
Dýr

Leita hákarls eftir banvæna árás
Karlmaður lést eftir að hákarl réðst á hann undan Calbe-strönd í vesturhluta Ástralíu. Þetta er áttunda banvæna hákarlaárásin í landinu á þessu ári.

Hvolpar ekki bara til að létta lund í samkomubanni
Mikil eftirspurn er eftir hvolpum þessa dagana. Hundaræktandi segist velja fjölskyldurnar vel enda sé hundaeign langtíma skuldbinding og gífurleg vinna.

Arftaki Joe Exotic kærður fyrir dýraníð
Jeff Lowe sem kom fram í þáttunum vinsælu Tiger King hefur verið kærður fyrir dýraníð. Þetta kemur fram í frétt BBC.

Gæi hetja þegar bjart bál blasti við hjónum í Kópavogi
Hjónum í Fagrahjalla í Kópavogi var verulega brugðið um þrjúleytið í nótt þegar þau áttuðu sig á því að bjart bál var á lóð þeirra.

Freista þess að vernda síðasta hvíta gíraffann
Dýraverndunarsamtök hafa sett staðsetningarbúnað á síðasta hvíta gíraffann í heiminum en markmiðið er að vernda dýrið fyrir veiðiþjófum. Veiðiverðir munu fylgjast með ferðum gíraffans í rauntíma.

Átta milljónir minka á skilgreindum áhættusvæðum þegar verið aflífaðir
Stökkbreytt afbrigði kórónuveiru kom upp á minkabúum á Jótlandi fyrr í þessum mánuði og ákváðu dönsk stjórnvöld að allir minkar í Danmörku, um sautján milljónir talsins, skyldu aflífaðir.

Stærðarinnar krókódíll á vappi á golfvelli
Myndband sem náðist af stærðarinnar krókódíl á göngu á golfvelli í Flórída í vikunni hefur vakið mikla athygli vestanhafs.

Uppáhalds hundur einræðisherrans fær gyllta styttu
Gurbanguly Berdymukhamedov, hinn umdeildi einræðisherra Túrkmenistans, opinberaði í gær stærðarinnar gyllta styttu af uppáhalds hundategund sinni.

Fálki hámaði í sig hettumáv á palli í Fossvogi
Þórdís Bragadóttir, íbúi í Fossvogi, vissi ekki alveg hvaðan á sig stóð veðrið í gær þegar fálki birtist á pallinum heima hjá henni og fór að háma í sig ungan hettumáv sem þar lá dauður.

Danskir minkabændur ósáttir
Danmerkurstjórn fékk upplýsingar um að hún mætti ekki fyrirskipa að allir minkar í landinu yrðu drepnir meira en viku áður en Mette Frederiksen forsætisráðherra tilkynnti um fyrirskipun þess efnis.

Ljónum í Keníu fjölgar á ný
Svo virðist sem ljónastofninn í Keníu sé að stækka eftir að hafa lengi verið í viðkvæmri stöðu. Sérfræðingar höfðu spáð útrýmingu dýranna fyrir árið 2050 en einungis tvö þúsund ljón eru eftir í landinu.

Síbrotafugl handsamaður af lögreglunni
Tólf ára gamall örn, eða síbrotafugl eins og lögreglan á Vestfjörðum kallar hann, var í dag handsamaður eftir að hafa komið sér í ógöngur.

Elliði bjargar Kamölu Harris
„Til vonar og vara bleytti ég brauð í Pönk bjór og gaf henni. Veit ekki hvort það hjálpar henni en hef tekið eftir því að vinur minn jafnar sig alltaf best á viðbeinsbrotum ef hann fær pönkbjór sem fyrst,“ segir Elliði.

„Óábyrgt að gera lítið úr sóttvarnaráðstöfunum vegna eiginhagsmuna“
Formaður Dýraverndarsambands Íslands segist vona að lærdómurinn sem við drögum úr tilfellum stökkbreyttrar kórónuveiru í minkum sem komið hafa upp í Danmörku verði að hætt veðri að halda minka í kjölfarið.

Fuglaflensa greinst um alla Evrópu
Yfirvöld í Hollandi keppast við að halda fulgaflensu sem greinst hefur á tveimur fuglabúum í skefjum. Sama veiran, H5N8, hefur greinst bæði í hænum og villtum fuglum í norðurhluta Þýskalands.

Ætla að skima fyrir veirunni í minkabúum landsins
Matvælastofnun ætlar að hefja skimun fyrir kórónuveirunni á minkabúum landsins í ljósi smita af stökkbreyttu afbrigði veirunnar úr minkum í fólk í Danmörku.

Segir viðbrögð danskra stjórnvalda vegna minkanna yfirdrifin
Formaður Sambands íslenskra loðdýrabænda segir engin kórónuveirusmit hafa komið upp á íslenskum minkabúum, hvorki í dýrunum né fólki sem búunum tengjast.

Páfagaukurinn Kókó er sannfærður um að hann sé hundur
Páfagaukurinn Kókó er sannfærður um að hann sé hundur. Fuglinn leggur sig með hundunum á heimilinu, drekkur vatn úr hundaskálinni og nartar í hundamat.

Allir minkar í Danmörku aflífaðir vegna stökkbreytts afbrigðis kórónuveiru
Allir minkar í Danmörku, hátt í sautján milljónir talsins, skulu aflífaðir eins fljótt og hægt er vegna stökkbreytingar kórónuveiru, sem greinst hefur í minkum og borist í mannfólk.

Hákarlar við Ísland lifa lengst allra hryggdýra
Hákarlar við Ísland virðast verða elstir allra hryggdýra á jörðinni, 200-300 ára gamlir. Og það sem meira er: Rannsókn á heila eins þeirra sýndi engin merki öldrunar þótt sá væri orðinn 245 ára gamall.

Ætlaði að æða inn í reykjarmökkinn þegar hún heyrði örvæntingarveinin í hundunum
Erna Christiansen, ung kona sem missti sex hunda og aleiguna í eldsvoða í Kópavogi í fyrradag, lýsir hræðilegri geðshræringu og sorg vegna brunans.

Ekki rannsakað með fullnægjandi hætti hvort sleðahundahald teljist til landbúnaðar
Umboðsmaður Alþingis bendir á í úrskurði sínumað hugtakið búfé sé ekki skilgreint í þeim heimildum sem helst reyni á. Merking hugtaksins sé matskennd.

Vængbrotinn svanur handsamaður af lögreglu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handsamaði í dag svan, líkt og það er orðað í dagbókarfærslu lögreglunnar. Svanurinn reyndist vængbrotinn eftir að ekið hafði verið á hann.

Gæti tekið tíu til tólf vikur að farga sauðfénu sem þarf að skera niður
Umhverfisstofnun hefur lagt það til við Matvælastofnun að hún óski eftir nánari framkvæmdaáætlun frá Kölku Sorpeyðingarstöð um brennslu þess sauðfés sem skera þarf niður í Skagafirði vegna riðusmits sem þar er komið upp

Ofurkýrin Staka með 14 þúsund lítra af mjólk
Kýrin Staka í fjósinu í Gunnbjarnarholti í Skeiða og Gnúpverjahreppi er einstakur gripur, sem mjólkar mest allra kúa á Suðurlandi eða um 14 þúsund lítra á síðustu tólf mánuðum.

Hefja söfnun fyrir konuna sem missti hunda sína sex í eldsvoða
Skipuleggjendur söfnunarinnar segja tjón konunnar mikið, bæði tilfinninga- og efnislegt.

Hundarnir sem björguðust úr brunanum braggast vel
Hundarnir sem björguðust úr bruna í íbúðarhúsi við Arakór í Kópavogi í gær braggast vel, að því er fram kemur í færslu slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á Facebook í dag.

Talið að eldurinn hafi kviknað út frá lampa
Talið er að eldur sem kviknaði í íbúðarhúsi við Arakór í Kópavogi síðdegis í gær hafi kviknað út frá lampa.

Reiða skjaldbakan Terry á fyndnustu dýralífsmynd ársins
Fyndnasta dýralífsmynd ársins er af dónalegri skjaldböku sem kallast Terry. Myndin var tekin undan ströndum Lady Ellioteyju í Ástralíu og virðist Terry verulega ósáttur við að mynd hafi verið tekin af honum.

Hani banaði lögreglumanni á Filippseyjum
Lögreglumaður á Filippseyjum er látinn eftir að hani, sem þjálfaður hafði verið upp til að stunda hanaat, réðst á hann við húsleit lögreglu á ólöglegum hanaatsstað í héraðinu Norður-Samar.