Fréttir

Fréttamynd

Lífeyrissjóður Norðurlands og Lífeyrissjóður Austurlands hyggja á sameiningu

Stjórnir Lífeyrissjóðs Norðurlands og lífeyrissjóðs Austurlands hafa undirritað viljayfirlýsingu um að athuga möguelika á sameiningu sjóðanna. Markmið sameiningarinnar er að auka hagkvæmni í rekstri, bæta áhættudreyfingu og ávöxtun eigna og hámarka með þeim hætti lífeyrisréttindi sem sameinaður sjóður getur veitt sjóðsfélögum sínum.

Innlent
Fréttamynd

Grunaður stríðsglæpamaður handtekinn í Bosníu-Herzegovínu

Dragomir Abazovic, sem grunaður er um stríðsglæpi í Bosníustríðinu, var handtekinn í gær á heimili sínu í Rogatica í Bosníu-Herzegovínu. Friðargæsluliðar Evrópusambandsins réðust til atlögu á heimili hans og særðu hann, eiginkonu hans og son þeirra. Eiginkona hans lést og bæði Abazovic og sonur hans eru særðir.

Erlent
Fréttamynd

Enginn slasaðist þegar vörubíll valt í Hveradalabrekku

Vörubíll valt á hliðina í Hveradalabrekku í nágrenni skíðaskálans í Hveradölum á öðrum tímanum í dag. Engin slys urðu á fólki en loka þurfti tveimur akreinum til austurs um tíma vegna slyssins og kalla þurfti til kranabíl til að koma vörubílnum á hjólin á ný.

Innlent
Fréttamynd

Þrjú menningarverkefni tilnefnd til Eyrarrósinnar

Þrjú menningarverklefni á landsbyggðinni eru í ár tilnefnd til Eyrarrósarinnar en það eru Jöklasýningin á Höfn í Hornafirði, Kórastefna við Mývatn og LungA - listahátíð ungs fólks, Austurlandi. Þetta er í annað sinn sem Eyrarrósin verður afhent, en verðlaunin verða afhent á Bessastöðum 13. janúar næstkomandi. Verkefnin þrjú voru tilnefnd úr hópi fjölmargra umsækjenda.

Innlent
Fréttamynd

Umboðsmaður alþingis gerir ekki athugasemdir

Umboðsmaður alþingis gerir ekki athugasemdir við skipun yfirlögregluþjóns við embætti sýslumanns á Seyðisfirði í svari sínu við kvörtun lögreglumanns sem lagði inn kvörtun yfir ákvörðun dóms- og kirkjumálaráðherra um skipum yfrirlögregluþjóns við embættið.

Innlent
Fréttamynd

Salan á Iceland Express að fara í gang

Salan á Iceland Express er fyrst nú að fara í gang. KB banki annast sölu fyrirtæksins og eru menn þar nú farnir að útbúa útboðsgögn sem verða til á næstu tveimur til þremur vikunum.

Innlent
Fréttamynd

Enginn slasaðist í sprengjuárás sem gerð var á rútu í Kosovo

Enginn slasaðist þegar sprengju var kastað á rútu sem var á ferð í Pristina í Kosovo í gærkvöldi. Rútan er mikið skemmd og þykir mildi að enginn þeirra 55 farþega sem voru í rútunni, hafi slasast. Þetta er önnur sprengjuárásin á innan við mánaðartímabili sem er gerð á rútu á þessari leið, frá bænum Dragas til Belgrad, höfuðborgar Serbíu.

Erlent
Fréttamynd

Erlendum félagsmönnum í VR fjölgar um þriðjung

Félagsmönnum í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur með erlent ríkisfang hefur fjölgað um nær þriðjung á ári og eru nú 650 eftir því sem fram kemur á heimasíðu VR. Tíu prósent eða 66 manns eru frá Danmörku en fast á hæla þeirra eru Pólverjar, þá Þjóðverjar, Bandaríkjamenn, Júgóslavar og Bretar.

Innlent
Fréttamynd

Heppilegra að bíða með aðgerðir

Það er betra að fara hægar en hraðar þegar kemur að því að heimila hjónavígslu samkynhneigðra, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann segir að fólk verði að gefa sér tíma til að ræða málið út frá öllum hliðum áður en lengra sé haldið.

Innlent
Fréttamynd

Kallar eftir þjóðarsátt um að hækka lægstu laun

Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, kallar eftir þjóðarsátt um að hækka lægstu launin fyrir launamálaráðstefnu sveitarfélaganna sem halda á 20. janúar næstkomandi. Hann segir minni sveitarfélög ekki þola að launahækkanir verði jafnmiklar yfir alla línuna. Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi gagnrýnir bæjarstjórnina fyrir að grípa ekki strax í taumana til þess að koma í veg fyrir frekari uppsagnir á leikskólum bæjarins.

Innlent
Fréttamynd

Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Suðurlands yfir karlmanni vegna fíkniefnabrota. Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók manninn á Gamlársdag og hefur lagt hald á um 1,5 kíló af hassi auk annarra fíkniefna og peninga.

Innlent
Fréttamynd

Á annað hundrað fallnir í árásum

Á annað hundrað manns hafa farist og meira en 200 særst í ofbeldisverkum í Írak það sem af er degi. 225 hafa látist af völdum árása frá áramótum og nær 300 slasast. Vikan sem nú er að líða er því orðin ein sú blóðugasta frá því innrásin í Írak hófst í mars 2003.

Erlent
Fréttamynd

Segja örn hafa drepið tvö þúsund hreindýr

Norskir hreindýrabændur fengu í fyrra greiddar bætur frá ríkinu vegna tvö þúsund dýra sem þeir segja að örn hafi drepið. Frá þessu er greint í norska blaðinu Verdens Gang. Alls fengu þeir 250 milljónir króna í bætur vegna 11.400 hreindýra sem annaðhvort örninn eða önnur rándýr eiga að hafa drepið.

Erlent
Fréttamynd

Innflutningurinn nam 285 milljörðum

Íslendingar fluttu inn vörur fyrir 23 milljarða króna í síðasta mánuði samkvæmt bráðabirgðatölum um innheimtu virðisaukaskatts. Það er fimm milljörðum minna en í nóvember þegar fluttar voru inn vörur fyrir 28 milljarða, meira en í nokkrum öðrum mánuði síðasta árs. Alls voru fluttar inn vörur fyrir 285 milljarða króna í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Hægt að lækka matvælaverð

Hægt er að lækka matvælaverð á Íslandi með því að afnema tolla og höft á innfluttum matvælum, að mati aðjúnkts við Háskólann í Reykjavík. Hann segir einnig að matvælaverð myndi lækka ef Íslandi gengi í Evrópusambandið. Þetta kom fram á fundi Samtaka verslunar og þjónustu og Félags viðskipta- og hagfræðinga í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Fjölga ferðum vegna hláku

Flutningafyrirtækin sem annast landflutninga hafa orðið að fjölga ferðum og aka með hálftóma bílana, eftir að Vegagerðin greip í gær til þess ráðs að setja þungatakmarkanir á vegi víða um land til að verja þá skemmdum í hlákunni.

Innlent
Fréttamynd

Fjármálaeftirlitið líklega vanhæft

Sigurður G. Guðjónsson lögmaður segir að ekki hafi myndast nýr virkur eignarhlutur á aðalfundi Sparisjóðs Hafnarfjarðar í fyrra, það hafi einungis verið vel heppnuð stjórnarbylting. Vafasamt sé að Fjármálaeftirlitið sé hæft til að fjalla um málið og að því hafi verið tilkynnt um væntanlegt stjórnarframboð fyrir aðalfundinn.

Innlent
Fréttamynd

Hornfirðingar kaupa í flugfélagi

Hópur Hornfirðinga hefur keypt 10% hlut í eignarhaldsfélaginu City Star sem á og rekur flugfélag í Skotlandi og Landsflug sem flýgur meðal annars milli Reykjavíkur og Hornafjarðar. Forsvarsmaður fjárfestahópsins segir kaupin opna fyrir möguleika á leiguflugi frá Hornafirði til borga í Evrópu.

Innlent
Fréttamynd

Tryggir gasframboð í Evrópu

Vladimir Putin, forseti Rússlands, sagði á blaðamannafundi í Mosvku, að samkomulag við stjórnvöld í Úkraínu um kaup á gasi frá Rússlandi á hærra verði en áður, yrði til að tryggja stöðugt framboð á gasi til annarra Evrópuríkja.

Innlent
Fréttamynd

Læknar svartsýnir á bata Sharons

Ariel Sharon liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Ísrael. Hann fékk heilablóðfall í gærkvöldi og læknar eru svartsýnir á bata. Ehud Olmert aðstoðarforsætisráðherra hefur tekið við stjórn landsins.

Erlent
Fréttamynd

Vinstri-grænir fordæma bæjaryfirvöld

Vinstri-grænir í Kópavogi lýsa þungum áhyggjum vegna stöðu leikskólamála í bænum í ályktun sem þeir hafa sent frá sér. Þar segir að bæjaryfirvöld hafi þubast við og ekkert gert til að leysa vandann þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir starfsfólks og foreldra.

Innlent
Fréttamynd

Beiðni um ógildingu framsals vísað frá dómi

Hæstiréttur hefur vísað frá kröfu albansks karlmanns sem grunaður er um manndráp í Grikklandi á jóladag 2004 um að ákvörðun dómsmálaráðherra um að framselja hann til Grikklands yrði hnekkt. Maðurinn kærði framsalið til Héraðsdóms Reykjavíkur sem staðfesti framsalið.

Innlent
Fréttamynd

Aldrei fleiri komur í Kvennaathvarf

Konum og börnum sem dvöldu í Kvennaathvarfinu fjölgaði á síðasta ári. 92 konur og 74 börn dvöldu í athvarfinu á síðasta ári, það er fjórum konum og nítján börnum meira en árið þar á undan. Komur í athvarfið voru fleiri á síðasta ári en nokkru sinni frá því það var opnað árið 1982.

Innlent
Fréttamynd

Í það minnsta 80 fórust

Í það minnsta 31 fórst og 30 særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í Ramadi í Írak í morgun. Karlmaður sprengdi sig og viðstadda þá í loft upp fyrir framan ráðningarstöð hers og lögreglu. Þetta er önnur mannskæða árásin í Írak í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Gæsluvarðhald framlengt

Hæstiréttur hefur framlengt gæsluvarðhald yfir albönskum karlmanni sem grunaður er um að hafa myrt mann í Grikklandi á jóladag 2004. Maðurinn skal sæta gæsluvarðhaldi til 16. janúar eða þar til niðurstaða hefur fengist í máli sem rekið er vegna ákvörðunar stjórnvalda um að framselja hann grískum yfirvöldum.

Innlent
Fréttamynd

Verðbólgan næstmest hérlendis

Íslendingar bjuggu við næst mesta verðbólgu allra þjóða innan Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu og nokkurra helstu iðnríkja utan Evrópu á síðasta ári. Verðbólgan var aðeins hærri í Tyrklandi en lægri í 28 ríkjum.

Innlent
Fréttamynd

Víðast góð færð

Vegir eru víðast hvar auðir en hálkublettir á stöku fjallvegum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þá er komin snjóþekja á norðanverðu Snæfellsnesi og sunnanverðum Vestfjörðum.

Innlent
Fréttamynd

Dæmd fyrir að bjóða flensusprautur án leyfis

Hjúkrunarkona í Minnesota-ríki í Bandaríkjunum hefur verið dæmd í níu mánaða fangelsi fyrir að bjóða flensusprautur án leyfis á háskólalóð. Hún sprautaði um fjörtíu manns með útvötnuðu bóluefni sem ekkert gagn var í. Hún drýgði bóluefnið með saltvatni og hafði heilar 36 þúsund krónur upp úr krafsinu.

Erlent
Fréttamynd

Spá aukinni verðbólgu

Verðbólga eykst og verður áfram yfir efri þolmörkum Seðlabankans og langt yfir verðbólgumarkmiði hans gangi spá Greiningardeildar Íslandsbanka um verðbólgu milli desember og janúar eftir.

Innlent