Reykjavík

Rafmögnuð stemning í Kolaportinu á Menningarnótt
Menningarnæturtónleikar X977 voru haldnir í Kolaportinu á laugardaginn og það var gríðarleg stemming í salnum. Vel var mætt á tónleikana enda einvala lið tónlistafólks sem kom þar fram eins og áður.

Tilkynning um pláss á leikskóla dregin til baka skömmu síðar
Fjölmargir foreldrar héldu að löng bið eftir leikskólaplássi hafi tekið enda í gær er þau fengu tilkynningu frá Ævintýraborgum í Nauthólsvík um að tekið verði á móti börnum viðtakenda í byrjun september.

Kristín komin með vilyrði fyrir leikskólaplássi en það mun ekki þagga niður í henni
Hún fékk nóg af gagnslausum skýringum og sinnuleysi í leikskólamálum og ákvað að taka málin í sínar hendur.

Veitingamenn í Nauthólsvík stóla á veðurblíðu fyrir viðskipti á sumrin
Sólin lék við borgarbúa í dag og einhverjir lögðu leið sína í Nauthólsvík. Dagurinn var einn sá heitasti í borginni í sumar. Opinberir mælar sögðu að hiti hafi náð upp í sautján gráður á höfuðborgarsvæðinu í dag.

Sérsveitin stöðvaði unga sjálfstæðismenn við mótmæli við rússneska sendiráðið
Sérsveit ríkislögreglustjóra og lögreglumenn stöðvuðu unga sjálfstæðismenn sem hugðust mótmæla stríði Rússa í Úkraínu við rússneska sendiráðið í kvöld. Ungmennin ætluðu að mála úkraínska fánann á gangstéttina við sendiráðið en voru stöðvuð við verkið og eftir eru tveir málningarpollar á gangstéttinni. Einn gulur og einn blár.

Telur að stórefla þurfi öryggi vegfarenda í miðborginni
Stórefla þarf öryggi gangandi vegfarenda við stóra viðburði eins og Menningarnótt í miðbænum að mati sérfræðings í öryggismálum. Tvö tilvik þar sem ofurölvi ökumenn óku inn í mannmergð þar sem götulokanir voru í gildi sýni nauðsyn þess.

Hundrað þúsund krónur í vaskinn eftir frestunina
Viktor Klimazewski flaug til Reykjavíkur frá Egilsstöðum í gærmorgun til þess að fara á tónleika með Lewis Capaldi sem áttu að fara fram í kvöld. Tónleikunum var frestað nokkrum tímum síðar og eru Viktor og kærasta hans hundrað þúsund krónum fátækari þar til annað kemur í ljós.

Sturla Atlas og Steinunn selja íbúð á Kambsveginum
Listaparið Sigurbjartur Sturla Atlason og Steinunn Arinbjarnardóttir hafa sett íbúð sína á Kambsvegi á sölu. Íbúðin er björt og hlýleg, rúmir 60 fermetrar að stærð auk rislofts sem bætist þar við.

Segir það lélegt að spila með lífsviðurværi foreldra
Súsanna Ósk Gestsdóttir, deildarstjóri og leikskólakennari er ósátt með það sem hún kallar „innantóm loforð borgarstjórnar“ og segir lélegt að spila með lífsviðurværi foreldra með því að standa ekki við gefin loforð um leikskólapláss. Hún kallar eftir samráði við leikskólakennara til að finna raunverulegar lausnir á löngum biðlistum í borginni.

Óleysanleg vandamál hafi valdið frestun tónleika Lewis Capaldi en fólk fái tjón bætt
Skipuleggjandi tónleika Lewis Capaldi segir óleysanleg vandamál hafa valdið því að það þurfti að fresta tónleikunum með eins dags fyrirvara. Jafnframt sagði hann að allir þeir sem vilja muni fá endurgreitt og að skipuleggjendur ætli að bæta fólki upp það fjárhagslega tjón sem frestunin hafi ollið.

Ekið á mann á rafskútu
Ekið var á einstakling á rafskútu á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar upp úr klukkan tólf í dag. Viðkomandi var fluttur af vettvangi í sjúkrabíl.

Hraðlestinni á Lækjargötu lokað
Hinn sívinsæli veitingastaður Hraðlestin hefur ákveðið að loka veitingastað sínum á Lækjargötu. Síðasti opnunardagurinn verður á fimmtudaginn.

Kaupsamningar ekki verið færri síðan í apríl 2015
Umsvif á íbúðamarkaði fara minnkandi en kaupsamningar um íbúðarhúsnæði hafa ekki verið færri síðan í apríl 2015 ef miðað er við 6 mánaða hlaupandi meðaltal. Fyrstu merki kólnunar á fasteignamarkaði virðast komin fram.

Hyggjast byggja upp jarðefnagarð í Álfsnesi
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Hornsteins ehf.m og Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu, hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf um uppbyggingu á jarðefnagarði á athafnasvæði Björgunar í Álfsnesvík í Álfsnesi.

Pavel yfirgefur Íslandsmeistarana
Pavel Ermolinskij, leikmaður Vals, hefur staðfest að hann muni ekki leika með liðinu á næsta tímabili í Subway-deild karla.

Stórum áfanga náð í Borgarlínuverkefninu í dag
Borgaryfirvöld segja að stórum áfanga hafi verið náð í Borgarlínuverkefnunu í dag þegar samkomulag náðist um afnot af lóð Barnavinarfélags Sumargjafar. Formaður félagsins segir að á móti ætli borgin að reisa nýjan leikskóla á lóðinni.

Tónleikum Lewis Capaldi frestað vegna vandamála við framkvæmd þeirra
Tónleikum Skotans Lewis Capaldi, sem fara áttu fram í Laugardalshöll á morgun, hefur verið frestað vegna vandamáls sem upp kom við framkvæmd þeirra.

Ofurölvi bílstjórar óku inn í mannmergðina á Menningarnótt
Mikil mildi þykir að tveir ofurölvi ökumenn hafi ekki valdið stórslysum á Menningarnótt þegar þeir óku inn í mannmergð þar sem götulokanir voru í gildi. Lögreglan segir gríðarleg vonbrigði að enn eitt hnífaárásarmálið hafi komið upp. Borgarstjóri vill bregðast við auknum hnífaárásum ungmenna.

Nýjum stílum og bikiní frá Swimslow fagnað í Andrá
Sundfatamerkið Swimslow fagnar fimm ára afmæli í ár og heldur upp á áfangann með því að bæta við þremur nýjum stílum af sundbolum og loksins bikiníi. Silja Magg myndaði nýja herferð íslenska merkisins.

Hópárás á ungan mann á Menningarnótt
Sex manna hópur réðst á ungan mann í miðborginni og lét höggin dynja á höfði hans. Myndband af árásinni er nú í dreifingu á samfélagsmiðlum og má sjá það hér neðar.

Hægfara dauði leikskólakennarans
Kæri borgarstjóri (og staðgengill borgarstjóra) og borgarfulltrúar. Undanfarið hef ég horft upp á hrakfarir foreldra sem hefur verið lofað leikskólaplássum fyrir börnin sín en þurft að lifa í algjörri óvissu þegar loforð hafa ekki verið efnd. Á sama tíma heyri ég lausnir sem koma frá ykkar herbúðum, minnihluta eða meirihluta, sem eru svo ævintýralegar að mig sundlar og svimar.

Aldrei jafn mörg atvik hjá slökkviliðinu á einni næturvakt
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei þurft að flytja jafn marga með sjúkrabíl á næturvakt og þau gerðu á Menningarnótt í gær. Varðstjóri segir óvenjumikið hafa verið að gera miðað við fyrri Menningarnætur en að álag sem þetta fylgi svona mikilli mannmergð.

Var byrlað á Menningarnótt og neitað um aðstoð lögreglu
Kona á fimmtugsaldri sem fór niður í bæ á Menningarnótt og fékk sér drykk með manni sínum telur sér hafa verið byrlað ólyfjan. Af því hún hafði drukkið áfengi neitaði lögreglan þeim um aðstoð og þurfti maður hennar því að skilja hana eftir nær meðvitundarlausa á bekk á meðan hann leitaði að leigubíl.

Fórnarlömb stungin í útlimi og brjósthol: Einn árásarmanna undir átján ára aldri
Tilkynnt var um tvær hnífsstungur í miðbænum í nótt, aðstoðaryfirlögregluþjónn segir aukinn vopnaburð áhyggjuefni, hann hafi ekki lengur tölu á fjölda stunguárása það sem af sé ári.

„Þetta eru bara hetjur allir sem eru að klára hérna“
Arnar Pétursson kom fyrstur í mark í Reykjavíkurmaraþoninu sem haldið var í gær í fyrsta skipti síðan 2019. Arnar var tilfinningaríkur þegar hann kom í mark og segir það algjörlega frábært að fá þetta lykilhlaup hlaupamenningar á Íslandi aftur inn í dagatalið.

Tveir í haldi og tveir á slysadeild vegna hnífaárásar
Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt, fangageymslur fylltust og þurfti lögregla að grípa til vistunar í fangaklefum lögreglustöðvarinnar í Hafnarfirði. Mikið var um ölvun en einnig voru tveir handteknir vegna stunguárásar.

Safnaði nærri tvö hundruð þúsund krónum fyrir stelpu sem hún þekkir ekki
Ellefu ára stelpa, sem hljóp í dag tíu kílómetra til stuðnings Klöru litlu, sem lenti í hoppukastalaslysi á Akureyri síðasta sumar, segist stolt af árangrinum. Hún þekkir ekki til Klöru en hefur safnað nærri tvö hundruð þúsund krónum fyrir hana.

Ölvuð börn verða færð í athvarf í kvöld
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að taka hart á drykkju unglinga á Menningarnótt. Hún mun færa börn yngri en sextán ára í athvarf fyrir ungmenni verði þau úti eftir lögboðinn útivistartíma. Þá verða ölvuð börn undir átján ára einnig flutt í sama athvarf.

Stóraukin aðsókn í neyðarskýlin í sumar
Ásókn í neyðarskýli borgarinnar hefur stóraukist í sumar og nýting farið langt yfir það sem húsnæðin leyfa. Til stendur að opna nýtt úrræði í miðbænum sem á að vera nokkurs konar frumstig í átt að búsetu.

Tónlistarveisla Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum
Tónlistarveisla Bylgjunnar fer fram í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt. Sýnt verður frá viðburðinum í beinni útsendingu hér á Vísi og á sjónvarpsstöðinni okkar, Stöð 2 Vísi.