Íþróttir

Fréttamynd

Armstrong enn með forystu

Lance Armstrong heldur enn forustu í Tour De France þrátt fyrir að hann hafi ekki enn sigrað áfanga. Í gær voru hjólaðir 153,5 kílómetrar og sigraði ítalinn Guisseppe Guerini áfangann. Lance Armstong hefur enn 2,46 mínútna forskot á ítalan ivan Basso, og 3,46 mínútur á Danann Michael Rasmussen.

Sport
Fréttamynd

Heimsmet í stangarstökki

Heimsmethafinn í stangarstökki Yelena Isinbayeva bætti heimsmet sitt í gær á alþjóðlegu móti sem haldið er í london. Ysinbæjeva setti heimsmet í madrid ekki alls fyrir löngu stökk þá 4.95 en í gær stökk hún einum sentimetra betur. Hún reyndi síðan við 5 metrana og hún sveif yfir í fyrstu tilraun og áhorfendur í London hreinlega ærðust af fögnuði.

Sport
Fréttamynd

Brynjar Björn til Reading

Brynjar Björn Gunnarsson landsliðsmaður í knattspyrnu gekk í gær til liðs við Reading. Hann stóðst læknisskoðun og hittir félaga sína í Svíþjóð en þar dvelst Reading í æfingabúðum.

Sport
Fréttamynd

Fyrsta deild karla

Tveir leikir voru í fyrstu deild karla í gær, Víkingur sigraði þór frá Akureyri 4-0 og þá sigraði KA Fjölni 6-1 í frumraun Guðmundar Vals Sigurðssonar sem þjálfari KA. Tveir leikir eru á dagskrá í dag. KS mætir Víkingi í Ólafsvík og í Kópavogi mætir topplið breiðablik Völsungi. Báðir leikirnir hefjast klukkan 14:00.

Sport
Fréttamynd

Armstrong að landa sigri

Lance Armstrong er nú aðeins hársbreidd frá sigri, sjöunda árið í röð í Frakklandshjólreiðunum, Tour de France, en hann sigraði á 21. og næstsíðasta áfanga sem hjólaður var í dag. Hjólaðir voru 55.5 kílómetrar í tímatöku í St. Etienne en þetta var fyrsti áfangasigur Armstrong sem er nú 4.40 mínútum á undan Ítalanum Ivan Basso sem er annar.

Sport
Fréttamynd

Strandhandbolti í Nauthólsvík

Á morgun, laugardag, fer fram strandhandboltamót á ylströndinni í Nautholsvík. Mótið hefst klukkan 9 og eru 20 lið skráð til leiks, bæði karlar og konur. Mótinu lýkur klukkan 18.

Sport
Fréttamynd

Armstrong heldur sínu striki

Spánverjinn Marcos Serrano kom fysrtur í mark á 18. dagleið Frakklandshjólreiðanna Tour de France í dag, þegar hjólaðir voru 189 kílómetrar frá Albi til Mende. Bandaríski meistarinn Lance Armstrong hélt fengnum hlut í heildarkeppninni. Hann er sem fyrr 2 mín. og 46 sek. á undan Ítalanum Ivan Basso.

Sport
Fréttamynd

1000 keppendur á Visa Rey Cup

Alþjóðlegt knattspyrnumót Visa Rey Cup hófst í Laugardalnum í morgun. Tæplega eitt þúsund strákar og stelpur taka þótt í mótinu sem lýkur með úrslitaleikjum á sunnudag.

Sport
Fréttamynd

Halda ólympíugullinu í 4x400

Alþjóðlegur íþróttadómstóll kvað upp þann úrskurð í morgun að bandaríska boðhlaupssveitin í 4x400 metra hlaupi á Ólympíuleikunum í Sidney fyrir fimm árum skyldi halda gullverðlaunum sínum. Einn hlauparanna féll á lyfjaprófi árið 1999.

Sport
Fréttamynd

79. meistaramótið í frjálsum

79. meistaramótið í frjálsum íþróttum verður haldið á Vilhjálmsvelli á Fljótsdalshéraði um helgina. Þetta verður í fyrsta sinn sem mótið fer fram á Austurlandi.

Sport
Fréttamynd

Fékk staðfest sex ára gamalt mark

Það eru ekki allir svo heppnir að fá tilkynningu um að hafa skorað mark í fótbolta fyrir sex árum. Brasilíski sóknarmaðurinn Luizao taldi sig hafa skorað mark fyrir brasilíska liðið Corinthians gegn Olimpia frá Paragvæ. Því til sönnunar skrifaði Luizao Knattspyrnusambandi Suður-Ameríku bréf og sendi að auki myndbandsupptöku af leiknum.

Sport
Fréttamynd

Bröndby sigraði í 1. umferð

Dönsku meistararnir í Bröndby sigruðu Midtjylland í 1. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gær. Helgi Sigurðsson var í lið AGF frá Árósum sem tapaði á útivelli gegn Silkeborg, 2-1. FC Kaupmannahöfn sigraði Álaborg 1-0.

Sport
Fréttamynd

Fimm leikmenn Afríku í bann

Aganefnd Knattspyrnusambands Íslands dæmdi í gær fimm leikmenn úr 3. deildarliðinu Afríka í keppnisbann. Fjórir leikmenn liðsins voru reknir út af í leik Afríku og Skallagríms 15. júlí. Að auki var einn leikmaður liðsins dæmdur í leikbann vegna fjögurra gulra spjalda.

Sport
Fréttamynd

Ísland í 92. sæti á lista FIFA

Íslenska landsliðið í knattspyrnu er ásamt Indónesum í 92. sæti á nýjasta styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA. Íslendingar falla um tvö sæti frá því að listinn var síðast birtur.

Sport
Fréttamynd

Íslendingar sigruðu Tyrki

Íslendingar sigruðu Tyrki með þremur mörkum gegn einu á opna Norðurlandamótinu í knattspyrnu, leikmanna 18 ára og yngri, í gær. Einum leikmanni tyrkneska liðsins var vísað af velli á 12. mínútu.

Sport
Fréttamynd

Kelly Holmes ekki með á HM

Ólympíumeistarinn í 800 og 1500 metra hlaupi kvenna, Kelly Holmes frá Bretlandi verður ekki með á HM í frjálsum íþróttum sem fram fer í Helsinki í næsta mánuði. Holmes er meidd á hásin.

Sport
Fréttamynd

Armstrong sem fyrr efstur

Ítalinn Paolo Savoldelli kom fyrstur í mark á 17. dagleið Frakklandshjólreiðanna í dag, en hjólaðir voru tæpir 240 mílómetrar frá Pau til Revel. Hann tryggði sér sigurinn á endasprettinum og marði nauman sigur á Norðmanninum Kurt-Asle Arvesen. Lance Armstrong er sem fyrr 2 mín. og 46 sek. á undan Ítalanum Ivan Basso.

Sport
Fréttamynd

8-liða úrslit Visa-bikarsins

Einn leikur verður í 8-liða úrslitum Visa-bikarkeppni karla í knattspyrnu í kvöld. HK mætir Fylki á Kópavogsvelli klukkan 19.15.

Sport
Fréttamynd

Orðspor Eysteins gleymist ekki

Skíðasamband Íslands fékk veglega gjöf í heimsókn Eysteins Þórðarsonar og eiginkonu hans, Pamela Thordarson, til landsins en þau eru búsett í Bandaríkjunum. Pamela hefur ákveðið að stuðla að því að orðspor Eysteins í skíðabrekkunum gleymast ekki.

Sport
Fréttamynd

Schumacher gefst ekki upp

Þýski ökuþórinn Michael Scumacher segir að keppninn um titilinn í Formúlu 1 sé langt frá því að vera lokið. Þrátt fyrir að hafa verið í stökustu vandræðum í allt sumar og 34 stigum á eftir efsta manni, Fernando Alonso, heldur Schumacher því fram að hann geti ennþá varið titilinn sem hann vann með svo miklum yfirburðum í fyrra

Sport
Fréttamynd

Red Bull semur til 2012

Keppnislið Red Bull í formúlu eitt hefur gert nýjan samning við Bernie Ecclestone yfirmann auglýsingamála í formúlunni og fetar þar með í fótspor Ferrari sem eru einu liðin sem hafa framlengt samninga sína lengur en til ársins 2007.

Sport
Fréttamynd

Armstrong í góðri stöðu

Spánverjinn Oscar Pereiro kom fyrstur í mark á 16. dagleið Frakklandshjólreiðanna Tour de France í dag, þegar hjólaðir voru rúmir 180 kílómetrar frá Mourenx til Pau. Bandaríski meistarinn Lance Armstrong hélt fengnum hlut í heildarkeppninni og fátt virðist geta komið í veg fyrir það, að hann hrósi sigri í hjólreiðunum á sunnudaginn 7. árið í röð

Sport
Fréttamynd

Loeb í metabækurnar

Franski ökuþórinn Sebastien Loeb sigraði með yfirburðum í Argentínurallinu um helgina og varð með því fyrsti ökuþórinn í sögu heimsmeistarakeppninnar til að vinna sex keppnir í röð á sama tímabilinu, en hann varð einnig fyrsti ökumaðurinn til að sigra á sjö mótum í heildina á einu keppnistímabili, sem enn er ekki búið.

Sport
Fréttamynd

Landsliðið tapaði í Davis Cup

Karlalið Íslands í tennis töpuðu  lokaleik sínum fyrir Tyrkjum í Davis Cup í Dyflinni. Þeir munu því leika í fjórðu deild að ári.

Sport
Fréttamynd

Loeb sigraði í Argentínu

Sebastian Loeb á Citroen sigraði í argentínska rallinu sem kláraðist um helgina. Þetta var sjötti sigur Loeb í röð og hans sjöundi alls og er það er met. Loeb er lang efstur í stigakeppni ökumanna er með 75 stig en Norðmaðurinn Petter Solberg  er með 48 stig.

Sport
Fréttamynd

Silja sigraði í Karlstad

Silja Úlfarsdóttir hlaupadrottning úr FH sigraði í 400 metra grindahlaupi á frjálsíþrótamóti í Karlstad í Svíþjóð í kvöld og  hljóp á 58.37 sekúndum. Anneli Melin frá Svíþjóð varð önnur á 58.71 sek. Silja freistaði þess að ná lágmarki fyrir HM í frjálsum íþróttum í Helsinki í sumar, en var 1.87 sek. frá því.

Sport
Fréttamynd

Leo til Benfica

Benfica keypti í gær brasilíska varnarmanninn Leo frá Santos. Leo er þrítugur og fjórði leikmaðurinn sem gengur til liðs við Benfica í sumar. Hinir eru Brasilíumennirnir Anderson og Beto og Rússinn Karyaka. Þá er ástralski landsliðsmaðurinn John Aloisi búinn að skrifa undir hjá Alaves á Spáni 

Sport
Fréttamynd

3. flokkur KR sigraði í Danmörku

3. flokkur KR sigraði í sínum aldursflokki á Tívoli-bikarmótinu sem lauk í Danmörku í gær. KR sigraði danska liðið Ölstykke með tveimur mörkum gegn einu í framlengdum úrslitaleik. KR-liðið vann fjóra leiki og gerði tvö jafntefli í mótinu.

Sport
Fréttamynd

Ásdís í 4. sæti

Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni varð í 4. sæti í spjótkasti á Evrópumeistaramóti 20-22 ára í Erfurht í Þýskalandi í gær. <font face="Times New Roman" color="#002041">Hún kastaði 53,78 metra og var nokkuð frá Íslandsmeti sínu sem er 57,10 metrar. Sigurvegari í Erfurht varð Annika Suthe Þýskalandi sem kastaði 57,72 metra.</font>

Sport
Fréttamynd

Bandaríkin sigruðu Jamaíka

Bandaríkjamenn sigruðu Jamaíkamenn, 3-1, í 8-liða úrslitum Gullbikarkeppninnar í knattspyrnu í Foxboro í Massachusetts í gærkvöldi. DaMarcus Beasley skoraði tvö markanna. Í undanúrslitum mætast Bandaríkin og Hondúras en þeir sigruðu Kosta Ríka, 3-2, í 8-liða úrslitunum.

Sport