Jafnréttismál
1 2 3 4 5 6 … 40 ›
Bein útsending: Konur streyma á Arnarhól Skipuleggjendur reikna með mikilli þátttöku í kvennaverkfallinu í dag þegar haldið er upp á það að fimmtíu ár eru liðin frá fyrsta kvennafrídeginum árið 1975. Vísir verður í beinni útsendingu og vakt frá sögugöngu eftir Sóleyjargötu þar sem leikkonur bregða sér í gervi kvenskörunga og svo frá Arnarhóli þar sem reiknað er með múgi og margmenni. Innlent 24.10.2025 12:54
Ættu konur að fara í háskólanám? Konur á Íslandi mennta sig meira en nokkru sinni fyrr, en fá samt minnst út úr menntun sinni. Skoðun 24.10.2025 12:02
Miðla sögu jafnréttisbaráttunnar á Íslandi til útlanda Íslensk stjórnvöld hafa sett í loftið vefsíðu á ensku þar sem sögu og árangri jafnréttisbaráttunnar á Íslandi eru gerð skil. Kvennaverkfallið sem boðað er í dag, í tilefni af því að fimmtíu ár eru liðin frá kvennaverkfallinu 1975, hefur vakið athygli út fyrir landssteinana. Dómsmálaráðherra sagði í viðtali við Sky News í gær að tilefni sé til að fagna þeim árangri sem náðst hafi en um leið sé baráttunni hvergi lokið. Innlent 24.10.2025 10:54
Bein útsending: Nútíma kvennabarátta – Staða kvenna af erlendum uppruna á vinnumarkaði ASÍ stendur fyrir málþingi í tilefni af kvennaverkfalli í dag sem ber yfirskriftina Nútíma kvennabarátta – Staða kvenna af erlendum uppruna á vinnumarkaði. Innlent 24.10.2025 09:30
Þjóðin klofin í afstöðu til þess hvort jafnrétti kynjanna hafi verið náð Segja má að þjóðin skiptist í tvær fylkingar í afstöðu sinni til þess hvort fullu kynjajafnrétti hafi verið náð á Íslandi samkvæmt nýrri könnun Gallup. Nær 47% svarenda segja jafnrétti milli karla og kvenna hafa verið náð en 44% telja svo ekki vera. Töluverður munur er á afstöðu kynjanna til þessa en þannig telja ríflega 60% karla að jafnrétti hafi verið náð en aðeins rúm 30% kvenna. Þá er yngra fólk og þau sem eru tekjuhærri líklegra til að finnast jafnrétti hafa verið náð. Innlent 24.10.2025 08:44
Gleðilegan kvennafrídag og gleðilegt kvennaár Frá unga aldri hefur mér verið innrætt að við getum öll gert það sem við viljum og við getum öll látið draumana okkar rætast. Konur geta verið hvað sem þær vilja, meira að segja forsetar, sagði mamma. Sjálf hef ég lagt talsvert á mig til þess að láta mína drauma rætast. Skoðun 24.10.2025 08:32
Konur Íslands og alþjóðakerfið í takt Fimmtíu ár eru í dag liðin frá kvennafrídeginum, atburði sem enginn efast lengur um að hafi markað þáttaskil í kvenfrelsisbaráttu á Íslandi. Þann dag lögðu konur niður störf, söfnuðust saman og kröfðust jafnréttis og virðingar. Skoðun 24.10.2025 08:02
Við erum ekki eign annarra! Þann 24. október er baráttudagur kvenna. Við munum heyra ræður um jafnrétti, framtíðina og það sem hefur áunnist. Í dag - árið 2025 - getur kona á Íslandi ekki fengið skilnað nema makinn samþykki hann. Skoðun 24.10.2025 07:30
Allt að áttatíu þúsund mæti í miðbæinn og götulokanir í gildi Búist er við að allt að áttatíu þúsund manns, einkum konur og kvár, leggi leið sína í miðborg Reykjavíkur í dag í tilefni af Kvennaári. Árið 1975 lögðu konur niður störf til að krefjast jafnréttis og nú, fimmtíu árum síðar, á að endurtaka leikinn. Dagskrá fer fram að því tilefni víðsvegar um um landið, en stærsti viðburðurinn verður í höfuðborginni þar sem lögregla verður með öfluga öryggisgæslu. Götulokanir verða í gildi miðsvæðis þar til síðdegis í dag sem mun meðal annars hafa áhrif á ferðir Strætó. Innlent 24.10.2025 06:00
Samstaða - afl sem breytir samfélaginu Kæru konur og kvár, til hamingju með daginn. Í dag stöndum við saman til að minna á það sem aldrei má gleymast – að jafnrétti kemur ekki af sjálfu sér. Það er ávöxtur baráttu, hugrekkis og samstöðu. Skoðun 23.10.2025 16:28
Einu sinni enn Kvennaár 2025 á Íslandi. Fimmtíu ár liðin frá því að íslenskar konur lögðu niður störf 24. október 1975, bæði launuð og ólaunuð, með þeim afleiðingum að samfélagið stöðvaðist. Þetta var sögulegur dagur sem vakti athygli um heim allan, breytti viðhorfum til kvenna og hvatti til lagabreytinga. Skoðun 23.10.2025 22:01
Gagnrýna lítinn fyrirvara á skipulagi kvennafrídagsins Samtök atvinnulífsins gagnrýna breytingu á kvennafrídeginum á morgun þar sem konur og kvár séu nú með nær engum fyrirvara hvött til að leggja niður störf allan daginn. Þá minna þau á að engin skylda hvíli á atvinnurekendum að greiða laun í fjarvistum enda í misgóðri aðstöðu til að missa starfsfólk úr vinnu. Innlent 23.10.2025 13:03
„Við finnum fyrir mikilli spennu frá heimsbyggðinni“ Augu heimsbyggðarinnar beinast að Kvennaverkfallinu sem boðað hefur verið á Íslandi á morgun. Þetta segir verkefnastýra Kvennaárs en boðað hefur verið til baráttufunda um allt land. Innlent 23.10.2025 12:56
Halla tekur sér frí og vill að karlmenn axli ábyrgð Halla Tómasdóttir forseti Íslands ætlar að taka sér frí á morgun til að standa með systrum sínum og bræðum gegn ofbeldi. Hún segir brýnt að kalla eftir enn virkari þátttöku karla og drengja í jafnréttisbaráttunni. Innlent 23.10.2025 10:30
Kröfur kvennaárs komnar í innheimtu og gjalddaginn fallinn Inga Auður Straumland, verkefnastýra Kvennaárs, segir skipulagningu ganga vel fyrir kvennaverkfall á föstudag en viðurkennir að verkefnalistinn sé nokkuð langur. Síðustu sjö daga hefur hnefa verið varpað á byggingar á höfuðborgarsvæðinu. Aðgerðin er táknræn og á að varpa ljósi á kröfur kvennaárs sem voru lagðar fram á kvennafrídeginum í fyrra. Innlent 22.10.2025 23:31
„Ég skoðanakúgaði sjálfa mig í þágu friðar og þæginda félagslega“ Hlédís Maren Guðmundsdóttir, félagsfræðingur og fyrrverandi blaðamaður, segist ekki geta séð að feðraveldið orsaki kynbundið ofbeldi. Félagsleg vandamál verði alltaf til staðar og það sé frekar orsökin. Hún segir ungt fólk horfa til íhaldssamra gilda því það geti ekki mátað sig við sama heim og kynslóðir á undan þeim bjuggu í. Innlent 22.10.2025 19:58
Klórar sér í kollinum yfir kvennaverkfallinu Fyrrverandi þingmaður segist ekkert skilja í því að konur eigi að fá auka frídag á föstudag þegar kvennaverkfall er boðað á fimmtíu ára afmæli þess fyrsta. Hún segist ekki myndu vilja reka fyrirtæki á Íslandi í dag. Innlent 22.10.2025 10:48
Hálfsdagslokun leikskóla skyndilega orðin að heilsdagslokun Leikskólar Reykjavíkurborgar verða sumir lokaðir allan daginn á föstudag vegna kvennafrídagsins. Foreldrum barna á leikskólunum var tilkynnt í síðustu viku að þeir yrðu lokaðir seinni hluta dags. Innlent 22.10.2025 10:38
Þjónn, það er bakslag í beinasoðinu mínu Það hefur orðið bakslag í réttindabaráttu kvenna, eða svo er okkur talin trú um þessa dagana. Tímasetningin er forvitnileg. Því svo samstillt eru orð og áherslur að ætla mætti að um væri að ræða sérstakt markaðsátak í aðdraganda Kvenna- og kváraverkfallsins. Skoðun 22.10.2025 08:30
Skýrt ákall um heilsdagsverkfall á kvennafrídegi í ár Á föstudag eru konur og kvár hvött til að leggja niður launuð sem og ólaunuð störf eins og konur gerðu fyrst árið 1975 þegar fyrsti kvennafrídagurinn var haldinn. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir hafa verið ákall um heilsdagsverkfall og því sé slíkt verkfall boðað í ár. Hún segir sérstaklega horft til kvenna í æðri stöðum og að hún voni að öllum verði gert kleift að taka þátt sem það vilja. Innlent 21.10.2025 23:42
Máttu neita karlmanni um leyfi í kvennaverkfalli Kærunefnd jafnréttismála telur að Íslenskar orkurannsóknir, Ísor, hafi mátt mismuna karlmanni á grundvelli kyns, með því að veita honum ekki leyfi til þess að taka þátt í kvennaverkfalli. Leyfi frá störfum sem konum og kynsegin fólki var veitt til að taka þátt hafi verið sértækar aðgerðar sem fælu ekki í sér brot gegn lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Innlent 21.10.2025 14:12
Götulokanir vegna kvennaverkfalls Götulokanir verða í gildi í miðborg Reykjavíkur vegna kvennaverkfallsins föstudaginn 24. október. Hluti miðborgarinnar verður lokaður akandi umferð frá tíu að morgni til fimm síðdegis. Innlent 20.10.2025 11:35
„Ég hélt ekki að ég ætti eftir að upplifa svona rosalegt bakslag“ Drífa Snædal, talskona Stígamóta, og Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, eru sammála um að þó svo að í dag sé bakslag í jafnréttisbaráttu hafi verið stigin afar stór skref síðustu ár. Það séu nýjar áskoranir í nýjum tegundum ofbeldis og nýjum kynslóðum gerenda, en þær séu vel tilbúnar að takast á við slíkar áskoranir. Innlent 20.10.2025 06:47
Um sé að ræða afturför í jafnréttismálum Skiptar skoðanir eru á frumvarpi dómsmálaráðherra um afnám jafnlaunavottunar. Fyrirtæki og stofnanir setja meðal annars út á starfsmannafjölda og viðra áhyggjur sínar af fjölda verkefna sem koma til með að bíða starfsmönnum Jafnlaunastofnunar. Hörðustu gagnrýnendurnir segja að um sé að ræða afturför í jafnréttismálum. Innlent 17.10.2025 16:17
Samtal um launajafnrétti og virðismat starfa í tilefni af Kvennaári Þann 24. október eru liðin 50 ár frá Kvennafrídeginum þegar konur hér á landi lögðu niður störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags síns. Staða kvenna á vinnumarkaði var langt frá því jöfn á við stöðu karla á þeim tíma. Störf þeirra voru vanmetin sem leiddi til þess að laun þeirra voru lægri. Skoðun 16.10.2025 18:15
Bæta meðgönguvernd við hefðbundna sjúkdómatryggingu Vörður tryggingar hefur bætt meðgöngu-, fæðingar- og foreldravernd við hefðbundnar sjúkdómatryggingar án þess að hækka kostnað vegna tryggingarinnar. Í tilkynningu kemur fram að þessi nýja trygging hafi það markmið að styðja við foreldra. Bætur eru eingreiðslur og geta numið allt að einni milljón. Verndin gildir á meðan meðgöngu stendur, í fæðingu og þar til barn nær eins árs aldri. Neytendur 16.10.2025 08:55
Sorglega lítið að frétta af árangri kynjakvóta í jafnréttisparadís Ísland hefur í sextán ár skipað efsta sæti á lista Alþjóðaefnahagsráðsins yfir jafnrétti kynjanna. Ísland var jafnframt annað landið í heiminum til að festa í lög að hvorki mætti halla á konur né karla í stjórnum stórra fyrirtækja um meira en 40%. Framúrskarandi fyrirtæki 15.10.2025 08:30
Boða aftur til kvennaverkfalls fimmtíu árum eftir það fyrsta Framkvæmdastjórn Kvennaárs hefur boðað til kvennaverkfalls þann 24. október þegar fimmtíu ár eru frá því að fyrsti kvennafrídagurinn var haldinn á Íslandi. Farið verður í sögugöngu og efnt til útifundar á Arnarhóli og víðar um land. Viðburðurinn er frá 14 til 16. Innlent 9.10.2025 09:12
Sótt að réttindum kvenna — núna Það er sótt að réttindum kvenna. Núna. Ekki bara í Bandaríkjunum eða Afganistan, heldur víða í Evrópu — og með hætti sem læðist hægt og hljótt inn í orðræðuna, stjórnmálin, stjórnsýsluna og stefnumótunina. Þess vegna verðum við að vera vakandi. Engin réttindi eru örugg nema við stöndum vörð um þau á hverjum degi. Skoðun 6.10.2025 17:01
Tillögurnar í leikskólamálum séu vonbrigði og uppgjöf Formaður BSRB segir nýjar tillögur meirihlutans í Reykjavík í leikskólamálum vonbrigði. Tillögurnar taki ekki á grunnvanda leikskólakerfisins heldur velti álagi og kostnaði yfir á foreldra. Það sé vel hægt að gera kerfi sem hentar börnum, foreldrum og starfsfólki og það sé ekki þetta kerfi. Innlent 3.10.2025 11:48