Fréttir
Varnarmálin rædd á morgun Jaap de Hoop Schaeffer, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins mun á morgun hitta George Bush Bandaríkjaforseta þar sem varnir Íslands verða til umræðu. Innlent 19.3.2006 12:14
Óli Stef með fjögur í sigri Ciudad Ólafur Stefánsson skoraði 4 mörk fyrir Ciudad Real sem vann fimm marka sigur á Valladolid, 34-29 í spænska handboltanum í gærkvöldi. Ciudad er í 3. sæti úrvalsdeildarinnar með 36 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Barcelona. Sport 19.3.2006 12:27
Guðjón Valur raðar inn mörkunum Guðjón Valur Sigurðsson var maður leiksins og skoraði 13 mörk eða um helming marka sinna manna þegar lið hans Gummersbach marði eins marks sigur á Kronau/Östringen, 27-26 í þýsku Bundesligunni í handbolta í gærkvöldi. Guðjón er langmarkahæsti leikmaðurinn í deildinni með 197 mörk. Sport 19.3.2006 12:21
Sér ekkert athugavert við ritstjórnina Oddviti Framsóknarmanna í Reykjavík sér ekkert athugavert við framferði ritstjóra Framsóknarvefsíðunnar Hriflu, sem neitaði að birta pistil borgarfulltrúa flokksins um lýðræði á vefsíðunni. Innlent 19.3.2006 12:17
Líkamsárás á Laugaveginum í morgun Tveir menn um tvítugt réðust á mann frá Marokkó á Laugaveginum í morgun. Tildrög árásarinnar liggja ekki fyrir. Innlent 19.3.2006 11:56
Hálka víða fyrir norðan og austan Hálka, hálkublettir og éljagangur er víða á Norðaustur- og Austurlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Aðrir þjóðvegir landsins eru nokkuð greiðfærir en mjög víða gilda þungatakmarkanir. Innlent 19.3.2006 11:30
Lúkatsjenkó talinn öruggur um sigur Forsetakosningar fara fram í Hvíta-Rússlandi í dag. Kjörstaðir voru opnaðir snemma í morgun og voru þá þegar teknar að myndast raðir fyrir utan þá. Ekki eru nokkrar líkur taldar á öðru en að Alexander Lúkatsjenkó, sitjandi forseti, fari með sigur af hólmi enda gera sér fáir grillur um að kosningarnar fari fram á sanngjarnan hátt. Erlent 19.3.2006 11:17
Borgarastríð geisar í Írak Iyad Allawi, fyrrverandi forsætisráðherra Íraks, sagði í viðtali við BBC í morgun að borgarastyrjöld geisi í landinu og verði fljótlega ekki gripið í taumana muni þjóðarbrotin í landinu festast í vítahring ofbeldis sem í kjölfarið út öll Mið-Austurlönd. Erlent 19.3.2006 10:48
Á annað hundrað handtekin Parísarlögreglan handtók vel á annað hundrað manns eftir að friðsamlegar mótmælaaðgerðir gærdagsins snerust upp í uppþot og ólæti í gærkvöld. Erlent 19.3.2006 10:47
Þrír teknir við ölvunarakstur Þrír voru teknir ölvaðir við akstur í umdæmi Keflavíkurlögreglunnar í nótt og í morgun. Þá voru nokkrir stöðvaðir vegna smávægilegri umferðarlagabrota. Innlent 19.3.2006 10:04
Blandar flokkspólitík í uppsagnir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ furða sig á því að fyrsti fundur forsætisráðherra um málefni starfsmanna varnarliðsins eftir að herinn tilkynnti að hann hefði sig á brott verði haldinn á kosningaskrifstofu A-listans. Innlent 19.3.2006 10:05
Tveir gistu fangageymslur Tveir gistu fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt vegna ölvunar og óláta. Þá var einn ökumaður tekinn grunaður um ölvun við akstur og tveir fyrir að keyra réttindalausir, báðir eru aðeins sextán ára og virtist liggja meira á að setjast undir stýri en svo að þeir gætu beðið eftir að fá bílpróf. Innlent 19.3.2006 10:03
Trezeguet með tvö mörk fyrir Juventus David Trezeguet skoraði tvívegis fyrir Juventus í kvöld þegar liðið sigraði Livorno 1-3 á útivelli í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Alessandro Del Piero gulltryggði sigur Juve á lokasekúndum leiksins eftir að Trezeguet hafði komið gestunum tvisvar yfir í leiknum. Í hinum leik kvöldsins á Ítalíu vann Cagliari 1-2 útisigur á botnliði Treviso. Sport 18.3.2006 21:50
Barcelona jók forystuna á toppnum Barcelona jók forystu sína á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með 2-0 sigri á Real Sociedad. Henrik Larsson skoraði fyrra mark Barca á 8. mínútu og Samuel Eto'o hið síðara á 51. mínútu. Diego Forlan skoraði sigurmark Villareal sem lagði Atlético Madrid 1-0 í deildinni í kvöld og að lokum vann Deportivo La Coruña 2-3 útisigur á Getafe. Sport 18.3.2006 21:33
Wenger: Við verðum betri með hverjum leik Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal telur nú að lið sitt sé loksins að sýna batamerki eftir að hafa staðið langt undir væntingum það sem af er tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Arsenal tók Charlton í bakaríið í dag, 3-0 og hefur nú unnið 3 leiki í röð. Sport 18.3.2006 20:29
Tottenham endurheimti fjórða sætið Tottenham endurheimti fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld með 2-0 útisigri á Birmingham. Aaron Lennon og Robbie Keane skoruðu mörk Spurs með 12 mínútna millibili um miðjan síðari hálfleik. Tottenham hefur því sætaskipti við Arsenal sem vermdi fjórða sætið í nokkrar klukkutstundir eftir 3-0 sigur á Charlton fyrr í dag. Sport 18.3.2006 19:33
Hörður skoraði tvö mörk gegn Brøndby Keflvíkingurinn Hörður Sveinsson hefur heldur betur stimplað sig inn í danska fótboltann en hann skoraði bæði mörk Silkeborg í 2-0 sigri á danska stórveldinu Brøndby í dag. Mörkin komu bæði í fyrri hálfleik. "Þetta er frábært. Að skora tvö mörk á móti Brøndby er alveg frábært." sagði Hörður eftir leikinn. Fótbolti 18.3.2006 18:51
Fram endurheimti toppsætið Fram komst aftur á topp DHL-deildar karla í handbolta nú síðdegis með því að leggja Stjörnuna að velli í Garðabæ, 29-32. Staðan í hálfleik var 13-18 fyrir Fram. Sergeyi Serenko var markahæstur Framara með 9 mörk. Í Kópavogi vann HK 6 marka sigur á Aftureldingu, 29-23. Sport 18.3.2006 18:03
Keflavík í undanúrslit og KR tryggði sér oddaleik Keflavík varð í dag fyrst liða til að tryggja sig í undanúrslitin í úrslitakeppni karla í körfubolta þegar deildarmeistararnir unnu Fjölni 87-84. Í Stykkishólmi náði KR að tryggja sér oddaleik með því að leggja Snæfell 62-61 þar sem sigurkarfa KR kom þegar 2 sekúndur voru til leiksloka og var það 3 stiga karfa fráMelvin Scott sem réði úrslitum. Sport 18.3.2006 17:54
Leeds jafnaði í blálokin Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan leikinn með liði Leicester sem vann Millwall, 1-0 í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson voru báðir í byrjunarliði Reading sem gerði 1-1 jafntefli við Wolves. Ívar lék allan leikinn en Brynjari var skipt út af á 76. mínútu. Hannes Sigurðsson lék síðustu 10 mínúturnar með Stoke sem lagði Burnley 1-0 og Gylfi Einarsson kom ekkert við sögu hjá Leeds sem gerði 1-1 jafntefli við Coventry. Sport 18.3.2006 17:42
Tekinn tvisvar á ellefu mínútum Nítján ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á hálftíma á Akureyri. Allir voru á 50 kílómetra hraða eða meira þar sem er 30 kílómetra hámarkshraði. Einn þeirra sem lögreglan tók fyrir of hraðan akstur var stöðvaður aftur ellefu mínútum síðar og þá fyrir að tala í síma undir stýri. Innlent 18.3.2006 17:37
Oddur Helgi leiðir Lista fólksins Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi leiðir L-lista, Lista fólksins, við bæjarstjórnarkosningar á Akureyri. Þetta er í þriðja skipti sem listinn býður fram og hefur Oddur helgi leitt listann í öll þrjú skiptin. Innlent 18.3.2006 17:25
Arsenal komið í 4. sæti Arsenal náði í dag að tylla sér í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu með 3-0 sigri á Charlton. Louis Saha var hetja Manchester United og skoraði bæði mörk liðsins í 1-2 útisgri á W.B.A. en Man Utd er í 2. sæti með 63 stig, 12 stigum á eftir toppliði Chelsea. Sport 18.3.2006 17:18
Vilja starfslokasamning frá hernum Undirskriftasöfnun er hafin meðal starfsmanna Varnarliðsins þar sem farið er fram á að þeir fái starfslokasamning vegna uppsagna allra starfsmanna Varnarliðsins. Samkvæmt kjarasamningum eiga starfsmenn ekki rétt á öðrum greiðslum við uppsögn en þær sem felast í uppsagnarfresti. Innlent 18.3.2006 16:55
Keflavík og KR leiða í hálfleik Nú er hálfleikur í leikjunum tveimur sem fram fara í úrslitakeppninni í körfubolta karla í dag og eru það gestaliðin sem leiða í báðum tilfellum. KR er sex stigum yfir gegn Snæfelli í Stykkishólmi, 33-39. Í Grafarvogi eru það Keflvíkingar sem leiða gegn Fjölni með tveimur stigum, 43-45. Sport 18.3.2006 16:52
Hætti með liðið vegna söknuðar Þýska knattspyrnugoðsögnin Lothar Matthäus hefur sagt starfi sínu lausu sem þjálfari brasilíska liðsins Atletico Paranaense, aðeins tveimur mánuðum eftir að hann tók starfið að sér. Þetta kom fram í þýska dagblaðinu Bild í dag en þar segir Matthäus að hann hafi tilkynnt félaginu þetta í gærmorgun, þrátt fyrir frábært gengi með liðið. Sport 18.3.2006 16:37
Valsstúlkur á toppinn Valur komst í dag á topp DHL-deildar kvenna í handbolta með 8 marka sigri á Fram, 21-29 í Framhúsinu. Valsstúlkur eru efstar ásamt Haukum með 26 stig en Haukar eiga leik til góðar gegn Víkingi á morgun. Tveir aðrir leikir fóru fram í deildinni í dag. HK lagði KA/Þór, 31-24 og eru enn í 7. sæti með 11 stig. Að lokum vann Stjarnan fjögurra marka útisigur á Gróttu, 19-23. Sport 18.3.2006 16:23
Glover efstur, 7 höggum á undan Tiger Bandaríkjamaðurinn Lucas Glover er með eins höggs forystu á Bay Hill boðsmótinu í bandarísku mótaröðinni í golfi eftir tvo keppnisdaga. Bay Hill mótið er eitt það sterkasta í bandarísku mótaröðinni. Völlurinn er mjög erfiður og níu vatnstorfærur eru á holunum átján. Sport 18.3.2006 15:53
Verðlaunuð fyrir stærðfræðikunnáttu 24 börn á aldrinum níu til tólf ára hafa varið frítíma sínum í vetur við að leysa stærðfræðiþrautir sem reyndust flestum fullorðnum einstaklingum um megn. Útskriftarhátíð þeirra var haldin í Háskólanum í Reykjavík í gær. Innlent 18.3.2006 14:53
Dagný í 38. sæti en Björgvin úr leik Dagný Linda Kristjánsdóttir varð í 38. sæti á Evrópubikarmótinu í risasvigi í Austurríki í morgun. Hún varð 2.24 sek. á eftir sigurvegaranum Tina Weirather frá Liechtenstein. Þá féll Björgvin Björgvinsson úr keppni í fyrri ferð í svigi. Sport 18.3.2006 15:36
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent