Fréttir

Fréttamynd

Færri ráðuneyti

Það kom fram á fréttamannafundi sem haldinn var í gær að þingflokkur Samfylkingarinnar vill fækka ráðuneytunum þrettán í níu. Flokkurinn vill að skilið verði milli heilbrigðis- og tryggingamála, og að stofnað verði sérstakt innanríkisráðuneyti. Önnur áherslumál þingflokksins eru aukið framboð á menntun fyrir fólk á vinnumarkaðnum, leiðrétting kjaraskerðingar lífeyrisþega og að afkomutryggingu verði komið á fyrir þá.

Innlent
Fréttamynd

Eldgos í El Salvador

Eldfjallið Ilamatepec sem er skammt frá borginni Santa Ana í vesturhluta El Salvador byrjaði að gjósa í nótt eftir að hafa legið í dvala í áratugi. Mikið hraun flæðir nú frá fjallinu og reykmökkur hefur náð rúmlega fimmtán kílómetra hæð.

Erlent
Fréttamynd

Mikill viðbúnaður

Mikill viðbúnaður er í höfuðborg Indónesíu, Djakarta, vegna sprengjutilræðanna á Kúta-ströndinni á Balí, í gær. Þrjátíu manns létu lífið í árásunum og um hundrað og tuttugu eru slasaðir, margir lífshættulega.

Erlent
Fréttamynd

Þýsku kosningunum lýkur í dag

Kosið er til þýska sambandsþingsins í borginni Dresden í austurhluta Þýskalands í dag, en kosningum þar var frestað fyrir tveimur vikum vegna dauðsfalls eins frambjóðanda frá borginni. Vonir eru bundnar við að úrslitin í Dresden muni leysa þá stjórnmálakreppu sem ríkt hefur í landinu.

Erlent
Fréttamynd

Gýs í El Salvador

Eldfjallið Ilamatepec, sem er skammt frá borginni Santa Ana í vesturhluta El Salvadors, byrjaði að gjósa í nótt eftir að hafa legið í dvala í um hundrað ár. Hraun flæðir nú frá fjallinu og reykmökkur hefur náð rúmlega fimmtán kílómetra hæð.

Erlent
Fréttamynd

Svandís efst í forvali VG

Svandís Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, varð hlutskörpust í forvali flokksins í Reykjavík sem haldið var í gær og mun skipa efsta sætið á lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor.

Innlent
Fréttamynd

Komum standandi úr prófkjöri

"Þetta var frekar afgerandi niðurstaða. Ég er fyrst og fremst ánægð með að við skulum hafa komið standandi frá okkar fyrsta prófkjöri," segir Svandís Svavarsdóttir sem var kosin til þess að leiða lista vinstri grænna í komandi borgarstjórnarkosningum.

Innlent
Fréttamynd

Viðskila við gönguhóp

Lögreglan á Hvollsvellli var í dag ræst út til leitar að konu sem hafði orðið viðskila við gönguhóp.

Innlent
Fréttamynd

Nýr lyfjagagnagrunnur landlæknis

Landlæknisembættið hefur komist að því að allt að tíu læknar hafi ávísað vanabindandi lyfjum til eins og sama fíkils, að sögn Matthíasar Halldórssonar aðstoðarlandlæknis.

Innlent
Fréttamynd

Dreginn aflvana til hafnar

Línubáturinn Gefjun varð vélarvana tæpum tuttugu sjómílum utan við Skagaströnd um klukkan hálf ellefu í fyrrakvöld. Björgunarbáturinn Húnabjörg lagði af stað frá Skagaströnd um miðnætti og kom með línubátinn í togi til hafnar um klukkan fimm.

Innlent
Fréttamynd

Annasamt hjá lögreglu í nótt

Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni í Reykjavík. Mikill mannfjöldi safnaðist saman í miðbænum og var töluvert um pústra en níu manns gistu fangageymslur lögreglunnar. Þá var ekið á gangandi vegfaranda á Breiðholtsbraut um klukkan þrjú í nótt og var maðurinn fluttur fótbrotinn á slysadeild.

Innlent
Fréttamynd

Lögðu til átján ára drengs

"Ég held að honum líði bara eins og hægt er að búast við eftir þessa atburði," segir Guðrún Árný Arnardóttir, móðir Einars Ágústs Magnússonar, átján ára drengs sem varð fyrir fólskulegri líkamsárás í samkvæmi í húsi við Bæjargil í Garðabæ í fyrrinótt. "Það er sprunga í höfuðkúpunni og hann hefur verið í aðgerð. Það verður að bara að koma í ljós hvernig honum líður," segir Guðrún.

Innlent
Fréttamynd

Hermönnum rænt í Írak

Samtök Al-Qaeda í Írak hafa sent út yfirlýsingu þess efnis að þau hafi í haldi tvo bandaríska sjóliða.

Erlent
Fréttamynd

Ekki hægt að segja nei

Frjálslyndi flokkurinn er óánægður með að ekki skuli hafa verið hægt að segja "nei" við kosningu Sólveigar Pétursdóttur í embætti forseta Alþingis. Eingöngu var hægt að ýta á "já" takkann eða "greiðir ekki atkvæði," en hún var ein í kjöri. Í tilkynningu sem flokkurinn sendi frá sér á laugardag segist flokkurinn hafa ætlað sér að undirstrika óánægju sína með því að segja nei, en þar sem það var ekki hægt er ómögulegt að sjá hversu margir voru alfarið á móti kosningu Sólveigar, heldur eingöngu að 12 af 63 þingmönnum hefðu setið hjá.

Innlent
Fréttamynd

Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst

Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur aukist um átta prósent á einum mánuði. Það mælist 44 prósent í nýrri skoðanakönnun þjóðarpúls Gallups, sem er mesta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með á kjörtímabilinu. Í sömu könnun kemur fram að einungis 28 prósent þjóðarinnar eru hlynnt framboði Íslendinga til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Innlent
Fréttamynd

Lögreglan lokaði skemmtistað

Skemmtistað í Kópavogi var lokað skömmu eftir miðnætti í fyrrinótt en lögreglan kom þá að nokkrum unglingum undir lögaldri þar inni. Var það annað kvöldið í röð sem lögreglan finnur börn á þessum stað.

Innlent
Fréttamynd

Slasaðir eftir útafakstur í Eyjum

Jeppabifreið hafnaði utan vegar á sunnanverðri Heimaey seint í gærkvöld. Tveir piltar sem voru í bílnum voru fluttir á heilbrigðisstofnun Vestamannaeyja þar sem þeir eru enn. Þeir eru þó ekki sagðir alvarlega slasaðir. Ökumaður bifreiðarinnar er réttindalaus sökum aldurs.

Innlent
Fréttamynd

Starfsfólk vantar á elliheimili

Þrátt fyrir að á annað hundrað manns sé á biðlista eftir að komast inn á dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund, er á annan tug plássa laus á heimilinu. Ekki er hægt að opna dyrnar fyrir nýju heimilisfólki vegna manneklu.  

Innlent
Fréttamynd

Síldarvertíðin hafin

Síldarvertíðin er hafin. Fjölveiðiskipið Beitir frá Neskaupsstað er á leið í land með um 200 tonn af síld.

Innlent
Fréttamynd

Um sjálfsmorðsárásir að ræða

Yfirvöld á Balí á Indónesíu segja ljóst að sprengingarnar sem urðu á Kúta-strönd í gær, hafi verið sjálfsmorðssprengingar og eru tveir hryðjuverkamenn frá Malasíu grunaðir um verknaðinn.

Erlent
Fréttamynd

Nýr formaður SUS

Borgar Þór Einarsson var í dag kjörinn ný formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Borgar var einn í framboði til formanns og mun hann gegna embættinu til næsta sambandsþings sem verður árið 2007. Borgar hlaut 70,2% greiddra atkvæði.

Innlent
Fréttamynd

Samfylkingin vill fækka ráðuneytum

Fækkun ráðuneyta úr þrettán í níu og lög um óháðar rannsóknarnefndir eru meðal stefnumála Samfylkingarinnar í vetur en þau voru kynnt í dag. Málin sem Samfylkingin leggur fram á Alþingi eru undir yfirskriftinni Stöðugleiki - Jafnræði - Stjórnfesta.

Innlent
Fréttamynd

Giuliani íhugar forsetaframboð

Fyrrverandi borgarstjóri New York, Rudolph Giuliani, upplýsti á ferð sinni um Danmörku nýverið að hann ætlaði að ákveða á næsta ári hvort hann byði sig fram til forseta árið 2008. Hann setti þó þann fyrirvara að þessar hugleiðingar hans um að verða forsetaefni repúblikana gætu að engu orðið.

Erlent
Fréttamynd

Herinn verður í Írak segir Rice

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að ekki komi til greina að senda bandaríska herinn frá Írak. Hún telur að það geti haft skelfilegar afleiðingar að yfirgefa landið og láta þannig stjórn landsins í hendur samviskulausra morðingja.

Erlent
Fréttamynd

Alþingi Íslendinga sett

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, talaði meðal annars um lýðræði og þær breytingar sem orðið hafa á fréttaflutningi í ræðu sinni við setningu 132. löggjafarþings Íslendinga í gær.

Innlent
Fréttamynd

Kynna nýtt skipulag miðbæjar Selfoss

Áætlanir eru uppi um að gerbreyta miðbæ Selfoss og gera yfirbragðið reisulegra.  Fasteignafélagið Miðjan kynnir í dag niðurstöður skipulagsvinnu sem nú er á lokastigi. Gert er ráð fyrir veitingastöðum, samkomusvæði, íþróttavöllum, leiksvæðum, göngugötu og miðbæjartorgi.

Innlent
Fréttamynd

Fjórða hvert barn í hættu

Eitt af hverjum fjórum fæddum börnum í heiminum er í hættu vegna sjúkdóma sem hægt væri að koma í veg fyrir með einfaldri bólusetningu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.

Erlent
Fréttamynd

Saka hvort annað um óhæfi

Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands og leiðtogi Jafnaðarmanna, og Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata, eru enn langt frá því að leysa ágreining sinn um það hvort þeirra skuli leiða stjórnarmyndunarviðræður í landinu. Í dag sökuðu þau hvort annað um að vera óhæf til að leiða landið.

Erlent
Fréttamynd

Bleikir Bessastaðir

Bessastaðir voru lýstir upp í bleikum lit í gærkvöld í tilefni af því að októbermánuður er helgaður vitundarvakningu um brjóstakrabbamein.

Innlent
Fréttamynd

Sprengja á Bali

Í það minnsta 25 biðu bana í tvöföldu sprengjutilræði á veitingahúsum á eynni Balí á Indónesíu um kvöldmatarleytið í gær. 51 slasaðist alvarlega. Enn er ekki búið að bera kennsl á líkin en talið er að þau séu bæði af innfæddum og útlendingum.

Erlent