Fréttir
Byggðastofnun lánar út á ný Byggðastofnun á að hefja aftur lánastarfsemi samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar, þrátt fyrir að eiginfjárstaða stofnunarinnar sé verri en lög gera ráð fyrir. Innlent 29.11.2005 19:56
Teygja sig um Evrópu og Bandaríkin Yfir hundrað kínversk börn og ungmenni, sem horfið hafa sporlaust frá Svíþjóð, eru ekki einsdæmi á Norðurlöndum. Þau eru aðeins hluti af því, sem virðist vera skipulegur mansalshringur, sem teygir anga sína um alla Evrópu og til Bandaríkjanna. Erlent 29.11.2005 19:52
Isinbayeva stefnir á nýtt met í febrúar Heimsmethafinn Yelena Isinbayeva stefnir á að setja nýtt heimsmet á Norwich Union Grand Prix mótinu í Birmingham í febrúar. Mótið er haldið innandyra, en þar á Isinbayeva best 4,90 metra. "Ég er að stökkva 5 metra nokkuð örugglega núna, svo að ég er nokkuð bjartsýn á að setja met í Birmingham," sagði þessi 23 ára gamla afrekskona. Sport 29.11.2005 18:57
Íslandsbanki fékk tvenn verðlaun fyrir vef sinn Íslensku vefverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Iðnó í dag. Þetta var í fimmta sinn sem verðlaunin voru veitt en þau fá þeir vefir sem taldir eru skara fram úr á sínu sviði. Verðlaunum var úthlutað í fimm flokkum og var mbl.is valinn besti íslenski vefurinn. Íslandsbanki fékk tvenn verðlaun fyrir vef sinn, isb.is, annars vegar fyrir besta útlits- og viðmótshönnun og hins vegar fyrir besta fyrirtækjavefinn. Innlent 29.11.2005 19:28
Berst ekki næsta hálfa árið Hnefaleikarinn Ricky Hatton mun ekki berjast næsta hálfa árið vegna ljótra skurða sem hann hlaut í bardaganum við Carlos Maussa um síðustu helgi. Hatton hafði mikla yfirburði í bardaganum en skarst mjög illa eftir að höfuð þeirra skullu saman og þurfi að fara á sjúkrahús til að láta gera að sárum sínum eftir bardagann. Sport 29.11.2005 18:51
Samið fyrir blaða- og fréttamenn Samningur Blaðamannafélags Íslands við samtök atvinnulífsins voru undirritaðir á sjöunda tímanum í kvöld. Samningurinn nær til fréttamanna og ljósmyndara á öllum helstu fjölmiðlum landsins utan Ríkisútvarpsins. Innlent 29.11.2005 18:52
Slösuð rjúpnaskytta í aðgerð á Landspítala Rjúpnaveiðimaðurinn sem slasaðist á hendi þegar hann fékk voðaskot í höndina í Svínadal ofan við Reyðarfjörð er kominn á Landspítalann þar sem hann gegnst brátt undir aðgerð. Innlent 29.11.2005 18:30
Doncaster-Aston Villa í beinni á Sýn Þrír leikir fara fram í deildarbikarkeppninni á Englandi í kvöld. Viðureign Doncaster og Aston Villa verður sýnd í beinni útsendingu á Sýn klukkan 19:35. Annar áhugaverður leikur á dagskrá er viðureign Arsenal og Reading, en forvitnilegt verður að sjá hvernig toppliðinu í fyrstu deild gengur á Highbury. Að lokum eigast við Milwall og Birmingham. Sport 29.11.2005 18:11
Valur og Stjarnan mætast í kvöld Í kvöld fer fram einn leikur í DHL-deild karla í handbolta, en það er leikur Vals og Stjörnunnar sem frestað var á sínum tíma vegna þáttöku Vals í Evrópukeppninni. Valur getur styrkt stöðu sína á toppi deildarinnar með sigri í kvöld og hefst leikurinn klukkan 20 og verður í Laugardalshöllinni. Sport 29.11.2005 18:00
217 milljónir í rannsóknir AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi styrkir 64 verkefni um samtals 217 milljónir króna í ár. 110 milljónir króna fara í verkefni á sviði veiða, vinnslu og búnaðar, 64 milljónir í fiskeldisverkefni og líftækniverkefni og markaðssetning fengu hvort um sig 21 milljón króna. Innlent 29.11.2005 16:45
Upplýsingaskrifstofa opnuð í Kalíníngrad Norræna ráðherranefndin hefur komist að samkomulagi við rússnesk yfirvöld um að setja á laggirnar norræna upplýsingaskrifstofu í Kalíníngrad. Unnið hefur verið að málinu með hléum frá árinu 2000, en ráðherranefndin starfrækir nú þegar skrifstofu í Pétursborg og hefur gert í tíu ár. Erlent 29.11.2005 17:42
Umhverfissvið innkallar grænmetisblöndu vegna aðskotahlutar Umhverfissvið Reykjavíkurborgar hefur innkallað af markaði Hátíðarblöndu, blandað frosið grænmeti frá Íslensku meðlæti, með best fyrir dagsetninguna 08.11.2007. Varan reyndist innihalda aðskotahlut og hefur framleiðslulotan því verið tekin af markaði og er nú hvergi í sölu. Innlent 29.11.2005 17:22
Rúm 50 prósent vilja Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýri Ríflega fimmtíu prósent Reykvíkinga vilja að Reykjavíkurflugvöllur verði annars staðar en í Vatnsmýrinni samkvæmt skoðananakönnun sem Gallup hefur geft fyrir lista Frjálslynda flokksins í Reykjavík. Tæplega 48 prósent vildu hins vegar hafa flugvöllinn áfram í mýrinni. Innlent 29.11.2005 17:03
Tveir listar í framboði Tveir listar verða í framboði við sveitarstjórnarkosningar í sameinuðu sveitarfélagi Bólstaðarhrepps, Sveinsstaðahrepps, Svínavatnshrepps og Torfalækjarhrepps laugardaginn 10. desember næstkomandi. Listarnir eru Listi framtíðar og Nýtt afl. Þá verður kosið milli þriggja tillagna að nafni nýja sveitarfélagsins. Innlent 29.11.2005 17:03
Kristleifur tekur við Hetti Í dag var tilkynnt að Kristleifur Andrésson hefði verið ráðinn aðalþjálfari úrvalsdeildarliðs Hattar, en hann hefur séð um þjálfun liðsins síðan Kirk Baker sagði starfi sínu lausu á dögunum. Kristleifur er öllum hnútum kunnugur hjá Hetti, enda þjálfaði hann liðið veturinn 2003-04. Sport 29.11.2005 17:07
Lagt til að ákveðnir hlutar hússins verði friðaðir Húsafriðunarnefnd hyggst leggja til við menntamálaráðherra að ákveðnir hlutar Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg verði friðaðir. Eins og greint hefur verið frá stendur til að selja húsið verktakafyrirtækinu Mark-Húsum sem bauð hæst í það, alls 980 milljónir króna. Innlent 29.11.2005 16:44
Lítill munur á bönkunum Það kostar að lágmarki 374 þúsund krónur að taka fimmtán milljóna króna lán til íbúðakaupa. Þetta kemur fram í nýrri könnun Alþýðusambands Íslands á lántökukostnaði og opinberum gjöldum. Innlent 29.11.2005 16:34
Beckham vill að númer sjö verði hengt upp Það verða sérstakar minningarathafnir um George Best á Old Trafford í vikunni, bæði á bikarleiknum annað kvöld og fyrir næsta deildarleik liðsins á laugardaginn. David Beckham er með sérstaka hugmynd um hvað gera skuli við númerið sem Best bar á treyju sinni forðum. Sport 29.11.2005 16:00
Systkinafsláttur á leikskólum Seltjarnarness Nýjar reglur um afsláttarkjör barnafjölskyldna á Seltjarnarnesi sem nýta dagmæðrakerfi, leikskóla eða Skólaskjól grunnskóla tóku nýlega gildi. Um nokkurt skeið hafa reglurnar gilt milli leik- og grunnskóla þannig að fjölskyldur sem átt hafa börn á þeim skólastigum hafa notið systkinaafsláttar af leikskólagjöldum eða gjöldum fyrir Skólaskjól. Fjölskylda sem er með eitt barn á leikskóla og nýtir Skólaskjól grunnskólans fyrir annað barn fær þannig 25% afslátt fyrir annað barnið og 50% afslátt fyrir þriðja barnið. Það sama á að sjálfsögðu við ef öll börnin eru á sama skólastigi. Innlent 29.11.2005 15:40
Segir hafa verið valið úr tölvupóstum til birtingar Jónína Benediktsdóttir sagði við skýrslutöku í aðalmeðferð máls hennar gegn Fréttablaðinu að blaðið hefði haldið hlífiskildi yfir eigendum sínum með því að birta ekki tölvupósta þar sem fjallað væri um Thee Viking. Hvorki ritstjóri né fréttaritstjóri Fréttablaðsins sögðust muna eftir slíkum tölvupóstum. Jónína neitaði að svara flestum spurningum verjanda um hvernig hún teldi fréttirnar hafa verið villandi eða hvort einhverjar persónulegar upplýsingar úr tölvupóstunum hefðu ekki verið birtar. Innlent 29.11.2005 15:58
Rjúpnaskytta varð fyrir voðaskoti við Reyðarfjörð Björgunarsveitin Ársól á Reyðafirði var kölluð út á öðrum tímanum í dag. Rjúpnaskytta hafði fengið voðaskot í hendi á svínadal fyrir ofan Reyðafjörð. Það tók sveitina aðeins sex mínútur að komast að slysstað. Maðurinn er mikið slasaður á hendi en gat þrátt fyrir það verið í sambandi við neyðarlínuna og látið vita af sér. Er búið var að hlúa að manninum var hann fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Innlent 29.11.2005 15:23
Orlando vann fjórða leikinn í röð Fimm leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Orlando Magic vann fjórða leik sinn í röð þegar liðið skellti Boston á útivelli, en Dallas Maverics vann mjög nauman sigur á botnliði Toronto Raptors og þurfti flautukörfu í lokin til að tryggja sigurinn. Sport 29.11.2005 15:43
Segir eigendum hafa verið hlíft Jónína Benediktsdóttir sagði við skýrslutöku í aðalmeðferð máls hennar gegn Fréttablaðinu að blaðið hefði haldið hlífiskildi yfir eigendum sínum með því að birta ekki tölvupósta sem kæmu þeim illa. Innlent 29.11.2005 14:59
Byggðastofnun starfi án fjárstuðnings ríkisins Lánastarfsemi Byggðastofnunar mun halda áfram með óbreyttum hætti á næstunni á meðan ekki koma frekari athugasemdir frá Fjármálaeftirlitinu. Hins vegar verða gerðar grundvallarbreytingar á fjármögnunarstarfsemi stofnunarinnar til lengri tíma litið, þannig að hún standi undir þeim rekstri, án fjárstuðnings ríkisins. Innlent 29.11.2005 13:57
Blysför á Akureyri á Alnæmisdaginn Alnæmisdagsins verður minnst með blysför á Akureyri 1. desember næstkomandi. Dagurinn er alþjóðlegur dagur alnæmis en víða um heim er þessa dags minnst með samkomum og samstöðugöngum. Innlent 29.11.2005 13:38
Jón bakkar Jón Kristjánsson dregur til baka reglugerð um skerðingu bótagreiðslna til öryrkja og ellilífeyrisþega eftir harða gagnrýni af þeirra hálfu. Innlent 29.11.2005 13:15
Aðildarviðræðum við Rúmena slitið? Aðild Rúmena að Evrópusambandinu er í hættu ef rétt reynist að þeir hafi hýst leynifangelsi fyrir bandarísku leyniþjónustuna. Erlent 29.11.2005 12:02
Konur í rafiðnaðarstétt hafa nú 87% af launum karla samanborið við 65% fyrir fimm árum Konur í rafiðnaðarstétt, eru að draga verulega á karlana í launum og nema laun þeirra nú 87% af launum karla, samanborið við 65% af launum þeirra fyrir fimm árum. Að hluta gæti þetta skýrst af þvi að þær hafi ekki unnið eins mikla yfirvinnu og karlarnir, en karlar hafa undanfarin misseri verulega dregið úr henni þannig að samanburðurinn nú ætti að vera raunhæfur. Innlent 29.11.2005 11:17
Skotbardagar fyrir botni Miðjarðarhafs Palestínskur lögreglumaður særðist nú rétt fyrir hádegið þegar til skotbardaga kom á milli ísraelskra hermanna og palestínksra lögreglumanna í borginni Betlehem. Innlent 29.11.2005 11:56
Starfshópur skipaður á næstu dögum Starfshópur verður skipaður á næstu dögum sem fjalla mun um mál þeirra þeirra áttatíu öryrkja sem nýtt hafa bótarétt sinn og fyrirsjáanlegt var að yrðu fyrir greiðsluskerðingu út árið. Innlent 29.11.2005 11:56