

Skipverjarnir 25 á Júlíusi Geirmundssyni hafa fengið leyfi til að yfirgefa skipið og munu allir nema einn gera það í dag.
Framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins Gunnvarar hf, sem gerir út Júlíus Geirmundsson ÍS 270, vill ekki svara því hvers vegna ekki var farið í land þegar fór að bera á veikindum meðal skipverja.
Nú um hádegisleytið tekur heilbrigðisstarfsfólk á Vestfjörðum á móti áhöfn frystiskipsins Júlíusar Geirmundssonar Ís 270 á Ísafirði en langflestir skipverjar eru smitaðir af Covid-19. Til greina kemur að opna tímabundið farsóttarhús á Vestfjörðum.
Meirihluti áhafnar frystiskipsins Júlíusar Geirmundssonar ÍS-270 hefur greinst með kórónuveirusmit
Dýrafjarðargöng verða opnuð á sunnudag, rúmlega þremur árum eftir að framkvæmdir hófust. Með göngunum styttist Vestfjarðavegur um 27,4 kílómetra. Opnunin verður með óhefðbundnu sniði vegna kórónuveirufaraldursins.
Björgunarskipið Gísli Jóns á Ísafirði er komið að skipinu sem varð vélarvana innarlega í Ísafjarðardjúpi í morgun.
Björgunarskip á Ísafirði var kallað út klukkan hálf ellefu vegna vélarvana skips innarlega í Djúpinu.
Lið Vestra mun varla geta mannað lið sitt ef Lengjudeild karla í knattspyrnu verður kláruð. Erlendir leikmenn liðsins fara nær allir heim á næstu dögum og óvíst hvað gerist ef deildin verður kláruð undir lok mánaðar.
Eftirvæntingar gætir á Vestfjörðum vegna væntanlegrar opnunar Dýrafjarðarganga, nú þegar jarðgöngin eru nánast tilbúin. Þegar slegið var í gegn í fyrra nefndi samgönguráðherra dagsetninguna 14. september 2020. En hvenær rennur stóri dagurinn upp?
Starfshópur um uppbyggingu snjóflóðasafns á Flateyri vill fá varpskipið Ægi undir safnið og nýta það einnig undir gisti-og veitingaþjónustu. Forsvarsmaður hópsins furðar sig á því að ekkert snjóflóðasafn sé starfrækt hér á landi þrátt fyrir að snjóflóð séu mannskæðustu náttúruhamfarir Íslandssögunni.
Karlmaður á Vestfjörðum hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa gripið tvisvar utanklæða um brjóst konu á skemmtistað á Ísafirði. Þá þarf hann að greiða konunni 200 þúsund krónur í miskabætur.
Fimm kórónuveirusmit hafa greinst á Ísafirði í dag og voru öll í sóttkví við greiningu.
Hlaupahópurinn Riddarar Rósu á Ísafirði stendur fyrir hlaupi til styrktar Pétri Oddssyni og eiginkonu hans, Sigurlín Guðbjörgu Pétursdóttur. Pétri hefur verið haldið sofandi í öndunarvél eftir að hann lenti í alvarlegu vinnuslysi.
Karlmaður á sextugsaldri sem slasaðist við alvarlegt vinnuslys í tengivirku Landsnets og Orkubús Vestfjarða í Breiðadal á fimmtudag er enn á gjörgæslu.
Líðan karlmanns sem slasaðist í alvarlegu slysi við tengivirki í Breiðadal í gær er sögð stöðug. Maðurinn fékk í sig mikinn straum og féll úr töluverðri hæð.
Alvarlegt slys varð í spennistöð Orkubús Vestfjarða á fjórða tímanum í dag. Einn var fluttur slasaður með sjúkrabíl til Ísafjarðar en var skömmu síðar fluttur með sjúkraflugi Mýflugs suður til Reykjavíkur. Straumleysi varð í Önundarfirði eftir að slysið varð og er verið að skoða aðstæður.
Endaspretturinn er hafinn í lokafrágangi Dýrafjarðarganga og standa vonir til að unnt verði að opna jarðgöngin um miðjan október. Þau leysa Hrafnseyrarheiði af hólmi og stytta vesturleiðina milli Ísafjarðar og Reykjavíkur um 27 kílómetra.
Gamla bakaríið var stofnað árið 1871 af Þorsteini Þorsteinssyni og er næstelsta bakarí landsins. Það hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar í heila öld. Skellt verður í lás í nóvember.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur boðað til blaðamannafundar á í dag klukkan eitt, þar sem kynna á skosku leiðina svokölluðu, sem mun reyndar fá nýtt nafn frá og með deginum í dag.
Tjöruhúsið á Ísafirði mun opna aftur.
Stúlka í slæmu ástandi, berfætt og í náttfötum, svaf öryggis síns vegna af sér í fangaklefa á Ísafirði í síðustu viku.
Fjórir eru smitaðir af COVID-19 á Vestfjörðum.
„Við gerum ekki athugasemdir við ákvörðunina. Ákvörðunin er rétt miðað við forsendur útboðsins,“ segir Óskar Sigvaldason, framkvæmdastjóri Borgarverks ehf., um þá ákvörðun Vegagerðarinnar að hafna tilboði fyrirtækisins í fyrsta áfanga Dynjandisheiðar.
Vegagerðin hefur hafnað lægsta tilboði í endurbyggingu þjóðvegarins yfir Dynjandisheiði vegna reynsluleysis verktakans af stórverkum og þess í stað ákveðið að semja við þann verktaka sem átti næstlægsta boð.
Lögreglan á Vestfjörðum lokaði og innsiglaði veitingastaðinn Tjöruhúsið á Ísafirði í umboði Ríkisskattstjóra í gær.
Tólf manns hafa verið settir í sóttkví eftir að tvö ný kórónuveirusmit greindust á Ísafirði í dag. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða segir að unnið sé að smitrakningu með sýnatökum og mótefnamælingum.
Stálheppinn miðahafi á Íslandi vann alls 95,6 milljónir króna í annan vinning í Eurojackpot í kvöld. Miðinn var keyptur á N1 á Ísafirði. Miðahafinn heppni var með fimm tölur réttur og eina bónustölu.
Öllum hömlum sem settar voru á íbúa á hjúkrunarheimili Hlíf á Ísafirði síðastliðið laugardagskvöld hefur nú verið aflétt.
Íbúi á Hlíf, íbúðum fyrir eldri borgara á Ísafirði, sem greindist með kórónuveiruna á laugardag fór aftur í sýnatöku í vikunni. Í þeirri sýnatöku fannst veiran ekki í íbúanum. Hefur mótefnamæling einnig leitt í ljós að íbúinn er ekki með mótefni fyrir veirunni.
Enn hefur ekki tekist að rekja uppruna kórónuveirusmitsins sem kom upp á Hlíf, íbúðum fyrir eldri borgara á Ísafirði.