda liðanum Zacaris Moussaoui héldu áfram í gær. En þá fóru fram vitnaleiðslur en Moussaoui er sá eini sem ákærður er fyrir hryðjuverkaársásirnar í Bandaríkjunum 11. september 2001.

Erlent
Fréttamynd

Arfleiddi dýraverndunarsamtök um 58 milljónir króna

Dýraverndunarsamtök á Vestu-Sjálandi í Danmörku hafa fengið tæpar 58 milljónir íslenskra króna í arf frá gamalli konu sem lést á síðasta ári. Aase Asbo Preman bjó alein en maður hennar Erik Perman, sem var listamaður, lést fyrir mörgum árum.

Erlent
Fréttamynd

Skotar reyna að sporna við útbreiðslu fuglaflensunnar

Ýmsar hömlur hafa verið setttar á flutning alifugla í austurhluta Skotlands eftir að banvænn stofn fuglaflensu greindist þar í svani. Skotar reyna nú allt hvað þeir geta til þess að koma í veg fyrir að fuglaflensan breiðist út.

Erlent
Fréttamynd

Mladic verður framseldur

Serbar hafa fullvissað fulltrúa stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna í Haag í Hollandi um að Ratko Mladic, fyrrverandi hershöfðingi Bosníu-Serba, verði afhentur dómstólnum fyrir lok apríl. Mladic hefur verið eftirlýstur fyrir stríðsglæpi í rúman áratug.

Erlent
Fréttamynd

H5N1 sagt hafa greinst í Skotlandi

Að sögn bresku Sky fréttastofunnar hefur hið banvæna H5N1 afbrigði fuglaflensu greinst í hræi af svani sem fannst í Skotlandi í síðustu viku. Bresk yfirvöld hafa þó ekki staðfest þetta formlega. Fari svo má gera ráð fyrir að viðbúnaðarstig hér á landi verði aukið.

Erlent
Fréttamynd

Mannfall í Najaf

Minnst 15 féllu þegar bílsprengja sprakk nálægt helgidómi sjía-múslima í borginni Najaf í Írak í morgun. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hverjir bera ábyrgð á árásinni.

Erlent
Fréttamynd

Mladic framseldur fyrir lok apríl

Serbar hafa fullvissað fulltrúa stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna í Haag í Hollandi um að Ratko Mladic, fyrrverandi hershöfðingi Bosníu-Serba, verði afhentur dómstólnum fyrir lok apríl.

Erlent