Fréttir
Fimm milljónir enn án rafmagns Fimm milljónir manna eru enn án rafmagns í Flórída eftir fellibylinn Wilmu. Hvarvetna um fylkið hafa myndast mörg hundruð metra biðraðir fyrir utan verslanir og þjónustumiðstöðvar þar sem fólk sækist eftir vatni, mat og öðrum nauðsynjum. Erlent 27.10.2005 07:41
Hálka og hálkublettir víða um land Hálkublettir er á Hellisheiði og Þrengslum. Hálka og hálkublettir er á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðvestur- og Norðausturlandi. Á Austfjörðum er hálka, hálkublettir og snjóþekja. Innlent 27.10.2005 09:33
Gagnrýna Íransforseta fyrir ummæli um Ísrael Stjórnvöld verstrænna ríkja stíga nú fram hver af öðrum til þess að fordæma orð Mahmouds Ahmadinejads, forseta Írans, sem sagði að þurrka ætti Ísrael út af heimskortinu. Yfirvöld í Bretlandi, Frakklandi, á Spáni og í Kanada hafa öll kallað á sendiherra Írans í löndunum og krafist skýringa á ummælunum. Erlent 27.10.2005 07:52
Best í lífshættu Knattspyrnuhetjan George Best liggur milli heims og helju á Cromwell spítalanum í London. Best, sem gerði garðinn frægan með Manchester United á árum áður, þjáist af lifrarsjúkdómi og ástand hans hefur versnað verulega undanfarna daga. Erlent 27.10.2005 09:06
Samkomulag næst um reykingabann í Bretlandi Frumvarp um bann við reykingum á á opinberum stöðum hefur loks verið lagt fram á breska þinginu eftir að ráðherrar ríkisstjórnarinnar komust að samkomulagi um orðalag þess í gær. Bannið nær ekki til kráa sem bjóða ekki upp á mat eða einkaklúbba en þó verður að vera reyklaust svæði á öllum krám. Erlent 27.10.2005 07:58
Vara við áhöldum úr svörtu nælonefni Sleifar og spaðar úr svörtu nælonefni geta gefið frá sér krabbameins- og ofnæmisvaldandi efni og hafa dönsk heilbrigðisyfirvöld varað við notkun slíkra eldhússáhalda. Í danskri rannsókn á nítján eldhússáhöldum voru tólf áhöld með þessi efni. Áhöld með efninu umrædda hafa verið bönnuð í Svíþjóð frá árinu 2003 en ekki í Danmörku. Erlent 27.10.2005 07:56
Ríkisvaldið bregðist við háu gengi Ef íslenska krónan stendur í stað eða hækkar getur það leitt til þess að sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að hætta stafsemi. Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja hefur versnað verulega undanfarna mánuði vegna sterkar stöðu krónunnar en Björgólfur Jóhannsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, vill að ríkisvaldið bregðist við. Innlent 27.10.2005 07:44
Barði dyravörð á Gauki á Stöng Ölvaður unglingur réðst að tilefnislausu á dyravörð á Gauki á Stöng í nótt og barði hann svo rækilega að flytja þurfti dyravörðinn á slysadeild til aðhlynningar. Lögreglumenn náðu að yfirbuga unglinginn, sem gistir fangageymslur. Innlent 27.10.2005 07:38
Huga að uppbyggingu á Sogni Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur skipað starfshóp sem á að hafa huga að uppbyggingu við réttargeðdeildina á Sogni. Jón tilkynnti þetta á Sogni í gær þar sem hann var í heimsókn til að kynna sér starfsemina. Innlent 27.10.2005 07:26
Ræða möguleika á alþjóðlegum fuglaflensusjóði Embættismenn hvaðanæva að úr heiminum munu hittast í nóvember til að ræða möguleikann á að stofna alþjóðlegan sjóð til að sporna við útbreiðslu fuglaflensu. Erlent 27.10.2005 07:35
Starfsmannafélag Kópavogs samþykkir samninga Félagar í Starfsmannafélagi Kópavogs samþykktu í gær nýgerðan kjarasamning við launanefnd sveitarfélaganna, eftir að hafa tvívegis fellt fyrri samninga við nefndina. Yfir sjötíu prósent félagsmanna, sem greiddu atkvæði, voru fylgjandi nýja samningnum, en kosningaþáttaka var rúm sextíu prósent Innlent 27.10.2005 07:32
Sigur Charlton var heppni og ekkert annað Jose Mourinho sagðist ekki geta kvartað yfir frammistöðu sinna manna í tapinu fyrir Charlton í gærkvöldi og sagði að heppnin hefði einfaldlega verið á bandi mótherjanna í það skiptið. Sport 27.10.2005 03:31
Fullt út úr dyrum á minningarathöfn í Neskirkju Fullt var út úr dyrum á minningarstund í Neskirkju í gærkvöldi vegna snjóflóðanna á Flateyri fyrir tíu árum og þurftu því sumir að standa á meðan séra Örn Bárður Jónsson predikaði. Innlent 27.10.2005 07:28
Sharon leyfir hernum að grípa til aðgerða Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur gefið ísraelska hernum leyfi til að grípa til yfirgripsmikilla aðgerða gegn herskáum Palestínumönnum í norðurhluta Vesturbakkans og á Gasaströndinni. Frá þessu greinir ísraelska blaðið Haaretz í dag. Erlent 27.10.2005 07:24
Kostar 1,3 milljarða króna Toshiba átti lægsta tilboð í vél- og rafbúnað fyrir Hellisheiðarvirkjun. Tilboðið hljóðar upp á átján milljónir evra eða sem samsvarar 1,3 milljörðum króna fyrir vélasamstæðu sem afkastar þrjátíu og fjórum megawöttum. Innlent 27.10.2005 07:16
Fjölmenni á minningarathöfn Björgunarsveitarmenn og sjóliðar Landhelgisgæslunnar voru meðal kirkjugesta á Flateyri í gærkvöldi, þegar þess var minnst að tíu ár voru liðin frá snjóflóðunum miklu. Innlent 27.10.2005 07:21
Fékk skilorðsbundinn dóm Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt mann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að skalla annan mann á skemmtistaðnum Sjallanum á Akureyri undir lok síðasta árs. Innlent 27.10.2005 07:12
Tíu létust í bruna á Schiphol-flugvelli Tíu manns létust og fimmtán hlutu brunasár eða reykeitrun, þegar eldur kom upp á Schiphol-flugvelli í Amsterdam upp úr miðnætti. Nokkrum hinna slösuðu er vart hugað líf. Eldurinn kom upp í fangageymslu flugvallarins þar sem 350 manns voru í haldi í nótt, flestir vegna smygls á fíkniefnum. Erlent 27.10.2005 07:11
Henry tæpur gegn Tottenham Nárameiðsli Thierry Henry hjá Arsenal hafa nú tekið sig upp að nýju og að sögn knattspyrnustjórans Arsene Wenger eru ekki nema 30% líkur á að hann geti verið með í grannaslagnum við Tottenham á morgun. Sport 27.10.2005 21:26
Juventus setti met Juventus hefur enn fimm stiga forystu á toppi ítölsku A-deildarinnar eftir 2-0 sigur á Sampdoria í gærkvöldi, sem var jafnframt níundi sigurleikur liðsins í röð í upphafi leiktíðar, sem er nýtt met í A-deildinni. Sport 27.10.2005 03:20
Dönsk kvikmynd hlýtur kvikmyndarverðlaun Norðurlandaráðs Danska kvikmyndin Morðið, eða Drabet eins og myndin heitir á frummálinu, hlýtur kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs í ár. Erlent 26.10.2005 23:45
Charlton lagði Chelsea í vítakeppni Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton gerðu sér lítið fyrir og slógu handhafa enska deildarbikarsins úr keppni í kvöld, þegar þeir lögðu Eið Smára og félaga í Chelsea í vítaspyrnukeppni á Stamford Bridge. Eiður og Hermann léku allan leikinn og skoruðu báðir af fádæma öryggi úr spyrnum sínum í vítakeppninni. Sport 26.10.2005 21:47
Menningarstofnunum fækkað Norrænum menningarstofnunum verður fækkað stórlega á næstunni. Þetta var staðfest á fundi Norðurlandaráðs í dag. Innlent 26.10.2005 19:11
Fyrirtæki flýja land Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins hefur verulegar áhyggjur af flótta íslenskra fyrirtækja til útlanda. Hann segir fjarri því að alltaf sé hægt að tala um jákvæða útrás því fjöldi starfa hafi tapast hér á landi vegna hennar á undanförnum árum. Innlent 26.10.2005 19:00
Íslendingar með lægstu fjárframlög Norðurlandanna Íslendingar eru ekki einu sinni hálfdrættingar á við hinar Norðurlandaþjóðirnar þegar kemur að fjárframlögum til aðstoðar fórnarlömbum jarðskjálftans í Kasmír. Innlent 26.10.2005 18:55
Jafnt hjá Chelsea og Charlton Nú er kominn hálfleikur í flestum leikjunum í enska deildarbikarnum. Staðan í leik Chelsea og Charlton er 1-1, þar sem John Terry og Darren Bent skoruðu undir lok hálfleiksins. Eiður Smári er í byrjunarliði Chelsea í kvöld. Sport 26.10.2005 19:36
Íslendingar eru trúaðir Íslendingar fara með Faðir vorið að meðaltali þrisvar í viku. Barnatrúin er sterk og þeir eru duglegir að biðja bænirnar með börnunum. Kirkjusókn hefur aukist lítillega síðustu árin en þó sinnir landinn einkum trú sinni í gegnum barna- og æskulýðsstarf kirkjunnar. Innlent 26.10.2005 19:27
Vopnahlé Ísraels og Paletínu í uppnámi Minnst fimm týndu lífi og um þrjátíu særðust í sjálfsmorðsprengjuárás í strandbænum Hadera í Ísrael í dag. Íslömsku samtökin Jíhad hafa lýst verknaðinum á hendur sér. Erlent 26.10.2005 18:44
Fjárhagslega háð sambýlismanni sínum Í gær sagði Stöð 2 frá fólki sem hefur rétt yfir 100 þúsund krónur í mánaðarlaun. Í dag hitti fréttastofan starfskonu á leikskóla sem segist háð sambýlismanni sínum vegna lágra launa. Þegar hún var ein átti hún enga möguleika á að kaupa sér íbúð og varð að selja bílinn. Innlent 26.10.2005 19:13
Undirstrika sterk tengsl þjóðanna Norska konungsfjölskyldan kom í sína fyrstu opinberu heimsókn til Bretlands í gær. Elísabet Bretlandsdrottning segir heimsóknina undirstrika sterk tengsl þjóðanna. Erlent 26.10.2005 19:08