Þáttinn má sjá í spilaranum hér að neðan:
Aðspurð hvort hún sæki mikinn innblástur í konur og kvenorku segir Rakel:
„Alveg klárlega. Það er mikið kvenna þema í þessu öllu saman. Mér finnst konur mjög áhugaverðar og kvenlíkaminn mjög fallegur. Ég held að það sem maður sé að reyna að ná fram í þessu séu tilfinning og augnablik, einhver tenging og nánd.
Þessar myndir eru mjög mikið ég að reyna að finna úr einhverjum tilfinningum og rosa mikið af einhverju stelpudrama,“
segir Rakel og hlær.
Þættirnir KÚNST með Dóru Júlíu rannsaka hinar ýmsu víddir listsköpunar, ólíka listmiðla og sköpunargleði hjá íslenskum samtíma listamönnum ásamt því að fá að skyggnast bak við tjöldin og heyra um persónulegt líf þeirra.