Fréttir
Heimferðin er ekki tryggð Bandaríski milljónamæringurinn Gregory Olsen varð í gær þriðji maðurinn sem kaupir sér far út í geiminn. Hann var um borð í rússnesku Soyuz-geimfari sem skotið var út í himingeiminn frá geimferðastöðinni í Baikonur í Kasakstan. Erlent 23.10.2005 15:01
Kosið í Dresden í dag Íbúar Dresden í Þýskalandi ganga loks að kjörborðinu í dag og er búist við að úrslitin þar geti ráðið miklu um hvort Angela Merkel, leiðtogi kristilegra demókrata, eða Gerhard Schröder, leiðtogi jafnaðarmanna, muni hreppa kanslarastólinn. Erlent 23.10.2005 15:01
Tuttugu ný störf í Súðavík <p>Um síðustu mánaðamót var átján sagt upp vinnu sinni í rækjuverksmiðjunni Frosta í Súðavík. "Við þetta skapaðist mikið óvissuástand í atvinnumálum hér í Súðavík. Innlent 23.10.2005 15:01
Annasöm nótt hjá Kópavogslögreglu Fjölmenni var á skemmtistöðum Kópavogs í nótt og hafði lögreglan í nógu að snúast. Dyravörður á einum þeirra gerði lögreglu viðvart um mann sem líklega væri með fíkniefni á sér. Sá var handtekinn og reyndist grunur dyravarðarins réttur. Innlent 23.10.2005 15:01
Vatnsmýrin skipulögð með SMS Upplýsinga- og hugmyndamiðstöð í Listasafni Reykjavíkur opnar í dag þar sem borgarbúum gefst kostur á að koma á framfæri sínum hugmyndum um framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar. Þeir sem eiga ekki heimangengt geta haft áhrif með því að senda gjaldfrjáls SMS eða myndskilaboð í símanúmerið 1855. Innlent 23.10.2005 15:01
Sólveig nýr forseti Alþingis Sólveig Pétursdóttir var kjörin forseti Alþingis við setningu þess í gær. Hún þakkaði þingmönnum það traust sem þeir sýndu henni með því að kjósa hana. Innlent 23.10.2005 15:01
Slæmt ástand leiksvæða Íbúar í Reykjavík sem fengu sig fullsadda af slæmu ástandi leiksvæða í Breiðholtinu tóku daginn snemma, brettu upp ermar og hófust handa. Innlent 23.10.2005 15:01
Vikuferð út í geim fyrir milljarð Bandarískur kaupsýslumaður er ásamt tveimur geimförum um borð í rússnesku Soyuz geimfari á leið til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar, en þeim var skotið á loft frá Kasakstan í morgun. Olsen er þriðji maðurinn sem fær að ferðast út í geim gegn greiðslu. Erlent 23.10.2005 15:01
Sprengjuárás á Balí Að minnsta kosti þrjátíu vestrænir ferðamenn létu lífið eða særðust þegar tvær sprengjur sprungu á tveimur kaffihúsum á Kúta-strönd á eynni Balí í Indónesíu í dag. Sjónvarpsstöð á Balí greindi frá því að þrjár sprengjur hefðu sprungið, en það hefur ekki verið staðfest. Erlent 23.10.2005 15:01
Hafnaði kröfum beggja aðila Hæstiréttur hefur sýknað Samskip af sjö milljóna króna skaðabótakröfu útgerðarkonu í Ólafsvík og útgerðarkonuna af þriggja milljóna kröfu Samskipa. Samskip fluttu hundrað tonn af frosnum sandsílum til landsins fyrir konuna árið 1999. Deilt var um hvort flytja ætti sílin alla leið til Ólafsvíkur eða aðeins til Reykjavíkur þar sem þau urðu innlyksa á gámasvæði Samskipa næstu þrjú árin. Innlent 23.10.2005 15:01
Fundu sundurbútað lík stúlku Lögreglumenn í Lundúnum hafa fundið lík fimmtán ára stúlku sem saknað hafði verið síðan á mánudag. Lík stúlkunnar fannst sundurbútað í Catford í suðurhluta Lundúna eftir að lögregla var kölluð á staðinn í kjölfar tilkynningar um að maður hefði skorið sjálfan sig. Hann og kona hans voru bæði handtekin og sæta nú yfirheyrslum um morðið á stúlkunni. Erlent 23.10.2005 15:00
Ráðist í jarðgöng undir Óshlíð Ríkisstórnin ákvað á fundi sínum í morgun að ráðast nú þegar í gerð jarðganga undir Óshlíð á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar, en Óshlíðarvegurinn er eina tenging Bolvíkinga við umheiminn landleiðina. Þar hefur grjóthrun færst í vöxt og hvað eftir annað legið við slysum. Ráðgert er að göngin verði 120 metra löng og leysi af hólmi hættulegasta kafla Óshlíðarvegar. Innlent 23.10.2005 15:01
Alvarlegt umferðarslys í Póllandi Að minnsta kosti ellefu eru látnir og tugir slasaðir eftir að skólabíll með hátt í 60 menntaskólanemum skall á vöruflutningabíl í austurhluta Póllands í dag. Reuters-fréttastofan hefur eftir slökkviliði á vettvangi að skólabíllinn hafi lent beint framan á vöruflutningabílnum, snúist á veginum og kjölfarið hafi kviknað í honum. Ungmenninn náðu mörg hver að forða sér úr rútunni en mörg þeirra brenndust illa. Erlent 23.10.2005 15:00
Pólskir pílagrímar dóu í slysi Að minnsta kosti þrettán pólskir unglingar létust í hörðum árekstri rútu og vöruflutningabíls í sunnanverðu Póllandi í gær. Erlent 23.10.2005 15:01
Komu í veg fyrir bruna í Skútuvogi Lögreglu- og slökkviliðsmönnum tókst með snaræði að koma í veg fyrir eldsvoða í lyftarageymslu við Skútuvog í nótt þar sem ofhitnun hafði orðið í rafgeymum. Með því að aftengja allt og kæla geymana var komið í veg fyrir að verr færi. Ekki er vitað hvers vegna geymarnir ofhitnuðu. Innlent 23.10.2005 15:00
25 manns sagt upp í Stykkishólmi Tuttugu og fimm manns hefur verið sagt upp störfum hjá rækjuvinnslu Sigurðar Ágústssonar ehf. í Stykkishólmi. Fyrirtækið mun hætta rækjuvinnslu sinni frá og með næstu áramótum. Ástæða lokunarinnar er, samkvæmt fréttatilkynningu, langvarandi óhagstæð ytri skilyrði í rækjuvinnslu. Innlent 23.10.2005 15:01
Komufarþegum fjölgaði um 7,7% Farþegum sem komu til landsins um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um tæp átta prósent á fyrstu átta mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Á þessu ári höfðu 534 þúsund farþegar lent á Keflavíkurflugvelli í byrjun september borið saman við 496 þúsund farþega á síðasta ári sem er 7,7 prósenta aukning. Innlent 23.10.2005 15:01
Rækjuveiðar- og vinnsla að hrynja Rækjuveiðar og vinnsla eru að hrynja hér á landi eins og greint var frá nýverið og í gær var öllum 25 starfsmönnum rækjuvinnslunnar Íshafs á Húsavík sagt upp frá og með morgundeginum. Einnig var tilkynnt í gær að fækkað yrði um helming, eða 30 manns, í rækjuvinnslu Strýtu á Akureyri og framvegis yrði unnið þar á einni vakt. Innlent 23.10.2005 15:00
SÞ óánægðar með Serba Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst yfir óánægju sinni með árangur Serba við að ná stríðsglæpamönnum en Ratko Mladic er þar efstur á lista. Mladic hefur verið á lista stríðsglæpadómstólsins í Haag síðan árið 1995 en talið er að hann hafi stjórnað aftökum þúsunda múslíma á stríðstímum. Erlent 23.10.2005 15:00
Jörð skelfur á Papúa Nýju-Gíneu Snarpur Jarðskjálfti skók Papúa Nýju-Gíneu í Suður-Kyrrahafi í gær. Ekki hefur fengið staðfest nákvæmlega hversu öflugur hann er en talið er að hann hafi verið á bilinu 6,1 til 6,8 á Richter. Engar fregnir hafa borist af manntjóni eða skemmdum á mannvirkjum en það gæti átt eftir að breytast þar sem skjálftinn var úti fyrir ströndum afskekktra héraða. Erlent 23.10.2005 15:00
Fleiri ætla í bótamál Heldur hefur fjölgað í hópi útgerðarfélaga sem hyggjast sækja bætur fyrir dómi vegna ólöglegs samráðs olíufélaganna. Einungis eitt félag hefur þó enn lýst þeirri fyrirætlan sinni opinberlega, en það er Guðmundur Runólfsson hf. á Grundarfirði. Innlent 23.10.2005 15:01
BÍ mótmælir aðgerð sýslumannsins Stjórn Blaðamannafélags Íslands mótmælir þeirri aðgerð sýslumannsins í Reykjavík að krefja blaðamenn á <em>Fréttablaðinu</em> um gögn sem sýslumaður telur þá hafa undir höndum. Eins og greint var frá fyrr í dag komu fulltrúar sýslumanns á ritstjórn Fréttablaðsins rétt fyrir hádegi með lögbannsúrskurð á frekari birtingu upplýsinga úr nafnlausum tölvupóstum. Innlent 23.10.2005 16:58
Morgublaðið brýtur eigin reglu Í ritstjórnargrein Morgunblaðsins í gær segir að það sé brot á lögum að birta tölvupóstssamskipti einstaklinga. Morgunblaðið hefur þó að minnsta kosti tvívegis birt einkapóst einstaklinga án þeirra samþykkis. Innlent 23.10.2005 15:01
Borunarkostnaður gæti hækkað mikið Kostnaður Landsvirkjunar af borun ganga fyrir Kárahnjúkavirkjun gæti hækkað um milljarða króna frá því sem samningur fyrirtækisins við Impregilo hljóðaði upp á.<em> Fréttablaðið</em> segir frá þessu í dag og segir vatn og misgengi í jarðlögum vera ástæðuna. Við þetta er því að bæta að einn boranna þriggja hefur ekki verið í notkun svo vikum skiptir. Það er vegna þess að verið er að snúa honum við eftir að hann gat ekki lokið sínum áfanga vegna aðstæðna. Þeim kafla verður lokið með eldri aðferðum. Innlent 23.10.2005 15:00
Sameiginlegt framboð í Garðabæ Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin í Garðabæ hafa ákveðið að bjóða fram sameiginlegan lista í bæjarstjórnarkosningunum næsta vor. Efnt verður til sameiginlegs opins prófkjörs um efstu sæti framboðslistans fyrir janúarlok og verður það bindandi fyrir þrjú efstu sæti listans. Innlent 23.10.2005 15:01
Harma umræðu um manneklu Trúnaðarmenn leikskólakennara í Reykjavík taka undir yfirlýsingu stjórnar Félags leikskólakennara og telja miður í hvaða farveg umræðan um manneklu í leikskólum hefur farið. Í ályktun fundar trúnaðarmanna segir að leikskólar hafi haldið deildum og faglegu starfi skólanna gangandi eins lengi og mögulegt sé áður en gripið hefur verið til þeirra örþrifaráða að loka deildum eða senda börn heim. Innlent 23.10.2005 15:01
Geta misst allt að 2 mánuði úr Hjartveik börn geta misst allt að tveimur mánuðum á ári úr skóla án þess að þeim sé bætt það upp. Margrét Ragnars, formaður Neistans, segir að það fari eftir skólum hvort börnin fái aukakennslu eða ekki. Innlent 23.10.2005 15:01
Sprengjuárás í Hillah Um 200 manns hafa fallið í hryðjuverkaárásum í Írak undanfarna daga. Ljóst þykir að uppreisnarmenn ætla að kynda undir ófriðarbálinu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrárdrög síðar í mánuðinum. Erlent 23.10.2005 15:01
Umferðarslys í Ártúnsbrekkunni Umferðarslys varð í Ártúnsbrekkunni fyrir skemmstu og umferð um brekkuna er því stífluð til vesturs að öðru leyti en því að ein akrein er opin. Því má búast við einhverjum töfum á umferð næstu mínúturnar eða jafnvel lengur og því ráðlagt fyrir ökumenn að velja aðra leið ef mögulegt er. Innlent 23.10.2005 15:01
Innflutningurinn hefur tvöfaldast Innflutningur á dýrum sem notuð eru við tilraunir hefur snaraukist á síðustu árum. Ólíkt því sem gerist í nágrannalöndunum hafa dýraverndunarsinnar ekki beint spjótum sínum að íslenskum tilraunastofum enda gilda mjög strangar reglur um meðferð dýranna. Innlent 23.10.2005 15:01