Erlent

Fréttamynd

Harry prins orðinn herforingi

Harry prins, sonur Karls Bretaprins, útskrifaðist í dag úr Sandhurst-herskólanum með mikilli viðhöfn. Harry, sem er 21 árs, hóf þjálfun í maí í fyrra og útskrifast sem herforingi. Hann hefur lýst yfir áhuga á að berjast í fremstu víglínu í Írak og Afganistan þar sem fjöldi breskra hermanna er nú.

Erlent
Fréttamynd

Adidas og NBA ná samningum

Samningar hafa náðst á milli þýska íþróttavöruframleiðandans Adidas og bandarísku körfuboltadeildarinnar NBA um notkun Adidas búninga í karla- og kvennadeildum næstu 11 árin. Gengi bréfa í Adidas hækkað um 3 prósent í kjölfarið.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Nasdaq íhugar aukin kaup í LSE

Stjórn Nasdaq-markaðarins útiloka ekki að fleiri hlutir verði keyptir í kauphöllinni í Lundúnum (LSE) í Bretlandi. Markaðurinn keypti tæp 15 prósent af tveimur stórum hluthöfum í kauphöllinni í gær og er nú stærsti einstaki hluthafinn í LSE. Gengi bréfa LSE hækkuðu um 13 prósent í kjölfar kaupanna.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Sprengjuhótun í flugvél Ryanair

Prestwick-flugvelli, rétt fyrir utan Glasgow í Skotlandi, var lokað í dag en farþegaflugvél var beint þangað vegna sprengjuhótunar. Áhöfn vélarinnar barst miði sem á stóð að búið væri að koma sprengju fyrir í vélinni.

Erlent
Fréttamynd

Fjöldi kjörseðla finnst í ruslatunnu

Fimm kassar troðnir kjörseðlum fyrir þingkosningarnar á Ítalíu fundust í ruslatunnu í Róm í dag. Kassarnir voru allir merktir innanríkisráðuneyti landsins.

Erlent
Fréttamynd

Góð afkoma Lauru Ashley

Gengi hlutabréfa í bresku tísku- og húsgagnakeðjunni Lauru Ashley hækkuðu um 16 prósent í gær eftir að greint var frá því að afkoma keðjunnar hfafi verið umfram væntingar. Stjórn eignarhaldsfélags fyrirtækisins ákvað í kjölfarið að greiða hluthöfum arð í fyrsta skipti í átta ár.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Myndar líklega ekki ríkisstjórn fyrr en um miðjan maí

Romando Prodi, leiðtogi mið- og vinstrimanna á Ítalíu, segist líklega ekki getað myndað nýja ríkisstjórn fyrr en um miðjan maí þegar nýr forseti landsins hefur verið kosinn. Hann hafnar algjörlega tillögu Silvios Berlusconi, forsætisráðherra og leiðtoga hægrimanna, um myndun samsteypustjórnar.

Erlent
Fréttamynd

Nasdaq stærsti hluthafi í LSE

Gengi hlutabréfa í kauphöllinni í Lundúnum (LSE) í Bretlandi hækkuðu um 14 prósent í morgun eftir að Nasdaq-markaðurinn greindi frá því eftir lokun markaða í New York í Bandaríkjunum í gær að hann hefði keypt 14,99 prósent í LSE og væri orðinn stærsti hluthafi hennar.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Áframhaldandi árásir í Bagdad

Þrír óbreyttir borgarar og einn lögreglumaður létust þegar sprengja sprakk nærri lögreglubíl í norðurhluta Bagdad-borgar í morgun. Þá særðust þrír lögreglumenn til viðbótar og einn vegfarandi.

Erlent
Fréttamynd

57 manns féllu í sjálfsmorðssprengjuárás

Að minnsta kosti fimmtíu og sjö manns féllu þegar tvær sjálfsmorðssprengjuárásir voru gerðar í suðurhluta Pakistans á mánudag. Fjöldi súnnía var saman kominn til bænastundar þegar árásirnar voru gerðar. Þá særðust fjölmargir í árásunum og er óttast að tala látinna eigi eftir að hækka. Hryðjuverkaárásum hefur fjölgað mikið í Pakistan síðan landið gerðist bandamaður Bandaríkjanna eftir árásirnar á New York og Washington þann 11. september árið 2001.

Erlent
Fréttamynd

Prodi hafnar tillögu Berlusconis

Romano Prodi, leiðtogi mið- og vinstrimanna á Ítalíu, hafnaði í gær tillögu Silvios Berlusconis, forsætisráðherra og leiðtoga fylkingar hægrimanna, um myndun samsteypustjórnar. Berlusconi hefur neitað að játa sig sigraðan fyrr en atkvæði hafa verið endurtalin en vinstri fylking Prodis hlaut meirihluta í báðum deildum þingsins. Munurinn gæti þó ekki hafa verið minni í efri deildinni

Erlent
Fréttamynd

Íranar farnir að auðga úran

Íranar eru farnir að auðga úran til framleiðslu á kjarnorkueldsneyti fyrir raforkuver landsins. Forseti landsins staðfesti þetta í sjónvarpsávarpi í gær. Donald Rumsfeld, varnarmálráðherra Bandaríkjanna, sagði Írana vera á rangri leið og leitað yrði allra leiða til að stöðva þá í áætlunum sínum.

Erlent
Fréttamynd

Kína gerir tilslakanir gagnvart Bandaríkjunum

Kína hefur gert nokkrar viðskiptatilslakanir gagnvart Bandaríkjunum nú skömmu áður en að forseti landsins, Hu Jintao, heimsækir Bandaríkin í næstu viku. Yfirvöld í Peking hafa afnumið innflutningsbann á bandarísku nautakjöti og gert bandarískum fyrirtækjum auðveldara að bjóða í samninga á vegum ríkissins.

Erlent
Fréttamynd

Sýkti svanurinn ef til vill á leið til Íslands

Svanurinn, sem fannst dauður í Skotlandi á dögunum, og var síðar greindur með fuglaflensuveiru af gerðinni H5N1, var ef til vill á leið til Íslands að sögn Martins Fowlie, hjá breska fuglafræðifélaginu. Frá þessu greinir fréttastofan BBC. Um var að ræða álft en ekki hnúðsvan eins og haldið var fram í fyrstu.

Erlent
Fréttamynd

Staðráðnir í halda áfram auðgun úrans

Íran hefur nú bæst í hóp þeirra þjóða sem hafa yfir kjarnorkutækni að ráða og Íranar eru staðráðnir í að halda áfram auðgun úrans. Þetta sagði Íransforseti í dag. Bandaríkjastjórn segir að ef fram fari sem horfi þurfi að ræða næstu skref í kjarnorkudeilunni í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Erlent
Fréttamynd

Danska sendiráðið í Damaskus opnar á ný

Danska sendiráðið í Damaskus, höfuðborg Sýrlands hefur verið opnað á ný. Á heimasíðu danska ríkisútvarpsins segir að farið verði í að afgreiða umsóknir um dvalarleyfi í Sýrlandi sem fyrst. Starfsemi sendiráðsins hefur legið niðri síðan sendiráðinu var lokað í febrúar þegar deilan um múhamesðteikningarnar stóð sem hæst.

Erlent
Fréttamynd

Berlusconi vill ríkisstjórn olívubandalags og hægri flokka

Romano Prodi lýsti í dag yfir sigri vinstrimanna í þingkosningunum á Ítalíu en Silvio Berlusconi forsætisráðherra fer fram á endurtalningu. Hann leggur einnig til að fylkingarnar tvær sameinist í stórri ríkisstjórn sem allir landsmenn geti sætt sig við. Miðað við fyrstu viðbrögð úr herbúðum Prodis verður að teljast ólíklegt að tillaga Berlusconis verði að veruleika.

Erlent
Fréttamynd

Íran í hóp með kjarnorkuvæddum ríkjum

Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, tilkynnti í dag að Íran hefði bæst í hóp þeirra þjóða sem hefðu yfir kjarnorkutækni að ráða. Hann sagði Írana staðráðna í að hefja auðgun úrans á sama stigi og þær þjóðir sem nýti sér kjarnorku. Talsmaður Bush Bandaríkjaforseta sagði málið ekki taka rétta stefnu og ef fram haldi sem horfi verið bandarísk yfirvöld að ræða næstu skref við þær þjóðir sem eiga sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Erlent
Fréttamynd

Berlusconi segir engan geta hrósað sigri

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu og leiðtogi bandalags hægriflokka, segir engan flokk geta hrósað sigri í þingkosningunum sem fóru fram í gær og fyrradag. Hann segist aðeins sætta sig við sigur ólívubandalags Romanos Prodis eftir að búið verði að fara yfir atkvæðaseðla.

Erlent
Fréttamynd

Prodi segist ætla að mynda sterka ríkisstjórn

Romano Prodi, leiðtogi ólívubandalags, fagnaði í morgun sigri eftir að ljóst var að mið- og vinstriflokkarnir að baki honum hefðu náð meirihluta í eftir og neðri deild ítalska þingsins. Prodi segist ætla að mynda sterka ríkisstjórn þrátt fyrir að talningu atkvæða sé formlega ekki lokið og Silvio Berluscon, forsætisráðherra, og leiðtogi bandalags hægri flokka, hafi ekki játað sig sigraðann.

Erlent
Fréttamynd

Telja þorskstofninn í Barentshafi mun stærri

Vísindamenn við VNIRO rannsóknastofnunina í Rússlandi segja að skipulagt vanmat hafi átt sér stað í mælingum Alþjóðahafrannsóknaráðsins, ICES, á þorskstofninum í Barentshafi á undanförnum árum.

Innlent
Fréttamynd

Olmert tekur formlega við

Ríkisstjórn Ísraels hefur formlega bundið enda á forsætisráðherratíð Ariels Sharons og úrskurðað hann varanlega ófæran um að gegna embættinu. Þetta var einróma niðurstaða ráðherra í stjórninni og tekur Ehud Olmert því við embættinu en hann hefur verið starfandi forsætisráðherra frá því Sharon fékk alvarlegt heilablóðfall í byrjun árs.

Erlent
Fréttamynd

Minnst 40 féllu í sprengjuárás í Pakistan

Að minnsta kosti 40 féllu og fjölmargir særðust þegar öflug sprengja sprakk í garði í hafnarborginni Karachi í Pakistan í dag. Múslimar höfðu safnast þar saman til að fagna fæðingardegi Múhameðs spámanns.

Erlent
Fréttamynd

Ráðlagt að sniðganga fundi með Hamas-liðum

Sameinuðu þjóðirnar hafa ráðlagt yfirmönnum hjálparsamtaka á þeirra vegum að sniðganga fundi með stjórnmálaleiðtogum Hamas-samtakanna. Þeir er einnig ráðið frá því að eiga samskipti við forystumenn palestínsku heimastjórnarinnar sem Hamas-liðarnir fara fyrir.

Erlent
Fréttamynd

29 ákærðir vegna hryðjuverkanna í Madríd

29 menn voru í dag ákærðir fyrir aðild að sprengjuárásunum í Madríd á Spáni í mars 2004 sem urðu hátt í 200 manns að bana. Rúmlega 1700 manns særðust í hryðjuverkaárásinni en herskáuum múslimum hefur verið kennt um.

Erlent
Fréttamynd

Prodi fagnar sigri

talskir stjórnmálamenn eru búnir að vera í sannkallaðri rússíbanaferð í nótt. Eftir að Romano Prodi hafði þegar fagnað sigri í gærkvöldi, missti Ólívubandalag hans meirihlutann í öldungadeildinni. Síðustu atkvæðin utan úr heimi færðu því meirihlutann aftur, en tæpara getur það ekki staðið.

Erlent