Landspítalinn

Fréttamynd

Braut kyn­ferðis­lega á stúlku sem lá með skerta með­vitund á bráðamóttökunni

Karlmaður hlaut á dögunum skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir að áreita kynferðislega stúlku sem lá með skerta meðvitund í sjúkrarúmi á gangi bráðamóttökunnar Landspítalans í Fossvogi. Manninum var gefið að sök að kyssa stúlkuna á munninn og svo stinga fingrum sínum í munn hennar. Með því þótti hann sýna af sér ruddalegt og ósiðlegt athæfi.

Innlent
Fréttamynd

Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til

Nýfallinn dómur í máli ekkju Andemariam Beyene gegn íslenska ríkinu vekur upp ýmsar spurningar um ábyrgð lækna þegar kemur að umönnun og meðferð sjúklinga þeirra. Dómurinn virðist ganga harðar fram í því að gera Tómas Guðbjartsson lækni ábyrgan fyrir örlögum Andemariam en gert var í rannsóknarskýrslu Háskóla Íslands og Landspítala. Á sama tíma er hins vegar nokkuð langt seilst í því að ætla lækninum að setja persónulegan metnað sinn framar hagsmunum skjólstæðings síns.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“

Fimm vinkonur í tíunda bekk í Kársnesskóla afhentu börnum á Barnaspítala hringsins glaðning í morgun. Tilefnið er lokaverkefni stelpnanna úr skólanum en þær misstu bestu vinkonu sína úr krabbameini fyrir fjórum árum og vildu heiðra minningu hennar.

Lífið
Fréttamynd

Væri frá­bært ef Land­spítalinn vildi reka leik­skóla

Hildur Björnsdóttir, nýr borgarstjóri, vill vera borgarstjóri allra Reykvíkinga og að allir fái að blómstra í borginni. Hún setur samgöngu- og leikskólamál á oddinn og segir nauðsynlegt að minnka kvaðir á húsnæðisuppbyggingaraðila. Nýr meirihluti stefni á meira frelsi þeirra. Rætt var við Hildi um verkefnalistann og markmið hennar í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Hættu­legt að lána lyf

Leggja þarf að meðaltali einn inn á gjörgæsludeild Landspítalans í hverri viku vegna afleiðinga eða notkunar á morfínskyldum verkjalyfjum. Yfirlæknir segir Íslendinga eiga Norðurlandamet í ávísunum slíkra lyfja og hvetur fólk til að taka ekki lyf sem öðrum var ávísað.

Innlent
Fréttamynd

Tómas tjáir sig um dóminn

Tómas Guðbjartsson læknir segir dóm héraðsdóms í máli ekkju manns sem fékk ígræddan plastbarka árið 2011 innihalda alvarlegar rangfærslur um atvik málsins og ærumeiðandi fullyrðingar um persónu sína, meintar hvatir og meintan ásetning. Hann gagnrýnir að hann hafi ekki fengið að bera vitni fyrir dómi. 

Innlent
Fréttamynd

Á sýkla­lyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“

Hjúkrunarfræðingur sem smitaðist af berklum á bráðamóttökunni í desember á síðasta ári segir ekkert hafa breyst á þeim 120 dögum sem hann var á sýklalyfjum vegna sjúkdómsins. Hann segir stjórnvöld þurfa að grípa um taumana, það sé þreytandi að mæta á vakt eftir vakt og ekki geta sinnt sjúklingum eins og best er á kosið.

Innlent
Fréttamynd

Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig

Formaður Læknafélags Íslands gerir athugasemd við að Tómas Guðbjartsson hafi ekki fengið að verja sig fyrir dómi. Niðurstaða héraðsdóms sé að miklu leyti á skjön við rannsóknarskýrslu sem unnin var.

Innlent
Fréttamynd

Nýtti sér dauð­vona mann i aug­lýsinga­skyni

Tómas Guðbjartsson skurðlæknir sýndi stórfellt gáleysi sem leiddi til tjóns og andláts Andemariams Teklesenbet Beyene. Hann braut lög og reglur um sjúkraskrár og fór gegn læknalögum og fór vísvitandi framhjá yfirmönnum sínum í aðdraganda aðgerðarinnar sem dró Andemariam til dauða. Þá mun Tómas hafa nýtt sér dauðvona mann i viðkvæmri stöðu í auglýsingaskyni og sem tæki til að efla akademískan frama og eigin hagsmuni.

Innlent
Fréttamynd

Land­læknir braut á deildar­stjóra réttargeðdeildar

Landsréttur hefur dæmt íslenska ríkið til þess að greiða fyrrverandi deildarstjóra réttar- og öryggisdeildar Landspítalans 800 þúsund krónur í miskabætur vegna brots á persónuverndarlögum. Landlæknir greindi Geðhjálp frá því að deildarstjórinn hefði verið settur í ótímabundið leyfi í tengslum við alvarlegar ábendingar um slæman aðbúnað á öryggis- og réttargeðdeildum Landspítalans.

Innlent
Fréttamynd

Sakar fram­kvæmda­stjóra Land­spítala um ó­sannindi

Ragnar Freyr Ingvarsson læknir sakar framkvæmdastjóra á Landspítala um ósannindi og ítrekar að uppsögn hans verði úrlausnarefni dómstóla. Hlutastarf Ragnars, sem er einnig þekktur sem Læknirinn í eldhúsinu, var lagt niður með vísan til rekstrarhagræðingar.

Innlent
Fréttamynd

Sögu­frægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru

Íbúar í Garðabæ hafa margir hverjir lýst yfir áhyggjum af niðurníðslu húsa á Vífilsstöðum, sem að margra mati voru virðuleg hér áður fyrr. Börn og ungmenni hafa gert það að vana sínum að brjótast inn í húsin en Garðabær og talsmenn Landspítalans segjast kappkosta að tryggja öryggi á svæðinu. Áform eru um að gera húsin upp í sinni upprunalegu mynd í samráði við Minjastofnun.

Innlent
Fréttamynd

Fram­koman laði ekki lækna að Land­spítalanum

Stjórn Félags sjúkrahúslækna lýsir yfir þungum áhyggjum af uppsögnum sérfræðilækna á Landspítalanum í hagræðingarskyni. Ljóst sé að þörf er á læknum en framkoma líkt og í máli Ragnars Freys Ingvarssonar læknis laði ekki sérfræðinga að Landspítalanum.

Innlent
Fréttamynd

Fékk upp­sagnar­bréf og hótar mál­sókn

Ragnar Freyr Ingvarsson læknir hefur fengið formlegt uppsagnarbréf afhent af Rafni Benediktssyni, framkvæmdastjóra bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans. Hann segir skýringar Rafns á uppsögninni ekki halda neinu vatni og að hann muni láta reyna á lögmæti uppsagnarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Ragnari Frey býðst hærra starfs­hlut­fall á Land­spítalanum

Framkvæmdastjóri á Landspítalanum segir að rík aðhaldskrafa stjórnvalda á spítalann hafi valdið því að fækka þurfi stöðugildum. Ákveðið hafi verið að segja frekar upp fólki sem er með minni stöðugildi og því hafi staða Ragnars Freys Ingvarssonar læknis verið lögð niður. Ragnari verði hins vegar boðið hærra starfshlutfall. Ragnar Freyr er undrandi á uppsögninni.

Innlent
Fréttamynd

Kollegar furðu lostnir og gagn­rýna upp­sögn Ragnars

Uppsögn Ragnars Freys Ingvarssonar læknis á Landspítalanum hefur vakið mikla athygli og harða gagnrýni á samfélagsmiðlum. Meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið eru Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, og Oddur Steinarsson heimilislæknir og fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðsins.

Innlent
Fréttamynd

Ragnari Frey sagt upp störfum á Land­spítala

Ragnari Frey Ingvarssyni lækni hefur verið sagt upp störfum á Landspítala. Hann starfaði í um áratug sem sérfræðingur í almennum lyflækningum á sjúkrahúsinu í Fossvogi. Ragnar er einn af þekktari læknum landsins og hefur gefið út bækur og sjónvarpsþætti undir heitinu Læknirinn í eldhúsinu.

Innlent
Fréttamynd

Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Land­spítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað?

Staðan í heilbrigðiskerfinu hefur sjaldan verið jafn slæm, eins og komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarnar vikur. Yfirfullur spítali. Aldraðir sem sitja fastir á spítalanum ófærir um að fara heim en hvergi til samastaður við hæfi. Svo virðist sem kerfið hafi verið þróað áfram á slökkvistarfinu einu og sér. Nú er vatnið í slökkvitækinu að klárast og enn ekki komin heildar mynd á það hvernig við ætlum að ráða við vaxandi áskoranir.

Skoðun
Fréttamynd

Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid

Samkvæmt eftirgrennslan Vísis var byrjað að gefa starfsfólki Landspítalans páskaegg í Covid sem var fyrir um sex árum. Hér er því varla hægt að tala um hefð en ákvörðun stjórnenda að hætta með páskaeggjagjafir lagðist hins vegar afar þungt í margan starfsmanninn.

Innlent
Fréttamynd

Ætla að fara fram á frá­vísun málsins

Héraðssaksóknari hefur ákveðið að ákæra Skúla Tómas Gunnlaugsson lækni fyrir manndráp af ásetningi vegna andláts 73 ára konu sem var í hans umsjá á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja árið 2019. Verjandi hans ætlar að fara fram á frávísun í málinu. Uppkomin börn konunnar sem er ákært vegna gagnrýna harðlega að Skúli Tómas hafi starfað við Landspítalann meðan mál hans var til rannsóknar.

Innlent
Fréttamynd

Engin egg í Skaftahlíðina

„Við sendum Helga Vilhjálmssyni og hans góða starfsfólki bestu kveðjur og þakkir fyrir þessa rausnarlegu gjöf.“ Svo segir í pósti til allra starfsmanna Landspítalans sem Vísir hefur undir höndum.

Innlent