Jól

Herra Baktus með stórleik í jólamyndbandi Póstsins

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Herra Baktus með starfsmannaskírteinið sitt, merkt Njáll, í auglýsingatökum fyrir jólin.
Herra Baktus með starfsmannaskírteinið sitt, merkt Njáll, í auglýsingatökum fyrir jólin. Instagram

Einn frægasti köttur landsins, hinn eini sanni Hr. Baktus, landaði nýverið hlutverki spjallkisans Njáls í jólamyndbandi Póstsins.

Hr. Baktus, sem hefur búsetu í miðbæ Reykjavíkur, er svo sannarlega vanur sviðsljósinu en foreldrar hans halda úti vinsælum Instagram reikningi þar sem yfir 11 þúsund manns fylgjast með lífi miðbæjarkattarins. Hr. Baktus á fjölmarga aðdáendur um allan heim sem gera sér gjarnan sérstaka ferð í miðbæ Reykjavíkur til þess að bera stjörnuna augum.

Hr. Baktus var ættleiddur af foreldrum sínum þegar hann var aðeins fjögurra vikna gamall. Hann starfar sem næturvörður í Gyllta kettinum í Austurstræti auk þess að vera leikari í hjáverkum. Hans helstu áhugamál fyrir utan myndatökur, eru að taka sér blund og láta klappa sér.

Áhugi Póstsins á köttum hefur verið þekktur um árabil en með tilkomu spjallkisans Njáls nýverið og nú þessu útspili er orðið nokkuð ljóst að Pósturinn hreinlega elskar ketti.

„Það var sannkallað vandaverk að finna góðan kött í hlutverkið fyrir myndbandið,“ segir Vilborg Ásta Árnadóttir, markaðssérfræðingur hjá Póstinum.

„Eftir að hafa hitt Hr. Baktus og rætt við umboðsmenn hans, sem eru foreldrar hans, vissum við að hann væri fullkominn í hlutverkið og nýjasta stjarna Póstsins hefði verið fundin. Það getur verið talsverð áskorun að vinna með dýrum en þar sem Baktus er vanur að vera í sviðsljósinu þá gekk þetta eins og í sögu og það var frábært að vinna með honum.“ 

Fylgjendahópur Hr. Baktusar fer ört vaxandi á Instagram og hér er hægt að horfa á Baktus í hlutverki Njáls.








×