Fréttir
Sjálfstæðisflokkurinn í stórsókn Sjálfstæðisflokkurinn tvöfaldar fylgi sitt í Árborg og nær hreinum meirihluta samkvæmt nýrri skoðanakönnun NFS. Þrjátíu prósent kjósenda í Árborg hafa snúið baki við Samfylkingunni og Framsóknarflokknum samkvæmt könnuninni. Innlent 11.4.2006 20:20
Dregur úr ferðatíðni á stofnleiðum í páskavikunni Nokkrir farþegar Strætó bs. hafa haft samband við Fréttastofuna vegna þess að stætisvagnar á stofnleiðum aka ekki á tíu mínútna fresti yfir annamesta tíma dagsins nú í páskavikunni. Eins og gefur að skilja hefur þetta valdið sumum vanda sem ferðast með strætó til vinnu sinnar. Innlent 11.4.2006 19:21
Samið um leigu á 800 fermetra húsnæði til 20 ára Starsfemi höfuðstöðva Landbúnaðarstofnunar á Selfossi flyst í nýtt 800 fermetra húnsæði á haustdögum. Leigusamningur til næstu 20 ára var undirritaður við eignarhaldsfélagið Merkiland í dag. Jafnframt var undirritaður samstarfssamningur við ráðgjafafyrirtækið Hið íslenska ráðgjafahús um aðstoð við stefnumótun og rekstur nýrrar stofnunar. Innlent 11.4.2006 20:52
Danska sendiráðið í Damaskus opnar á ný Danska sendiráðið í Damaskus, höfuðborg Sýrlands hefur verið opnað á ný. Á heimasíðu danska ríkisútvarpsins segir að farið verði í að afgreiða umsóknir um dvalarleyfi í Sýrlandi sem fyrst. Starfsemi sendiráðsins hefur legið niðri síðan sendiráðinu var lokað í febrúar þegar deilan um múhamesðteikningarnar stóð sem hæst. Erlent 11.4.2006 19:44
Erfitt að sanna ákæru um rangar sakargiftir Jóhannes Jónsson í Bónus hefur kært Jón Gerald Sullenberger fyrir rangar sakargiftir, sem hann segir hafa orðið til þess að hann lenti í þriggja ára lögreglurannsókn. Verjandi Jóns Geralds segir að erfitt geti verið að sanna ákæru um rangar sakargiftir. Innlent 11.4.2006 19:08
Berlusconi vill ríkisstjórn olívubandalags og hægri flokka Romano Prodi lýsti í dag yfir sigri vinstrimanna í þingkosningunum á Ítalíu en Silvio Berlusconi forsætisráðherra fer fram á endurtalningu. Hann leggur einnig til að fylkingarnar tvær sameinist í stórri ríkisstjórn sem allir landsmenn geti sætt sig við. Miðað við fyrstu viðbrögð úr herbúðum Prodis verður að teljast ólíklegt að tillaga Berlusconis verði að veruleika. Erlent 11.4.2006 18:59
ESSO hækkar bensínverð Olíufélagið ESSO hækkaði í dag verð á bensínlítranum um kr. 3,60 og dísel- og gasolíu um kr. 2,40. Innlent 11.4.2006 18:40
Íran í hóp með kjarnorkuvæddum ríkjum Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, tilkynnti í dag að Íran hefði bæst í hóp þeirra þjóða sem hefðu yfir kjarnorkutækni að ráða. Hann sagði Írana staðráðna í að hefja auðgun úrans á sama stigi og þær þjóðir sem nýti sér kjarnorku. Talsmaður Bush Bandaríkjaforseta sagði málið ekki taka rétta stefnu og ef fram haldi sem horfi verið bandarísk yfirvöld að ræða næstu skref við þær þjóðir sem eiga sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Erlent 11.4.2006 17:45
Berlusconi segir engan geta hrósað sigri Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu og leiðtogi bandalags hægriflokka, segir engan flokk geta hrósað sigri í þingkosningunum sem fóru fram í gær og fyrradag. Hann segist aðeins sætta sig við sigur ólívubandalags Romanos Prodis eftir að búið verði að fara yfir atkvæðaseðla. Erlent 11.4.2006 17:20
Vilja sérkjörin burt sem fyrst Engar efndir hafa orðið á því að eftirlaunalögum yrði breytt þó ár sé síðan forsætisráðherra lofaði að það yrði gert. Þetta sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, á þingi í dag og deildi á forsætisráðherra sem sagði málið ekki stranda á sér. Innlent 11.4.2006 17:15
Hæstiréttur staðfesti dóm vegna stórfellds gáleysis Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm héraðsdóms yfir íslenska ríkinu og fæðingarlækni vegna stófellds gáleysis þegar barn lést skömmu eftir að það fæddist. Bætur voru þó lækkaðar. Einn dómari skilaði séráliti og vildi hærri bætur. Innlent 11.4.2006 16:55
Hjördís Hákonardóttir skipuð í Hæstarétt Hjördís Björk Hákonardóttir, héraðsdómari við Héraðsdóm Suðurlands, hefur samkvæmt tillögu Geirs H. Haarde, setts dómsmálaráðherra, verið skipuð dómari við Hæstarétt Íslands frá og með 1. maí næstkomandi. Innlent 11.4.2006 16:25
Prodi segist ætla að mynda sterka ríkisstjórn Romano Prodi, leiðtogi ólívubandalags, fagnaði í morgun sigri eftir að ljóst var að mið- og vinstriflokkarnir að baki honum hefðu náð meirihluta í eftir og neðri deild ítalska þingsins. Prodi segist ætla að mynda sterka ríkisstjórn þrátt fyrir að talningu atkvæða sé formlega ekki lokið og Silvio Berluscon, forsætisráðherra, og leiðtogi bandalags hægri flokka, hafi ekki játað sig sigraðann. Erlent 11.4.2006 15:55
Telja þorskstofninn í Barentshafi mun stærri Vísindamenn við VNIRO rannsóknastofnunina í Rússlandi segja að skipulagt vanmat hafi átt sér stað í mælingum Alþjóðahafrannsóknaráðsins, ICES, á þorskstofninum í Barentshafi á undanförnum árum. Innlent 11.4.2006 16:22
Olmert tekur formlega við Ríkisstjórn Ísraels hefur formlega bundið enda á forsætisráðherratíð Ariels Sharons og úrskurðað hann varanlega ófæran um að gegna embættinu. Þetta var einróma niðurstaða ráðherra í stjórninni og tekur Ehud Olmert því við embættinu en hann hefur verið starfandi forsætisráðherra frá því Sharon fékk alvarlegt heilablóðfall í byrjun árs. Erlent 11.4.2006 15:37
Engin ágreiningur um varnarmál Forsætisráðherra og utanríkisráðherra segja engan ágreining sín á milli um varnarmál. Stjórnarandstæðingar sökuðu utanríkisráðherra um að upplýsa ritstjóra Morgunblaðsins betur um gang varnarviðræðna við Bandaríkin en utanríkismálanefnd. Innlent 11.4.2006 16:01
Minnst 40 féllu í sprengjuárás í Pakistan Að minnsta kosti 40 féllu og fjölmargir særðust þegar öflug sprengja sprakk í garði í hafnarborginni Karachi í Pakistan í dag. Múslimar höfðu safnast þar saman til að fagna fæðingardegi Múhameðs spámanns. Erlent 11.4.2006 15:31
Ráðlagt að sniðganga fundi með Hamas-liðum Sameinuðu þjóðirnar hafa ráðlagt yfirmönnum hjálparsamtaka á þeirra vegum að sniðganga fundi með stjórnmálaleiðtogum Hamas-samtakanna. Þeir er einnig ráðið frá því að eiga samskipti við forystumenn palestínsku heimastjórnarinnar sem Hamas-liðarnir fara fyrir. Erlent 11.4.2006 14:54
29 ákærðir vegna hryðjuverkanna í Madríd 29 menn voru í dag ákærðir fyrir aðild að sprengjuárásunum í Madríd á Spáni í mars 2004 sem urðu hátt í 200 manns að bana. Rúmlega 1700 manns særðust í hryðjuverkaárásinni en herskáuum múslimum hefur verið kennt um. Erlent 11.4.2006 14:50
LSH dæmt til að greiða bætur Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Landspítalann Háskólasjúkrahús til að greiða manni sem gekkst undir aðgerð á hné rúmar sex milljónir í bætur vegna varanlegrar örorku sem hann hlaut vegna hennar. Innlent 11.4.2006 14:42
Prodi fagnar sigri talskir stjórnmálamenn eru búnir að vera í sannkallaðri rússíbanaferð í nótt. Eftir að Romano Prodi hafði þegar fagnað sigri í gærkvöldi, missti Ólívubandalag hans meirihlutann í öldungadeildinni. Síðustu atkvæðin utan úr heimi færðu því meirihlutann aftur, en tæpara getur það ekki staðið. Erlent 11.4.2006 14:37
Afkoma Alcoa umfram væntingar Gengi hlutabréfa í bandaríska álframleiðandanum Alcoa Inc. hækkuðu um 6,4 prósent í fyrstu viðskiptum í kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum í dag. Skömmu áður greindi fyrirtækið frá því að hagnaður fyrirtækisins hafi rúmlega tvöfaldast á fyrsta ársfjórðungi 2006 vegna hás álverðs og mikillar eftirspurnar eftir áli. Viðskipti erlent 11.4.2006 14:38
Norðmenn finna olíu í Írak Gengi bréfa í norska olíufyrirtækinu DNO hækkuðu um tæp 11 prósent í kauphöllinni í Ósló í Noregi í gær eftir að forsvarsmenn fyrirtækisins greindu frá því að fyrirtækið hefði fundið olíu í Kúrdahéruðunum í norðurhluta Íraks. Ekki liggur ljóst fyrir um hversu mikið magn er að ræða. Viðskipti erlent 11.4.2006 13:59
Aukin samþjöppun í norsku laxeldi Norska laxeldisfyrirtækið Pan Fish hefur keypt tæplega 18 prósenta hlut í Fjord Seafood. Í Morgunkorni Glitnis banka segir að samþjöppun haldi áfram í norsku laxeldi en Pan Fish á nú samtals 57 prósenta hlut í Fjord og undirbýr yfirtökutilboð. Viðskipti erlent 11.4.2006 12:28
Jón Gerald bar ljúgvitni gegn Jóhannesi Lögmaður Jóhannesar Jónssonar í Bónus segir Jón Gerald Sullenberger hafa borið ljúgvitni gegn Jóhannesi hjá lögreglu og á þeirri lygi hafi ákæra gegn honum verið byggð í Baugsmálinu. Jóhannes hefur kært Sullenberger til ríkislögreglustjóra. Þá hefur hann kvartað undan yfirmanni efnahagsbrotadeildar lögreglunnar og ríkislögreglustjóra við umboðsmann Alþingis. Innlent 11.4.2006 12:12
Gullverð ekki hærra í 25 ár Verð á gulli fór yfir 600 dollara á únsu á mörkuðum í New York í Bandaríkjunum í dag og hefur það ekki verið hærra í aldarfjórðung. Ástæðan eru mikil kaup fjárfesta, sem vilja tryggja sig fyrir yfirvofandi verðbólgu og verðhækkunum í framtíðinni. Viðskipti erlent 11.4.2006 11:38
Búist við hærri stýrivöxtum í Japan Stjórn Seðlabanka Japans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum, eða nálægt núlli. Sérfræðingar spá að stjórnin hækki stýrivexti um 0,25 prósent í júlí eða ágúst til að halda aftur af verðbólgu. Viðskipti erlent 11.4.2006 10:29
Olíuverð nálgast sögulegu hámarki Verð á hráolíu nálgaðist sögulegt hámark í dag í kjölfar aukinnar spennu á milli Bandaríkjanna og Írans. Verð á Brent Norðursjávarolíu fór í 69,06 dollara á tunnu í kauphöll Lundúna í Bretlandi en verð á hráolíu fór í 69,11 dollara á tunnu á mörkuðum í New York í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 11.4.2006 09:50
Hestahvíslarinn Monty Roberts kominn til landsins Einn þekktasti hestahvíslari heims, Monty Roberts er kominn til landsins. Monty er kominn hingað til lands til að sýna íslendingum hvernig hann nálgast og temur hross á sinn einstaka hátt. Sýning þessa meistara verður haldin á skírdag í Reiðhöllinni í Víðidal og er bara um eina sýningu að ræða. Innlent 11.4.2006 09:36
Vill ekki verða forseti Frakklands Dominique du Villepin, forsætisráðherra Frakklands, sagði í sjónvarpsviðtali í gær að hann hefði engan áhuga á að verða forseti landsins eins og haldið hefur verið fram. Þá sagðist hann ekki vera fallinn í ónáð hjá Jacques Chirac forseta landsins í kjölfar umdeildrar atvinnulöggjafar stjórnarinnar sem dregin var til baka vegna mikillar óánægju námsmanna og verkalýðsfélaga. Erlent 11.4.2006 08:09