Fréttir

Fréttamynd

Minningar brjótast fram vegna snjóflóðs

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, segir miklar minningar brjótast fram þegar hún heimsæki Flateyri aftur, en hún er þar stödd til að minnast þess að tíu ár eru síðan snjóflóð féll á bæinn þar sem 20 manns létust.

Innlent
Fréttamynd

Banvænn stofn flensu greinist í Króatíu

H5N1-stofninn af fuglaflensu hefur greinst í Króatíu. Þetta var staðfest í morgun. Fuglaflensa hefur enn á ný greinst í Kína, að þessu sinni í rúmlega fimm hundruð öndum og kjúklingum í Hunan-héraði.

Erlent
Fréttamynd

Segist hafa fengið margar fyrirspurnir

Flugfélagið Iceland Express er komið á söluskrá og hefur fyrirtækjasviði Kaupþings banka verið falið að annast söluna. Annar eigenda félagsins segist hafa fengið margar fyrirspurnir um félagið.

Innlent
Fréttamynd

Aldrei í vafa að Flateyri yrði endurbyggð

Tuttugu létust og stór hluti byggðarinnar þurrkaðist út þegar snjóflóðið féll. Þrátt fyrir það voru flestir heimamenn á því að Flateyri skyldi endurreist. Fyrir tíu árum vaknaði Magnea við að snjóflóð hafði fallið. Hún segir tilfinninguna hafa verið óraunverulega, en skelfilega.

Innlent
Fréttamynd

Aukin spurn eftir gæðahúsnæði hækkar vísitölu

Aukin spurn eftir gæðahúseignum hefur hækkað húsnæðisvísitöluna talsvert umfram raunverulega hækkun og þar með skrúfað verðbólgu og neysluvísitölu óeðlilega mikið upp að mati Ásdísar Kristjánsdóttur hagfræðings.

Innlent
Fréttamynd

Frestur Atlantsolíu til framkvæmda að renna út

Frestur Atlantsolíu til að hefja byggingarframkvæmdir við bensínstöð á lóð, sem félagið fékk úthlutað á Skeiði á Ísafirði í fyrra, rennur út í byrjun nóvember en þau skilyrði voru sett við úthlutun lóðarinnar að framkvæmdir þyrftu að hefjast innan árs.

Innlent
Fréttamynd

Rómverjar sektaðir

Knattspyrnulið Roma hefur verið sektað um 25.000 evrur eftir að stuðningsmenn liðsins köstuðu smápeningi í höfuðið á dómaranum í grannaslag Roma og Lazio um helgina. Því miður eru atburðir sem þessi tíðir á Ólympíuleikvanginum í Róm, en stuðningsmenn liðanna beggja eru þekktir fyrir að vera ansi heitir.

Sport
Fréttamynd

Sýrlendingar vilja rannsaka morðið á Hariri

Sýrlensk stjórnvöld segjast reiðubúin að hefja eigin rannsókn á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. Hins vegar hafna þau rannsókn Sameinuðu þjóðanna á morðinu og segja hana ekki hlutlausa.

Erlent
Fréttamynd

Ekki verði auglýst í ljósvakamiðlum

Stjórn Varðar, sem er fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, samþykkti á fundi sínum að skora á frambjóðendurna í prófkjöri flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar að auglýsa ekki í ljósvakamiðlum.

Innlent
Fréttamynd

Selur í höfninni í Þórshöfn

Selur svamlaði í höfninni í Þórshöfn um helgina. Selurinn var mjög forvitinn og gerði margar tilraunir til að komast upp á bryggjuna en tókst ekki. Sjómenn töldu selinn tæplega fullvaxinn en vel á sig kominn og pattaralegan.

Innlent
Fréttamynd

Ný bygging á horni Lækjargötu og Vonarstrætis

Fyrirhugað er að reisa fimm hæð banka- og skrifstofubyggingu á horni Lækjargötu og Vonarstrætis þar sem nú er meðal annars skrifstofubygging Íslandsbanka, Foreldrahús og bílastæði. Að sögn Morgunblaðsins er það Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. sem hyggst reisa stórhýsið sem verður tæplega ellefu þúsund fermetrar að stærð.

Innlent
Fréttamynd

Fyrirtaka í máli Auðar gegn Hannesi

Nú klukkan tíu verður fyrirtaka í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Auðar Laxness, ekkju Halldórs Laxness, gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor vegna meintra brota á höfundarrétti í bók Hannesar um Nóbelskáldið, Halldór.

Innlent
Fréttamynd

Kostnaður vegna Símasölu hátt í 800 milljónir

Tíu milljónir af söluandvirði Símans fóru til framkvæmdanefndar um einkavæðingu vegna nefndarlauna og ferðakostnaðar. Auk þess fékk Morgan Stanley-fjárfestingabankinn greiddar 682 milljónir króna fyrir ráðgjöf sína.

Innlent
Fréttamynd

40 starfsmönnum Medcare sagt upp

Stefnt er að því að færa starfsemi Medcare utan og verður hátt í 40 starfsmönnum hér á landi sagt upp. Búið er að tilkynna um yfirvofandi uppsagnir á starfsmannafundum.

Innlent
Fréttamynd

Frankfurt burstaði Schalke

Þýska úrvalsdeildarliðið Frankfurt er heldur betur í stuði þessa dagana, því eftir að hafa unnið Cologne 6-3 um helgina, burstaði Frankfurt lið Schalke í gærkvöldi 6-0. Schalke komst alla leið í úrslitin í fyrra, en voru niðurlægðir í gærkvöldi.

Sport
Fréttamynd

Vinsældir Bush minnka

Fimmtíu og fimm prósent Bandaríkjamanna myndu kjósa Demókrata ef gengið yrði til kosinga nú. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar Gallup, CNN og dagblaðsins USA Today.

Erlent
Fréttamynd

Segir margar ríkar þjóðir hafa brugðist

Margar af ríkustu þjóðum heims hafa brugðist þegar kemur að því að aðstoða fórnarlömb jarðskjálftans í Suður-Asíu sem varð fyrir tæpum þremur vikum. Þetta segja bresku hjálparsamtökin Oxfam og benda á að einungis hafi fengist loforð fyrir þriðjungi þess fjár sem Sameinuðu þjóðirnar hafa farið fram á vegna hamfaranna.

Erlent
Fréttamynd

Sérfræðikostnaður nær tvöfaldast

Kostnaður hins opinbera við kaup á sérfræðiþjónustu nær tvöfaldaðist milli áranna 1998 og 2003 að því er fram kemur í úttekt Ríkisendurskoðunar sem unnin var að beiðni Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanns Samfylkingar.

Innlent
Fréttamynd

Grunur um fuglaflensu á Indlandi

Yfirvöld á Indlandi hafa sent blóðsýni úr farfuglum sem fundist hafa dauðir í vesturhluta Bengal-skóganna síðustu vikuna til rannsókna vegna gruns um fuglaflensu.

Erlent
Fréttamynd

Rjúpnaskyttur gripnar á Þingvöllum

Lögreglumenn frá Selfossi stóðu tvær rjúpnaskyttur að ólöglegum veiðum í þjóðgarðinum á Þingvöllum í gær. Skotmennirnir höfðu skotið fjórar rjúpur þegar að var komið, og lagði lögregla hald á þær og skotvopln mannanna, sem eiga yfir höfði sér sektir, þar sem skotveiðar eru bannaðar í þjóðgarðinum.

Innlent
Fréttamynd

Norðmenn græða á fuglaflensu

Fuglaflensa leiðir ekki aðeins til útgjalda fyrir ríki heims. Norðmenn hafa komist að raun um að það er líka hægt að græða á óttanum við fuglaflensu.

Erlent
Fréttamynd

Fuglaflensa í Þýskalandi

Fuglaflensusmit greindist í dauðum gæsum í Þýskalandi í gær. Flensan sem greindist í gæsunum er talin af H5N1 stofn veirunnar.

Innlent
Fréttamynd

Sagður hafa logið að þingnefnd

Breski þingmaðurinn George Galloway þverneitar að hafa borið ljúgvitni fyrir bandarískri þingnefnd síðastliðið vor, eins og nýjar upplýsingar eru sagðar benda til að hann hafi gert.

Erlent
Fréttamynd

Sveitarstjórnarmenn ekki á eitt sáttir

Hugmyndir að breyttri skipan lögregluembætta víða um land fara mis vel í sveitarstjórnarmenn. Sveitarstjórinn í Reykhólahreppi undrast að samgöngubætur í sýslunni skuli ekki hafa verið höfð til hliðsjónar. Bæjarstjórinn á Hornafirði segir að við fyrstu sýn virðist tillögurnar ganga þvert á hugmyndir um nærþjónustu og ákvarðantöku íbúa í héraði.

Innlent
Fréttamynd

Greinist á enn fleiri stöðum

Enn á ný hefur fuglaflensa greinst í Kína, að þessu sinni í rúmlega fimm hundruð öndum og kjúklingum í Hunan-héraði. Yfirvöld þar hafa fargað tvö þúsund og fimm hundruð fuglum í varúðarskyni.

Erlent