Fréttir

Fréttamynd

Konan ekki í lífshættu

TF-SIF þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Landsspítala-Háskólasjúkrahúsi í Fossvoginum um klukkan eitt með konu sem slasaðist í umferðarslysi rétt sunnan við Laugarvatn. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild er konan ekki í lífshættu. Hún er þó með mikla ákverka og hefur verið lögð inn á handlækningadeild.

Innlent
Fréttamynd

Velti nær fjórfalt meira en fyrir ári

Hlutabréf seldust fyrir nær fjórum sinnum hærri upphæð í Kauphöll Íslands fyrstu þrjá mánuði þessa árs en á fyrsta fjórðungi síðasta árs. Alls jókst veltan í Kauphöllinni um nær 160 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Saddam ákærður fyrir fjöldmorð á Kúrdum

Talsmaður dómstólsins í Írak sem réttar yfir Saddam Hussein hefur lýst því yfir að einræðisherrann fyrrverandi verði brátt ákærður fyrir fjöldamorð á Kúrdum á ofanverðum níunda áratugnum.

Erlent
Fréttamynd

Varar Íslendinga við erfðatækninni

Hættan sem mönnum getur stafað af erfðabreyttum matvælum og lyfjum hefur ekki verið útilokuð. Þetta segir fyrrverandi umhverfisráðherra Breta sem staddur er hér á landi. Hann varar Íslendinga við því að taka upp slíka tækni í landbúnaði og lyfjaframleiðslu.

Innlent
Fréttamynd

TF-SIF sótti slasaða konu

TF-SIF þyrla Landhelgisgæslunnar er nýlent við Landsspítala-Háskólasjúkrahús í Fossvogi með konu sem slasaðist í umferðarslysi rétt sunnan við Laugarvatn.

Innlent
Fréttamynd

Lífeyrisgreiðslurnar tvöfaldast

Lífeyrisgreiðslur lífeyrissjóðanna til hvers lífeyrisþega eiga eftir að tvöfaldast á næstu þremur áratugunum, samkvæmt nýrri skýrslu sem unnin var fyrir Samtök atvinnulífsins. Heildargreiðslur sjóðanna eiga eftir að fimmfaldast á sama tímabili.

Innlent
Fréttamynd

Úrvalsvísitalan lækkar

Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni hefur lækkað um tæp 3% í morgun vegna umtalsverðrar lækkunar á hlutabréfum í þónokkrum fyrirtækjum.

Innlent
Fréttamynd

Ísland kynnt sem ráðstefnuland

Ísland var kynnt sem ráðstefnuland á Íslandskynningu í sendiráðsbústaðnum í Osló síðastliðinn fimmtudag. Það voru Rástefnuskrifstofa Ísland sem stóð fyrir kynningunni í samvinnu við Ferðamálastofu, Icelandair og Sendiráð Íslands í Osló.

Innlent
Fréttamynd

118 ferðamenn handteknir í Brasilíu

Hundrað og átján ferðamenn voru handteknir á næturklúbbi í strandbænum Natal í Norður-Brasilíu nýverið. Ferðamennirnir eru flestir frá Portúgal, Spáni, Frakklandi, Ítalíu og Noregi. Norski fréttavefurinn Aftenposten greinir svo frá en nokkrir Norðmenn voru handteknir.

Erlent
Fréttamynd

Víðtækar mótmælaaðgerðir fyrirhugaðar í Frakklandi

Frakkar búa sig nú undir alsherjarverkföll og víðtækar mótmælaaðgerðir um allt landið í dag. Tilgangur aðgerðanna er að mótmæla nýjum lögum um vinnulöggjöf í landinu. Lögin hafa vakið miklar deilur en það auðveldar atvinnurekendum að reka ungt fólk úr vinnu.

Erlent
Fréttamynd

Fartölvu stolið í Keflavík

Brotist var inn í fyrirtæki í Grófinni í Keflavík í nótt og þaðan stolið fartölvu. Vegfarandi sá til tveggja dökkklæddra manna á harða hlaupum í grennd við fyrirtækið og lét lögreglu vita, en þeir komust undan. Talið er að þeir hafi verið eldsnöggir á vettvangi.

Innlent
Fréttamynd

Bílvelta á Hellisheiði

Tveir sluppu ómeiddir og einn meiddist lítillega þegar bíll valt á Hellisheiði í gærkvöldi. Þar var krapi á veginum. Þá valt bíll við Ytri Bægisá í Hörgárdal í gærkvöldi. Ökumaður slapp ómeiddur en er grunaður um ölvun.

Innlent
Fréttamynd

Hálka og hálkublettir víða á þjóðvegum landsins

Hálka og hálkublettir eru víða á þjóðvegum landsins. Hálka er víða á Suðurlandi og snjóþekja er á Hellisheiðinni og í Þrengslum. Þá er einning hálka og snjóþekja víða á Vesturlandi og hálka eða hálkublettir eru víða á Vestfjörðum, Nirðurlandi og á Austurlandi. Ófært er um Öxi.

Innlent
Fréttamynd

Prodi með forskot á Berlusconi

Snörp orðaskipti einkenndur kappræður Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, og Romano Prodi, forystumanns stjórnarandstöðunnar, sem fram fóru í gær. Aðeins er um ein vika í þingkosningarnar á Ítalíu og hefur fylgi Prodi mælst um fimm prósent meira í könnunum.

Erlent
Fréttamynd

Moussaoui úrskurðaður sakhæfur

Kviðdómur í máli al-Qaeda liðans Zacaris Moussaoui úrskurðaði í gær að hann væri sakhæfur, en hann á nú dauðarefsingu yfir höfði sér. Þetta var einróma niðurstaða kviðdómsins í Virginíu í Bandaríkjunum.

Erlent
Fréttamynd

Réðust að stúlku og reyndu að nauðga henni

Lögreglan í Reykjavík leitar enn tveggja manna sem réðust á 19 ára stúlku á Vesturlandsvegi í fyrrinótt, óku með hana í bíl hennar upp á Hafravatnsveg og reyndu þar að nauðga henni. Stúlkan braust um og endaði bíllinn utan vegar í átökunum, en við það lögðu mennirnir á flótta.

Innlent
Fréttamynd

Ákærur gefnar út í 19 af 32 ákæruliðum

Sigurður Tómas Magnússon, sérstakur saksóknari í Baugsmálinu, hefur ákveðið að gefa út ákæru í 19 af þeim 32 ákæruliðum sem Hæstiréttur vísaði frá dómi í október síðastliðnum. Þrír eru ákærðir, Jón Ásgeir Jóhannesson, Tryggvi Jónsson og Jón Gerald Sullenberger sem nú er í fyrsta sinn ákærður fyrir aðild að málinu.

Innlent
Fréttamynd

Kannar hvort breyta þurfi jarðalögum vegna uppkaupa

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra ætlar að kanna hvort breyta þurfi jarðalögum og taka upp einhvers konar ábúðarskyldu til þess að koma í veg fyrir að efnamenn kaupi upp jarðir úti á landi sem dragi hugsanlega úr möguleikum bænda til búskapar. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.

Innlent
Fréttamynd

Ítrekaði að taka bæri upp atvinnuveiðar

Sjávarútvegsráðherra ítrekaði í dag þá skoðun sína að taka bæri upp hvalveiðar í atvinnuskyni. Hann sagði Íslendinga í samkeppni við hrefnuna um nytjastofna við landið og að hvalveiðar væru forsenda þess að hægt væri að byggja upp stofnana.

Innlent
Fréttamynd

Nú ákært í 19 af 32 liðum sem Hæstiréttur vísaði frá

Sérstakur saksóknari í Baugsmálinu hefur endurútgefið 19 af þeim 32 liðum upphaflegrar ákæru, sem Hæstiréttur Íslands vísaði frá dómi hinn 10. október sl. Að þessu sinni eru þrír ákærðir, Jón Gerald Sullenberger, Jón Ásgeir Jóhannesson og Tryggvi Jónsson. Ákæran verður þingfest fimmtudaginn 27. apríl nk. Jón Ásgeir segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í kvöld að ákvörðun um nýjar ákærur virðist hafa verið tekin þegar í upphafi. Orð dómsmálaráðherra um að dómstólar skyldu hafa síðasta orðið í málinu, hafi nú fengið merkingu í reynd enda ljóst að hinn sérstaki saksóknari hefði fengið skýr skilaboð til framkvæmda.

Innlent
Fréttamynd

Eiríkur nýr upplýsingafulltrúi OR

Eiríkur Hjálmarsson, fyrrverandi fréttamaður og núverandi aðstoðarmaður borgarstjórans í Reykjavík, hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur.

Innlent
Fréttamynd

Ísland verði þúfan sem velti þungu hlassi

Kreppudans íslensku krónunnar gæti verið fyrsta vísbending um harkalegt samdráttarskeið á heimsvísu. Þetta er álit Julian Jessop, bresks fjármálasérfræðings sem telur að á Íslandi sé að birtast fyrsta dæmið um keðjuverkandi áhrif til lækkunar á skuldabréfum, hlutabréfum og leiði jafnvel til þess að fasteignaverðsbólan springi víða um heim.

Innlent
Fréttamynd

Á þriðja tug hefur farist í hvirfilbyljum

Tuttugu og þrír hafa farist í miklum skýstrókum sem gengið hafa yfir miðvesturríki Bandaríkjanna undanfarna daga. Haglkorn á stærð við appelsínur hafa fallið af himnum og tré rifnað upp með rótum í veðurofsanum.

Erlent
Fréttamynd

Neyðarástand vegna flóða

Þúsundir manna hafa orðið að yfirgefa heimili sín á flóðasvæðunum í Mið-Evrópu. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í nokkrum héruðum Tékklands eftir að ár tóku að flæða yfir bakka sína og í nágrannalöndunum er ástandið jafnframt uggvænlegt.

Erlent