Bretland

EasyJet boðar miklar uppsagnir
Breska lággjaldafélagið EasyJet áformar að segja upp þúsundum manna í starfsliði sínu, eða allt að þrjátíu prósentum starfsmanna.

Fangelsaður fyrir að klípa í rass flugþjóns á leið til Íslands
Breskur togarasjómaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi í Bretlandi fyrir að hafa kynferðislega áreitt flugþjón í flugi Easy-Jet til Íslands í október á síðasta ári.

Forsætisráðherrann fékk ekki að hitta móður sína fyrir andlátið
Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, segir að hann hafi ekki fengið að hitta 96 ára gamla móður sína síðustu vikurnar sem hún lifði vegna heimsóknatakmarkana sem eru í gildi á hjúkrunarheimilum vegna kórónuveirufaraldursins.

Manntjónið á Bretlandi nálgast verstu spár stjórnvalda
Tala látinna í kórónuveirufaraldrinum í Bretlandi er nú komin yfir 47.000 og nálgast svartsýnustu spár stjórnvalda. Aðstoðarráðherra í málefnum Skotlands sagði af sér í dag vegna viðbragða ríkisstjórnarinnar við uppljóstrunum um að nánasti ráðgjafi Boris Johnson forsætisráðherra hefði brotið gegn fyrirmælum yfirvalda um að fólk héldi sig heima.

Ráðgjafi Johnsons segist ekki sjá eftir neinu
Dominic Cummings, helsti ráðgjafi forsætisráðherra Bretlands sagði í dag að um fjögur hundruð kílómetra langt ferðalag sitt, sem sagt er í trássi við kórónuveirutakmarkanir, hafi verið hugsað til þess að vernda fjölskyldu sína.

Punkturinn settur aftan við tímabilið hjá konunum
Tímabilinu 2019-20 í tveimur efstu deildum kvenna í fótbolta á Englandi hefur verið slaufað vegna kórónuveirufaraldursins.

Veiran á svo hröðu undanhaldi að hún setur framtíð Oxford-bóluefnis í uppnám
Bóluefnissérfræðingur og yfirmaður Jenner-stofnunarinnar við hinn breska Oxford-háskóla segir aðeins helmingslíkur á því að bóluefni sem stofnunin þróar nú við nýju kórónuveirunni virki sem skyldi.

Hörð viðbrögð við ræðu Johnson: „Það er verið að hafa okkur að fíflum“
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, kom ráðgjafa sínum Dominic Cummings til varnar á daglegum upplýsingafundi ríkisstjórnarinnar vegna faraldurs kórónuveirunnar.

Segja Cummings hafa farið oftar frá Lundúnum
Breski stjórnmálaráðgjafinn Dominic Cummings, sem gegnt hefur stöðu ráðgjafa Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands í tæplega eitt ár, stendur nú frammi fyrir nýjum ásökunum um að hafa virt ferðabann stjórnvalda vegna faraldursins að vettugi.

Ætla sér að prófa nýtt bóluefni gegn kórónuveirunni
Rannsakendur við Oxford-háskóla á Bretlandi ætla sér að prufa nýtt bóluefni gegn kórónuveirunni á tíu þúsund manns til þess að komast að því hvort efnið virki. Nú þegar hafa þúsund sjálfboðaliðar fengið sprautu.

Tveir til viðbótar úr ensku úrvalsdeildinni með veiruna
Tvö sýni reyndust jákvæð fyrir kórónuveirunni úr seinni skimun sem gerð var meðal leikmanna og annarra starfsmanna enskra úrvalsdeildarliða í vikunni. Í fyrri skimuninni reyndust sex jákvæð sýni og eru því minnst átta aðilar innan deildarinnar með veiruna.

„Ég sætti mig ekki við eina reglu fyrir þessa trúða og aðra fyrir okkur hin“
Breski fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan er verulega ósáttur við fréttir af ferðalögum helsta ráðgjafa forsætisráðherra Bretlands á meðan útgöngubanni stóð.

Cummings segir ekkert athugavert við ferðalög sín á meðan ferðabann var í gildi
Helsti ráðgjafi forsætisráðherra Bretlands sem gagnrýndur hefur verið fyrir að hafa ferðast um langa vegu til þess að einangra sig eftir að hafa fundið fyrir einkennum kórónuveirunnar, segir hegðun sína ekki hafa verið óeðlilega og hann hafi farið að lögum.

Þingmanni vikið úr flokknum eftir handtöku
Breskur þingmaður úr röðum velska stjórnmálaflokksins Plaid Cymru hefur verið handtekinn vegna gruns um líkamsárás

Kalla eftir afsögn ráðgjafa Johnson eftir brot á sóttvarnareglum
Kallað hefur verið eftir afsögn Dominic Cummings, helsta ráðgjafa forsætisráðherra Bretlands, eftir að Cummings ferðaðist frá Lundúnum til Durham eftir að hafa verið gert að einangra sjálfan sig eftir að hafa fundið fyrir einkennum kórónuveirusmits.

Stungin til bana fyrir framan dóttur sína
Þrjátíu og tveggja ára gömul bresk kona, Melissa Belshaw, var stungin til bana í gær fyrir framan þrettán ára dóttur sína. Belshaw mæðgurnar höfðu verið á gangi um Upholland Road í nágrenni bæjarins Wigan þegar maður, sem fórnarlambið þekkti til, réðst á þær.

EasyJet hefur sig til flugs á ný
Breska lággjaldaflugfélagið EasyJet mun hefja farþegaflug á nýjan leik þann 15. júní næstkomandi.

„Þjóðargersemin“ Kafteinn Moore verður aðlaður
Hinn 100 ára gamli Tom Moore, sem barðist í seinni heimsstyrjöldinni sem kafteinn í breska hernum og safnaði tæpum sex milljörðum króna til styrktar Heilbrigðisstofnunar Bretlands (NHS) í apríl mánuði, verður aðlaður af Elísabetu II Bretadrottningu og fær því heiðursriddaranafnbót.

Komust yfir persónuupplýsingar níu milljón viðskiptavina EasyJet
Breska flugfélagið EasyJet hefur beðist afsökunar eftir að óprúttnir aðilar komust yfir persónuupplýsingar níu milljóna viðskiptavina í „háþróaðri“ tölvuárás.

Björgólfur Thor metinn á 275 milljarða króna
Björgólfur Thor Björgólfsson er á meðal hundrað ríkustu manna Bretlands samkvæmt nýjum lista The Sunday Times.

Skilur að fólk sé pirrað á flóknum reglum
Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands segir skiljanlegt að fólk sé pirrað á nýjum reglum yfirvalda þar í landi, en ríkisstjórnin hefur verið gagnrýnd fyrir flókna reglusetningu í kórónuveirufaraldrinum.

Sjóðir Ratcliffe og annarra auðkýfinga rýrna
Samanlagður auður þúsund ríkustu einstaklinga Bretlands hefur minnkað, í fyrsta sinn í tíu ár. Ástæðan er faraldur kórónuveirunnar sem valdið getur sjúkdómnum Covid-19. Einn þeirra sem tapað hefur vegna faraldursins er Jim Ratcliffe, landeigandi á Íslandi.

Ákærð fyrir morð eftir að líkamsleifar fundust í ferðatöskum
Bresk kona hefur verið ákærð fyrir morð eftir að líkamsleifar konu fundust í tveimur ferðatöskum í Forest of Dean á suðvestur Englandi.

Kane styður hetjurnar í fremstu víglínu gegn faraldrinum og sitt gamla félag
Harry Kane, landsliðsfyrirliði Englands í fótbolta, er mikið gæðablóð ef mið er tekið af ákvörðun hans um að sýna heilbrigðisstarfsfólki stuðning og styrkja um leið sitt gamla félag Leyton Orient.

„Þetta er pólitísk yfirlýsing og meira en það“
Ísland og Bretland hafa gert með sér samkomulag um samstarf ríkjanna til næstu 10 ára. Skrefið markar þáttaskil í samskiptum ríkjanna að sögn utanríkisráðherra.

Slaka á takmörkunum þrátt fyrir að ná ekki eigin skilyrðum
Verið er að slaka á takmörkunum á viðskiptalífinu og ferðarfrelsi víða um Evrópu. Mörg Evrópuríki hafa þó ekki náð eigin skilyrðum fyrir tilslökunum en yfirvöld þeirra halda samt ótrauð áfram.

Lést vegna Covid-19 eftir hráka frá ókunnugum manni
Lögreglan í Bretlandi rannsakar nú dauðsfall starfsmanns sem vann í Victoria-lestarstöðinni í London. Hún lést í upphafi apríl vegna Covid-19, skömmu áður hafði maður sem sagðist vera sýktur af veirunni hrækt á hana og annan starfsmann.

Fleiri deyja á dvalarheimilum en sjúkrahúsum á Bretlandi
Rúmlega 40 þúsund manns hafa nú dáið vegna Covid-19 á Bretlandi. Það er hæsta talan í Evrópu og eingöngu hafa fleiri dáið í Bandaríkjunum, eða minnst 80.684.

Mörg ríki ekki undirbúin fyrir tilslakanir á félagsforðun
Víða um heim er verið að draga úr takmörkunum á ferðafrelsi og félagsforðun. Það er þó óljóst hve mörg ríki eru í raun undirbúin og sérfræðingar vara við því að mörg ríki séu það ekki.

Áttatíu ár liðin frá hernámi Íslands
Áttatíu ár eru liðin frá hernámi Breta á Íslandi. Áhugamaður um umsvif erlendra herja segir hernámið hafa gjörbylt landinu og lagt grunninn að nútímavæðingu landsins.