Erlent
Afkoma Alcoa umfram væntingar Gengi hlutabréfa í bandaríska álframleiðandanum Alcoa Inc. hækkuðu um 6,4 prósent í fyrstu viðskiptum í kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum í dag. Skömmu áður greindi fyrirtækið frá því að hagnaður fyrirtækisins hafi rúmlega tvöfaldast á fyrsta ársfjórðungi 2006 vegna hás álverðs og mikillar eftirspurnar eftir áli. Viðskipti erlent 11.4.2006 14:38
Norðmenn finna olíu í Írak Gengi bréfa í norska olíufyrirtækinu DNO hækkuðu um tæp 11 prósent í kauphöllinni í Ósló í Noregi í gær eftir að forsvarsmenn fyrirtækisins greindu frá því að fyrirtækið hefði fundið olíu í Kúrdahéruðunum í norðurhluta Íraks. Ekki liggur ljóst fyrir um hversu mikið magn er að ræða. Viðskipti erlent 11.4.2006 13:59
Aukin samþjöppun í norsku laxeldi Norska laxeldisfyrirtækið Pan Fish hefur keypt tæplega 18 prósenta hlut í Fjord Seafood. Í Morgunkorni Glitnis banka segir að samþjöppun haldi áfram í norsku laxeldi en Pan Fish á nú samtals 57 prósenta hlut í Fjord og undirbýr yfirtökutilboð. Viðskipti erlent 11.4.2006 12:28
Gullverð ekki hærra í 25 ár Verð á gulli fór yfir 600 dollara á únsu á mörkuðum í New York í Bandaríkjunum í dag og hefur það ekki verið hærra í aldarfjórðung. Ástæðan eru mikil kaup fjárfesta, sem vilja tryggja sig fyrir yfirvofandi verðbólgu og verðhækkunum í framtíðinni. Viðskipti erlent 11.4.2006 11:38
Búist við hærri stýrivöxtum í Japan Stjórn Seðlabanka Japans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum, eða nálægt núlli. Sérfræðingar spá að stjórnin hækki stýrivexti um 0,25 prósent í júlí eða ágúst til að halda aftur af verðbólgu. Viðskipti erlent 11.4.2006 10:29
Olíuverð nálgast sögulegu hámarki Verð á hráolíu nálgaðist sögulegt hámark í dag í kjölfar aukinnar spennu á milli Bandaríkjanna og Írans. Verð á Brent Norðursjávarolíu fór í 69,06 dollara á tunnu í kauphöll Lundúna í Bretlandi en verð á hráolíu fór í 69,11 dollara á tunnu á mörkuðum í New York í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 11.4.2006 09:50
Vill ekki verða forseti Frakklands Dominique du Villepin, forsætisráðherra Frakklands, sagði í sjónvarpsviðtali í gær að hann hefði engan áhuga á að verða forseti landsins eins og haldið hefur verið fram. Þá sagðist hann ekki vera fallinn í ónáð hjá Jacques Chirac forseta landsins í kjölfar umdeildrar atvinnulöggjafar stjórnarinnar sem dregin var til baka vegna mikillar óánægju námsmanna og verkalýðsfélaga. Erlent 11.4.2006 08:09
Krefjast úrbóta í málefnum innflytjenda Hundruð þúsunda tóku þátt í mótmælagöngum víða um Bandaríkin í gær og kröfðust úrbóta í málefnum innflytjenda. Mjög skiptar skoðanir eru um hvernig taka skal á þessu máli en talið er að á milli ellefu til þráttán milljónir ólöglegra innflytjenda búi í landinu. Í síðustu viku benti margt til að öldungadeild Bandaríkjaþings hefði náð samkomulagi um nýja tillögu Erlent 11.4.2006 08:05
Fyrrum forstjóri Enron segist saklaus Jeffrey Skilling, fyrrverandi yfirframkvæmdastjóri bandaríska orkusölufyrirtækisins Enron, lýsti sig saklausan er hann bar vitni við réttarhöldin í máli sínu og Kenneths Lays, fyrrverandi forstjóra Enron, í Houston í gær. Skilling og Lay eru ákærðir fyrir að hafa leynt raunverulegri fjárhagsstöðu fyrirtækisins fyrir fjárfestum áður en það varð gjaldþrota árið 2001. Skilling sagði í gær að hann myndi berjast fyrir sakleysi sínu til dauðadags. Erlent 11.4.2006 07:57
Prodi fagnar sigri Miðvinstri-fylkingin, undir forystu Romanos Prodis, sigraði í þingkosningunum á Ítalíu sem fram fóru á sunnudag og í gær. Fylkingin fékk til neðri deildarinnar 49,8 prósent atkvæða en hægri fylking Berlusconis forsætisráðherra fékk 49,7 prósent. Munurinn var því einungis 0,07 prósent eða um 25 þúsund. Erlent 11.4.2006 07:54
Pólitísk framtíð forsætisráðherra Frakklands óráðin Jacques Chirac Frakklandsforseti tilkynnti í dag að umdeildar breytingar á atvinnulöggjöf landsins yrðu afnumdar. Pólitísk framtíð Dominique de Villepin, forsætisráðherra, þykir óljós en hann barðist fyrir lögunum með oddi og egg. Erlent 10.4.2006 22:22
Bush vísar fréttum á bug Bush Bandaríkjaforseti vísar alfarið á bug fréttum í fjölmiðlum um nýliðna helgi þess efnis að Bandaríkjamenn ætli að ráðast gegn hernaðarlegum skotmörkum í Íran með kjarnorkuvopnum. Hann segir bandarísk stjórnvöld stefna að því að semja um lausn á kjarnorkudeilunni við stjórnvöld í Teheran. Erlent 10.4.2006 22:17
Má vart á milli sjá Lokaspretturinn í ítölsku þingkosningunum hefur verið hörkuspennandi en svo virðist sem stjórn Silvio Berlusconis, forsætisráðherra, ætli að halda naumum meirihluta í efri deild þingsins en missa hann naumlega í neðri deild. Fyrr í dag bentu útgönguspár til þess að stjórnin væri fallin og bandalag vinstri flokkana, með Romano Prodi í broddi fylkingar, hefði náð meirihluta. Erlent 10.4.2006 22:11
Óvíst hverjir fá meirihluta í ítölsku þingkosningunum Allt stefni í hörkuspennandi lokasprett í ítölsku þingkosningunum en fyrstu tölur benda til þess að stjórn Silvio Berlusconis, forsætisráðherra, haldi naumum meirihluta í báðum deildum þingsins. Fyrr í dag bentu útgönguspár til þess að stjórnin væri fallin og bandalag vinstri flokkana, með Romano Prodi í broddi fylkingar, hefði náð meirihluta. Erlent 10.4.2006 19:58
Chirac skarst í leikinn Jacques Chirac Frakklandsforseti tilkynnti í dag að umdeildar breytingar á atvinnulöggjöf landsins yrðu afnumdar. Pólitísk framtíð Dominique du Villepin forsætisráðherra þykir óljós en hann barðist fyrir lögunum með oddi og egg. Erlent 10.4.2006 19:02
Vísa orðum Hersh á bug Bandarísk stjórnvöld neita því alfarið að þau íhugi að gera kjarnavopnaárás á írönsk kjarnorkuver eins og fullyrt er í tímaritinu New Yorker. Þau útiloka þó ekki að beita Írana hervaldi haldi þeir kjarnorkuáætlun sinni til streitu. Erlent 10.4.2006 18:54
Olíuverð hækkar á ný Vaxandi áhyggjur af hernaðaraðgerðum Bandaríkjanna í Íran hafa valdið hækkunum á olíuverði og hefur það ekki verið hærra í 2 mánuði. Íran er fjórði stærsti olíuframleiðandi í heimi og gætu mögulegar aðgerðir Bandaríkjanna dregið talsvert úr framboði hráolíu í heiminum. Viðskipti erlent 10.4.2006 16:47
ESB stöðvar fjárstuðning til heimastjórnar Palestínumanna Utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna samþykktu í dag formlega að stöðva tímabundið fjárstuðning til heimastjórnar Palestínumanna. Fram kemur í tilkynningu að með því vilji sambandsríkin þrýsta á að stjórnin, undir forystu Hamas-samtakanna, viðurkenni Ísraelsríki, stöðvi ofsamenn í sínum röðum og staðfesti þau friðarsamkomulög sem gerð hafi verið. Erlent 10.4.2006 15:30
Talið að 120 manns hafi drukknað Talið er að allt að 120 manns hafi látist er bát hvolfdi á vatninu Volta í Ghana í Vestur-Afríku á laugardag. Í það minnsta 150 manns voru um borð og var þrjátíu þeirra bjargað. Báturinn hefur enn ekki fundist en björgunarmenn leita nú að þeim sem kynnu að hafa lifað slysið af. Erlent 10.4.2006 13:22
Stjórn Berlusconis líklega fallin Kjörstöðum á Ítalíu var lokað fyrir nokkrum mínútum og benda útgönguspár til að ólívubandalag Romano Prodis hafi nauma forystu á hægrifylkingu Silvio Berlusconis forsætisráðherra. Stjórn Berlusconis virðist með öðrum orðum fallin ef marka má þessar spár. Erlent 10.4.2006 13:07
Kosið að nýju í Perú Allt útlit er fyrir að kjósa þurfi að nýju í Perú þar sem enginn frambjóðendanna í forsetakosningum landsins fékk meirihluta atkvæða. Það er þjóðernissinninn og fyrrum yfirmaður í her Perú, Ollanta Humala, sem leiðir naumlega eftir fyrstu umferð forsetakosninganna. Erlent 10.4.2006 12:21
Chirac dregur atvinnulöggjöfina til baka Jacques Chirac, Frakklandsforseti, hefur tilkynnt að nýlegar breytingar á atvinnulöggjöf verði dregnar til baka. Breytingarnar hafa valdið miklum mótmælum í Frakklandi á undanförnum vikum, en nú segir forsetinn að lagðar verði fram nýjar áætlanir sem leysa eiga atvinnuvanda ungs fólks. Erlent 10.4.2006 12:18
Kröftug sprenging á sjúkrahúsi í Kína Í það minnsta 17 fórust og sjö slösuðust þegar kröftug sprenging varð á sjúkrahúsi í Shanxi héraði í norðurhluta Kína í gær. Sprenginin varð í bílageymslu sjúkrahússins og olli skemmdum á nærliggjandi byggingum. 17 lík hafa fundist en björgunarstarf stendur enn yfir og talið er að fleiri lík muni finnast við leit í dag. Ekki er vitað hvað olli sprengingunni. Erlent 10.4.2006 11:07
Gengi hlutabréfa hækkaði í Japan Gengi hlutabréfa lækkaði í Kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag. Hlutabréf lækkuðu sömuleiðis á öðrum mörkuðum í Asíu. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan lækkaði um 106,79 stig eða 0,61 prósent. Gengi bréfanna hækkaði nokkuð á föstudag í síðustu viku og hafði ekki verið hærri síðan í júlí árið 2000. Viðskipti erlent 10.4.2006 10:32
Slösuðust þegar svalir hrundu Sex manns slösuðust á Lálandi í Danmörku í morgun þegar svalir sem fólkið stóð á hrundu til jarðar. Fólkið sem var statt á námskeiði hafði brugðið sér út á svalirnar til að reykja þegar óhappið varð. Það var flutt á slysadeild og mun ekkert þeirra vera alvarlega slasað. Erlent 10.4.2006 09:33
Heimsmet í páskaeggjaleit Rúmlega tíuþúsund manns, aðallega börn, tóku forskot á páskasæluna og tóku þátt í heimsins stærstu páskaeggjaleit í Georgíu í Bandaríkjunum í gær. Rúmlega þrjúhundruð þúsund egg höfðu verið falin í Stone Mountain Park og innihéldu þau flest sælgæti en í rúmlega fjögur þúsundum þeirra voru ýmis verðlaun eins og DVD-diskar og aðgangsmiðar að leikjagörðum. Páskaeggjaleitin í gær sló fyrra heimsmet Rockfords í Illinois en þá voru falin 292.686 egg. Erlent 10.4.2006 07:45
Mótmæla valdatöku Gyanendra Mótmæli gegn konungi Nepals, Gyanendra standa enn yfir. Yfir helgina skutu hermenn tvo mótmælendur til bana en konungur landsins lagði á útgöngubann í höfuðborginni Katmandu og skipaði hermönnum sínum að skjóta alla sem ekki virtu bannið. Þúsundir hafa mótmælt ólýðræðislegri valdatöku Gyanendra fyrir 14 mánuðum. Erlent 10.4.2006 07:37
Átti sex börn með föður sínum Karlmaður í Þýskalandi á nú yfir höfði sér 15 ára fangelsi fyrir að misnota dóttur sína kynferðislega í rúm þrjátíu. Maðurinn býr ásamt fjölskyldu sinni á bóndabæ og lengst af héldu nágrannarnir að þar færi venjuleg fjölskylda en á heimilinu bjuggu tólf börn. Nú hefur elsta dóttir bóndans komið fram og sagt föður sinn hafa misnotað sig frá níu ára aldri og að saman eigi þau sex börn. Erlent 10.4.2006 06:51
Jafnaðarmenn halda líklega völdum Jafnaðarmenn í Ungverjalandi virðist ætla að halda völdum í landinu en fyrri hluti kosninganna fór fram í gær, þær fyrstu eftir að Ungverjaland gekk í Evrópusambandið. Seinni hluti þingkosninganna fer fram þann 23. apríl næstkomandi. Gangi útgönguspárnar eftir verður þetta í fyrsta skipti sem ríkisstjórnarflokkar halda meirihluta í kosningum í Ungverjalandi frá árinu 1989. Erlent 10.4.2006 06:16
Áfengissýki vaxandi vandamál hjá flugfélögum Sífellt fleiri flugmenn og flugþjónar og flugfreyjur í Danmörku eru svipt atvinnuleyfi vegna áfengissýki. Samkvæmt dagblaðinu Extra bladet þar í landi hefur vandinn farið stöðugt vaxandi en á meðan sjö manns voru á ári hverju að meðaltali sviptir starfsréttindum sínum vegna vandans á árunum 1992 til 2001, er talan nú 20 til 30 manns. Reynist áhafnarmeðlimur eiga við áfengisvanda að stríða er honum gert að fara í meðferð, vilji hann halda áfram störfum. Erlent 10.4.2006 06:18
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent