Stjórnsýsla

Fréttamynd

Tugum borgar­starfs­manna sagt upp

Boðað var til aukafundar í borgarráði Reykjavíkur í morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu snerist fundurinn um uppsagnir og skipulagsbreytingar hjá að minnsta kosti tveimur sérsviðum innan borgarkerfisins en enginn þeirra borgarfulltrúa sem fréttastofa náði tali af í morgun vildi tjá sig um málið.

Innlent
Fréttamynd

Lítur um­mæli Ólafs Ragnars al­var­legum augum

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segist líta ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta, „alvarlegum augum“ þegar hann sagði utanríkisráðuneytið orðið að „áróðursvél“. Kveðst hún vonast til að forystufólk landsins, líka fyrri tíðar, nálgist umræðuna af auðmýkt.

Innlent
Fréttamynd

Skipunar­tíminn lengdur án aug­lýsingar

Ólöf Ásta Farestveit verður áfram forstjóri Barna- og fjölskyldustofu (BOFS) næstu fimm árin. Skipunartími hefði átt að renna út 1. janúar næstkomandi en verður framlengdur um fimm ár frá þeim tíma. 

Innlent
Fréttamynd

Tíu af tuttugu efstu em­bættis­mönnunum hjá orku­fyrir­tæki

Tryggvi Þór Haraldsson, fyrrverandi forstjóri Rarik til tveggja áratuga, trónir á toppi listans yfir launahæstu embættismenn, forstjóra og starfsmenn hins opinbera samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Samkvæmt blaðinu var hann með um 5,8 milljónir í laun á mánuði í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

„Biðin er dýrust“

Dæmi eru um að veitingamenn þurfi að bíða í heilt ár eftir því að geta hafið rekstur vegna deilna við borgina. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) kallar eftir skýrum og hröðum samskiptum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fjölmiðla­nefnd eltist við Ólöfu og Kristínu

Þrátt fyrir að Vísir hafi sagt af fyrirætlunum ráðuneytis Loga Einarssonar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sem ganga út á að skera hlaðvarpara úr snöru fjölmiðlanefndar, er sem nefndin vilji ekki sleppa takinu á þeim stöllum í Komið gott – Ólöfu Skaftadóttur og Kristínu Gunnarsdóttur sem svara fyrir sig.

Innlent
Fréttamynd

Komin hand­bók um hvernig stefna megi ríkjum og Ís­land geti verið næst

Sérfræðingur í loftlagsrétti segir ráðgefandi álit Alþjóðadómstólsins um skyldur ríkja vegna loftslagsbreytinga marka tímamót og skipta miklu máli fyrir Ísland. Álitið kalli á breytta lagalega sýn og niðurstaðan geti haft þýðingu fyrir loftlagsmarkmið Íslands, endursendingar hælisleitenda og hugsanlega olíuleit á Drekasvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Af hverju tala þau svona?

Þetta er fyrri grein af tveimur um samskipti, orðræðu og framkomu í samfélaginu. Hér er fjallað almennt um hvernig framkoma fólks í áhrifastöðu hefur áhrif á trúverðugleika, traust og sameiginlega dómgreind - sem eru meðal mikilvægustu forsenda þess að samfélag geti tekið upplýstar ákvarðanir.

Skoðun
Fréttamynd

Með vinnuna í vasanum?

Hjá mörgum starfsstéttum s.s. í stjórnsýslunni hafa mörkin milli vinnu og einkalífs sjúskast mikið. Snjallsímar og samskiptaforrit gera það að verkum að margt starfsfólk er í raun alltaf innan seilingar, jafnvel þegar vinnudegi lýkur.

Skoðun
Fréttamynd

Flýtir af­greiðslu um allt að mánuð

Kröfunni um auglýsingu starfsleyfis og fjögurra vikna umsagnatíma áður en leyfi er veitt eða því breytt hefur verið létt af öllum flokkum atvinnustarfsemi sem heilbrigðisnefnd gefur út starfsleyfi fyrir. Þannig hefur afgreiðslu starfsleyfa verið flýtt um allt að fjórar vikur.

Innlent
Fréttamynd

„Þessi kona er ekkert skyni skroppin“

For­stjóri Hvals hf. sakar for­stjóra MAST um að hafa reynt að koma höggi á fyrir­tækið og starfs­menn þess með því að deila stað­setningu hval­veiði­skipa í eftir­lits­skýrslum. Hann segist ekki hafa tekið á um­deildu at­hæfi starfs­manns sem lék sér að limi hvalskrokks og bendir hvala­skoðunarfólki á að horfa í hina áttina þegar þeir nálgast skip við veiðar.

Innlent
Fréttamynd

Boðar frekari niður­skurð

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri boðar frekari niðurskurð í borginni til viðbótar við hópuppsagnir sem greint var frá í dag. Hún segist ekki fara í uppsagnir af léttúð en sviðsstjórar borgarinnar eigi nú að fara yfir rekstur sinna sviða.

Innlent
Fréttamynd

„Erfiður dagur í ráð­húsinu í dag“

Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur gagnrýna nýkynntan niðurskurð í borgarkerfinu. Oddviti Samfylkingarinnar segir miður að mannréttindaskrifstofa hafi verið lögð niður og oddviti Vinstrisins segir að hagræðingaraðgerðirnar hafi verið keyrðar í gegn í flýti.

Innlent
Fréttamynd

Vex Ís­land í eina átt?

Ein helsta skýringin á vexti höfuðborgarsvæðisins er sú að þar hefur stærstur hluti ríkisvalds, stjórnsýslu og opinberrar þjónustu safnast saman. Alþingi, ráðuneytin, stærstu ríkisstofnanirnar og meirihluti opinberra starfa eru staðsett á höfuðborgarsvæðinu.

Skoðun
Fréttamynd

Flækt í kaf­kaískt stjórnsýslu­legt hel­víti

Dagný Bjarnadóttir fær misvísandi svör frá mismunandi stjórnsýslueiningum en hún hefur tekið að sér að vinna í málum tengdasonar síns sem upphaflega var sektaður fyrir að vera ekki með íslenskt ökuskírteini. Sú sekt var felld niður en gekk aftur þegar tengdasonurinn, sem er frá Venesúela, var sektaður öðru sinni. Hún stendur frammi fyrir miklum kostnaði. Lögmaðurinn segir um gat að ræða í kerfinu.

Innlent