

Gunnlaugur Bragi Björnsson var kjörinn formaður Hinsegin daga í Reykjavík til næstu tveggja ára á aðalfundi félagsins í gærkvöldi. Þá var ný stjórn kosin.
„Ég vil líka taka þetta moment og segja að það voru mistök á sínum tíma að taka að mér hlutverk Græna Bananans í Ávaxtakörfunni. Ég er bersýnilega ekki banani og það hefði átt að hleypa öðrum að borðinu þarna.“
Í þættinum Framkoma á Stöð 2 í gærkvöldi fékk Fannar Sveinsson að fylgjast með þremur Íslendingum áður en þeir stigu á svið.
„Þetta er ótrúlega skemmtilegt og alltaf smá óvænt,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Óskar Páll Sveinsson í samtali við Vísi.
Í gær átti var ég í viðtali hjá nemanda í Lögreglu- og löggæslufræði við Háskólann á Akureyri, sem er að vinna að rannsóknarskýrslu í áfanga sem heitir Fjölbreytileiki og löggæsla, um hinsegin fanga og aðbúnað þeirra í fangelsum.
Jólaauglýsing Norska póstsins hefur vakið mikla lukku. Auglýsingin segir frá ástarsambandi jólasveinsins og Harry, sem leikinn er af Johani Ehn.
Hin norska Kim Friele, ein ötulasta baráttukonan fyrir réttindum hinsegin fólks á Norðurlöndum, er látin, 86 ára að aldri.
Leikarinn Eddie Redmayne segist sjá eftir að hafa farið með hlutverk transkonu í bíómyndinni The Danish Girl. Í dag myndi hann ekki taka að sér hlutverkið.
Haldið er upp á minningardag trans fólks víða um heim í dag og þar er Ísland ekki undanskilið. Dagurinn er helgaður minningunni um trans fólk sem hefur verið myrt eða svipt sig lífi í gegnum tíðina.
Þættirnir Afbrigði í umsjón Ingileifar Friðriksdóttur hófu göngu sína á Stöð 2 á dögunum en þar er fjallað um fólk sem lifir óhefðbundnum lífsstíl og er óhætt að segja að um afar sérstaka og öðruvísi þætti sé að ræða.
Friðrik Ómar Hjörleifsson er einn vinsælasti söngvari landsins og hefur verið það heillengi. Friðrik er með skemmtilegri mönnum landsins og nánast alltaf í góðu skapi.
Stjórnvöld í Sviss tilkynntu í morgun að hjónabönd samkynhneigðra verði heimil í landinu frá 1. júlí á næsta ári.
Síðustu vikur og mánuði hefur borið á aukinni haturorðræðu og hótunum í garð hinsegin fólks hér á landi og hefur ótti um ákveðið bakslag kviknað innan hinsegin samfélagsins að undanförnu.
Þúsundir tóku þátt í Gleðigöngu í Buenos Aires höfuðborg Argentínu í gær en að þessu sinni fór gangan fram aðeins nokkrum vikum eftir að lög um kynhlutlaus skilríki tóku gildi í landinu.
Þann 2. nóvember síðastliðinn kom Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 og tjáði sig um stöðu ókyngreindra salerna innan bygginga háskólans.
Þættirnir Afbrigði í umsjón Ingileifar Friðriksdóttur hófu göngu sína á Stöð 2 á dögunum en þar er fjallað um fólk sem lifir óhefðbundnum lífsstíl og er óhætt að segja að um afar sérstaka og öðruvísi þætti sé að ræða.
Ókyngreind salerni má nú finna í um það bil þremur af hverjum fjórum byggingum Háskóla Íslands. Skólinn hefur verið gagnrýndur fyrir að bjóða ekki upp á slíkt alls staðar.
Ástralinn Josh Cavallo greindi opinberlega frá því að hann væri hommi. Hann er fyrsti atvinnufótboltamaðurinn sem kemur út úr skápnum svo vitað sé.
Ingileif Friðriksdóttir, fjölmiðlakona og einn stofnandi Hinseginleikans, segist fegin því hve mikil samstaða hafi skapast á samfélagsmiðlum gegn hatursorðræðu, sem beinst hafi að hinsegin fólki undanfarna daga. Hún segir sorglegt að sjá að fólk hafi enn svona skoðanir um hinsegin fólk.
Hinseginfólk og fatlað fólk hefur undanfarna daga fengið símtöl og skilaboð á samfélagsmiðlum frá óprúttnum aðilum sem hafa hótað þeim barsmíðum og lífláti. Upptökur af slíkum símtölum hafa farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla undanfarna daga en málið hefur verið kært til lögreglu.
Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, segir það ekki koma í veg fyrir að erfingi krúnunnar verði drottning eða konungur að viðkomandi hafi gengið í hjónaband með einstaklingi af sama kyni.
DC Comics myndasagnarisinn hefur tilkynnt að nýjasta útgáfan af persónu Súpermann verði tvíkynhneigð. Í næsta hefti myndasögunnar verður ofurhetjan ástsæla sýnd í ástarsambandi við karlmann.
Forsvarsmenn Netflix eru undir þrýstingi um að fjarlægja nýjustu sýningu grínistans Dave Chappelle af streymisveitunni vegna ummæla hans um trans-fólk. Í sýningunni, sem heitir The Closer, lýsir Chappelle yfir stuðningi við rithöfundinn JK Rowling, sem hefur einnig verið sökuð um transfóbíu, og sagði kyn vera staðreynd.
Kjósendur í Sviss greiða atkvæði um hvort leyfa eigi samkynhneigðum pörum að gifta sig og ættleiða börn á sunnudag. Skoðanakannanir benda til þess að stuðningsmenn þess hafi sigur en dregið hefur saman á milli fylkinga í harðri kosningabaráttu síðustu vikna.
Það eru ekki einungis forréttindi að fá að eldast, heldur líka forréttindi að fá að eldast í jafn framsæknu samfélagi og Íslandi. Margt vatn hefur runnið til sjávar síðan ég var barn og unglingur. Miklar framfarir hafa átt sér stað í réttindum kvenna, réttindum barna, réttindum hinsegins fólks og trans-fólks. Og ég hef verið svo heppinn að hafa verið hluti af þeirri vegferð þó það hafi ekki alltaf verið auðvelt.
Framhaldsskólarnir eru hættir að skrá kyn nemenda og geta þeir nú valið á milli átta persónufornafna í nemendakerfinu Innu. Að sögn konrektors Menntaskólans við Hamrahlíð er aðeins hægt að velja eitt fornafn eins og stendur en þessu verður breytt.
Metfjöldi umsagna hefur borist um frumvarp stjórnvalda á Nýja-Sjálandi sem bannar svokallaðar bælingarmeðferðir (e. conversion therapy) gegn samkynhneigð. Stuðningsmenn eru vongóðir um að meirihluti umsagnaraðila séu fylgjandi frumvarpinu.
Formaður Samtakanna 78 fagnar boðuðum breytingum á lögum um blóðgjafir, sem heimila karlmönnum sem stundað hafa kynlíf með öðrum karlmönnum að gefa blóð. Breytingin gangi nógu langt að mati samtakanna, sem telja núverandi lög úrelt og ómannúðleg.
Flokkur fólksins, Framsóknarflokkurinn og Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn fá 0 stig af 115 mögulegum í einkunnagjöf Samtakann '78 þegar kemur að áherslum stjórnmálaflokkanna í málefnum hinsegin fólks.
Óheimilt verður að mismuna blóðgjöfum á grundvelli ómálefnalegra sjónarmiða, svo sem kyns, kynhneigðar, uppruna eða stöðu að öðru leyti, nái breyting á reglugerð sem tekur á söfnun, meðferð og varðveislu blóðs fram að ganga.