Fréttir
Jórdanía: Sjálfsmorðsárásir á þremur hótelum Sprengja sprakk á þriðja hótelinu á skömmum tíma í Amman, höfuðborg Jórdaníu, fyrir skemmstu. Þriðja hótelið er Days Inn hótelið en áður hafði verið tilkynnt um sprengingar á hótelunum Radisson SAS og Grand Hyatt en öll hótelin eru vinsæl á meðal vestrænna ferðamanna. Erlent 9.11.2005 20:48
Forseti Kína í opinberri heimsókn í Bretlandi Hu Jintao, forseti Kína spásseraði um sali breska þingsins í dag og ræddi við breska ráðamenn, en hann er í opinberri heimsókn í Bretlandi. Mannréttindafrömuðir tóku honum ekki jafnvel heldur mótmæltu og veifuðu tíbetskum fánum. Erlent 9.11.2005 20:07
Lengsta samfellda flug farþegaþotu Boeing-flugvélaverksmiðjurnar sendu í morgun vél af gerðinni 777 í loftið frá Hong Kong og hún á ekki að lenda fyrr en á morgun, eftir tuttugu og þriggja tíma flug. Leiðin liggur frá Hong Kong yfir Bandaríkin til Evrópu, en vélin á að lenda á Heathrow í fyrramálið. Ef þetta tekst er um að ræða lengsta samfellda flug farþegaþotu, bæði mælt í tíma og kílómetrum. Erlent 9.11.2005 20:01
Fimm hið minnsta látnir í tveimur sprengingum í Jórdaníu Að minnsta kosti fimm eru látnir og fjörutíu særðir eftir að sprengjur sprungu á tveimur hótelum í Amman, höfuðbog Jórdaníu, fyrir stundu. Önnur sprengjan, sú fyrri að því er virðist, sprakk á Radisson-hótelinu sem er vinsælt á meðal ísraelskra ferðamanna. Erlent 9.11.2005 20:01
Venus Express skotið á loft Það tókst vel til í morgun þegar geimflauginni Venus Express var skotið á loft. Þar með hófst könnunarferð til Venusar, næsta nágranna jarðarinnar. Vísindamenn vonast til að verða margs vísari um hlýnun jarðar en hundrað sextíu og einn dag tekur fyrir flaugina að komast á áfangastað. Erlent 9.11.2005 19:59
Demókratar sigruðu í Virginíu og New Jersey George Bush, Bandaríkjaforseti, fékk á baukinn í gær þegar demókratar höfðu betur í ríkisstjórakosningum í lykilríkjunum Virginíu og New Jersey. Því til viðbótar höfnuðu kjósendur umbótatillögum sem Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, lagði til. Erlent 9.11.2005 19:53
Steingrímur gagnrýndi fyrirhuguð álver Áform um þrjú ný álver á Íslandi urðu tilefni snarpra umræðna á Alþingi í dag. Þingmenn Vinstri - grænna gagnrýndu ríkisstjórnina harðlega en forsætisráðherra sakaði Vinstri - græna um að vilja banna fólki að hugsa um framtíðina. Innlent 9.11.2005 19:46
Rannsakað hvernig fjölmiðlar fréttu af málinu Rannsókn er hafin á fregnum um leynifangelsi bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Tilgangurinn er að vísu ekki að komast að því hvort slík fangelsi séu til, heldur hvernig fjölmiðlar fengu veður af málinu. Erlent 9.11.2005 19:35
Skammarlega vægir dómar Lögreglumenn eru afar ósáttir við átján mánaða dóm í máli manns sem lagði til lögreglumanns með hnífi. Þeir segja dóminn vægan, en löggjöfinni sé ekki um að kenna heldur nýti dómstólar ekki þær heimildir sem þeir hafi. Innlent 9.11.2005 19:33
Actavis getur framleitt flensulyf ef neyðarástand skapast Actavis er eina íslenska lyfjafyrirtækið sem getur hafið framleiðslu flensulyfja fram hjá einkaleyfum ef neyðarástand skapast. Margt er þó óljóst í sambandi við framkvæmdina, og þá hversu langan tíma tæki að koma framleiðslu af stað. Innlent 9.11.2005 19:32
Ledley King meiddur á hné Nú þykir ólíklegt að varnarmaðurinn Ledley King verði með enska landsliðinu þegar það mætir Argentínumönnum í æfingaleik á laugardaginn, eftir að hann gat ekki æft með liðinu í dag vegna hnémeiðsla. Sport 9.11.2005 17:36
Land grær meira en það eyðist Söguleg tímamót hafa orðið í gróðurfari Íslands. Í fyrsta sinn frá landnámi hefur það nú gerst að landið grær meira en það eyðist. Þetta er mat helstu sérfræðinga á þessu sviði. Innlent 9.11.2005 19:22
Blair galt afhroð í fyrsta sinn Í fyrsta sinn frá því að Tony Blair varð forsætisráðherra Bretlands galt hann í dag afhroð í þinginu. Þingmenn höfnuðu með afgerandi hætti drögum Blairs að hryðjuverkalögum þrátt fyrir ákafar tilraunir hans til að telja þingheimi hughvarf. Erlent 9.11.2005 19:14
Verður frá í tvo mánuði Miðvallarleikmaðurinn Mark van Bommel hjá Barcelona verður frá keppni í um tvo mánuði eftir að að hann meiddist illa á æfingu með hollenska landsliðinu. Hann fór í aðhlynningu hjá læknum í Amsterdam og hefur verið ráðlagt að fara ekki strax til Barcelona vegna þess að hann er enn mikið bólginn. Sport 9.11.2005 17:30
Philadelphia - Dallas í beinni Leikur Philadelphia 76ers og Dallas Mavericks verður í beinni útsendingu á NBA TV körfuboltastöðinni á Digital Ísland í kvöld. Þarna eru á ferðinni tvö skemmtileg lið, sem hafa á að skipa tveimur af betri leikmönnum heimsins, þeim Allen Iverson og Dirk Nowitzki. Sport 9.11.2005 14:17
Írakskir dagar á Ísafirði Íröks menning verður í hávegum höfð á írökskum dögum sem haldnir verða á Ísafirði næstkomandi helgi. Matur, menning, ljóð og tónlist er meðal þess sem verður á dagskrá um helgina. Innlent 9.11.2005 18:08
Fékk Mike Tyson í heimsókn Tveir kóngar í íþróttaheiminum, knattspyrnuhetjan Diego Armando Maradona og hnefaleikakappinn Mike Tyson, fóru mikinn í sjónvarpsþætti þess fyrrnefnda í argentísku sjónvarpi í gær. Maradona og Tyson eiga ýmislegt sameiginlegt. Sport 9.11.2005 14:00
16 ára fangelsi fyrir manndráp Phu Tién Nguyén var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í 16 ára fangelsi fyrir að hafa banað Vu Van Peng með hnífi í íbúð í Hlíðarhjalla þann 15. maí síðastliðinn. Dómurinn féllst ekki á skýringar mannsins um að um óviljaverk hefði verið að ræða, en Vu Van Peng lést eftir að hafa hlotið fjölmargar hnífstungur og aðra áverka. Innlent 9.11.2005 17:52
Lagabreyting á stöðu, stjórn og starfsháttum þjóðkirkjunnar Frumvarp um breytingu á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar var lagt fram á ríkistjórnarfundi í gær, samkvæmt tilmælum frá Kirkjuþingi. Þar er lagt til að Kirkjuþing hafi vald til að skipa kjördæmum með sama hætti og sóknum, prestaköllum og prófastsdæmum. Þá segir að ef breyta eigi kosningafyrirkomulagi eða skipan kjördæma kosti það lagabreytingu í dag. Innlent 9.11.2005 17:44
Hátt í fjórtán hundruð kanínur skotnar Á síðustu tveimur árum hafa hátt í fjórtán hundruð kanínur verið skotnar í Vestmannaeyjum. Villtar kanínur í Vestmannaeyjum eru umhverfisslys að mati Magnús Þórs Hafsteinssonar, þingmanns Frjálslynda flokksins. Innlent 9.11.2005 17:12
Umhverfisráðherra setur skilyrði vegna framkvæmdanna Umhverfisráðherra hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum fyrsta áfanga Sundabrautar og landfyllingar við Gufunes. Hann setur þó skilyrði vegna framkvæmdanna um samráð við íbúa Hamrahverfis og við hafnaryfirvöld og hagsmunaaðila í Sundahöfn. Innlent 9.11.2005 17:03
Hundaeigendur taka til hendinni Hundaeigendur á höfuðborgarsvæðinu munu koma saman á Geirsnefi næstkomandi laugardag til skítatínslu. Einum hundaeiganda blöskrar hversu óduglegir hundeigendur væru að þrífa upp hægðir hunda sinna og hefur því hvatt hundaeigendur til að hittast og taka svæðið í gegn. Innlent 9.11.2005 16:42
Óhollusta í framhaldsskólum Menntamálaráðuneytið mun ekki beita sér með beinum hætti geng því að óhollusta verði í boði í framhaldsskólum. Fjórðungur framhaldsskóla í landinu er ekki með mötuneyti en allir framhaldskólarnir bjóða hins vegar upp á sælgæti og gos til sölu. Innlent 9.11.2005 16:24
Sacramento fékk grínið borgað Skondin uppákoma varð fyrir leik Sacramento og Detroit í NBA í nótt. Í upphitun fyrir leik liðanna eru venjulega spiluð myndbrot á risaskjá fyrir ofan völlinn og þegar lið Detroit var kynnt, hafði einhverjum háðfuglinum dottið í hug að sýna myndir af brenndum bílum og ónýtum byggingum, til að gera grín af staðalmyndum um bílaborgina. Þetta fór ekki vel fyrir brjóstið á leikmönnum Detroit. Sport 9.11.2005 13:09
Baugsmálið tekið fyrir á mánudag Ákæruliðirnir átta sem eftir standa í Baugsmálinu verða teknir fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag. Ákæruliðirnir varða meint brot á almennum hegningarlögum, tollalagabrot og lög um ársreikninga. Innlent 9.11.2005 15:40
Hannover rekur þjálfarana Þýska úrvalsdeildarliðið Hannover 96 hefur rekið aðalþjálfarann Ewald Lienen og aðstoðarmann hans Michael Frontzeck, eftir að þeir náðu aðeins einum sigri í síðustu átta leikjum með liðið. Lienen er þriðji þjálfarinn sem tekur pokann sinn í úrvalsdeildinni í vetur, en áður höfðu þeir Klaus Augenthaler hjá Leverkusen og Wolfgan Wolf hjá Nurnberg verið látnir fara. Sport 9.11.2005 13:03
Þrælahald stundað í fótbolta Sextán ára knattspyrnumenn frá Afríku fara unnvörpum til Belgíu að reyna fyrirsér í atvinnumennskunni. Fæstir ná að uppfylla þann draum og þeir lenda á bótum hjá belgíska ríkinu. Sport 9.11.2005 13:46
Byrjar strax að æfa aftur Fyrirliði Newcastle, Alan Shearer, er strax kominn aftur heim til Newcastle eftir kviðslitsaðgerð sem hann gekkst undir í Þýskalandi í byrjun vikunnar og hefur þegar byrjað rólegar æfingar. Sport 9.11.2005 12:54
Mótmæla vægri refsingu Landssamband lögreglumanna harmar óeðlilega væga refsingu héraðsdóms Reykjavíkur í gær yfir manni sem ákærður var fyrir fólskulega árás á tvo lögreglumenn í gær. Innlent 9.11.2005 13:51
Átta fyrirtæki hækka umfram Úrvalsvísitölu Það sem af er fjórða ársfjórðungi hefur Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hækkað um eitt prósent. Átta félög hafa hækkað umfram vísitöluna og hefur Össur leitt hækkunina með tæplega sextán prósenta hækkun. Þetta kemur fram í Greiningu Íslandsbanka. Innlent 9.11.2005 13:56