Slökkvilið

Eldur kom upp í spennuvirki á Nesjavöllum
Eldur kom upp í spennuvirki á Nesjavöllum skömmu eftir klukkan 10 í morgun.

Brenndist á andliti í lítilli sprengingu
Starfsmaður á vegum Olíudreifingar var fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri með minniháttar brunasár eftir að lítil sprenging varð í bensíntanki við bensínstöð N1 við Hörgárbárbraut á Akureyri.

Færðu stúlku sem ekið var á nýjan hjálm
Betur fór en áhorfðist þegar ekið var á stúlkuna á Sogavegi.

Grillaði grillið
Eldur kom upp í garði í Vesturbænum í gær þar sem kviknað hafði hressilega í gasgrilli.

Formlegt samstarf um eldsvoða á sjó ekki til staðar
Slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins segir ramma skorta utan um eldsvoða úti á rúmsjó í íslenskri landhelgi.

Árekstur á Kringlumýrarbraut veldur töfum á umferð
Að minnsta kosti þrír bílar lentu í árekstri á Kringlumýrarbraut upp úr klukkan tíu í dag.

Eldur í hafnfirskum ruslahaug
Allt tiltækt slökkvilið var kallað að Hringhellu í Hafnarfirði um klukkan hálfellefu í gærkvöldi þegar reyk tók að leggja yfir Vellina og sást reykurinn vel frá Reykjanesbraut.

Slökktu eld í bíl nærri Hagamelsvegi
Engan sakaði.

Slökkvilið kallað út vegna elds í Hlíðunum
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út seint á fimmta tímanum í dag vegna elds sem kom upp í þakpappa við íbúðarhús í Hlíðunum í Reykjavík.

Umferðartafir eftir sex bíla árekstur
Sex bíla árekstur varð á Kringlumýrarbraut við Bústaðaveg í morgun.

Fékk flogakast undir stýri og vagninn hafnaði utan vegar
Strætisvagn hafnaði utan vegar við Álafosskvosina í Mosfellsbæ nú á öðrum tímanum.

Slökkvilið kallað út vegna elds í húsi í Kópavogi
Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna elds í húsi í Funalind í Kópavogi.

Slökkvilið kallað út vegna elds í Grímsnesi
Varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu segir að um hafi verið að ræða ruslabrennu sem ekki hafi verið tilkynnt til slökkviliðs.

Tilkynnt um eld í bát í Njarðvík
Slökkviliðsmenn á leið á vettvang.

Lífeyristökualdur íslenskra slökkviliðsmanna hærri en gengur og gerist í Evrópu
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hér á landi þurfa að vinna sex árum lengur en starfsfélagar þeirra í Noregi og Danmörku til þess að fá fullan lífeyri.

Sjúkraflutningamenn á Íslandi eiga ekki að fara inn á ótryggan vettvang
Sjúkraflutningamenn á Íslandi eiga ekki að fara inn á ótryggan vettvang og geta þurft að bíða eftir lögreglu áður en þeir hlúa að slösuðum. Starfsfélagar þeirra í Noregi þurftu að bíða í meira en 40 mínútur fyrir utan heimili Gísla Þórs Þórarinssonar á meðan honum blæddi út.

Kveikt var í Valsárskóla
Nokkrir ungir strákar úr hverfinu kveiktu í rusli í Valsárskóla í kvöld.

Eldur kom upp í Valsárskóla
Eldur kom upp í Valsárskóla á Svalbarðseyri á sjöunda tímanum í kvöld.

Nemendur Seljaskóla fá inni hjá nágrönnum
Munu ljúka skólaárinu í Félagsmiðstöðinni Hólmaslóð og Seljakirkju.

Ætla að tryggja brunavarnir í Seljaskóla
Raki fannst í botnplötu.

Foreldrar óttast um öryggi barna vegna tveggja bruna á skömmum tíma: „Við ætlum ekki að búa við þetta“
Foreldrar barna í Seljaskóla í Breiðholti eru áhyggjufullir yfir því að kviknað hafi í skólanum í nótt, í annað sinn á mjög skömmum tíma. Skólastjórinn deilir áhyggjum foreldra og segir brýnt að komast til botns í málinu. Tíu kennslustofur skemmdust í brunanum í nótt og þurfa um 250 nemendur að mæta annað en í sínar bekkjarstofur það sem eftir er skólaársins.

Skólastarfi í Seljaskóla aflýst vegna brunans
Þá þurfa hátt í þrjú hundruð nemendur að mæta annað en í sína bekkjarstofu það sem eftir er skólaársins.

Vonar að bruninn raski ekki skólastarfi
Skólastjóri Seljaskóla vonar að bruninn í nótt raski ekki skólastarfi og leitað verður strax að húsnæði til að hægt að sé ljúka skólastarfi í næsta mánuði.

Mikið tjón í Seljaskóla eftir bruna
Mikil eldur kom upp í þaki Seljaskóla um miðnætti og barðist slökkvilið við eldinn í alla nótt. Hafsteinn Halldórsson, aðstoðarvarðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, sagði að aðstæður til slökkvistarfs hafi verið mjög erfiðar.

Eldur í þaki Seljaskóla
Eldur kom upp í þaki Seljaslóla í nótt.

Æfðu viðbrögð við flugslysi í Grímsey
Staðið var fyrir flugslysaæfingu í Grímsey í morgun þar sem viðbragðsaðilar komu saman til að æfa viðbrögð við flugslysi.

Slökkvilið kallað út vegna elds í ruslakari á Keflavíkurflugvelli
Brunavarnir Suðurnesja var kallað út vegna elds í ruslakari við lagerhúsnæði Suðurflugs á Keflavíkurflugvelli í dag.

Sækja stúlku sem slasaðist í Esjunni
Ekki alvarlega slösuð en ófær um að ganga niður sökum meiðsla.

Engar vísbendingar um hver brennuvargurinn er
Enginn er grunaður um að hafa kveikt eld í bílageymslu á Sléttuvegi 7 að morgni páskadags.

Einn alvarlega slasaður eftir umferðarslys nærri Húnaveri
Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Austur-Húnavatnssýslu auk sjúkraflutningamanna á Blönduósi og lögreglu á Norðurlandi vestra fengu tilkynningu um klukkan hálf tíu í kvöld um alvarlegt umferðarslys á þjóðveginum í botni Langadals, austan Blönduós.