Fréttir

Fréttamynd

Líkin flutu á vatninu

Alls tuttugu af 47 farþegum létu lífið er skemmtisiglingabát hvolfdi á George-vatni í New York-ríki á sunnudag.

Erlent
Fréttamynd

RNS skoðar sjóslys nánar

Rannsóknarnefnd Sjóslysa ætlar að kanna nánar þætti sjóslyssins á Viðeyjarsundi þar sem smábátur steytti á Skarfaskeri. Jón A. Ingólfsson, framkvæmdastjóri nefndarinnar segir þá rannsókn kunna að taka vikur eða jafnvel mánuði til viðbótar.

Innlent
Fréttamynd

Hvaða stöðugleiki?

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði á Alþingi í gærkvöldi að smæð íslensks samfélags og návígi væri höfuðorsök fyrir þröngsýni og sundurlyndisfjanda.

Innlent
Fréttamynd

Hillir undir lok rannsóknar

„Ég er að gera mér þá hugmynd að nú hilli undir lokin á þessari rannsókn,“ segir Jón H. B. Snorrason, saksóknari hjá embætti Ríkislögreglustjóra. Jón segir að of snemmt sé að fullyrða um hvert framhald málsins verði.

Innlent
Fréttamynd

Þrýst á Schröder að draga sig í hlé

Angela Merkel segist "reiða sig á skynsemisöfl" í jafnaðarmannaflokki Schröders eftir að íhaldsflokkur hennar jók þingstyrksforskot sitt. Flokkarnir halda þreifingum um ríkisstjórnarmyndun áfram á morgun.

Erlent
Fréttamynd

Viðbúnaður vegna fellibylsins Stan

Ekkert lát virðist vera á fellibyljum úti fyrir ströndum Bandaríkjanna, en í dag gekk fellibylurinn Stan inn á Mexíkóflóa með tilheyrandi stormviðri og úrhelli. Þótt Stan sé aðeins flokkaður sem fyrsta stigs fellibylur á Saffir-Simpson kvarðanum, hafa yfirvöld í Mexíkó brugðist við og lokað tveimur af helstu olíuútflutningshöfnum sínum af ótta við að skemmdir verði á olíuvinnslutækjum.

Erlent
Fréttamynd

Flaga til að fylgjast með hjartanu

Vísindamenn í Finnlandi vinna nú að því að þróa örflögu sem hugmyndin er að koma undir húð hjartasjúklinga þannig að hægt verði að fylgjast með hjartslætti þeirra og gera læknum viðvart ef eitthvað er að. Hópur manna við Tækniháskólann í Tampere hefur unnið að þróun flögunnar í nokkur ár og hyggst prófa frumgerð hennar á kúm síðar á þessu ári.

Erlent
Fréttamynd

7% hækkun hjá hjólbarðaverkstæðum

Þjónusta hjólbarðaverkstæða hefur hækkað um 7% frá því verðkönnun var gerð í desember 2003. Þetta er niðurstaða verðkönnunar ASÍ á þjónustu hjólbarðaverkstæða sem unnin var í síðustu viku og birt í gær.

Innlent
Fréttamynd

57 uppreisnarmenn fallnir

Minnst fimmtíu og sjö uppreisnarmenn hafa fallið í árásum bandaríska hersins í norðvesturhluta Íraks undanfarna þrjá daga. Áhlaup hersins á vígi uppreisnarmanna hófst í borginni Sadah á laugardaginn en hefur síðan færst yfir til borganna Karabíla og Rúmana.

Erlent
Fréttamynd

Ekki sameinuð með lögum

Árni Magnússon félagsmálaráðherra segir af og frá að hann ætli að sameina sveitarfélög með valdi hafni íbúar þeirra sameiningu í atkvæðagreiðslu um helgina. Hann vísar á bug ásökunum Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingar, um að hann sameini sveitarfélög með lögum verði þau ekki sameinuð í íbúakosningum.

Innlent
Fréttamynd

Leit hætt að fórnarlömbum

Yfirvöld í Louisiana hafa hætt formlegri leit að fórnarlömbum fellibylsins Katrínar sem reið yfir suðurríki Bandaríkjanna i ágústlok.

Erlent
Fréttamynd

Krabbameinslyf barna var ófáanlegt

Læknar hafa kvartað til Landlæknisembættisins undan skorti á tilteknum lyfjum. Nýlega var lyf sem notað er við krabbameinsmeðferð hjá börnum ófáanlegt. Barnalæknir segir þetta alvarlegt mál og ekki mega gerast.

Innlent
Fréttamynd

Talsmaður talibana handtekinn

Aðaltalsmaður talibana í Afganistan hefur verið handtekinn í Pakistan. Frá þessu greindu innanríkisráðherra Pakistans í dag. Talsmannsins, Abdul Latif Hakimi, hefur verið leitað í nokkur ár en hann hefur verið í forsvari fyrir talibana frá því að stjórn þeirra var komið frá völdum í Afganistan fyrir um fjórum árum. Hakimi greindi oft frá árásum uppreisnarmanna talibana á bandalagsheri í Afganistan og mannfalli þar, en bandalagsherirnir reyna nú að ganga á milli bols og höfuðs á uppreisnarmönnunum sem þeir segja að hamli uppbyggingarstarfi í Afganistan.

Erlent
Fréttamynd

Kynlíf er skiptimynt í partíum

Áhyggjur foreldra og yfirvalda af breyttum viðhorfum unglinga til kynlífs fara sívaxandi, og er Landlæknisembættið að taka á þessum málum.„Það fer vaxandi að kynlíf af hvers konar tegund er notað sem skiptimynt meðal unglinga fyrir alls kyns greiða, meðal annars það að komast inn í partý,“ segir Sigurður Guðmundsson landlæknir.

Innlent
Fréttamynd

Rannsókn enn í fullum gangi

Rannsókn á sjóslysinu í Viðeyjarsundi er enn í fullum gangi og ekki ljóst hvenær niðurstaða liggur fyrir. Þetta segir Jón A. Ingólfsson, framkvæmdastjóri rannsóknarnefndar sjóslysa. Ekki liggur til dæmis enn fyrir hver var við stýri bátsins þegar hann steytti á skeri með þeim afleiðingum að tveir létust og þrír til viðbótar slösuðust.

Innlent
Fréttamynd

31 týndi lífi í aurskriðum

Tony Saca, forseti El Salvador, lýsti yfir neyðarástandi í landinu í fyrradag eftir að 31 maður fórst þar í aurskriðum.

Erlent
Fréttamynd

Fastlínu og GSM-kerfi liggur niðri

Símasambandslaust er við stóran hluta Hafnafjarðar og einhvern hluta Kópavogs, bæði fastlínukerfið og GSM-kerfið. Auk þess er GSM-kerfið niðri að hluta í vesturbæ og miðbæ. Þetta getur valdið því að ekki næst í 112 frá þessum svæðum. Unnið er að viðgerð. 

Innlent
Fréttamynd

Ferðafrelsi flóttamanna verði heft

Á að hefta ferðafrelsi þeirra sem leita eftir hæli hér á landi sem flóttamenn? Fulltrúi sýslumanns telur það hljóta að koma til álita, þar sem það færist í vöxt að glæpamenn misnoti kerfið og gangi lausir hér á landi meðan hælisumsókn er afgreidd.

Innlent
Fréttamynd

Vegið að hagsmunum öryrkja

Helgi Hjörvar alþingismaður segir að í nýju fjárlagafrumvarpi sé enn vegið að hagsmunum öryrkja og nú eigi að skerða bensínstyrki hreyfihamlaðra um þrjú hundruð milljónir króna. Hann kveðst furðu lostinn á því að í kjölfar svikanna á samkomulaginu við öryrkja, sem gert var skömmu fyrir kosningarnar 2003, þá skuli menn spara með því að skerða styrk til þessa hóps.

Innlent
Fréttamynd

Litlar eignir til upp í kröfur

Verðmætustu eignirnar á athafnasvæði Slippstöðvarinnar eru ekki í eigu félagsins og nýtast því ekki til greiðslu á kröfum í þrotabúið. Að minnsta kosti þrjú fyrirtæki tengd skipaiðnaði hafa áhuga á að koma að stofnun nýs félags um rekstur slippstöðvar á Akureyri.

Innlent
Fréttamynd

Sameining ólíkleg á Reykjanesi

Bæjarstjóri Reykjanessbæjar segir ólíklegt að af sameiningu Reykjanessbæjar, Garðs og Sandgerðis verði, þótt hann telji það einu skynsamlegu lausnina.

Innlent
Fréttamynd

Efnahagsstjórnin brást

Efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar hefur brugðist og stöðugleikinn sem ríkisstjórnin hrósar sér af á lítt skylt við þann raunveruleika sem Íslendingar upplifa, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar, í umræðu um stefnuræðu forsætisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Útrýma verði kanínum í náttúrunni

Útrýma verður kanínum úr íslenskri náttúru áður en þær valda skaða á lífríkinu, segir Náttúrufræðistofnun, sem leggur til að sérþjálfaðir hundar og gas verði notað til verksins.

Innlent
Fréttamynd

Ríkisstjórn Palestínu rekin

Palestínska þingið samþykkti í gær tillögu um að reka ríkisstjórn landsins fyrir aðgerðaleysi gagnvart ofbeldi við Gasa-ströndina eftir brottflutning Ísraelsmanna. Tillagan var lögð fram í kjölfar skýrslu þingnefndar þar sem fram kom hörð gagnrýni á störf bæði ríkisstjórnarinnar og lögreglu í landinu.

Erlent
Fréttamynd

Listaverk fært vegna framkvæmda

Vegna framkvæmda við stækkun Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað þarf að gera ráðstafanir til að varðveita eitt þriggja listaverka sem Tryggvi Ólafsson gerði og standa á framhlið sjúkrahússins. Þetta er mat bæjarfulltrúans Magna Kistjánssonar í Fjarðabyggð.

Innlent
Fréttamynd

Piltarnir þrír sæta varðhaldi

Þrír átján ára karlmenn sitja í gæsluvarðhaldi í kjölfar líkamsárásar sem framin var í samkvæmi í Garðabæ á sunnudagsmorgun. Einn þeirra situr í varðhaldi í fimm daga, hinir tveir í þrjá daga. Mennirnir voru færðir fyrir dómara á níunda tímanum á sunndagskvöld og var þinghaldi ekki lokið fyrr en um klukkan eitt um nóttina.

Innlent
Fréttamynd

Engin framsalskrafa komin fram

Ekki hefur enn komið fram framsalskrafa á albanskan mann sem kom hingað til lands á fölsuðum skilríkjum og er grunaður um morð í Grikklandi. Maðurinn kom hingað til lands hinn 20. september og hefur verið dæmdur í 45 daga fangelsi hér á landi. Við komuna framvísaði hann vegabréfi sem reyndist vera falsað.

Innlent
Fréttamynd

Níu sendiherrar í tíð Davíðs

Fjórtán sendiherrar hafa verið skipaðir það sem af er kjörtímabilinu, þar af níu í rúmlega eins árs utanríkisráðherratíð Davíðs Oddssonar.

Innlent
Fréttamynd

Formlegri leit hætt í Louisiana

Yfirvöld í Louisiana hafa formlega hætt leit að fórnarlömbum fellibylsins Katrínar sem reið yfir suðurríki Bandaríkjanna fyrir um fimm vikum. Opinber tala látinna í ríkinu er nú 964 en upphaflega var óttast að hátt í tíu þúsund manns hefðu látist í hamförunum. Leit er hins vegar ekki alveg hætt þar sem einkafyrirtæki hefur verið ráðið til að leita fólks ef tilkynningar um lík berast yfirvöldum.

Erlent
Fréttamynd

Skrifar umboðsmanni bréf

Margrét Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Frjálslynda flokksins, hefur ritað umboðsmanni Alþingis bréf þar sem hún fer þess á leit að hann svari spurningum sem varða brotthvarf Gunnars Arnar Örlygssonar úr Frjálslynda flokknum og yfir til Sjálfstæðisflokksins síðastliðinn vetur.

Innlent