Fréttir
Ríkisstjórnin verði að koma að hugsanlegri sátt Forseti ASÍ vill að ríkisstjórnin komi að hugsanlegri sátt við Samtök atvinnulífsins sem hugsuð er til að koma í veg fyrir uppsögn kjarasamninga í haust. Fjármálaráðherra segir ríkisstjórnina vilja leggja sitt af mörkum til að ná böndum á verðbólgunni. Innlent 2.6.2006 19:16
Lögleyfing heróíns gefur góða raun í Sviss Nýjum sprautufíklum í Zürich hefur snarfækkað eftir að yfirvöld fóru sjálf að láta heróínneytendum efnið í té og útvega þeim aðstöðu til að sprauta sig. Erlent 2.6.2006 18:22
Ásakanir um fleiri fjöldamorð Nýjar ásakanir eru komnar fram um að bandarískir hermenn hafi myrt íraska borgara með köldu blóði, að þessu sinni í bænum Ishaqi í mars síðastliðnum, þar sem ellefu manns lágu í valnum. Fyrrverandi yfirmaður Abu Ghraib-fangelsisins dregur í efa að fjöldamorðin þar og í Haditha séu einsdæmi. Erlent 2.6.2006 18:20
Halldór hyggst segja af sér formennsku í Framsóknarflokknum Halldór Ásgrímsson hyggst segja af sér sem formaður Framsóknarflokksins. Óljóst er á þessu stigi málsins hvort eða hvaða áhrif ákvörðun hans hefur á ríkisstjórnina. Innlent 2.6.2006 18:12
Enn mynda Framsókn og Sjálfstæðismenn meirihluta Sjálfstæðismenn og Framsóknarflokkur í Árborg hafa náð meirihlutasamkomulagi í bæjarstjórn Árborgar. Þegar hefur verið ráðið í stöðu bæjarstjóra og var Stefanía Katrín Karlsdóttir fyrrverandi rektor Tækniháskólans verið ráðin til starfans. Þorvaldur Guðmundsson, framsóknarflokki mun gegna embætti forseta bæjarstjórnar. Þórunn Jóna Hauksdóttir verður formaður bæjarráðs fyrsta árið en þá mun Eyþór Arnalds taka við því embætti. Innlent 2.6.2006 17:37
Verður samið um þinglok í dag? Það ræðst á næstu klukkustundum hvort samið verði um að ljúka sumarþingi, jafnvel á morgun. Þreifingar eiga sér nú stað milli stjórnar og stjórnaranstöðu um þau mál sem harðast er deilt um og hvort fresta eigi þeim til næsta hausts. Innlent 2.6.2006 17:34
Breytingar í stjórn Wyndeham Stjórn breska prentfyrirtækisins Wyndeham, sem er í meirihlutaeigu Dagsbrúnar, hefur látið af störfum og ný stjórn tekin við. Nýir stjórnarmenn eru stjórnarmenn í Dagsbrún. Viðskipti innlent 2.6.2006 17:14
Lítil fjölgun starfa í Bandaríkjunum Fjölgun starfa í Bandaríkjunum í síðasta mánuði var sú minnsta í 7 mánuði auk þess sem dró úr launahækkunum á sama tíma. Hvort tveggja var undir væntingum markaðsaðila og hefur í kjölfarið dregið úr verðbólguvæntingum . Þá eru horfur á að stýrivaxtahækkanir séu á næsta leiti í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 2.6.2006 17:00
Ánægður með niðurstöður Hæstaréttar Sigurjón M. Egilsson, fréttastjóri Fréttablaðsins, er ánægður með dóm Hæstaréttar í máli Jónínu Benedikstdóttur gegn 365 prentmiðlum. Fréttablaðið fékk tölvubréf Jónínu afhent á ný í morgun en Sýslumaðurinn í Reykjavík tók tölvubréfin í sína vörslu fyrr í vetur. Innlent 2.6.2006 15:38
Sjálfstæðisflokkur og Samfylking í bæjarstjórn Akureyrar Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hafa myndað meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar. Oddvitar flokkanna, þeir Kristján Þór Júlíusson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, og Hermann Jón Tómasson, oddviti Samfylkingarinnar, tilkynntu þetta á Ráðhústorginu á Akureyri í dag. Kristján Þór verður áfram bæjarstjóri, að minnsta kosti fyrst um sinn, en Hermann Jón verður formaður bæjarráðs. hann tekur svo væntanlega við embætti bæjarstjóra eftir þrjú ár. Innlent 2.6.2006 14:57
Sjálfstæðismenn og Samfylking líklega saman í meirihluta á Akureyri Hermann Jón Tómasson og Kristján Þór Júlíusson, hafa fundað á Ráðhústorginu á Akureyri í dag. Búist er við að þeir gefi frá sér yfirlýsingu um meirihlutamyndun í bæjarstjórn Akureyrar hvað úr hverju. Viðræður hafa staðið síðustu daga. Innlent 2.6.2006 13:42
Litháar safna undirskriftum til heiðurs íslensku þjóðinni Hafin er undirskriftasöfnun í Litháen til að þakka íslensku þjóðinni fyrir að hafa verið fyrst allra til að viðurkenna sjálfstæði landsins. Fram kemur í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands að við hátíðlega athöfn í ráðhúsinu í Vilnius í gær hafi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tekið á móti tilkynningu um undirskriftasöfnunina. Innlent 2.6.2006 12:33
Þrjú stéttarfélög sameinuð á Vesturlandi Verkalýðsfélag Borgarness, Verkalýðsfélagið Valur í Dalabyggð og Verkalýðsfélagið Hörður í sveitarfélögunum sunnan Skarðsheiðar hafa öll sameinast í Stéttarfélag Vesturlands. Innlent 2.6.2006 11:19
Vilja auka einkarekstur í heilbrigðisþjónustu Einkarekstur í heilbrigðisþjónustunni er það sem koma skal að mati Samtaka atvinnulífsins. Framkvæmdastjóri samtakanna telur að einkarekstur hafi gefið góða raun og hann vill sjá aukna þróun í þá átt. Innlent 2.6.2006 11:26
Áhlaup á hús í Lundúnum Einn maður særðist í skotbardaga þegar breska lögreglan gerði áhlaup á hús í austurhluta Lundúna í morgun. Maðurinn mun ekki vera í lífshættu og var þegar fluttur á nærliggjandi sjúkrahús. Erlent 2.6.2006 10:45
Rússar segja samkomulag útiloka hernaðaraðgerðir Samkomulag utanríkisráðherra stórveldanna um næstu skref í kjarnorkudeilunni við Írana útilokar beitingu hervalds. Þetta sagði Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands í morgun. Erlent 2.6.2006 10:42
Sýrlendingar komu í veg fyrir hryðjuverk Öryggissveitum á Sýrlandi tókst í morgun að koma í veg fyrir að hryðjuverkamönnum tækist að leggja undir sig mannlausa byggingu í nágrenni ríkissjónvarpsins í landinu. Erlent 2.6.2006 09:11
Ekki svartsýnir við upphaf laxveiðitímabils Engin lax veiddist í Norðurá í gær, þegar veiðitímabílið hófst þar og stjórnarmenn í Stangveiðifélagi Reykjavíkur reyndu þar fyrir sér. Menn eru þó síður en svo svartsýnir á framhaldið, enda var áin óvenju vatnsmikil, köld og gruggug í gær. Innlent 2.6.2006 09:51
Læknanemar mættu ekki til vinnu Læknanemar á fjórða og fimmta ári mættu ekki til vinnu sinnar á Landspítalanum í morgun. Það gerðu þeir heldur ekki í gær til þess að mótmæla því sem þeir kalla kjaraskerðingu af hálfu stjórnenda spítalans. Lækningaforstjóri Landspítalans segir hins vegar að laun ungra lækna hafi hækkað langmest í nýgerðum kjarasamningum. Innlent 2.6.2006 09:45
Lyfjafyrirtæki berjast um keppinaut Líkur er sagðar á því að breski lyfjaframleiðandinn GlaxoSmithKline ætli að bjóða rúma 15 milljarða Bandaríkjadali, jafnvirði 1.078 milljarða íslenskra króna , í bandaríska lyfjafyrirtækið Pfizer Inc., sem er eitt það stærsta í heimi. Verði af kaupum GlaxoSmithKline í Pfizer Inc. er talið víst að það muni tryggja stöðu fyrirtækisins á alþjóðavettvangi. Viðskipti erlent 2.6.2006 11:12
SA gera verkalýðshreyfingunni tilboð Samtök atvinnulífsins hafa gert verkalýðshreyfingunni tilboð til að koma í veg fyrir að kjarasamningum verði sagt upp um næstu áramót. Innlent 2.6.2006 11:02
Skógareldar í Kína slökktir Slökkviliðsmönnum tókst í nótt að slökkva elda sem hafa logað í 11 daga í skóglendi í Hei-long-jang-kantónu í Kína. Um það bil 11 þúsund slökkviliðs- og lögreglumenn, auk skógarvarða, tóku þátt í baráttunni við eldana. Talið er að um 50 þúsund hektara svæði hafi orðið eldunum að bráð. Erlent 2.6.2006 09:41
18 mánaða fangelsi fyrir árás á lögregluþjóna Hæstiréttur Íslands staðfesti í gær átján mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni fyrir árás á tvo lögregluþjóna. Maðurinn lagði til lögregluþjónanna með hnífi eftir að lögreglan hafði afskipti af honum á heimili hans. Innlent 2.6.2006 09:36
Forsvarsmenn byggingarfélags dæmdir til að greiða milljónir Tveir forsvarsmenn byggingarfélags voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdir í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 22,2 milljóna hvor í sekt fyrir að standa ekki skil á virðisaukaskatti og opinberum gjöldum. Innlent 2.6.2006 09:32
Sátt um tillögur Sátt náðist um tillögur í fyrirhuguðum viðræðum við Írana um kjarnorkumál þeirra á fundi utanríkisráðherra stórveldanna fimm sem sæti eiga í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, auk Þýskalands, í Vín í Austurríki í gær. Erlent 2.6.2006 09:15
SA með hugmyndir að samkomulagi Samtök atvinnulífsins hafa mótað hugmyndir að samkomulagi um lausn á aðsteðjandi vanda á vinnumarkaði vegna verðbólgu og væntanlegrar endurskoðunar kjarasamninga á hinum almenna vinnumarkmaði í nóvember. Verkalýðshreyfingin er nú að fara yfir hugmyndirnar sem mótaðar voru eftir óformlegar viðræður ýmissa forystumanna verkalýðshreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins. Innlent 2.6.2006 09:55
15 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot Hæstiréttur dæmdi í gær karlmann í 15 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot. Hann var ákærður fyrir að hafa haft samræði við konu í samkvæmi á meðan hún gat ekki spyrnt á móti sökum ölvunar og svefndrunga. Innlent 2.6.2006 09:09
NYSE og Euronext sameinast Stjórn kauphallarinnar í New York (NYSE) í Bandaríkjunum hefur ákveðið að kaupa samevrópska hlutabréfamarkaðinn Euronext og munu markaðirnir renna saman í einn. Með kaupunum verður til fyrsta kauphöllin sem hefur starfsemi beggja vegna Atlantshafsins. Höfuðstöðvar kauphallarinnar í Bandaríkjunum verður í New York en evrópskar höfuðstöðvar verða í París og Amsterdam. Viðskipti erlent 2.6.2006 09:40
Eiður Smári í Kuwait Flestir Íslendingar bíða nú spenntir eftir því að vita hver næsti áfangastaður knattspyrnuhetjunnar Eiðs Smára Guðjohnsen verður en búist er við að tilkynnt verði um vistaskipti hans frá Chelsea á allra næstu dögum. Athygli vekja tvær fréttagreinar um Eið Smára á fréttavefnum Vitalfootball en þar segir m.a. að Eiður Smári hafi hafnað boði sjónvarpsstöðvar á Íslandi um að lýsa leikjum á HM. Sport 2.6.2006 00:43
D og V ræðast við í Mosfellsbæ Sjálfstæðismenn og Vinstri grænir hófu í gærkvöldi viðræður um myndun meirihluta í bæjarstjórn Mosfellsbæjar eftir að Framsóknarmenn slitu í gær viðræðum við Vinstri græna og Samfylkingu. Innlent 2.6.2006 08:57