Fréttir
Fuglaflensutilfelli staðfest í Ísrael Staðfest hefur verið að fuglarnir sem drápust á þremur fuglabúum í suðurhluta Ísraels fyrir helgi voru sýktir af hinum mannskæða H5NI-stofni fuglaflensunnar. Þúsundum kjúklinga og kalkúna var slátrað eftir að fuglarnir drápust því strax lék grunur á að um fuglaflensu væri að ræða. Erlent 20.3.2006 07:53
Meiddist á hrygg eftir vélsleðaslys Kona meiddist á hrygg þegar hún datt af vélsleða uppi á Langjökli síðdegis í gær. Samferðafólk hennar kallaði eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar og tókst áhöfn hennar að lenda á jöklinum, þrátt fyrir vont skyggni. Flogið var með konuna á slysadeild Landsspítalans og reyndist hún minna meidd en óttast var. Eftir rannsóknir og aðhlynningu fékk hún að fara heim. Innlent 20.3.2006 07:38
Sjö létust í sprengjuárás Sjö létust og fjórir særðust þegar þrjár sprengjur sprungu í norðvesturhluta Pakistan í gær. Tveimur af sprengjunum var komið fyrir nálægt lögreglustöð en talið er að herskáir íslamar hafi staðið fyrir árásinni en enginn hefur þó lýst yfir ábyrgð á árásinni. Þrír lögreglumenn létust í árásinni en lögreglustöðin er mikið skemmd eftir sprenginguna. Erlent 20.3.2006 07:35
Fellibylurinn Larry veldur usla í Ástralíu Að minnsta kosti þrír slösuðust þegar fellibylurinn Larry gekk yfir norðausturhluta Ástralíu í nótt. Bærinn Innisfail í Queensland-héraði varð verst úti í fellibylnum og er óttast að mun fleiri hafi slasast þar en vitað er um á þessari stundu, þó flestir bæjarbúar hafi náð að yfirgefa heimili sín áður en ósköpin dundu yfir. Erlent 20.3.2006 07:28
Ólæti á Craven Cottage Fulham má búast við eftirmála í kjölfar leiksins gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld vegna óláta sem urðu að leik loknum á Craven Cottage, heimavelli Fulham. Sport 19.3.2006 22:24
Skallagrímur í undanúrslit eftir framlengingu í Grindavík Skallagrímur varð í kvöld þriðja liðið til að tryggja sig í undanúrslit Iceland Express-deildar karla í körfubolta þegar liðið hafði betur í framlengingu gegn Grindavík, 73-77. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var jöfn, 65-65 og því þurfti að framlengja í Grindavík. Sport 19.3.2006 22:38
Njarðvík í undanúrslit - framlengt í Grindavík Njarðvík varð í kvöld annað liðið til að tryggja sig í undanúrslit Iceland Express deildarinnar í körfubolta eftir 2 stiga sigur á ÍR í Seljaskóla, 76-78. Leikur Skallagríms og Grindavíkur fer í framlengingu en lokatölur eftir venjulegan leiktíma í Grindavík urðu 65-65. Borgnesingar voru einu stigi yfir í hálfleik, 35-36. Sport 19.3.2006 21:17
Haukastúlkur aftur á toppinn Haukar komust aftur á topp DHL-deildar kvenna í handbolta með 8 marka sigri á næst neðsta liði deildarinnar, Víkingi á Ásvöllum í Hafnarfirði, 31-23. Ramune Pekeskyten var markahæst Hauk með 12 mörk en Hekla Daðadóttir var markahæst Víkinga með 7 mörk. Sport 19.3.2006 20:35
"Dómarinn lét Fulham hafa áhrif á sig" Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea var að vonum niðurlútur eftir að hans menn töpuðu óvænt fyrir Fulham í ensku úrvalsdeildinni nú undir kvöldið. Lokatölur urðu 1-0 í vestur Lundúnaslagnum í ensku úrvalsdeildinni. Mourinho gerði þó minna af því en venjulega eftir tapleik að skella skuldinni á aðra en sig sjálfan eða sína leikmenn. Sport 19.3.2006 20:14
Jafnt hjá ÍBV og Val ÍBV og Valur gerðu jafntefli, 24-24 í Vestmannaeyjum í DHL-deild karla í handbolta í kvöld en þetta var frestaður leikur sem fram átti að fara í gær. Mladen Cacic var markahæstur heimamanna í ÍBV með 9 mörk en Hjalti Þór Pálmason skoraði mest Valsmanna eða 7 mörk. Valur er í 3. sæti deildarinnar með 30 stig. Sport 19.3.2006 19:27
Scolari ræddi við Englendinga Enska knattspyrnusambandið fundaði fyrir helgi með landsliðsþjálfara Portúgala, Luiz Felipe Scolari, um stöðu landsliðsþjálfara enska landsliðsins. Þessu halda fjölmargir enskir fjölmiðlar fram í dag en enska sambandið leitar nú logandi ljósi að eftirmanni Sven-Göran Eriksson sem hættir með liðið eftir HM í Þýskalandi í sumar. Sport 19.3.2006 19:10
Flugmálastjórn í stríð við flugumferðarstjóra Yfirmenn Flugmálastjórnar eru komnir í stríð við starfsmenn sína, segir formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra. Þeir eru mjög ósáttir við nýtt vaktakerfi sem var tekið upp, þrátt fyrir að svipuðu vaktakerfi hafi verið hafnað í kjarasamningum. Innlent 19.3.2006 18:05
Slasaðist alvarlega í bílveltu Karlmaður um tvítugt slasaðist alvarlega í bílveltu í Fossvogi nú síðdegis. Maðurinn, sem var ökumaður bifreiðarinnar, gekkst undir aðgerð vegna brjóstholsáverka. Hann fer í aðgerð vegna tveggja brotinna hryggjarliða í kvöld eða á morgun en er ekki í lífshættu. Innlent 19.3.2006 18:30
Fulham vann Chelsea Fulham náði með elju og mikilli fyrirhöfn að landa 1-0 heimasigri á Englandsmeisturum Chelsea nú undir kvöldið með marki Luis Boa Morte á 17. mínútu. Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í leikmannahópi Chelsea en Heiðar Helguson sat á varamannabekk Fulham og kom inn á þegar 70 mínútur voru liðnar af leiknum. Sport 19.3.2006 17:56
Markalaust hjá Keflavík og Þór A Fimm leikir eru á dagskrá í A-Deildarbikarkeppni karla í knattspyrnu í dag og er tveimur þeirra lokið. Grindavík og ÍBV gerðu 1-1 jafntefli í Reykjaneshöll og í Fífunni gerðu Keflavík og Þór Akureyri markalaust jafntefli. Sport 19.3.2006 17:40
Eyjastúlkur á toppinn ÍBV tyllti sér á topp DHL-deildar kvenna í handbolta síðdegis með því að leggja FH að velli í Eyjum, 29-23. Eyjastúlkur eru með eins stig forystu á Val og Hauka en Hafnarfjarðarliðið getur endurheimt toppsætið um kvöldmatarleytið þegar Haukar mæta næst neðsta liðinu, Víkingi kl. 18. Sport 19.3.2006 17:32
Fulham yfir gegn Chelsea í hálfleik Fulham er yfir í hálfleik, 1-0 gegn Englandsmeisturum Chelsea með marki Luis Boa Morte á 17. mínútu en leikurinn hófst kl. 16. Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í leikmannahópi Chelsea en Heiðar Helguson er á varamannabekk Fulham. Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea trompaðist á hliðarlínunni eftir að Fulham komst yfir og gerði tvær breytingar á liði sínu strax á 26. mínútu og þriðju breytinguna í hálfleik. Sport 19.3.2006 17:02
Udinese átti ekki séns í AC Milan Andriy Shevchenko skoraði 18. markið sitt í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag með því að skora tvö mörk þegar AC Milan tók Udinese í kennslustund með 4-0 útisigri. Inter Milan er tveimur stigum á eftir nágrönnum sínum eftir 3-1 sigur á Lazio í dag þar sem Alvaro Recoba skoraði tvívegis. Sport 19.3.2006 16:52
Alkmaar í 2. sætið Grétar Rafn Steinsson lék síðustu 20 mínúturnar með liði AZ Alkmaar sem komst í dag í 2. sæti hollensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með því að sigra Feyenoord 1-0. Leikurinn var afar fjörugur og fóru bæði lið með fjölda færa forgörðum en úrslitin þýða að liðin höfðu sætaskipti í deildinni. Arnar Þór Viðarsson var ekki í leikmannahópi Twente sem gerði 1-1 jafntefli við botnlið Roosendaal. Sport 19.3.2006 16:38
Slasaðist í bílveltu Umferðarslys varð á Kringlumýrarbrautinni, við göngubrúnna í Fossvogi nú síðdegis. Að því er næst verður komist var bifreið ekið á ljósastaur eða brúarstólpa svo hún valt. Innlent 19.3.2006 16:37
Eiður ekki í hópnum gegn Fulham Heiðar Helguson er á varamannabekk Fulham sem tekur á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en leikurinn hefst kl. 16. Athygli vekur að Eiður Smári Guðjohnsen er ekki svo mikið sem í leikmannahópi Chelsea í dag en ekki er vitað til þess að nein meiðsli væru að hrjá íslenska landsliðsfyrirliðann fyrir leikinn. Sport 19.3.2006 15:55
Öruggur sigur Liverpool á Newcastle Liverpool vann öruggan útisigur á Newcastle, 3-1 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Peter Crouch, Steven Gerrard og Djibril Cisse skoruðu mörk Liverpool sem er í 3. sætil deildarinnar með 61 stig, tveimur stigum á eftir Man Utd sem á tvo leiki til góða. Sport 19.3.2006 15:39
Rokklag um fótboltamann slær í gegn á Englandi Eitt vinsælasta rokklagið í Bretlandi þessa dagana fjallar um sóknarmann enska 2. deildarliðsins Brentford, Lloyd Owusu. Þannig er í pottinn búið að bassaleikari hinnar ævafornu rokksveitar Status Quo, John 'Rhino' Edwards, er mikill stuðningsmaður Brentford sem leikur í C-deildinni í knattspyrnu á Englandi. Sport 19.3.2006 15:15
Stöðvaður á tvöföldum hámarkshraða Lögreglan á Húsavík stöðvaði ungan ökumann á mikilli hraðferð í nótt. Mest mældist bíll piltsins á eitt hundrað áttatíu og eins kílómetra hraða, rétt norðan við Húsavík. Innlent 19.3.2006 14:56
Kokkar berjast Kokkar frá fjórum heimsálfum reyna að slá hverjum öðrum við í matargerðarlist og búist er við harðri keppni í uppvaski á sýningunni Matur 2006 sem haldin verður undir lok mánaðarins. Innlent 19.3.2006 14:40
Eto'o ekki falur fyrir neina fjárhæð Frank Rijkaard, knattspyrnustjóri Barcelona segir að kamerúnski sóknarmaðurinn Samuel Eto'o sé ekki falur, sama hvaða fjárhæð verði boðin í leikmanninn. Sögusagnir herma að Chelsea hafi boðið 50 milljónir punda í leikmanninn þegar liðin mættust í Meistaradeildinni fyrr í mánuðinum. Sport 19.3.2006 14:35
Sif og Viktor Íslandsmeistarar í fjölþraut Sif Pálsdóttir Gróttu og Viktor Kristmannsson Gerplu urðu í gær Íslandsmeistarar í fjölþraut í fimleikum. Keppt var í hinu nýja og glæsilega íþróttahúsi Gerplu í Kópavogi en allt okkar besta fimleikafólk tekur þátt í mótinu. Í gær var keppt í fjölþraut karla og kvenna. Sport 19.3.2006 14:05
Ástrali kominn með 4 högga forystu Ástralinn Rod Pampling er með fjögurra högga forystu á Bay Hill boðsmótinu í bandaríksku mótaröðinni þegar átján holur eru eftir. Frábærar aðstæður voru á Bay Hill vellinum í gær en mótið er eitt það sterkasta á bandarísku mótaröðinni. Sport 19.3.2006 13:23
Læsti sig inni með barnabarninu Mikill viðbúnaður var í Brussel höfuðborg Belgíu í nótt eftir að maður á sextugsaldri læsti sig inni á hótelherbergi á sautjándu hæð með átta ára gömlu barnabarni sínu. Erlent 19.3.2006 12:18
Óvenju lágt skor Wade dugði Miami til sigurs Leikur Dwyane Wade og Shaquille O'Neal hjá Miami Heat einkenndist af miklum villuvandræðum þegar lið þeirra marði eins stigs sigur á Chicago Bulls, 85-84 í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Sport 19.3.2006 13:02
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent