Fréttir
Reykjavíkurborg kærir Landsvirkjun Reykjavíkurborg hefur kært Landsvirkjun til Samkeppniseftirlitsins fyrir að hafa ákveðið að taka Laxárvirkjun út úr Landsvirkjun á undirverði og færa hana í fyrirtæki í eigu ríkisvaldsins. Landsvirkjun ákvað þetta 13. janúar síðast liðinn en hvort tveggja borgarráð og borgarstjórn gerðu athugasemdir við að meirihlutaeigandi Landsvirkjunar, ríkisvaldið, hafi beitt afli sínu til að taka eigir út úr rekstri Landsvirkjunar. Innlent 31.3.2006 10:31
Íbúðalánasjóður hækkar vexti Íbúðalánasjóður hefur hækkað útlánsvexti á íbúðabréfum úr 4,65 prósentum í 4,85 prósent í kjölfar útboðs á íbúðabréfum. Hækkunin tekur gildi á morgun. Viðskipti innlent 31.3.2006 10:20
Vilja ekki heita Hansen, Jensen eða Nielsen Danir vilja ólmir skipta út nöfnunum Jensen, Nielsen og Hansen og taka upp sjaldgæfari eftirnöfn sem þykja flottari að því er fram kemur á vef Berlinske Tidene í morgun. Ný nafnalög taka gildi í Danmörku á morgun sem gerir Dönum það kleift að skipta út eftirnöfnum sínu og velja sér ný. Þegar hafa borist fjölmargar umsóknir um nafnabreytingu og eru flestar þeirra tengdar eftirnöfnunum Jensen, Nielsen og Hansen. Erlent 31.3.2006 10:02
Halli á vöruskiptum við útlönd Vöruskiptajöfnuður var 9,5 milljörðum lakari fyrstu tvo mánuði ársins en á sama tíma í fyrra og nam hallinn á vöruskiptum við útlönd nú 18,6 milljörðum. Fluttar voru út vörur að verðmæti tæplega 29 milljarða fyrstu tvo mánuði ársins og var langstærstur hluti þeirra sjávarafurðir sem námu 59 prósentum alls útflutnings. Innlent 31.3.2006 09:38
Vöruskiptin óhagstæð um 7,2 milljarða Vöruskipti voru óhagstæð um 7,2 milljarða króna í febrúar. Á sama tíma í fyrra voru vöruskiptin óhagstæð um 4,8 milljarða. Vörur voru fluttar út fyrir fyrir 14,8 milljarða króna í febrúar og inn fyrir 22,0 milljarða króna, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Viðskipti innlent 31.3.2006 09:38
Sundabraut verði fjórar akreinar "Aldrei hefur annað verið í umræðunni en að Sundabraut verði fjórar akreinar" segir í yfirlýsingu sem íbúasamtök Grafarvogs hafa sent frá sér. Í yfirlýsingunni kemur enn fremur fram að öll vinna samtakanna hefur miðast við þetta og að þeirra mati eigi að hraða sem kostur er að leggja brautina alla leið upp á Kjalarnes. Innlent 31.3.2006 09:07
Nokkuð um sinuelda Lögreglan í Hafnarfirði hefur verið kölluð út þrisvar í kvöld vegna sinuelda. Eldarnir hafa þó allir verið með minna móti og hafa lögreglumenn getað slökkt eldinn með lítilli fyrirhöfn. Mikið hefur verið um að sinueldar hafi verið kveiktir síðustu daga. Innlent 30.3.2006 21:58
Naomi Campbell handtekin fyrir barsmíðar Ofurfyrirsætan Naomi Campbell var handtekin á heimili sínu í dag. Hún er sökuð um að hafa barið aðstoðarkonu sína eftir að þær lentu í rifrildi. Erlent 30.3.2006 22:02
Úrskurði Samkeppniseftirlitsins líklega áfrýjað Framkvæmdastjóri Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli, sem Samkeppniseftirlitið úrskurðaði í gær að hafi brotið samkeppnislög, býst við að úrskurðinum verði áfrýjað. Innlent 30.3.2006 22:25
Hollvinasamtök skattgreiðenda stofnuð í dag Hollvinasamtök skattgreiðenda voru stofnuð í dag en markmið þeirra er að standa vörð um hagsmuni skattgreiðenda. Hátt á þriðja tug manna höfðu skráð sig í samtökin nú síðdegis. Innlent 30.3.2006 21:38
Fasteignagjöld hafa hækkað um allt að 64 prósent Álögur stærstu sveitarfélaga landsins á íbúðarhúsnæði hafa hækkað langt umfram almennar verðlagsbreytingar síðustu þrjú árin segir í nýrri skýrslu ASÍ. Þetta gerist þrátt fyrir yfirlýsingar ráðamanna að um að álagningarprósenta fasteignagjalda lækki vegna hækkunar fasteignamats. Innlent 30.3.2006 21:50
Umgengni um borgina ábótavant Umhverfissvið Reykjavíkurborgar hefur hafið síðasta liðinn í átakinu Virkjum okkur en markmið þess er að fá fólk til að huga að umgengni um borgina sem víða er ábótavant. Árlega fara um 23 milljónir króna í hreinsun borgarinnar. Innlent 30.3.2006 20:25
Atvinnulöggjöf stenst stjórnarskrá Frakka Stjórnarskrárdómstóll í Frakklandi úrskurðaði í dag að ný atvinnulöggjöf sem valdið hefur miklum deilum stæðist stjórnarskrá. Þar með er allt útlit fyrir að löggjöfin nái fram að ganga, að því gefnu að Chirac Frakklandsforseti samþykki hana. Erlent 30.3.2006 20:37
Lýst eftir vitni vegna mannráns Lögreglan í Keflavík lýsir eftir ökumanni Land-Rover jeppa sem aðfaranótt síðasta sunnudags ók framhjá manninum rænt var af heimili sínu í Garðinum. Ökumaðurinn ók framhjá manninum á Biskupstungnabraut eða Laugarvatnsvegi á öðrum tímanum þá nótt og veitti honum athygli án þess þó að stöðva bifreið sína. Innlent 30.3.2006 19:10
Hálka fyrir norðan, austan og vestan Hálka er á Vestfjörðum, Norðurlandi og Norðausturlandi og éljagangur að auki á Vestfjörðum og Norðausturlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Innlent 30.3.2006 18:11
Miklir sinueldar á Mýrum Um fimmtán slökkviliðsmenn hafa barist við sinuelda á Mýrum í Borgarfirði síðan um klukkan 9 í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu í Borgarnesi er nú brunnið um 80 ferkílómetra svæði. Innlent 30.3.2006 17:59
Ekið á tíu ára pilt Ekið var á tíu ára pilt á reiðhjóli í Vestmannaeyjum á þriðja tímanum í dag. Pilturinn brákaðist en meiðsl hans voru talin minniháttar. Innlent 30.3.2006 17:52
Leikskólagjöld lækka um 30 prósent Bæjarráð Kópavogs samþykkti á fundi sínum í dag að lækka leikskólagjöld um 30 prósent. Í tilkynningu frá Kópavogsbæ um ákvörðunina segir að þessi ákvörðun sé tekin með hliðsjón af góðum rekstri bæjarsjóðs. Þar segir enn fremur að eftir þetta verði Kópavogur það stóru sveitarfélaganna þar sem verður ódýrast að búa fyrir barnafjölskyldur. Innlent 30.3.2006 17:31
Ekki tímabært að afnema verðtryggingu lána Stefna ber að því til lengri tíma litið að afnema verðtryggingu lána hér á landi en það er ekki hægt nú vegna þeirra sveiflna sem eru í þjóðfélaginu. Þetta sagði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra við utandagskrárumræðu um aukningu á skuldum þjóðarbúsins í dag. Innlent 30.3.2006 17:29
Greiði 34 milljónir hvor um sig Tveir menn voru í dag dæmdir fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar og til greiðslu 34 milljóna króna hvor um sig í sekt til ríkissjóðs. Mennirnir voru fundnir sekir um að hafa ekki staðið skil á greiðslu vörsluskatta og opinberra gjalda þegar þeir stýrðu fyrirtækinu Merkingu. Innlent 30.3.2006 17:25
Dæmdur fyrir fjárdrátt Fyrrum framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirðinga var í dag dæmdur í Hæstarétti til eins árs fangelsisvistar fyrir að hafa dregið að sér samtals sautján milljónir króna úr sjóðum sambandsins. Níu mánuðir af tólf eru skilorðsbundnir. Innlent 30.3.2006 17:17
Samningur Ríkiskaupa við Shell og Esso framlengdur Ríkiskaup hafa ákveðið að framlengja samning sinn við Shell og ESSO um kaup á eldsneyti, olíu og öðrum rekstrarvörum fyrir ökutæki og vélar ríkisins. Að sögn Júlíusar Ólafssonar, forstjóra Ríkiskaupa, var sú ákvörðun tekin í gær, en um er að ræða seinna framlengingarár á samningi við olíufélaganna frá árinu 2003 sem gerður var eftir útboð. Innlent 30.3.2006 17:08
Þrjú ár fyrir árás með hafnaboltakylfu Hæstiréttur dæmdi Hákon Örn Atlason í dag til þriggja ára fangelsisvistar fyrir hættulega líkamsárás með hafnaboltakylfu, brot gegn valdstjórninni með því að hóta lögreglufulltrúa og fjölskyldu hans ofbeldi og lífláti og vörslu á 63 grömmum af hassi. Innlent 30.3.2006 16:56
Dæmdur fyrir nauðgun 22 ára gamall karlmaður var í dag dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn nítján ára stúlku. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn hefði notfært sér ölvun stúlkunnar og svefndrunga til að hafa við hana samræði eða önnur kynferðismök. Innlent 30.3.2006 16:24
Hafa ekki haft uppi á árásarmönnum Enn hefur ekkert skýrst um hverjir það voru sem numu karlmann á sjötugsaldri af heimili sínu í Garðinum fyrir rúmri viku. Lögregla hefur rætt við vitni sem sá bílinn en það hefur ekki dugað til að finna hina seku. Innlent 30.3.2006 15:49
Verða að afhenda skattstjóra upplýsingar Viðskiptabankarnir þrír verða að afhenda skattstjórum sundurliðaðar upplýsingar um öll viðskipti bankanna með hlutabréf og og þá sem viðskiptunum tengdust á árinu 2003. Innlent 30.3.2006 15:35
Samþykkt með þriggja atkvæða mun Félagsráðgjafar hjá Reykjavíkurborg samþykktu nýgerðan kjarasamning sinn við borgina með aðeins þriggja atkvæða meirihluta. 32 af 63 sem greiddu atkvæði um samninginn sögðu já við honum en rétt tæplega helmingur, 29, greiddu atkvæði gegn honum. Innlent 30.3.2006 15:10
Glitnir og Landsbankinn hækka vexti Bankastjórn Landsbankans hefur ákveðið að hækka vexti íbúðalána um 0,25 prósentustig og verða þeir nú 4,7 prósent. Ákvörðunin er tekin eftir að Seðlabankinn tilkynnti um 0,75 prósenta hækkun stýrivaxta í morgun. Innlent 30.3.2006 14:44
200 færri á biðlistum LSH Tvö hundruð færri eru á biðlista eftir skurðaðgerðum á Landspítalanum nú en á sama tíma í fyrra. Þá sýnir bráðabirgðauppgjör fyrir fyrstu tvo mánuði ársins að rekstur spítalans er í jafnvægi. Innlent 30.3.2006 14:05
Vilja að ríkið bjóði út eldsneyti Framkvæmdastjóri Atlantsolíu segir Ríkiskaup ekki vilja ræða við fyrirtækið um hugsanlegt útboð á eldsneytiskaupum fyrir ríkið. Hann segir undarlegt að ríkið vilji áfram eiga viðskipti við stóru olíufélögin í ljósi þess að ríkisstjórnin hafi ákveðið að leita réttar síns vegna meints ólöglegs samráðs þeirra. Innlent 30.3.2006 12:31